Morgunblaðið - 02.06.1995, Page 4
4 B FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995 B 5
EVROPUKEPPNIN I KNATTSPYRNU
EVROPUKEPPNIN I KNATTSPYRNU
Ævintýralegar upphafsmínúturá Rásunda-leikvangingum íStokkhólmi
Þögnin var eins og á
sumarkvöldi í Asbyrgi
Morgunblaðið/Golli
Eyjólfur Sverrisson i baráttu við Jonas Thern í gærkvöldi.
Arnar Gunnlaugsson, sem gerði mark íslands, er númer 9.
Armenia Bielefeld
vill Eyjólf Sverrisson
„ÞAÐ er rétt að þyska liðið Bielefeld hefur haft samband við mig og spurt
hvort ég væri tilbúinn að koma til félagsins. Ég sagði forráðamönnum félags-
ins að ég myndi athuga málið og hef ekkert heyrt frá þeim síðan,“ sagði
Eyjólfur Sverrisson, leikmaður með tyrkneska liðinu Besiktas. Bielefeld, sem
komst upp í 2. deild í Þýskalandi nú í vor, er að safna að sér sterkum leik-
mönnum en fyrir keppnistímabilið sem nú er að ljúka keypti liðið þá Fritz
Walter, fyrrum félaga Eyjólfs hjá Stuttgart, Thomas von Heesen, fyrrum
fyrirliða Hamburger SV og Armin Eck, einnig frá HSV. Talið er líklegt að
félagið næli í Uli Stein, markvörð frá Hamburger fyrir næsta vetur.
EF hægt hefði verið að Ijósmynda þögnina sem varð á Rá-
sunda-leikvanginum í Stokkhólmi, eftir aðeins fjórar mínútur
af leik Svíþjóðar og íslands f gærkvöldi, hefði sú mynd verið
valin fréttamynd ársins í heiminum — það var eins og vera á
tjaldstæði í Ásbyrgi, þegar knötturinn sveif um loftið eins og
hunangsfluga og hafnaði í „flugnanetinu." Ég á ekki nema eitt
orð yfir þögnina — stórkostlegt. Menn stóðu agndofa, horfðu
á hvern annan og trúðu ekki sínum eigin augum. Að vera íslend-
ingur á meðal 25.000 Svía á þessari stundu, mun ég aldrei
gleyma — sælutilfinningin leið um líkamann, ég var svo sannar-
lega eins og alltaf áður, stoltur að vera íslendingur.
Sigmúndur Ó.
Steinarsson
skrifar frá
Stokkhólmi
Þetta var aðeins byijunin á
sælunni, því að leikmenn ís-
lenska liðsins sýndu enn einu sinni
framá að ísland er ekki lítið, það
er stórt og stækk-
aði ef eitthvað var.
Ég ætla ekki að að
lýsa stundinni á
R&sunda-vellinum
mínútu fyrir mínútu, því þá væri
ég farinn að skrifa ævisögu. Sund-
in hér var stórkostleg fyrir ís-
lenska knattspyrnu, þar sem ellefu
vaskir „víkingar" frá Sögueyjunni
mættu til leiks til að hamra á
„sænska stálinu" og það var gert
þegar stálið var heitt. Leikmenn
Islands bárðu enga virðingu fyrir
Svíum, sem unnu bronsverðlaun í
heimsmeistarakeppninni í Banda-
ríkjunum fyrir ári síðan. Stóru
stjörnurnar í sænska liðinu voru
sem stjörnuljós á vellinum. Leik-
gleði, árræðni, yfirvegun og þor
íslensku leikmannanna komu
Svíum í opna skjöldu — á vellinum
áttust jafningjar við. Islendingar
voru með Svía í heljargreipum og
kvöldu þá, eins og veiðimaður sem
rennur fyrir stórlax í Elliðaánum.
Á öngulinn var „stóri fiskurinn“
kominn — það var aðeins eftir að
sýna þolinmæði við að þreyta
hann, áður en dregið var á landi.
Örvænting Svía var mikil í leiks-
lok, þegar þeir reyndu að losa sig
við tak íslendinga — þeir gerðu
allt sem þeir gátu til að losa sig
af önglinum, en náðu því ekki.
Það er vart á neinn hallað í ís-
lenska liðinu, þegar sagt er að
bésti markvörður íslands í sög-
unni, Birkir Kristinsson, hafi verið
maður leiksins. Það má segja að
ekki hafi reynt mikið á hann allan
leikinn, en þegar á reyndi varði-
hann þrisvar sinnum stórkostlega.
Hver einasti leikmaður íslenska
liðsins getur verið stoltur og eng-
inn getur sagt: „Ekki benda á
mig!“ — það er ekki annað hægt
en að benda á liðsheildina; liðs-
heild leikmanna sem var ákveðinn
að gera sitt besta og leika knatt-
spyrnu eins og hún getur gerst
best. Það er aðeins einn þjálfari á
íslandi, sem getur stjórnað fylk-
ingu eins og lék hér i Stokk-
hólmi. Það er Ásgeir Elíasson,
maðurinn sem blés í herlúðra fyr-
ir nokkrum árum. Já, það var árið
sem kraftaknattspyrnan var
kvödd á eftirminnilegan hátt á
Laugardalsvellinum, þegar Spán-
verjar voru lagðir að velli 2:1.
Ásgeir er maðurinn sem hefur
fengið íslenska knattspyrnumenn
til að leika knattspyrnu, sem hann
lék og vill leika — knattspyrnu í
hágæðaflokki. Ásgeir er með húf-
una, en ég vil taka ofan fyrir hon-
um með tveimur orðum: Áfram
ísland!
Svíþjóð - Island
Rásunda leikvangurinn í Stokkhólmi, Evrópukeppni landsliða í knattspymu, fimmtu-
daginn 1. júní 1995.
Aðstæður: Eins og best verður kosið, sól og 25 stiga hiti.
Mark íslands: Amar Gunnlaugsson (4.).
Mark Svíþjóðar: Thomas Brolin (17. - vítaspyma).
Gult spjald: Guðni Bergsson (17. - fyrir að sparka knettinum af leikvelli), Þorvald-
ur Örlygsson (34. - brot), Hlyrtur Stefánsson (75. - brot).
Dómari: Atanas Ouzounov, Búlgariu, mjög góður.
Línuverðir: Ivan Lekov og Alexey Iliev, vel í takt við leikinn. Frábært dómarapar.
Áhorfendur: 25.315.
Svíþjóð: Ravelli - Sundgren, Mattsson, P. Andersson - T. Brolin, S. Schwarz, J.
Them, Kámark, Limpar (H. Larsson 50.) - Dahlin, K. Andersson.
ísland: Birkir Kristinsson - Guðni Bergsson, Ólafur Adolfsson, Kristján Jónsson -
Þorvaldur Öriygsson, Hlynur Birgisson, Sigurður Jónsson, Arnór Guðjohnsen (Ólaf-
ur Þórðarson 88.), Rúnar Kristinsson - Eyjólfur Sverrisson, Amar Gunnlaugsson
(Bjarki Gunnlaugsson 77.).
„Þetta er geysi-
legur sigur
fyrir okkur“
Eg er uppi í skýjunum — að ná
jöfnu við bronslið Svía frá
heimsmeistarakeppninni í Banda-
ríkjunum, er geysilegur sigur fyrir
okkur. Það er ekki hægt að loka
augunum fyrir því að heppnin var
með okkur — Svíar fengu fleiri
tækifæri til að gera út um leikinn,
áttu skot sem hafnaði á þverslá.
Hver verður ekki búinn að gleyma
því skoti þegar næsti dagur er
runninn upp, það eru úrslitin sem
standa um ókomna tíð,“ sagði
Birgir Kristinsson, markvörður,
ein af hetjum íslands hér í Stokk-
hólmi.
„Það má ekki gleyma því að
Svíar skoruðu úr vítaspyrnu, sem
þeir fengu á silfurfati — ég varði
skotið, sló knöttinn þannig að
hann hafnaði á brjóstkassa Rún-
ars. Að dæma vítaspyrnu á þetta,
var út úr myndinni," sagði Birkir,
sem var mjög ánægður með leik-
inn. „Það var ánægulegt að leika
í markinu fyrir aftan tíu leikmenn,
sem allir ætluðu að gera sitt
besta.“
0B 4t íslendingar fengu aukaspymu fjórum metrum frá vítateig
■ I Svía, þegar brotið var á Arnari Gunnlaugssyni á fjórðu
mín. Svíar stilltu upp varnarvegg rétt innan vítateigs — fyrir framan
Rúnar Kristinsson og Amar Gunnlaugsson. Arnar tók aukaspyrnuna
með vinstri fæti og sendi knöttinn með snúningi yfir vamarvegg Svía,
Thomas Ravelli, markvörður, kastaði sér og siæmdi hendi í knöttinn,
en náði ekki að veija skot Ámars, sem var út við stöng, knötturinn
hafnaði efst i markhorninu.
1B Thomas Brolin skoraði fyrir SvJa úr vítaspyrnu á 17. mín.,
■ I sem var dæmd á Rúnar Kristinsson, sem varð fyrir skoti
Brolins, eftir að Birkir Kristinsson hafði varið skalla Kennets Anderson-
ar — sló knöttinn, sem hafnaði á bijóstkassa Rúnars. Dómarinn sofn-
aði þarna illilega á verðinum þvf hann hefði ekki átt að dæma vfta-
spymu.
31. maí 1995:
21 árslandsleikur:
Svíþjóð-Ísland 1:0 I
STAÐAN
Tyrkland.........5 3 11 12:6 10
Sviss............5 3 1 1 10:7 10
Svíþjóð..........6 2 1 3 7:8 7
Ungveijaland....4 12 1 5:6 5
ísland...........4 0 13 1:8 1
■Næsti leikur: ísland - Ungyeijaland á
Laugardalsvelli 11. júní. Islendingar
eiga alls eftir fjóra leiki, þeir mæta
Svisslendingum á heimavelli 16. ág-
úst, Tyrkjum heima 11. október og
Ungverjum á útivelli 11. nóvember.
íslendingai
gegnSví
1. júní 1995, EM:
Svíþjóð-Ísland 1:1
0:1 Arnar Gunnlaugsson
Órebro
Amór Guðjohnsen
Hlynur Stefánsson
Hlynur Birgisson
17. júlf 1980: ____
Svíþjóö-Ísland 1:1 R Hoiipstod
Guðmundur Þorbjörnsson r *
Pétur Pétursson heíur skorað
íslendinga gegn sænsku liði.
Skoraði 3 mörk er Feyenoord vann
Malmö FF4:0 íUEFA-keppninni 1979
Evrópukeppni bikarhafa 1990:
Djurgárden - Fram 1:1
Pétur Ormslev, vítasp.
Fram vann 3:0 í Reykjavík
ogkomstáfram
24. ágúst 1954:
Svíþjöð-Ísland 3:2
2:1 Þórður Þórðarson
2:2 RíkharðurJónsson
lokkhólmur
O
Imar
Áið/mö ó'
Teltur Þóröarson varð sænskur meistarí með Öster 1978, 1980 og 1981
Evrópukeppni bikarhafa 1987:
Kalrnar FF - ÍA 0:0
iótapaöi 0:1 áAkranesi
UEFA-keppnin 1989:
Kalmar FF - Keflavík 2:1
fíagnar Margeirsson
kettavik vann I Keflavik, 1:0,
og komst álram
Morgunblaðið/Golli
á í fyrsta
heila leiknum
ÓLAFUR Adolfsson, miðvörðurinn
stóri og sterki úr Íslandsmeistaraíiði
Skagamanna, var í fyrsta skipti í byrj-
unarliði landsliðsins í gærkvöldi, en
stóð engu að síður vel fyrir sínu og
bar enga virðingu fyrir hinum frægu
framherjum sænska bronsliðsins frá
HM. Hér á hann í höggi við Martin
Dahiin, og ekki er annað að sjá en
Skagamaðurinn hafi betur. Ætlar sér
greinilega ekki að láta Dahlin komast
leiðar sinnar. Ólafur hefur lengi verið
talinn einn sterkasti miðvörður lands-
ins, og hann sýndi það og sannaði í
gærkvöldi aö hann á fullt erindi í
landsliðið.
Getum leikið betur
sagði Ásgeir Elíasson landsliðsþjálfari eftir jafnteflið í gær
Eg er ánægður með úrslitin, en
ekki leik okkar. Við getum
leikið miklu betur en við gerðum
hér. Mér fannst vanta meira sjálfs-
traust hjá leikmönnum — þeir hop-
uðu oft fljótt og of aftarlega. Svíar
voru meira með knöttinn og þá
sérstaklega í seinni liálfleik. Það
hafði sín áhrif á leik okkar, hvað
við skoruðum fljótt í Ieiknum —
ég hefði viljað fá markið seinna.
yitaspyrnudómurinn var út i hött.
Ég er ánægður með eitt stig, en
hafði trú á því fyrir leikinn að við
færum héðan með þijú stig. Ef
strákarnir fá pínulítið meira sjálfs-
traust, getum við verið nær þeim
landsliðum sem leika bestu knatt-
spyrnuna," sagði Ásgeir, sem hrós-
aði Birki Kristinssyni. „Hann hafði
ekki mikið að gera, en þegar á
reyndi varði hann snilldarlega."
„Vantaði meiri yfirvegun"
„Ég var búinn að segja, að ég
ætlaði að fagna hér í Stokkhólmi
og það geri ég svo sannarlega.
Við vorum að sjálfssögðu heppnir,
það vantaði meiri yfirvegun í leik
okkar. Svíar pressuðu grimmt und-
ir lokin, þannig að við féllum of
aftarlega," sagði Guðni Bergsson,
fyrirliði landsliðsins, þar sem hann
var með stóran ísklump á bakinu,
til að kæla sig niður vegna verkja.
„Þetta var sigur liðsheildarinnar.“
„Getum gert betur“
„Við sýndum góða leikkafla, en
við getum gert betur og ætlum
okkur það. Að ná jafntefli gegn
Svíum hér í Stokkhólmi er frábær
árangur — það hefðu fáir trúað
því fyrir leikinn að við myndum
ná að velgja Svíum heldur betur
undir uggum. Einu get ég lofað,
að framundan eru þrír sigurleikir
heima — fyrst gegn Ungverjum
og síðan gegn Tyrkjum og Sviss-
lendingum. Við erum ekki hættir
- skemmtunin er rétt að byija,“
sagði Arnór.
Arnór
heiðraður
fyrir leikinn
„Ég var stoltur að taka á móti
blómvendinum," sagði Arnór
Guðjohnsen, leikmaður
Örebro, sem var kallaður fram
á völlinn fyrir leik Svíþjóðar
og íslands til að taka við viður-
kenningu frá sænska blaðinu
Expressen, sem valdi hann
knattspymumann Sviþjóðar
1994. Þá má geta þess að fyrir
Ieikinn var tilkynnt í hátalara-
kerfi vallarins, hverjir væru
heiðursgestir. í þeim hópi var
Sigurður Baldursson, fram-
kvæmdíistjóri ísienskra Get-
rauna, sem sat á meðal Ing-
vars Carlssons, forsætisráð-
herra Svía, og Leimard Jo-
hannssonar, formanns knatt-
spyrnusambands Evrópu.
Geir
græddi
1.800
sænskar
GEIR Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri Knattspyrnusambands
íslands, spáði rétt um úrslitin
og fékk pottinn, græddi 1.800
sænskar krónur, eða tæplega
16.000 krónur. Geir átti síðan
gullsetningu, þegar laudsliðs-
hópurinn var á leið að hótel-
inu, sem búið er á. Þegar lang-
ferðabifreiðin rann í hlað rétt
fyrir klukkan tíu, sagði Ásgeir
Elíasson, landsliðsþjálfari, að
cf menn yrðu fjótir inn á her-
bergi myndu þeir sjá niarkið
sem Arnar Gunnlaugsson
skoraði, þvi leikurinn byrjaði
kl. tíu í sænska sjónvarpinu.
Þá gall í Geir: „þið þurfið ekki
að hafa hraðann á — markið
verður sýnt klukkan ellefu í
islenska sjónvarpinu.“ Þess
má geta að enginn Svíi hefði
getað unnið pottinn. Fyrir
leikinn kom stuðningsmanna-
hópur sænska landsliðsins
saman á veitingastað á Rá-
sunda og menn þar voru bjart-
sýnir er þeir skáluðu. Tölurnar
fjögur tii fimm núll fyrir Sví-
þjóð voru vinsælar hjá ræðu-
mönnum, sem létu sig síðan
hverfa fljótt eftir leikinn.
Hlynur og
Þorvaldur í
bann
HLYNUR Stefánsson og Þor-
valdur Öriygsson leika ekki
með íslenska landsliðinu gegn
Ungveijum á Laugardalsvell-
inum 11. júní. Þeir verða báðir
í leikbanni, þar sem þeir hafa
fengið að sjá tvö gul spjöld í
Evrópukeppninni.
Arnar og
Haraldur
hvíldu
TVEIR leikmenn íslenska
landsliðshópsins voru ekki á
leikskýrslu í gær — þeir Har-
aldur Ingólfsson og Arnar
Grétarsson. Varamenn voru:
Friðrik Friðriksson, mark-
vörður, Sigursteinn Gíslason,
Ólafur Þórðarson, sem kom
inná, Izudin Daði Dervic og
Bjarki Gunnlaugsson, sem
kom iuná.