Morgunblaðið - 31.05.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 31.05.1995, Qupperneq 1
B L A Ð A L L R A LAMDSMAMNA SMÁÞJÓÐALEIKARNIR í LÚXEMBORG Piltamir tilbúnir í slaginn gegn Svíum ÍSLAND og Svíþjóð mætast í Evrópukeppni U-21s árs landsliða í Sundsvall í dag og var gott hljóð í Herði Helgasyni, þjálfara íslenska liðsins, þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gærkvöldi. „Við erum tilbúnir í slaginn og eigum mögu- leika ef við náum góðri stemmningu þó Sviar séu alltaf sterkir,“ sagði hann. íslenska liðið tapaði þremur fyrstu leikjum sínum undir stjóm Gústafs Björnssonar og Asgeirs Eliassonar sl. haust en Hörður stjórnar strákunum í fyrsta sinn I Evrópukeppninni í dag. Hann sagðist lítið vita um sænska liðið en sér hefði verið sagt að það væri að mestu skipað sömu mönnum og léku gegn íslandi í Hafnarfirði í fyrrahaust. Hörður tilkynnti byijunarliðið í gærkvöldi og leggur upp með leikaðferðina 4-3-3 en þessir hefja leikinn: Markvörður: Árni Gautur Arason. Varnar- menn: Sturlaugur Haraldsson, Óskar Hrafn Þor- valdsson, Pétur Marteinsson, Hermann Hreið- arsson. Miðjumenn: Auðun Helgason, Pálmi Haraldsson, Lárus Orri Sigurðsson. Sóknar- menn: Kári Steinn Reynisson, Eiður Smári Guðjohnsen, Rútur Snorrason. Varamenn: Atli Knútsson, Sigurður Óm Jónsson, Tryggvi Guð- mundsson, Kristinn Lárusson og ívar Bjarklind. Kvennalandsliðið í handknattleik á mót í Kanada KRISTJÁN Halldórsson landsliðsþjálfari hefur valið hópinn sem fer til Kanada 19. júní næst- komandi og tekur þátt í alþjóðlegu móti með Kanada, Bandarikjunum, Frakklandi og líklega Dönum. Mótið er mikið til hugsað sem tmdirbún- ingur fyrir lið Bandaríkjanna og Kanada fyrir Ólympiuleikana í Atlanta og heimsmeistara- keppnina í Austurríki. Eftirfarandi leikmenn skipa liðið: Fanney Rúnarsdóttir, Gróttu, Hjördís Guð- mundsdóttir, Víkingi, Sóley Haraldsdóttir, Stjörnunni, Svava Sigurðardóttir, Víkingi, Þór- unn Garðarsdóttir, Fram, Halla María Helga- dóttir, Víkingi, Laufey Sigvaldadóttir, Stjörn- unni, Auður Hermannsdóttir, Haukum, Bryiýa Steinsen, KR, Herdís Sigurbergsdóttir, Stjöra- unni, Andrea Atladóttir, ÍBV, Inga Fríða Tryggvadóttir, Stjörnunni, Heiða Erlingsdóttir, Víkingi, Hulda Bjarnadóttir, Haukum, Berglind Ómarsdóttir, Fram og Guðný Gunnsteinsdóttir, Sfjöraunui. Þórunn Garðarsdóttir er ný í hópnum og einnig koma inn nýjar frá Danmörku Auður Hermannsdóttir og Hulda Bjarnadóttir úr Haukum. Með liðinu fara einnig dómararnir frá Akranesi, Sigurgeir Sveinsson og Gunnar Viðarsson, sem eru alþjóðlegir dómarar og fá þarna góða reynslu. Sigursælir júdómenn ÍSLENSKU júdómennirnir voru í sviðsljósinu á Smáþjóða- leikunum í Lúxemborg í gær, sigruðu í fimm greinum, urðu í öðru sæti í einni og í þriðja sæti í annarri. Á myndinni er Eiríkur Kristinsson annar til vinstri á verðlaunapallinum en hann sigraði í -71 kílóa flokki. í úrslitum mætti hann manni frá Möltu og var glíman löng og ströng. Eiríkur náði að skora kuko tvívegis en mót- heijinn aðeins einu sinni. Undir lokin sótti hann nokkuð en Ei- ríkur varðist og hafði sigur. „Það var mikill pressa á manni að standa sig af því að hinir höfðu staðið sig svo vel og maður varð að fá gull,“ sagði Eiríkur. ■ Fimm gull...3D KNATTSPYRNA Þórður frá í sex vik- ur vegna meiðsla ÞÓRÐUR Guöjónsson, landsllðsmaður í knatt- spyrnu, mlsslr enn úr vegna melðsla. órður Guðjónsson fór í upp- skurð í gær vegna meiðsla á hægra hné en sparkað var í hann á 90. mínútu i leik Bochum og Uerdingen um helgina. Boc- hum tapaði 2:1 og gerði Uerding- en sigurmarkið þegar Þórður lá utan vallar en úrslitin gerðu það að verkum að Bochum er fallið úr efstu deild. Þórður fékk mjög góða dóma fyrir umræddan leik rétt eins og fyrir leikinn þar á undan sem var gegn Stuttgart en í bæði skiptin lék hann á miðjunni. „Þetta eru tveir bestu leikir mínir með liðinu og það er svekkjandi að lenda í þessu enn einu sinni,“ sagði Þórð- ur við Morgunblaðið í gær. Hann meiddist á vinstri ökla á páskadag í fyrra, átti í meiðslunum allt árið og fór í aðgerð í desember. Hann æfði vel og virtist vera búinn að ná sér en meiðslin tóku sig upp í æfingaferð á Spáni um mánaðar- mótin janúar febrúar. Nýtt endur- hæfingartímabil hófst og um síð- ustu mánaðarmót var hann til í slaginn á ný en náði aðeins fjórum leikjum. „Eg hlýt að vera búinn að taka út kvótann,“ sagði Þórður sem var valinn til að leika með U-21s árs landsliðinu í Evrópu- keppninni gegn Svíum í kvöld en gat ekki farið til Svíþjóðar og ligg- ur þess í stað heima hjá sér í Þýskalandi. Hann sagði samt að ekki þýddi að örvænta og næsta skref væri að byggja sig upp fyr- ir komandi tímabil en hann yrði frá í sex vikur. „Bochum á eftir að leika tvo leiki í deildinni en svo kem ég heim til íslands í þriggja vikna frí áður en undirbúningur- inn fyrir næsta tímabil hefst 10. júlí. Ég var fyrsti leikmaðurinn til að ganga frá samningi við fé- lagið fyrir næsta ár en ákveðið hefur verið að byggja upp nýtt lið og er gert ráð fyrir að 12 leik- menn fari frá Bochum.“ KNATTSPYRNA: LANDSLEIKURINN GEGN SVÍUM í STOKKHÓLMIÁ MORGUN / D4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.