Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 1
B L A Ð
A L L R A
LAMDSMAMNA
SMÁÞJÓÐALEIKARNIR í LÚXEMBORG
Piltamir tilbúnir í
slaginn gegn Svíum
ÍSLAND og Svíþjóð mætast í Evrópukeppni
U-21s árs landsliða í Sundsvall í dag og var
gott hljóð í Herði Helgasyni, þjálfara íslenska
liðsins, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í
gærkvöldi.
„Við erum tilbúnir í slaginn og eigum mögu-
leika ef við náum góðri stemmningu þó Sviar
séu alltaf sterkir,“ sagði hann. íslenska liðið
tapaði þremur fyrstu leikjum sínum undir stjóm
Gústafs Björnssonar og Asgeirs Eliassonar sl.
haust en Hörður stjórnar strákunum í fyrsta
sinn I Evrópukeppninni í dag. Hann sagðist lítið
vita um sænska liðið en sér hefði verið sagt að
það væri að mestu skipað sömu mönnum og léku
gegn íslandi í Hafnarfirði í fyrrahaust.
Hörður tilkynnti byijunarliðið í gærkvöldi og
leggur upp með leikaðferðina 4-3-3 en þessir
hefja leikinn:
Markvörður: Árni Gautur Arason. Varnar-
menn: Sturlaugur Haraldsson, Óskar Hrafn Þor-
valdsson, Pétur Marteinsson, Hermann Hreið-
arsson. Miðjumenn: Auðun Helgason, Pálmi
Haraldsson, Lárus Orri Sigurðsson. Sóknar-
menn: Kári Steinn Reynisson, Eiður Smári
Guðjohnsen, Rútur Snorrason. Varamenn: Atli
Knútsson, Sigurður Óm Jónsson, Tryggvi Guð-
mundsson, Kristinn Lárusson og ívar Bjarklind.
Kvennalandsliðið í
handknattleik á
mót í Kanada
KRISTJÁN Halldórsson landsliðsþjálfari hefur
valið hópinn sem fer til Kanada 19. júní næst-
komandi og tekur þátt í alþjóðlegu móti með
Kanada, Bandarikjunum, Frakklandi og líklega
Dönum. Mótið er mikið til hugsað sem tmdirbún-
ingur fyrir lið Bandaríkjanna og Kanada fyrir
Ólympiuleikana í Atlanta og heimsmeistara-
keppnina í Austurríki.
Eftirfarandi leikmenn skipa liðið:
Fanney Rúnarsdóttir, Gróttu, Hjördís Guð-
mundsdóttir, Víkingi, Sóley Haraldsdóttir,
Stjörnunni, Svava Sigurðardóttir, Víkingi, Þór-
unn Garðarsdóttir, Fram, Halla María Helga-
dóttir, Víkingi, Laufey Sigvaldadóttir, Stjörn-
unni, Auður Hermannsdóttir, Haukum, Bryiýa
Steinsen, KR, Herdís Sigurbergsdóttir, Stjöra-
unni, Andrea Atladóttir, ÍBV, Inga Fríða
Tryggvadóttir, Stjörnunni, Heiða Erlingsdóttir,
Víkingi, Hulda Bjarnadóttir, Haukum, Berglind
Ómarsdóttir, Fram og Guðný Gunnsteinsdóttir,
Sfjöraunui. Þórunn Garðarsdóttir er ný í
hópnum og einnig koma inn nýjar frá Danmörku
Auður Hermannsdóttir og Hulda Bjarnadóttir
úr Haukum. Með liðinu fara einnig dómararnir
frá Akranesi, Sigurgeir Sveinsson og Gunnar
Viðarsson, sem eru alþjóðlegir dómarar og fá
þarna góða reynslu.
Sigursælir
júdómenn
ÍSLENSKU júdómennirnir
voru í sviðsljósinu á Smáþjóða-
leikunum í Lúxemborg í gær,
sigruðu í fimm greinum, urðu
í öðru sæti í einni og í þriðja
sæti í annarri. Á myndinni er
Eiríkur Kristinsson annar til
vinstri á verðlaunapallinum en
hann sigraði í -71 kílóa flokki.
í úrslitum mætti hann manni
frá Möltu og var glíman löng
og ströng. Eiríkur náði að
skora kuko tvívegis en mót-
heijinn aðeins einu sinni. Undir
lokin sótti hann nokkuð en Ei-
ríkur varðist og hafði sigur.
„Það var mikill pressa á manni
að standa sig af því að hinir
höfðu staðið sig svo vel og
maður varð að fá gull,“ sagði
Eiríkur.
■ Fimm gull...3D
KNATTSPYRNA
Þórður frá í sex vik-
ur vegna meiðsla
ÞÓRÐUR Guöjónsson,
landsllðsmaður í knatt-
spyrnu, mlsslr enn úr
vegna melðsla.
órður Guðjónsson fór í upp-
skurð í gær vegna meiðsla
á hægra hné en sparkað var í
hann á 90. mínútu i leik Bochum
og Uerdingen um helgina. Boc-
hum tapaði 2:1 og gerði Uerding-
en sigurmarkið þegar Þórður lá
utan vallar en úrslitin gerðu það
að verkum að Bochum er fallið
úr efstu deild.
Þórður fékk mjög góða dóma
fyrir umræddan leik rétt eins og
fyrir leikinn þar á undan sem var
gegn Stuttgart en í bæði skiptin
lék hann á miðjunni. „Þetta eru
tveir bestu leikir mínir með liðinu
og það er svekkjandi að lenda í
þessu enn einu sinni,“ sagði Þórð-
ur við Morgunblaðið í gær. Hann
meiddist á vinstri ökla á páskadag
í fyrra, átti í meiðslunum allt árið
og fór í aðgerð í desember. Hann
æfði vel og virtist vera búinn að
ná sér en meiðslin tóku sig upp
í æfingaferð á Spáni um mánaðar-
mótin janúar febrúar. Nýtt endur-
hæfingartímabil hófst og um síð-
ustu mánaðarmót var hann til í
slaginn á ný en náði aðeins fjórum
leikjum. „Eg hlýt að vera búinn
að taka út kvótann,“ sagði Þórður
sem var valinn til að leika með
U-21s árs landsliðinu í Evrópu-
keppninni gegn Svíum í kvöld en
gat ekki farið til Svíþjóðar og ligg-
ur þess í stað heima hjá sér í
Þýskalandi. Hann sagði samt að
ekki þýddi að örvænta og næsta
skref væri að byggja sig upp fyr-
ir komandi tímabil en hann yrði
frá í sex vikur. „Bochum á eftir
að leika tvo leiki í deildinni en svo
kem ég heim til íslands í þriggja
vikna frí áður en undirbúningur-
inn fyrir næsta tímabil hefst 10.
júlí. Ég var fyrsti leikmaðurinn
til að ganga frá samningi við fé-
lagið fyrir næsta ár en ákveðið
hefur verið að byggja upp nýtt lið
og er gert ráð fyrir að 12 leik-
menn fari frá Bochum.“
KNATTSPYRNA: LANDSLEIKURINN GEGN SVÍUM í STOKKHÓLMIÁ MORGUN / D4