Morgunblaðið - 13.04.1995, Qupperneq 1
1995
■ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL
BLAÐ
KR-ingar meistarar
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
KR-ingar tryggðu sér íslandsmeistaratitlinn í keilu karla þegar þeir lögðu Keilu-
landssveitina 2265:2218 í oddaleik í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð í gærkvöldi. KR-ing-
ar unnu síðasta leikinn örugglega 774:735 og fögnuðu sigri 2:1. Hér á myndinni
fyrir ofan fagna KR-ingar meistaratitlinum. Frá vinstri: Kristinn Jónsson, formað-
ur KR, Gunnar Þ. Gunnarsson, Björn Sigurðsson, Jónas Gunnarsson, fyrirliði,
Kristján Sigurjónsson, Davíð Löve og Sigurjón Egilsson, formaður keilud. KR.
Ólafur í viðræðum
við Aftureldingu
ÓLAFUR Stefánsson,
vinstrihandar skytta
landsliðsins úr Val, hefur
verið í viðræðum við Aft-
ureldingu um að gerast
leikmaður með félaginu
næsta keppnistímabil.
Valsmenn vi\ja hins vegar
halda í Ólaf og reyna allt
sem þeir geta til að hann
verði áfram lýá félaginu.
Valsmenn mega illa við þvi
að missa Ólaf þvi allt bend-
ir til þess að Dagur Sig-
urðsson leiki í Sviss næsta
vetur og eins eru þeir Júl-
íus Gunnarsson og Jón
Kristjánsson á förum í
nám erlendis. Afturelding
hefur þegar fengið Bjarka
Sigurðsson í sínar raðir,
en misst Jason Ólafsson,
sem leikur með Brixen á
Ítalíu næsta vetur.
Manchester United
komið á Wembley
VARNARMENNIRNIR Steve Bruce, fyrirliði og
Gary Pallister gerðu mörk Manchester United
með skalla og tryggðu liði sínu sæti í úrslitum
ensku bikarkeppninnar með því að vinna Cryst-
al Palace 2:0 í gærkvöldi. Bæði mörkin komu i
fyrri hálfleik. United mætir Everton í úrslitum
á Wembley eins og árið 1985. Roy Keane var
rekinn af íeikvelli eftir slagsmál við Darren
Patterson á 52. raínútu og hinn síðarnefndi fór
sömu leið. United var betra liðið allan leikinn
ogsigurinn aldrei í hættu í seinni hálfleik.
í úrvalsdeildinni voru þrir leikir. Nottingham
Forest færðist nær því að tryggja sér Evrópu-
sæti með því að vinna Norwich, 0:1, á útivelli
og er nú í þriðja sæti deildarinnar. Robbie Fowl-
er skoraði sigurmark Liverpool á elleftu stundu
gegn Arsenal, 0:1. Chelsea, sem leikur í undanúr-
slitum í Evrópukeppni bikarhafa, mátti sætta
sig við tap á heimavelli fyrir Southampton, 0:2.
AC Milan leikurtvo
leiki á velli Reggiana
AC Milan og Genúa verða að leika tvo deildar-
leiki í 100 km fjarðlægð frá völlum sínum og
greiða 1,9 millj. kr. ísl. í sekt. Það var ítalska
knattspyrnusambandið sem ákvað þetta vegna
morðsins á stuðningsmanni Genúa, sem var
stunginn til bana fyrir utan völl Genúa 29. jan-
úar — fyrir leik liðanna þar. Forráðamenn AC
Milan hafa tilkynnt að liðið leiki gegn Torínó
23. apríl og Foggia 7. maí á heimavelli Regg-
iana, Eeggio Emilia, sem tekur aðeins 20 þús.
áhorfendur. Forráðamenn Genúa hafa ekki
ákveðið hvar liðið leikur gegn Sampdoria 30.
aprO og Juventus 14. maí.
■ ANGELO Peruzzi, markvörður
Juventus, verður frá keppni í mánuð
vegna meiðsla — tognaði á vöðva á
fæti. Hann mun því ekki getað leikið
seinni UEFA-leikinn gegn Dort-
mund og heldur ekki Gianluca
Vialli.
■ ENN hækkar sá orðrómur um
að Eric Cantona gangi til liðs við
Inter Mílanó. Forráðamenn Manc-
hester United kannast ekkert við
að kappinn sé á förum frá félaginu.
Blöð í Englandi segja að Cantona
eigi að fá 2,6 millj. ísl. kr. í vikulaun
— nokkuð sem erfitt er að hafna.
Cantona er í leikbanni þar til í októ-
ber og má ekki spila í neinu landi
þangað til.
■ OLÆTI brustust út meðal stuðn-
ingsmanna PSG og Marseille fyrir
utan Parc des Princes leikvanginn
í París fyrir og eftir bikarleik liðanna
í undanúrslitum á þriðjudagskvöld.
147 voru handteknir af lögreglu eftir
að upp úr sauð og meiddust fimm
lögreglumenn við það að skarka leik-
inn og eru tveir þeirra enn á sjúkra-
húsi. PSG sigraði í umræddum leik
2:0 og leikur til úrslita.
HANDKNATTLEIKUR
Okkur tókst að keyra yfir þá
- sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, eftir stórsigur á landsliði Japans
„VIÐ ákváðum að keyra eins hratt á þá eins og við mögulega
gátum og það tókst. Við keyrðum hreinlega yfir þá. Það var smá
vandræðagangur með smuguskotin í gegnum vörnina hjá okkur
í fyrri hálfleik en við settum fyrir þann leka í síðari hálfleik. Við
vissum reyndar ekkert um þetta lið og við förum í síðari leikinn
með öðru hugarfari og prófum eitthvað annað,“ sagði Þorbergur
Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, eftir stórsigur íslendinga gegn
Japönum, 39:18, í Smáranum i gærkvöldi.
Þorbergur sagði að þetta jap-
anska lið ætti á brattann að
sækja með að komast í 16-liða úr-
slit á HM. „En við
héldum einbeiting-
unni út allan leikinn
Valur B.
Jónatansson . . ...
skrifar og það er jákvætt.
Við eigum örugg-
lega eftir að lenda í því í HM að
þurfa að vinna stórt, eins og til
dæmis Bandaríkin. Það er mikil
samkeppni um stöður í liðinu og
menn lögðu sig greinilega fram af
fullum krafti í leikinn. Sigmar
Þröstur varði veL og svo kom Valdi-
mar mjög sterkur út í síðari hálf-
leiknum og naut sín vel í þessum
mikla hraða. Einar Gunnar kom
einnig vel út með því að leysa inn
á linuna. Við höfum verið að prófa
þetta á æfingum og þetta lofar
góðu. Við lítum á þennan leik fyrst
og fremst sem fyrsta leikinn af níu
í undirbúningi okkar fyrir HM,“
sagði Þorbergur.
Hraðlnn á vel við mig
Valdimar Grímsson, fyrirliði, var
í miklu stuði. Hann lék aðeins seinni
hálfleikinn og skoraði í honum 11
mörk. „Þetta er handbolti sem er
að mínu skapi. Ég finn mig alltaf
vel þegar það eru nógu margar
sóknir og ég fæ að hlaupa nógu
mikið. Eg ætti kannski að enda
ferilinn í Japan? Við vorum ákveðn-
ir í að byija þetta lokatímabil vel
og ég held að við getum verið sátt-
ir við þennan leik. Við lékum góðan
handbolta og skemmtilegan fyrir
áhorfendur og sýndum að við erum
að þessu af fullri alvöru og ætlum
okkur langt. Þetta japanska lið er
táknrænt lið fyrir Afríku- og Asíu-
þjóðir, með litla fljóta leikmenn.
Þeir eru greinilega þreyttir því þeir
hafa æft stíft og því ættum við
ekki alveg að afskrifa þá,“ sagði
fyrirliðinn.
■ Leikurinn / D3
KORFUKNATTLEIKUR: HERBERT ARNARSON NYUÐIARSINS OG SA BESTI / D4