Morgunblaðið - 28.05.1995, Blaðsíða 4
4 C SUNNUDAGUR 28. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Vel búinn Ford
Escort CLX langbnkur
££ NY kynslóð Ford Escort var
jjj kynnt snemma á þessu ári
9g nú er bfllinn kominn til
l#i íslands í fjórum útfærslum.
■KÍ Saian hefur farið vel af stað
enda er hér um að ræða
55) velheppnaðan bíl í algeng-
asta stærðarflokki sem
boðinn er á þokkalegu
verði. Hart er barist á þess-
J um markaði og hver þús-
! undkall getur haft meiri
áhrif á tilvonandi kaupend-
ur en í fyrstu sýnist. Svo er að
mörgu að hyggja fyrir bflkaup-
endur, ekki síst með hvemig bún-
aði bfllinn býðst. Brimborg hefur
tekist að ná hagstæðum samn-
ingum við Ford sem sér strax
stað í verðlagningu. Auk þess að
vera nokkram þúsundköllum
(tugþúsund kr. jafiivel), ódýrari
en flestir keppinautamir er nýi
Escortinn ágætlega búinn að
auki.
Mesta nýjungin og sú sem
skiptir íslendinga töluverðu máli
er upphituð framrúða, sem í fyrstu
var aðeins boðin með stóra bróð-
ur, Mondeo. Annar staðalbúnaður
er t.d. vökvastýri, útvarp/segul-
band ásamt loftneti og hátöluram,
samlæsing og fleira. Þijár út-
færslur era fáanlegar hjá Brim-
borg, 3ja, 4ja og 5 dyra bílar,
allar með 1,4 lítra, 75 hestafla
vélum. Auk þess er bfllinn fáan-
legur með 1,6 lítra Zetec vél, 90
hestafla, sem kostar 180 þúsund
kr. aukalega. Verðið á nýja Esc-
ortinum með 1,4 lítra vélinni er
frá 1.138 þúsund kr. 3ja dyra
hlaðbakurinn til 1.298 þúsund kr.
langbakurinn.
Nýr bfll að utan sem innan
Ford Escort CLX langbak var
reynsluekið í vikunni og verður
nú sagt frá helstu einkennum,
kostum og göllum bflsins. í raun
er óhætt að segja að hér sé nýr
bfll kominn frá Ford því gerbreyt-
ing hefur orðið á útliti Escorts-
ins, jafnt að utan sem innan.
Hann hefur fengið á sig fjöl-
skylduandlit Ford, sem er spor-
öskjulaga grill með fíngerðum
línum og sporöskjulaga framlugt-
ir, en eftir hliðunum er brot frá
framlugt að afturlugt og nokkra
neðar listi sem nær milli hjól-
anna. Rúður era stórar og aftur-
Ford Escort CIX
langbokurI
hnotskurn
Véh 1,4 lítra, 4 strokkar, 8
ventlar, 75 hestöfl.
Framdrifinn — fimm
manna.
Fimm gíra handskipting.
Samlæsing — upphitaðar
fram- og afturrúður.
Vökvastýri.
Rafstýrðar stillingar hliða-
spegla.
Lengd: 4.30 m. Breidd:
1.70 m. Hæð: 1.42 m. Eig-
in þyngd: 1.100 kg.
Burðargeta: 475 kg.
Bensíneyðsla í þéttbýli 10,1
1 og 6 1 á jöfnum 90 km
hraða á klst.
Staðgreiðshiverð:
1.298.000 kr.
XJmboð: Brimborg hf.,
Reykjavik. ■
MÆLABORÐIÐ er einfalt og stilhreint og þar ganga sömu
sporöskjulaga formin aftur.
í i gp' -
i w 1
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
ESCORT hefur fengið nýtt andlit og
sporöskjulaga form ráða ríkjum.
hlerinn opnast upp í einu lagi.
Hleðsluhæðin er þægilega lág.
Afturlugtir sitja lóðréttar á
hliðunum og samlitir stuðarar era
fínlegir. Þótt útlitsbreytingin sé
mjög til batnaðar verður þó vart
annað um Escortinn sagt en að
hann sé fremur hefðbundinn í
útliti, ef framendinn er undan-
skilinn.
Gott samræmi er milli ytri
hönnunar og innanrýmis því þar
ganga sporöskjulaga formin aft-
ur í mælaborði, klukku og rofum
én þó era miðstöðvarrofamir
kringlóttir og dálítið stórgerðir
miðað við annað í mælaborði.
Stokkurinn milli sæta er einnig
sporöskjulaga og þar er opnan-
legt hólf fyrir kassettur en á lok-
inu er glasahaldara haganlega
fyrirkomið en nýtist reyndar að-
allega aftursætisfarþegum.
Rúmgóður bíll
Frágangur er allur hinn snyrti-
legasti og það er fegurðarauki
að leðurpokanum kringum gír-
stöngina. Sæti era klædd pluss-
efni og samskonar efni er á hluta
hurðaspjalda. Sætin era stíf og
styðja vel við bak. Tveir stillinga-
möguleikar era á sætum, fjar-
lægð frá stýri og halli á sætis-
baki. Sætisbelti era hæðar-
stillanleg.
Ekki verður kvartað
undan höfuðrými í
nýja Escortin-
FARANGURSRÝMIÐ tekur 460
það í rúma 900 lítra með því
lítra og hægt er að stækka
að leggja sætisbökin niður.
um, frekar en í flestum öðr-
um evrópskum bílum,
hvorki í ökumannsrými né
farþegarými, og fótarými
er allgott. Farangursrýmið
er voldugt, eins og vera ber
í langbaki, tekur alls 460
lítra en rúmlega 900 lítra
séu bæði aftursætisbök lögð
niður.
Áhrifarfk hljóðelnangrun
1,4 lítra, 75 hestafla vélin, sú
næstminnsta sem boðinn er í
Escort, er merkilega vinnslusöm
og þýðgeng. Ekki reyndi á vélina
með bflinn fullhlaðinn farþegum
og farangri en í innanbæja-
rakstri svarar vélin þeim kröfum
sem gerðar era til hennar. Bíll-
inn er fremur lágt gíraður
og er vélin hvað skemmti-
legust á 3.500-4.000
snúningum en átök-
in skila sér hreint
ekki inn í far-
þegarýmið í
LANGBAKURINN er 4.30
metrar á lengd en er lipur
og þægilegur í borgarum-
ferðinni.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
skarkala því bfllinn er einstak-
lega vel hljóðeinangraður. Sama
er að segja um vegar- og vindein-
angran, þama hefur Ford tekist
vel upp og tilfínning ökumanns
er sú að hann sé í mun stærri
bfl. Þess vegna vekur það kannski
meiri furðu en ella hve hávaða-
samt blikkið í stefnuljósinu er.
Escortinn liggur vel á vegi,
jafnt bundnu slitlagi sem möl,
og er það kannski ekki síst að
þakka nýjum fíöðranarbúnaði.
Gírskiptingin er lipur og létt.
í heildina tekið er Escort eins
og fyrr segir velheppnaður bfll
og er langbakurinn vel sam-
keppnisfær í verði. Fyrir tæpar
1,3 milljónir kr. fæst fíölskyldu-
bfll í millistærðarflokki og þarf
ekki að punga út aukalega
fyrir sjálfsögðum búnaði eins
og útvarpi/segulbandi og þæg-
indabúnaði eins og samlæsing-
um. Það er allt innifalið nema
að sjálfsögðu loftpúði í stýri
sem vegna skattlagningar hins
opinbera hækkar bíla í þessum
stærðarflokki of mikið f verði.
Þó má ekki gleyma að Escort
er ágætlega staddur gagnvart
öiyggisþáttum, með stálstyrktar-
bitum í hurðum, stillanlegum ör-
yggisbeltum og bamalæsingu á
afturhurðum. ■
Guðjón Guðmundsson