Morgunblaðið - 28.04.1995, Page 4
SKVASS
Kim Magnús Nielsen tók þátt í Opna breska meistaramótinu
Algjört
ævintýrí
KIM Magnús Nielsen tók á
dögunum fyrstur íslendinga
þátt í Opna breska meistara-
mótinu i skvassi, en þetta er
stærsta og sterkasta mót
sem haldið er í íþróttinni og
því mikil upplifun fyrir Kim að
taka þátt í mótinu að hans
sögn.
Þetta var algjört ævintýri fyrir
mig, bæði að keppa og ekki
síður að fá að fylgjast með, æfa
og ræða við allt fólkið sem teng-
ist mótinu, bæði skipuleggjendur
og keppendur,“ sagði Kim Magn-
ús í samtali við Morgunblaðið.
Mótið fór fram í Cardiff og
voru keppendur um 200 talsins.
„Undankeppnin var leikin í flöl-
nota íþróttahúsi en þegar komið
var í 32ja manna úrslit var farið
í stóra íþróttahöll og þar voru
settir upp tveir vellir með gler-
veggjum þannig að áhorfendur
gátu fylgst vel með.
Það var rosalega gaman að
fylgjast með keppninni og þama
sá maður marga góða leiki. Ur-
slitaleikurinn sjálfur var samt
ekkert sérstakur, undanúrslita-
leikimir voru miklu betri. Jansher
Khan frá Pakistan sigraði fjórða
árið í röð, en hann hefur orðið
heimsmeistari síðustu sex árin.
Hann rúllaði yfir Englendinginn
Peter Marshall. Marshall er nokk-
uð sérstakur skvassspilari því
hann leikur með báðum höndum,
svipað og í tennis, og ástæðan er
að hann var svo lítill þegar hann
byijaði að hann réði ekki við spað-
ann.
Khan vann Rodney Eylees frá
Ástaralíu, sem er númer þijú á
heimslistanum, í undanúrslitum
3:1 en hinum megin vann Mars-
ur að koma hingað og einnig
Chris Walker, sem er númer sex
á heimslistanum. Norman varð
frægur þegar hann varð heims-
meistari 1986, en þá vann hann
Jahangir Khan sem hafði sigrað
í 550 leikjum í röð. Það yrði rosa-
lega gaman að fá þessa spilara
hingað. Jansher Khan kom hingað
árið 1992 sem heimsmeistari og
það var alveg ótrúlegt, við lifum
ennþá á þeirri heimsókn.
Salirnir í Veggsporti eru mjög
góðir og standast samanburð við
þá sali sem ég hef séð erlendis.
Við þurfum því ekki að kvarta
undan aðstöðunni og ég held að
við ættum að geta fengið fræga
spilara til að koma hingað. Marg-
ir hafa heyrt um Norðurljósamót-
ið sem við héldum í febrúar og
hafa áhuga á að koma. Vonandi
verður af því,“ sagði Kim Magnús.
íslandsmótið um helgina
íslandsmótið í skvassi fer fram
í Veggsporti að Stórhöfða 17 um
helgina og hefst í kvöld kl. 20.
Keppt verður í átta flokkum, þar
af fimm unglingaflokkum en aldr-
ei áður hefur verið keppt í svo
mörgum flokkum á íslandsmóti í
skvassi.
Keppni í unglingaflokki fer
fram á sunnudag og hefst kl.
11.00. Keppni í meistaraflokkum
mun væntanlega ljúka um kl. 16
á laugardag.
hall, sem er númer tvö á listanum,
Brett Martin frá Ástralíu, en hann
er númer fjögur á listanum. Mart-
in þessi tapaði fyrir Khan í undan-
úrslitum í fyrra.
í kvennaflokki rúllaði Michelle
Martin, systir Brett, yfir Liz Iarw-
in og var þetta þriðji sigur hennar
KIM Magnús sagðl að það hefðl verið rosalega gaman að
fylgjast með keppnlnnl.
KEPPT var á tvelmur völlum með glerveggjum þannig að
fjöldl áhorfenda gat fylgst vel með gangi mála.
í röð á þessu móti. Bróðir þeirra
varð heimsmeistari árið 1989 en
er nú númar átta á heimslistan-
um,“ segir Kim Magnús þegar
hann rifjar upp gang mála á mót-
inu sjálfu.
En æfíngarpar voru einnig
mjög skemmmtilegar og það kom
honum á óvart að hann fékk að
æfa í keppnissölunum, áður en
keppnin hófst á daginn. „Ég var
að ræða við menn í alþjóðanefnd-
inni þegar þeir buðu mér að æfa
í sölunum og það Jþurfti ekki að
suða neitt í mér. Eg æfði meðal
annars með Paul Johnson frá
Englandi sem er í 23. sæti á
heimslistanum.
Ég hitti marga þama og ræddi
við þá, meðal annars um að koma
hingað til lands og keppa. Ross
Norman frá Nýja Sjálandi er volg-
■ JIMMY White tryggði sér sæti í
undanúrslitum heimsmeistaramóts-
ins í snóker með því að vinna John
Parrott 13:11 í 8-manna úrslitum.
Hann mætir heimsmeistaranum
Stephen Hendry, sem vann Ronnie
O’Sullivan, í undanúrslitum. í hinum
undanúrslitaleiknum mætast Nigel
Bond og Andy Hicks.
■ STEPHEN Hendry hóf að leika
við Jimmy White í undanúrslitunum
í gær og náði þá m.a. 147 í einu
stuði og fékk fyrir það 14,8 milljónir
í verðlaun. Hann er aðeins þriðji spil-
arinn sem nær svo háu stuði í 19
ára sögu heimsmeistarakeppninnar í
Sheffield og það tók hann aðeins
11 mínútur og 48 sekúndur að
hreinsa borðið. Hendry hafði yfír,
8:7, er hlé var gert á leiknum en
þeir halda áfram í dag.
■ STÖÐ 2 verður með beinar út-
sendingar frá úrslitakeppni NBA-
deildarinnar eins og í fyrra. Fyrri
hluta maí mánaðar verða sýndir vik-
ugamlir leikir á sunnudögum og síð-
an beinar útsendingar síðari hluta
maí mánaðar. Allir úrslitaleikimir,
sem áætlað er að hefjist 7. júní, verða
í beinni útsendingu.
■ ANDONI Zubizarreta, mark-
vörður Spánverja, lék 100. landsleik
sinn í fyrra kvöld er Spánverjarsigr-
uðu Armena 2:0 í undankeppni Evr-
ópumótsins.
■ PAUL Warhurst, sem Black-
burn Rovers keypti frá Sheffield
Wednesday á 2,7 milljónir punda
fyrir tveimur árum, fótbrotnaði í
annað sinn á 18 mánuðum á æfíngu
á þriðjudag og leikur ekki meira með
Blackburn á þessu tímabili.
PILUKAST
NMhérá
landi um
helgina
Norðurlandamótið í pílukasti
verður haldið hér á landi um
helgina. Þetta er í fyrsta sinn sem
Norðurlandamót í þessari íþrótta-
grein fer fram á íslandi. Mótið verð-
ur haldið í stóra ráðstefnusalnum á
Scandic Hótel Loftleiðum og eru
keppendur 80 talsins og koma frá
Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku auk
íslands.
í beinu framhaldi af Norður-
landamótinu verður haldið annað
mót, Opna Norðurlandamótið og fer
sú keppni fram á sama stað á mánu-
daginn.
KARATE
Hjalti Ólafsson
bestur á þýsku móti
Hjalti Ólafsson karatemaður,
sem keppir í -80 kg flokki,
stóð sig vel á alþjóðlegu móti í
Þýskalandi um síðustu helgi. Hann
keppti þar með þýska karatefélag-
inu Bad Bramstedt, sem lenti í öðru
sæti á mótinu, næst á eftir ensku
liði. Hjalti vann allar viðureignir sín-
ar og var sá eini sem gerði það í
mótinu og var í lokin útnefndur
maður mótsins.
Hjalti sagði að þýska félagið hefði
boðið sér að vera með í þessu móti
eftir góða frammistöðu hans á opna
danska meistaramótinu í janúar.
„Ég vann Pjóðverja í úrslitum í
Danmörku og það vakti athygli og
í framhaldi að því buðu þeir mér til
Þýskalands og ég æfði með félaginu
í hálfan mánuð fyrir mótið um síð-
ustu helgi. Það var mjög gaman að
taka þátt í þessu móti og ég vann
alla andstæðinga mína nokkuð ör-
ugglega," sagði Hjalti.
Þjóðverjarnir voru svo ánægðir
með Hjalta að þeir gáfu honum bik-
arinn sem félagið fékk fyrir annað
sætið. Þeir sögðu að það væri honum
að þakka að liðið næði þqgsum ár-
angri.
Hjalti stefnir nú að þátttöku í
Evrópumeistaramótinu sem fram
fer í Finnlandi 5. - 7. maí. Halldór
Svavarsson, sem er við nám í Finn-
landi, verður einnig meðal keppenda
þar. „Ég ætla að standa mig vel á
Evrópumótinu og ætla mér á verð-
launapall," sagði Hjalti sem er í
karatefélaginu Þórshamri.
________
Morgunblaðið/Þorkell
HJALTI Ólafsson er hér með bikarinn sem þýska félagið Bad
Bramstedt gaf honum í þakklœtlsskynl fyrir góðan árangur.