Morgunblaðið - 03.06.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.06.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA ' 't*V wf "." BLAÐ Júlíus skoðar að- stæður hjá þýska liðinu Rostock VALSMAÐURINN Júlíus Gunnarsson fer til 2. deild- ar liðs Rostoek í Þýskalandi á þriðjudag í boði félags- ins, kannar aðstæður og æfir með liðinu í þrjá daga. Júlíus, sem er hagfræðingur að mennt, hefur fullan hug á að fara út í framhaldsnám og leika handknatt- leik samfara náminu en Rostock vill fá hann í sínar raðir. Sávehof í Svíþjóð var einnig á eftir honum en það datt upp fýrir þegar leikmaður frá Eist- landi, sem ætlaði að fara frá félaginu til Rostock hætti við í síðustu viku og vildi vera áfram. . Nokkur íslensk félög hafa haft samband við Júl- íus vegna hugsanlegra félagaskipta, m.a. Aftureld- ing, en hann sagði'við Morgunblaðið í gær að nám erlendis væri sér efst í huga. „Það er kominn tími til að breyta til og ég ætla út,“ sagði hann en ann- að sænskt lið er einnig inni í myndinni. Morgunblaðið/Golli ÍBIsnrgttttlilgiftfö 1995 ■ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ Æfingin skapar meist- arann ARNAR Gunnlaugsson æfði sig í að taka aukaspyrnur fyrir Evrópu- leik Svíþjóðar og íslands í fyrra- kvöld og hann uppskar eins og til var sáð — með marki úr auka- spyrnu á upphafsminútum leiksins. Rétt fyrir leikinn fór Tommy Svensson, landsliðsþjálfari Svía, til Ravellis, markvarðar, og sagði: „Ég sá að númer níu, Gunnlaugs- son, stóð og æfði aukaspyrnur í upphituninni. Hann skrúfar bolt- ann með vinstri yfir varnarvegg- inn. Passaðu þig.“ Þrátt fyrir að- vörunina skoraði Amar þjá Ra- velli á fyrrnefndan hátt en „auka- spyrnan var óverjandi," sagði markvörðurinn. A myndinni til hliðar stillir Arnar boltanum upp fyrir spymuna. Rúnar Kristinsson er hjá honum en Sigurður Jónsson fylgist rólegur með. ■ Viðbrögð Svía/D4 HANDKNATTLEIKUR KNATTSPYRNA Morgunblaðið/RAX ÞORBERQUR Aðalsteinsson er vlrtur handknattlelksþjálfarl. Kúveit vildi Þor- bera sem þjáHara Forsvarsmenn handknattleiks- mála í Kúveit gerðu Þorbergi Aðalsteinssyni skriflegt tilboð um að taka við þjálfun landsliðs þjóðarinnar fram yfír Heimsmeistarakeppnina í Japan 1997. Þorbergur var tilbúinn að slá til en í gær lá endanlega fyr- ir að samningur Kúveitmanna við Rússann Anatólíj Evtutsjenko, sem átti að renna út 31. maí, er í gildi í eitt ár til viðbótar. Því verður ekki af samningum við Þorberg að þessu sinni, en Kúveitmenn vilja taka mál- ið aftur upp að ári. íþróttamálaráðuneytið í Kúveit sér um alla þjálfarasamninga í landinu og eru þeir með ámóta sniði. Yfír- leitt er samið til nokkurra ára en samt gildir samningurinn aðeins í eitt ár í einu og er síðan endurnýj- aður árlega þar til samningstíminn er liðinn. Evtutsjenko sagði í viðtali við Morgunblaðið fyrir skömmu að hann yrði laus allra mála 31. maí og bætti þá við að hann vissi ekki hvað síðan tæki við. Hann tók við landsliðinu í águst í fyrra og gerði samning til vors 1996 sem endumýj- aðist sjálfkrafa eftir Heimsmeistara- keppnina á íslandi fyrst ekkert var að gert í tíma. Þetta lá ekki fyrir þegar Kúveitmenn gerðu Þorbergi skriflegt tilboð en eftir að hafa farið gaumgæfílega yfír alla pappíra vildi íþróttamálaráðuneytið ekki breyta áður gerðum samningi og Evtutsj- enko verður því áfram. Þorbergur sagði við Morgunblaðið í gær að umrætt tilboð hefði verið mjög gott. Hann hefði látið lögfræð- ing fara yfir samninginn og hefði ekki verið yfir neinu að kvarta. Nið- urstaðan breytti hins vegar engu. Ánægjulegt væri að hafa fengið þetta tilboð og aðrar fyrirspurnir en hann sagðist alveg vera rólegur þó ekkert væri ákveðið með fram- haldið. SMÁÞJÓÐALEIKARIMIR: TVÖ ÍSLANDSMET í SUNDI / D2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.