Morgunblaðið - 13.04.1995, Page 3
2 D FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
faémR
FOLK
■ SIGURÐUR Einarsson kast-
aði spjótinu 77,06 m á Sea Ray
Relays í Knoxville í Tennesse
og varð annar. Sigurvegari var
Joakim Nilsson, sem kastaði
78,80 m.
■ GUNNHILDUR Hinríksdótt-
ir úr HSÞ bætti árangur sinn í
sjöþraut um tæp 700 stig í Georg-
íu um sl. helgi, er hún fékk 4.320
stig og varð sigurvegari.
■ GUNNHILDUR hljóp 100 m
grindahlaup á 15,89 sek., stökk
1,53 m í hástökki, varpaði kúlunni
8,10 m, hljóp 200 m á 26,21 sek.,
stökk 5,54 m í langstökki, kastaði
spjótinu 28,32 m og hljóp 800 m
á 2.38,05 mín. Hún setti persónu-
legt met í fimm greinum.
■ SNJÓLAUG Vilhelmsdóttir
úr UMSE setti persónulegt met í
400 m grindahlaupi — 60,82 sek.
■ FRÍÐA Rún Þórðardóttir úr
Ármanni, varð sigurvegari í 800
m hlaupi á 2.17,34 mín. og varð
önnur í 1500 m hlaupi á 4.46,80
mín.
■ GUÐRÚN Amardóttir úr
Ármanni gat ekki keppt á mót-
inu, þar sem hún á við bakmeiðsli
að stríða.
UM HELGINA
Handknattleikur
Vináttulandsleikur
ísafj.: Ísland-Japan.........kl. 16.30
•Ef ekki verður flogið til ísafjarðar
verður leikið í Smáranum í Kópavogi á
sama tíma.
EM heyrnarlausra
Laugardagur:
Framhús: ísland - Króatía.......kl. 13
Framhús: Danmörk - Svíþjóð......kl. 15
Framhús: Þýskaland - Ítalía.....kl. 17
Sunnudagur:
Framhús: ísland - Þýskaland.....kl. 13
Framhús: Ítalía - Danmörk.......kl. 15
Framhús: Króatía - Svíþjóð......kl. 17
Verðlaunaafhending............kl. 18.30
Skíði
■Icelandaír Cup mótaröðin í alpagreinum
heldur áfram í Skálafelli á morgun, föstu-
dag, og laugardag. Keppt verður i stórsvigi
karla og kvenna báða dagana og hefst
keppni kl. 09.00.
■Skíðafélag Reykjavíkur stendur fyrir
páskaeggjamóti í göngu í dag, skírdag, og
hefst kl. 11 við gamla Breiðabliksskálann
í Bláfjöllum. Mótið er ætlað almenningi og
er vegalengd aðeins einn kilómetri. Eftir
gönguna verða páskaegg dregin út úr hópi
þátttakenda.
■Skíðastaðatrimm verður í Hlíðarfjalli við
Akureyri á laugardaginn og hefst gangan
kl. 14 við Strýtu. Gengnir eru 8 og 20 km.
Hægt er að skrá sig í Skíðahótelinu milli
kl. 12.30 og 13 sama dag.
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
/ kvöld:
Meistaraflokkur karla:
Gervigras: Þróttur-ÍR...........kl. 20
Mánudagur, annar í páskum:
Meistaraflokkur kvenna:
Gervigras: Víkingur- Valur......kl. 20
Þriðjudagur, 18. apríl:
Meistarafiokkur karla:
Gervigras: Vikingur-ÍR.....,,...kl. 20
Víðavangshlaup
Víðavangshlaup Aftureldingar í Mosfellsbæ
fer fram laugardaginn 15. apríl og hefst á
Varmárvelli kl. 13.30. Hlaupið er i átta ald-
ursflokkum, mislangt eftir aldri. Þáttöka
er tilkynnt} síma 667089 eða á staðnum.
Blak
Oddaleikur Víkings og HK í úrslitakeppni
kvenna fer fram i Víkinni á laugardaginn
kl. 14.
■Verðlaunaafhending fer fram eftir leikimi.
BLAK
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞAÐ vantaði ekki stemminguna í leikmenn HK eftir sigurleiklnn í gærkvöldi, t.v. býður Andrew Hancock, Einarl Ásgeirssyni upp
í dans en Vignir Hlöðversson fyrlr miðju, grípur um höfuðið á “prímusmótor" og leikstjórnanda HK, Guðbergi E. Eyjólfsson en
Jóhann Slgurðsson horfir með velþóknun á látbragð félaga sinna.
HK-menn meistari
þnðja anð i röð
Guðmundur
Helgi
Þorsteinsson
skrifar
Leikmenn HK, kórónuðu leiktíð
sína, í íslandsmótinu ívetur
og hömpuðu íslandsmeistarat-
itlinum í þriðja sinn á þremur
árum. Leikmenn HK hafa sýnt
allar sýnar bestu hliðar í úrsli-
takeppninni og verið mun
sprækari en andstæðingarnir
úr Þrótti sem þó unnu deilda-
keppninna.
Lið HK tryggði sér íslandsmeist-
aratitilinn með glæsibrag í
Digranesinu í gærkvöldi. Sigurinn
varð ekki langsóttur
því HK vann fjórða
leikinn í þremur
hrinum gegn engri.
HK byrjaði leikinn
af fítonskrafti og leikmenn Þróttar
vissu varla hvað á sig stóð veðrið
því HK-ingar kláruðu hrinuna á
aðeins 13. mínútum og yfirðburð-
irnir voru algerir. Sóknimar komu
af öllum gerðum og Guðbergur
Egill Eyjólfsson náði oft að búa til
sannkallaðar “töfralausnir" sem
hávörn Þróttara réð ekkert við, en
móttakan var samt áberandi slök
hjá Þrótti nokkuð sem er óvana-
legt. Þróttarar náðu sér hins vegar
aldrei almennilega strik og senni-
lega hefur fjarvera Ólafs Guð-
mundssonar haft eitthvað að segja
en fallið var mikið í fyrstu hrinunni.
Framhaldið var nokkur einstefna,
HK-ingar léku við hvern sinn fingur
og það var gífurleg vinnsla í gólfinu
og oft var bjargað með tilþrifum
svo ætla mátti að leikmenn liðsins
væru hreinlega gólfþveglar. Sóknir
Þróttar gengu illa að sama skapi
og voru oft á tíðum of tilviljunar-
kenndar og langt í frá að vera
nægjanlega sterkar á móti öflugu
vamarliði sem HK-liðið er. Enda
fóru leikar svo að HK vann aðra
hrinuna, 15:9 og þá þriðju, 15:8.
“Eram með besta liðið“
“Við sýndum það í úrslitakeppninni
að við erum með besta liðið og
unnu alla leikina með fullu húsi,
eða 3:0. Leikurinn í kvöld gerði
ekkert annað en að undirstrika það
að við vorum of kærulausir í deild-
inni í vetur og hefðum með réttu
átt að vinna hana líka en svo fór
þó ekki. Liðið hefur verið mjög
sannfærandi í vetur og sérstaklega
eftir að hávörnin og lágvörnin fóru
að vinna svona gífurlega vel sam-
an, en þetta small saman hjá okkur
í sjálfri úrslitakeppninni og það er
erfitt að skora stig hjá okkur eins
og Þróttarar fengu að reyna.“,
sagði Guðbergur Egill Eyjólfsson
fyrirliði HK kampakátur eftir að
hafa tryggt sér íslandsmeistaratitil-
inn í þriðja sinn á þremur árum.
Víkingsstúlkur
jöfnudu gegn HK
Guðmundur
Helgi
Þorsteinsson
skrifar
A Rejkjavft ^ 19í ,5 ^
Fimmtudaaur 13. aDríl kl. 20.00 taróttur - ÍR Þriðiudaqur 18. apríl kl. 20.00 UÍRtHRur - ÍR
Gervigrasið Laugardal
Víkingsstúlkur mættu grimmar
til leiks í Digranesi og léku sinn
besta i Ieik í úrslitakeppninni til
þessa, þegar þær skelltu HK, 3:1.
Liðin þurfa því að
mætast í hreinum
úrslitaleik á laugar-
daginn í Víkinni.
Það var eins og
nýtt Víkingslið væri mætt til fjórða
leiks liðanna í Digranesi í gær-
kvöldi. Víkingsstúlkur fóru hamför-
um í fyrstu tveim hrinunum og
skelltu HK-stúlkum, 15:10 í þeirri
fyrstu á aðeins 13. mínútum nokkuð
sem ekki mátti búast við ef litið er
til fyrri leiks liðanna í Víkinni.
Stemmingin og grimmdin var til
staðar enda var ekkert annað til í
dæminu ef HK-stúlkur áttu ekki
að fagna sínum fyrsta titli. Önnur
hrinan var svipuð þeirri fyrri, HK-
stúlkur fundu ekki taktinn og virk-
uðu taugaveikleiklaðar enda fyrsti
titilinn í augnsýn og það virtist
hafa sín áhrif því ekkert gekk upp
en hrinan endaði 15:5 fyrir gestina.
HK-liðið náði þó sinni bestu rispu
í leiknum í þriðju hrinunni sem þær
unnu, 15:7 en það var skammgóður
vermir því Víkingsstúlkur höfðu það
sem þurfti til að gera út um leikinn
í fjórðu hrinunni. Hrinan varð þó
nokkuð löng, en Víkingsstúlkur
náðu að innbyrða sigurinn í lokinn
15:12.
Oddný Erlendsdóttir lék vel á
kantinum fyrir Víkingsstúlkur i
gærkvöldi og flestar sóknir hennar
enduðu í gólfinu en Börg Erlings-
dóttir uppspilari fann hana mun
betur en á mánudaginn. Uppgjaf-
irnar gengu líka ágætlega og bar-
áttan var mun meiri í gólfinu hjá
Víkingsliðinu en verið hefur og það
hafði sitt að segja til að finna drif-
kraftinn og viljann til að vinna leik-
inn í gærkvöldi.
Það má búast við miklum bar-
áttuleik í Víkinni á laugardaginn
þar sem leikurinn er hreinn úrslita-
leikur.
URSLIT
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
B-deild:
Valur-Leiknir....................3:l
Fjölnir - Ármann.................2:1
England
Enska bikarkeppnin, undanúrslit:
Crystal Palace - Man. United.....0:2
- Bruce (30.), Pallister (41.). 17.987.
■United mætir Everton í úrslitum.
Úrvalsdeild:
Arsenal - Liverpool..............0:1
- (Fowler 90.). 38.036.
Chelsea — Southampton............0:2
- (Shipperley 10., Le Tissier 32.). 16.738.
Norwich — Nottingham Forest......0:1
- (Stone 85.). 19.005.
1. deild:
Derby —Wolves....................3:3
Stoke — Barnsley0:0
Skotland
Úrvalsdeild:
Kilmamock - Hearts...............3:2
Þýskaland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Gladbach - Kaiserslautern....„...1:0
Heiko Herrlich (101.). Leikurinn var fram-
iengdur.
Frakkland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Strasbourg — Metz................i;0
Yvon Pouliquen (75.). 35.000.
■Strasbourg mætir PSG í úrslitum.
Ítalía
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Parma-Foggia.....................3;i
■Parma varin samanlagt 4:2 og mæta Ju-
ventus í úrslitum.
Portúgal
Bikarkeppnin,
8-liða úrslit:
Setubal - Benfíca
U18 mót á Ítalíu ísland - Rúmenía 0-3
Körfuknattleikur NBA-deildin: Orlando - Cleveland ... 107*90
Philadelphia - Atlanta ■Eftir framlengingu. Chicago - Indiana 106:110 .... 96-R9
Milwaukee - Detroit ■Eftir framlengingu. San Antonio - Portland 114:109 71:91
Utah - LA Lakers 100:93
Seattle - Phoenix 90-96
LA Clippers - Sacramento Houston - Dallas 85:117 147:156
■Eftir. tvíframlengdan leik.
Íshokkí
NHL-deildin:
Pittsburgh - Washington......3:1
Tampa Bay - NY Islanders......5:2
Dallas - Detroit 1:4
St. Louis - Winnipeg..........7:5
Vancouver - Anaheim...........5:0
Handknattleikur
EM heyrnarlausra
ísland - Ítalía.............13:22
Þýskaland - Svíþjóð.........19:11
Króatía - Danmörk...........29:12
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 D 3
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
„Vélbyssuskot-
hríð“ í Kópavogi
íslendingar unnu stórsigur, 39:18, á Japönum í
leik, sem boðið var upp á 2,1 sóknarlotu á mínútu
FOI_K
■ VALDIMAR Grímsson var
fyrirliði íslenska liðsins gegn Jap-
an í gær í fjarveru Geirs Sveins-
sonar sem er meiddur í baki.
Valdimar kom einu sinni inná í
fyrri hálfleik til að taka víti sem
hann skoraði úr og lék síðan allan
síðari hálfleikinn og gerði í honum
10 mörk, þar af átta á fyrstu 20
mínútunum.
■ STEFÁN Arnaldsson átti að
dæma leikinn með Rögnvaldi Erl-
ingssyni, en komst ekki vegna
þess að ekki var flugfært frá Akur-
eyri í gær. Gunnar Kjartansson,
formaður dómaranefndar HSÍ,
hljóp í skarðið og dæmdi með
Rögnvaldi.
■ EF ekki verður flugfært til ísa-
fjarðar í dag mun landsleikurinn
fara fram í Smáranum og hefst
hann kl. 16.30 í dag.
■ BJARNI Frostason og Guð-
mundur Hrafnkelsson, mark-
verðir, koma inn í liðið í dag fyrir
Bergsvein Bergsveinsson og
Sigmar Þröst. Bergsveinn kom
reyndar ekkert inná í leiknum í
gær. Eins fá þeir Jason Ólafsson
og Róbert Sighvatsson að spreyta
sig í dag, en þeir hvíldu í gær.
■ EINAR Gunnar Sigurðsson
fékk tækifæri á að gera 40. mark
Islands er hann komst inn á línuna
er fimm sekúndur voru eftir en
mistókst — snéri boltanum framhjá
markinu.
ÞAÐ var eins og maður væri
staddur í skotgrafahernaði,
þegar íslendingar og Japanir
mættust í Smáranum í Kópa-
vogi — skotgleði leikmanna var
svo mikil, að boðið var upp á
126 sóknarlotur, eða 2,1 sóknir
á mínútu og 57 mörk á sextíu
mínútum. Japanir voru vægast
sagt slakir — kunna lítið sem
ekkert í göldrum handknatt-
leiksins og ekki var hægt að
leggja neinn mælikvarða á leik
íslenska liðsins, svo miklir voru
yfirburðirnira.
Japanir, sem eru hreyfanlegir, léku
óagaðan sóknarleik, þar sem all-
ar sóknarlotur þeirra byggðust upp
á langskotum utan af velli — gegn-
umbrot, línu- og
Sigmunduró. hornspil sást ekki
Steinarsson Leikflettur sáust
skrifar ekki, heldur ein-
staklingsframtak
skotmanna sem náðu aðeins 29%
sóknarnýtingu, skoruðu 18 mörk ú
62 sóknarlotum. Leikmenn íslenska
liðsins áttuðu sig ekki strax á leik
japanska liðsins, en þegar leikmenn
voru búnir að gera það, skoruðu
Japanir ekki nema sjö mörk úr 34
sóknarlotum í seinni hálfleik, sem
er 20% nýting.
Vörn japanska liðsins var sem
vængjahurð, sem íslensku leikmenn-
irnir gátu gengið út og inn að vild
— hún var opin fyrir öllu, línusend-
ingum, langskotum, gegnumbrotum
og mörkum úr hornum. Hinn há-
vaxni Einar Gunnar Sigurðsson var
settur inn á línuna, til að hrella
smávaxna Japani og skoraði hann
fimm mörk af línu — flest eftir stór-
SÓKNAR- 5W
NÝTING
ÍSLAND f JAPAN
Mðrk Sóknir % J Mórt( Sóknir %
18 29 21 35 62 F.h 11 60 S.h 7 28 34 39 20
39 64 61 Alls 18 62 29
8 Langskot 12
7 Gegnumbrot 1
7 Hraðaupphiaup 2
6 Hom 1
10 Lína 1
1 Vfti 1
skemmtilegar línusendingar Ólafs
Stefánssonar, sem fór á kostum með
sendingum sínum, sem glöddun
áhorfendur. Sigmar Þröstur Oskars-
son lék í markinu og kom vel frá
leiknum — varði vel, en átti oft erf-
itt með snögg langskot Japana.
Valdimar Grímsson, sem lék með í
seinni hálfleik, skoraði þá tíu mörk
— flest úr hornum,' en hann skoraði
eitt mark í fyrri hálfleik. Allir leik-
menn liðsins nema Bergsveinn Berg-
sveinsson tóku þátt í leiknum og
skoruðu allir tólf útispilararnir.
Eins og fyrr segir þá er ekki
hægt að leggja neinn mælikvarða á
leik íslenska liðsins. Landslið Japans
á margt eftir ólært og er það vel
skiljanlegt þegar að því er gáð, að
deildarkeppni er ekki í Japan —
handknattleikur þar er skólaíþrótt.
Japanir þurfa því að koma til Evrópu
til að kanna styrk sinn.
ísland - Japan 39:18
Smárinn í Kópavogi, vináttulandsleikur 12. aprfl 1995.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 6:3, 7:5, 8:6, 14:8, 17:10, 18:11. 23:11, 27:13,
30:16, 37:17, 38:18.
Mörk íslands: Valdimar Grímsson 11/1, Einar Gunnar Sigurðsson 7,
Gústaf Bjamason 4, Patrekur Jóhannesson 4, Ólafur Stefánsson 3, Bjarki
Sigurðsson 2, Konráð Olavson 2, Júlíus Jónasson 2, Jón Kristjánsson 1,
Dagur Sigurðsson 1, Gunnar Beinteinsson 1, Birgir Sigurðsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 21/1 (Þar af 5 sem knötturinn
fór aftur til mótheija). Bergsveinn Bergsveinsson.
Utan vallar: 2 mín.
Mörk Japans: Sveoka 6/1, Nakayama 5, Iwamoto 3, Fujll 2, Hotta 1,
Watandbe 1.
Varin skot: Hayashi 4 (Þar af þijú sem fóra aftur til mótheija), Hashi-
moto 5.
Utan vallar: 2 mín.
Áhorfendur: Um 600.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Röngvald Erlingsson.
Morgunblaðiö/Ami Sæberg
DÆMIGERÐ mynd úr leik íslands og Japans. Valdimar Grímsson sækir að varnarmönnum Japans, sem hrökkva frá.
Sigrún Huld með
fjögur heimsmet
SIGRÚN Huld Hrafnsdóttir setti fjögur
heimsmet á Norðurlandamóti fatlaðra í
sundi, sem fór fram í
Ringsted í Danmörku á
dögunum. Hún setti met
í 400 m skriðsundi
(5.35,26 mín.), 100 m
bringusundi (1.27,70),
800 m skriðsundi
(11.34,37) og í opnum
flokki — 50 m skrið-
sundi, þar sem hún synti
á 32,47 sek. í opna
flokknum syntu allir án tillits til fötlun-
ar einstaklings. Bára B. Erlingsdóttir
varð í fjórða sæti í flokknum á 34,38
sek., en þess má geta að hún setti heims-
met í 50 m flugsundi — 37,81 sek.
Fengu 32 verð-
launapeninga
ÍSLENSKU keppendurnir fengu alls 32
verðlaunapeninga Norðurlandamóti
fatlaðra í sundi í Ringsted — ellefu gull-
verðlaun, fjórtán silfur og átta brons,
og settu fjórtán íslandsmet og tiu
Norðurlandameistaramótsmet. Ólafur
Eiríksson setti Norðurlandamet í 100 m
skriðsundi, flokki S9 — 1.03,03 mín.,
Birkir R. Gunnarsson setti einnig Norð-
urlandamet í 100 m skriðsundi, flokki
B1+B2 —1.07,81 mín. og í 400 m skrið-
sundi — 5.10,81 mín. Gunnar Þ. Gunnars-
son, setti Norðurlandamet 150 m flug-
sundi, þroskaheftra, 32,41 sek. Bára B.
Erlingsdóttir setti Norðurlandamet í 200
m Ijórsundi, þroskaheftra, 3.04,85.
Norðmenn féllu
fyrir Belgum
BELGÍUMENN skutu Norðmönnum ref
fyrir rass í Evrópukeppni landsliða í
liandknattleik og tryggðu sér rétt til
að leika í riðlakeppni EM. Þjóðimar
voru með jafn mörg stigí undanriðli,
en Belgar komust áfram með því að
vinna Norðmenn 16:20 í Ósló, en Norð-
menn náðu þriggja marka sigri í Belg-
íu, 17:20. Nú er Ijóst, hvemig riðlamir
verða í EM.
1. RIÐILL: Krótatia, Sióvenía, Austur-
ríki og Tyrkland.
2. RIÐILL:
Ungveijaland, Tékkland, Slóvakía og
Makedónia.
3. RIÐILL: Frakkland, Hvita-Rússland,
Júgóslavía og Belgía.
4. RIÐILL: Rússland, Rúmenía, Pólland
og ísland.
5. RIÐILL: Danmörk, Þýskaland, Sviss
og Litháen.
Spánveijar, sem gestagjafar, og
Svíar, sem Evrópumeistarar, komast
beint i úrslitakeppnina, sem verður á
Spáni 23. maí til 2. júní 1996. Tvö efstu
liðin úr riðlunum komast til Spánar.
Eyjastúlkur fá
iðsstyrk
NÝLIÐARNIR í 1. deild kvenna í knatt-
spyrnu, ÍBV, hafa fengið góðan liðs-
styrk. Serbinn Svetlana Ritic, sem leikur
stöðu miðvarðar.hefur gengið til Uðs
við Eyjastúlkur. Áður höfðu þær fengið
til liðs við sig Oddnýu F. Jökulsdóttiur
frá Hetti á Egilsstöðum og Sigrúnu Sig-
urðardóttur, sem hefur leikið með ÍBA
og BÍ. Eyjamenn, sem hætti keppni í
1. deild fyrir tveimur árum, eru búnir
að byggja upp nýtt 1. déíldarJið.
Valur og KR fá
400 þús. kr.
AFREKS- og styrktarsjóður Reykjavíkur
hefur, fyrir hönd Reykjavíkurborgar og
íþróttabandalags Reykjavíkur, veitt
handknattleiksdeild Vals 400.000 krónur
í styrk vegna íslandsmeistaratitils í
meistaraflokki karla í handknattleik
1995. Og sömu upphæð til KR vegna bik-
armeistaratitils í knattspyrnu karla 1994.