Morgunblaðið - 31.05.1995, Qupperneq 4
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Ólafur gegn
Andersson?
ÁSGEIR Elíasson, þjálfari
landsliðsins, setti Ólaf Adolfs-
son, miðvörðinn hávaxna á sér-
staka skallaæfingu, á æfingu
landsliðsins í gærmorgun.
Hvort það sé vísbending um
að Ólafur byrji teikinn ívörninni
við hlið Guðna Bergssonar og
Kristjáns Jónssonar kemur í
Ijós, en Ásgeir tilkynnir í dag
liðið sem leikur gegn Svíum á
morgun.
jjjjf Ásgeir velur mig til að byrja,
þá er ég tilbúinn til að svara
kallinu, sagði Ólafur eftir æfing-
una. Þegar Ólafur
var spurður hvort
hann ætlaði að setja
mark með skalla
eins og í Keflavík sl.
laugardag, hló hann og sagði: „Mitt
hlutverk verður fyrst og fremst að
veijast, ef ég verð valinn — og ég
myndi reyna að standa mig fyrst
og fremst í því hlutverki. Svo er
það alltaf fyrir hendi að skalla að
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrífar
frá Svíþjóð
marki, ef það kemur upp,“ sagði
Ólafur og bætti við: „Stemmningin
er mjög góð í hópnum og við erum
tilbúnir að takast á við hið erfíða
verkefni sem bíður okkar.“
Ef Ólafur verður valinn í byrjun-
arliðið, þá mun Ásgeir gera það til
að reyna að hefta Kennet Anders-
son, sem er skallamaður góður og
hefur skorað mörg mörk með skalla.
Svo er einnig í stöðunni að Izudin
Daði Dervic, hinn sprettharði varn-
armaður úr KR, verði látinn leika,
til að hafa gætur á Thomasi Brolin.
Líklegt byrjunarlið íslands er: Birk-
ir Kristinsson — Guðni Bergsson,
Kristján Jónsson, Ólafur Adolfs-
son/Daði Dervic — Þorvaldur Örl-
ygsson, Hlynur Stefánsson, Sigurð-
ur Jónsson, Arnór Guðjohnsen,
Rúnar Kristinsson — Eyjólfur
Sverrisson, Amar Gunnlaugsson.
Þetta eru fjórir leikmenn, sem
leika á íslandi og sjö atvinnumenn,
sem leika í Svíþjóð, Tyrklandi, Eng-
landi og Þýskalandi.
Vona að Rioch
verðiáfram
Guðni Bergsson mun leika áfram
með Bolton næsta vetur, en
liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeild-
inni með því að leggja Reading að
velli á Wembley í fyrradag, eins og
greint var frá í Morgunblaðinu í
gær. „Það er ljóst að við verðum
að halda öllum leikmönnum okkar
og fá nýja leikmenn fyrir átökin í
úrvalsdeildinni. Þá vona ég að
Bruce Rioch verði áfram fram-
kvæmdastjóri, en Arsenal og Manc-
hester City em með hann á óska-
lista sínum. Það em mörg félög á
eftir Alan Stubbs og Jason McAte-
er, en þess má geta að Liverpool
reyndi að fá þá báða til sín fyrir
síðastliðið keppnistímabil og buðu
fímm milljóna pund í þá. Everton,
Liverpool og Blackburn vilja nú fá
Stubbs til sín, en hann er sterkur
varnarleikmaður," sagði Guðni.
ÓLAFUR Adolfsson var á sérstakri skallaæfingu hjá Ásgelrl
Elíassynl landsllðsþjálfara í gær tll þess að vera í sem allra
bestu forml verði hann í byrjunarliðlnu gegn Svíum.
„Verðum meira
ívörnen sókn“
„ÞAÐ er Jjóst að Svíar koma til með að sækja grimmt á okkur í
byrjun, þannig að við verðum meira í vörn en sókn,“ sagði Ásgeir
Elíasson, landsliðsþjálfari, þegar hann sat fyrir svörum hjá sænskum
blaðamönnum í gær. „Það er alltaf möguleiki á sigri og við munum
reyna að nýta okkur hann. Við ætlum okkur betri árangur en í
undankeppni heimsmeistarakeppninnar, þar sem við náðum fimm-
tíu prósent árangri. Við höfðum leikið þrjá leiki og tapað þeim öll-
um, en það eru fimm leikir eftir," sagði Asgeir. Sænsku blaðamenn-
imir spurðu hann hvort að ísland ætti möguleika á að leggja Tyrki
og Svisslendinga að velli. „Ég væri ekki hér, ef ég teldi að svo
væri ekki,“ sagði Ásgeir.
Amór: Það
eru ellefu
leikmenn í liði
ARNÓR Guðjohnsen var á blaða-
mannafundi með Ásgeiri landsl-
iðsþjálfara í gær og var hann
spurður hvort hann léki stórt
hlutverk í íslenska liðinu. „Það
er ekkert lið sem byggist upp á
einum eða tveimur leikmönnum
— það em ellefu leikmenn í liði
og í íslenska liðinu em ellefu
leikmenn sem em ákveðnir að
gera sitt besta." Þegar Amór var
spurður hvort Islendingar
myndu veita Svíum aðstoð — með
því að leggja Tyrki og Svisslend-
inga að velli, sagði hann að Svíar
yrðu að leysa sín vandamál sjálf-
ir. „Þeir verða að klára sína leiki,
geta ekki lagt traust sitt á f slend-
inga.“
Landsliðið
æfðiá
Rásunda
LANDSLIÐIÐ æfði á Rásunda-
leikvanginum í Stokkhólmi í
gærkvöldi kl. 19, eða á sama tíma
og leikurinn gegn Svíum fer
fram. Leikvangurinn tekur 32
þús. áhorfendur, en reiknað er
með að 25 þús. áhorfendur sjái
leikinn, eða jafnvel að leikvan-
girnn verði þéttsetinn — það fer
eftir veðri. Mikil stemmning er
fyrir leiknum, sem er rrýög þýð-
ingarmikill fyrir Svía.
_ Guðni og
Ólafur í lækn-
isskoðun
GUÐNI Bergsson, fyrirliði lands-
liðsins, og Ólafur Þórðarson fóm
í læknisskoðun í gær. Birkir
Sveinsson, læknir landsliðsins,
fór með þá til íslensks læknis,
Friðfinns Sigurðssonar, sem er
með stofu við Rásunda-Ieikvang-
inn, fyrir utan Stokkhólm. Guðni
hefur verið slæmur í baki og
Ólafur hefur fundið fyrir verk í
hné. Þá hefur Amar Gunnlaugs-
son átt við meiðsli að stríða —
er með beinhimnubólgu.
Ólafur tók fullan þátt í æfingu
landsliðsins i gærkvöldi en Guðni
og Sigurður Jónsson, sem hefur
átt við bakmeiðsli að stríða,
hvíldu sig.
Hvað gera Arnarog Bjarki Gunnlaugssynir?
„Erum ekki á leið-
inm til Islands
ÞAÐ er næsta víst að fjórir landsliðsmenn íslands hafa hug á
að breyta til — færa sig um set í Evrópu. Sá orðrómur hefur
verið uppi að KR-ingar hefðu hug á að tryggja sér tvíburabræð-
urna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni, sem eru hjá Niirnberg í
leigu frá Feyenoord í Hoilandi. „Við erum ekki á leiðinni til Is-
fands og höfum ekkert heyrtfrá KR-íngum,“ sagði Bjarki Gunn-
laugsson, þegar Morgunblaðið bar þennan orðróm undir hann
í Vásby fyrir utan Stokkhólm í gær.
4T
Adögunum var Niimberg dæmt bandsins, þannig að það er mögu-
niður í áhugamannadeild í leiki á að liðið haldi sér í annari
Þýskaiandi, þar sem félagið á I miki- deildarkeppninni. Ef úrskurðurinn
um fjárhagslegum vandamálum. stendur er ljóst að við förum frá
„Forráðamenn félagsins hafa áfrýj- félaginu. Við emm ekki tiibúnir að
að úrskurði þýska knattspymusam- fara strax aftur til Feyenoord, held-
ur viljum við vera í Þýskalandi í tvö
ár til viðbótar,“ sagði Bjarki.
Þorvaldur Oriygsson er ákveðinn
að fara frá Stoke. „Ég verð ekki
lengur lvjá félaginu og hef tjáð hug
minn í því máli. Hvert ég fer, það
kemur ekki í ljós fyrr en í júnílok,"
sagði Þorvaldur.
Eyjólfur Sverrisson, sem varð
Tyrklandsmeistari með Besiktas á
dögunum, hefur hug á að breyta til
og reyna eitthvað nýtt. Hann er með
tilboð frá þýsku liði, en hefur meiri
hug á að spreyta sig i öðru landi —
td. Frakklandi.
Brolin byvjar
Eg er tilbúinn í slaginn og það er
gaman að vera kominn aftur í
sænska landsliðshópinn, segir Thom-
as Brolin, leikmaðurinn snjalli hjá
Parma, sem hefur ekki leikið með
sænska landsliðinu í sex mánuði
vegna meiðsla. „Brolin kemur til okk-
ar eins og frelsarinn," segir Anders
Limpar, leikmaður með Everton í
Englandi, sem er einnig kominn í
landsliðið á ný, en það er búist við
góðri samvinnu þeirra félaga gegn —
báðir eru fljótir og leiknir með knött-
inn. „Ég mun sjá um sendingar til
Brolin, þannig að hann skori," sagði
Limpar.
Sænsku blöðin segja að það sé
mjög þýðingarmikið fyrir sænska liðið
að Brolin leiki með, þó það væri ekki
nema fyrri hálfleikinn. Þegar Brolin
hefur leikið með sænska liðinu hafí
það unnið 22 sigra, gert níu jafntefli
en tapað ellefu leikjum. Án Brolins
hefur liðið unnið átta leiki, gert fímm *
jafntefli og tapað átta leikjum.
Það var „svartur dagur" hjá Tommy
Svensson, landsliðsþjálfara Svía, þegar
lið hans tapaði óvænt fyrir Ungverjum,
0:1, en áður hafði sænska liðið tapað
í Sviss og Tyrklandi. Eini möguleiki
Svía á að komast í úrslitakeppni EM
í Englandi 1996, er að vinna þtjá hei-
maleikina sem liðið á eftir — gegn
íslandi, Sviss og Tyrklandi, og síðan
að ísland taki stig af Sviss og Tyrk-
landi í Reykjavík. Höfuðverkur sænska
liðsins að undanfömu hefur verið hve
leikmenn liðsins hafa átt í erfiðleikum
með að skora mörk. Nú er annað
vandamál á ferðinni — það er að tveir
af vamarleikmönnum liðsins eru í leik-
banni, Roger Ljung og Joachim Björk-
lund. Þá er Roland Nilsson meiddur
og Jan Eriksson meiddist á læri á
dögunum. Það er mikil pressa á Svens-
son og sænska landsliðinu að leggja
íslendinga að velli — ef Svíar vinna,
þá léttist sú pressa á honum, en ef
þeir tapa þá er Svensson kominn í
vond mál.