Morgunblaðið - 14.05.1995, Blaðsíða 1
SNAGGARALEGUM SUZUKIBALENO REYNSLUEK-
IÐ - EFNARAFALABÍLAR - NÝR ESCORT ROKSELST
- GAMLIR GÆÐINGAR
Kringlunni 5 - sími 569-2500
IHwgtisiMiiMfr
SUNNUDAGUR14. MAI
1996
BLAÐ
Corolla Special Series,
sérbúnir lúxusbúar
á einstöku tilboðsverði.
i
1 Œ> TOYOTA
g Tákn um gceði
Ahugi á
BMW 730i
BMW 730i, sem Bifreiðar og land-
búnaðarvélar sýndi um síðustu
helgi, er enn óseldur, en að sögn
Helga Kristóferssonar markaðs-
stjóra hafa nokkrir sýnt bílnum
mikinn áhuga og spurst fyrir um
hann.
Helgi segir að í hópi áhuga-
samra séu bæði karlmenn og kven-
menn en enginn hafi reyndar sett
inn pöntun fyrir bíl.
Áhugasömum gafst fyrst tæki-
færi um miðja vikuna að reynslu-
aka bíinum. „Verðið á bílnum virt-
ist ekki vera stóra málið fyrir alla,“
segir Helgi, en bíllinn, sem er
ódýrasti valkosturinn í nýrri 7-
línu BMW, kostar 8,9 milljónir
króna.
Ódýrari Astra
með minni vél
BÍLHEIMAR bjóða nú Opel
Astra langbak með minni bún-
aði og minni vél en áður til að
mæta samkeppni frá VW Golf.
Astra langbakurinn sem hefur
verið boðinn með 82 hestafla
vél verður nú fáanlegur með 60
hestafla vél, eins og VW Golf
langbakur, og án snúnings-
hraðamælis og útvarps. Þannig
útbúinn kostar bíllinn 1.337
þúsund kr. en kostaði áður með
82 hestafla vélinni og fyrr-
greindum búnaði 1.415 þúsund
kr.
Að öðru leyti verður bíllinn m.a.
búinn vökvastýri, samlæsingum
með þjófavörn, fjórum höfuðp-
úðum, hækkanlegu ökumanns-
sæti, útihitamæli, toppbogum
og heilum hjólkoppum.
VW Golf CL langbakur með
60 hestafla vél kostar 1.370
þúsund kr. en Ford Escort CLX
með 75 hestafla vél, út-
varpi/segulbandi, samlæsingu,
upphitanlegri framrúðu og ýms-
um öðrum búnaði kostar 1.298
þúsund kr.
Cívk 5 dyra
frumsýndur
HONDA Civic 5 dyra, rúmgóður og
hagkvæmur fjölskyldubíll, verður
frumsýndur um næstu helgi hér á
landi en bíllinn kom nýlega á mark-
að í Evrópu. Civic er framleiddur
af verksmiðjum Honda í Englandi
og verður boðinn á verði frá 1.200-
1.250 þúsund til 1.400 þúsund kr.
Civic kemur í þremur útfærslum
með 1.400 rúmsentimetra vélum,
beinskiptur í tveimur útfærslum og
einni sjálfskiptri. Bíllinn verður án
loftpúða en með vökvastýri, raf-
drifnum rúðum og útispeglum,
samlæsingum og fleiri búnaði.
Vélin skilar 90 hestöflum og í
mælaborði er viðarlíki en að öðru
leyti er hann tauklæddur í hólf og
gólf. Honda hf. á íslandi tekur inn
tólf bíla í fyrstu sendingu en Geir
Guðmundsson framkvæmdastjóri
segir að ekki sé heiglum hent að
fá fleiri bíla vegna mikillar eftir-
spurnar í Evrópu.
Civic státar af einu lengsta hjól-
hafinu í þessum stærðarflokk bíla,
2.620 sm, og farangursrýmið er
einnig í stærri kantinum.
HONDA Civic 5 dyra er nýr kost-
ur í fólksbílum hér á landi.
Nýr valkostur í milli-
stæröarflokki
NÝR valkostur í fólksbíium hér á
landi, Suzuki Baleno, sem keppir á
sama markaði og Toyota Corolla,
Nissan Sunny, Renault RT og Golf,
verður frumsýndur á íslandi um
næstu helgi. Bíllinn kom fyrst fyrir
sjónir Evrópumanna á bílasýning-
unni í Amsterdam fyrr á þessu ári
en þetta er í fyrsta sinn sem Suzuki
framleiðir bíl í þessum stærðar-
flokki. Bíllinn verður boðinn með
tveimur gerðum véla, 1.300 rúms-
entimetra og 1.600 rúmsentimetra.
1.300 rúmsentimetra bíllinn verð-
ur boðinn þrennra dyra hlaðbakur,
handskiptur og sjálfskiptur og
fernra dyra stallbakurinn verður
boðinn bæði með 1.300 og
1.600 rúmsentimetra vél-
um. Báðar vélarnar eru
16 ventla með fjölinn-
spýtingu, sú minni
skilar 86 hestöflum og
sú stærri 99 hestöflum.
Baleno 1300 3ja dyra
beinskiptur kostar
1.089.000 kr. og bætast
100.000 kr. við ef hann er tek-
inn með sjálfskiptingu. Femra dyra
kostar hann 1.229.000 kr. beinskiptur
en 1.329.000 kr. sjálfskiptur. Baleno
1600 kostar 1.429.000 kr. beinskiptur
en 1.549.000 kr. sjálfskiptur.
SUZUKI Baleno er í
sama stærðarflokki og
Toyota Corolla.
Baleno frumsýndur á íslandi