Morgunblaðið - 03.06.1995, Qupperneq 3
2 D LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
URSLIT
SMAÞJOÐALEIKARNIR I LUXEMBORG
Smáþjóðaleikarnir
ísland - Lúxemborg 86:95
Undanúrslitin í körfuknattleik, föstudaginn
2. júní 1995.
Gangur leiksins: 0:2, 4:9, 11:16, 19:18,
24:27, 36:29, 42:36, 42:41, 44:49, 46:55,
50:63, 54:67, 62:72, 69:76, 69:82, 78:84,
84í85; 86:90, 86:95.
Stig Islands: Teitur Örlygsson 23, Guðjón
Skúlason 16, Guðmundur Bragason 15,
Falur Harðarson 12, Valur Ingimundarson
6, Hermann Hauksson 6, Herbert Amarson
3, Jón Kr. Gíslason 3, Hinrik Gunnarsson 2.
Stig Lúxemborgar: Wilson 24, Schiltz 19,
Horsmans 15, Wolter 11, Maas 8, Feyder
8, Adam 6, Boever 4.
Dómarar: Hainaut frá Belgíu og Micaleff
frá Möltu. Sá fyrmefndi var ágætur en
hinn ömurlegur.
Villur: ísland 22 - Lúxemborg 23.
■Kýpur vann San Marínó 87:51 í hinum
undanúrslitaleiknum þannig að við leikum
um þriðja sætið við San Marínó en Kýpur
og Lúxemborg leika til úrslita.
Ahorfendur Tæplega 1.000
ísland - Lúxemborg 54:81
Úrslitaleikur kvenna:
Gangur leiksins: 6:9, 19:24, 32:35, 36:45,
40:52; 44:62, 47:69, 54:81.
Stig Islands: Olga Færseth 13, Anna Dís
Sveinbjörgsdóttir 9, Anna María Sveinsdótt-
ir 8, Björg Hafsteinsdóttir 7, Helga Þor-
valdsdóttir 6, Hanna Kjartansdóttir 4, Elísa
Vilbergsdóttir 3, Inga Dóra Magnúsdóttir
2, Lánda Stefánsdóttir 2.
Sund
KONUR:
50 m skriðsund:
1. Eydís Konráðsdóttir...........28,39
2. Boucouillon, Mónakó...........28,75
3. Zeig, Lúxemborg...............28,79
200 m bringusund:
1. Grulms, Lúxemborg......... 2.47,60
2. Ioannou, Kýpur..............2.47,85
3. Bima Bjömsdóttir............2.50,13
4. Lára Hmnd Bjargardóttir.....2.50,98
200 m skriðsund:
1. Michaelidou, Kýpur..........2.10,80
■Mótsmet.
2. Zarma, Kýpur................2.10,88
3. Hildur Einardóttir..........2.11,34
7. Sigurlín Garðarsdóttir......2.16,37
4x100 m fjórsund
1. ísland......................4.32,15
■íslandsmet og mótsmet. Sveitina skipuðu
Eydís Konráðsdóttir, Berglind Daðadóttir,
Elín Sigurðardóttir og Hiidur Einarsdóttir.
2. Lúxemborg...................4.41,03
3. Kýpur.......................4.41,89
KARLAR:
50 m skriðsund:
1. Michaelides, Jýpur............24,42
2. Logi Jes Kristiánsson.........24,52
3. Magnús Már Olafsson...........24,75
200 bringusund:
1. Verdino, Mónakó.............2.21,60
2. Magnús Konráðsson...........2.24,78
■Persónulegt met.
3. Ruiz, Andorra...............2.26,34
4. Óskar Guðbrandsson..........2.26,51
200 m skriðsund:
1. Amar Freyr Ólafsson.........1.53,96
■Persónulegt met.
2. Stoltz, Lúxemborg...........1.54,49
3. Magnús Már Ólafsson.........1.55,26
4x100 m fjórsund:
1. ísland......................3.55,82
■íslandsmet og nýtt mótsmet. Sveitina
skipuðu Logi Jes Kristjánsson, Magnús
Konráðsson, Magnús Már Ólafsson og Am-
ar Freyr Ólafsson.
2. Lúxemborg....................4.01,08
3. Mónakó.......................4.03,49
Frjálsíþróttir
5.000 m hlaup kvenna:
1. Martha Emstsdóttir..:.......16.19,31
2. Daniele Kaber, Lúxemborg....16.29,67
3. Carol Galea, Möltu..........16.47,30
7. Fríða Rún Þórðardóttir......18.09,42
110 m grindahlaup karia:
Prodromos Katsantonis, Kýpur......13,97
■Mótsmet.
2. Thierry Eischen, Lúxemborg.....14,27
3. Prokopis Georgiou, Kýpur.......14,28
6. Ólafur Guðmundsson.............15,26
Þrfstökk Karla:
1. M. Hadjiandreou, Kýpur.........16,04
2. P. Meletiou, Kýpur.............14,78
3. X. Montane, Andorra............14,63
4. Óiafur Guðmundsson.............13,27
800 m hlaup kvenna:
1. Tania Fransissi, Lúxemborg...2.09,66
2. Magali Guedon, Mónakó........2.14,08
3. Laufey Stefánsdóttir.........2.14,22
6. Fríða Rún Þórðardóttir.......2.21,08
Spjótkast karla:
1. Sigurður Einarsson.............73,92
2. C. Telonis, Kýpur..............65,96
3. A. Coedert, Lúxemborg..........64,70
Kúluvarp karla:
1. E. Louca, Kýpur................18,46
2. L. Iacovou, Kýpur..............16,47
3. Sigurður Einarsson.............14,25
4. Ólafur Guðmundsson.............12,91
400 m hlaup karla:
1. Manilo Molinari, San Marínó....48,94
2. Costas Pochanis, Kýpur.........49,35
3. Ingi Þór Hauksson..............49,50
4. ÓmarKristjánsson...............49,52
■Persónulegt met.
400 m hlaup kvenna:
1. Daniela Vogt, Lichtenstein.....56,32
2. Helga Halldórsdóttir...........57,22
3. Guðiaug Halldórsdóttir.........58,07
■Persónulegt met.
Langstökk kvenna:
1. M. Marxer, Lichtenstein.........5,84
2.1. Characqambogsi, Kýpur.........5,73
3. C. Czerwonka, Lúxemborg.........5,69
5. Sigrfður Guðjónsdóttir..........5,62
9. Sunna Gestsdóttir...............4,05
200 m hlaup karla, undanrásir:
1. Thierry Eischen, Lúxemborg... 21,95
2. Yiannis Zisimides, Kýpur 21,97
4. Hörður Gunnarsson 22,17
■Persónulegt met.
5. Jóhannes Marteinsson 22,19
■Persónulegt met.
200 m hlaup karla, undanrásir:
1. Sunna Gestsdóttir 24,42
■Mótsmet og persónulegt met.
2. Manuela Marxer, Lichtenstein.. 24,52
4. Geirlaug Geirlaugsdóttir 24,59
■Persónulegt met.
■Úrslitin fara fram í dag.
Verðlaunaskipting
Þegar einum degi er ólokið á leikunum
skiptast verðlaunin þannig (gull, silfur og
brons):
ísland 25 12 23
Kýpur 14 21 15
Lúxemborg 13 17 6
Liehtenstein 4 2 1
Mónakó 3 3 11
San Marínó 2 3 2
Andorra 2 2 7
Malta 1 4 6
Knattspyrna
2. deild karla
Þór-HK 1:0
Árni Þór Ámason (45.).
2:0
Guðmundur Steinsson (18. og 66.), Baldur
Bjamason (43.)
Víðir-KA 0:0
Fylkir - ÍR
Óíafur Stfgsson (59.), Aðalsteinn Víglunds-
son (62.), Ingvar Ólason (78.), Guðmundur
Torfason (86.) - Guðjón Þorvarðarson (35.
og 75.).
Þróttur - Skallagrfmur............2:3
Gunnar Gunnarsson (9.), Heiðar Siguijóns-
son (85.) - Hjörtur Hjartarson (48., 59. 70.)
Fj. lelkja U J T Mörk Stig
FYLKIR 3 3 0 0 7: 3 9
STJARNAN 2 2 0 0 6: 0 6
þrotwr 3 2 0 1 7: 4 6
SKALLAGR. 3 2 0 1 6: 4 6
KA 2 1 1 0 3: 0 4
VIÐIR 3 1 1 1 2: 2 4
VÍKINGUR 3 1 0 2 2: 6 3
ÞORAk. 3 1 0 2 1: 5 3
HK 3 0 0 3 1: 4 0
IR 3 0 0 3 2: 9 0
3. deild
3. deild
Leiknir - íjölnir...................3:0
Völsungur - Seifoss.................7:2
4. deild
A-riðill
yfkveiji — Léttir...................2:6
Ármann - Afturelding................3:0
GG-TBR..............................6:0
B-riðill:
Njarðvík-ÍH.........................2:3
C-riðill:
Hvöt-Þrymur........................14:1
Magni - SM..........................2:0
D-riðiII:
Tindastóll - KS.....................1:2
KBS-Huginn..........................6:1
UMFL-Neisti.........................2:0
Körfuknattleikur
Úrslitakeppni NBA
Aðfaramótt fóstudag, Vesturdeild
Houston Rockets - San Antonio 100:95
Houston sigraði í einvíginu 4:2. Með þessum
sigri tryggði Houston sér sæti Vesturdeild-
ar í úrslitleiknum um NBA titilinn.
UM HELGINA
Knattspyrna
1. deild karla
Mánudagur 5. júnf:
Akranesvöllur: ÍA - FH..............20
Grindavíkurvöllur: Grindavík - Leiftur....20
Vestm.eyjavöllur: ÍBV - Breiðablik..20
KR - völlur: KR - Fram..............20
Þriðjudagur 6. júní:
Hlfðarendi: Valur - Keflavfk.........20
3. deild karla
Laugardaginn 3. júní:
Ásvellir: Haukar - Þróttur N.........14
Egilst.völlur: Höttur - Dalvík.......14
Þorláksh.völlur: Ægir - BÍ...........14
4. deild karla
Laugardaginn 3. júní:
Grýluvöllur: Hamar - Vfkingur Ó......14
Akranesvöllur: Bruni - Ökkli.........14
Vopnafj.völlur: Einherji - Neisti....14
1. deild kvenna
Þriðjudagun
Akranesvöllur: ÍA - Haukar...........20
Akureyrarvöllur: ÍBA - Valur.........20
Kópavogsvöllur: Breiðablik - ÍBV.....20
~KR - völlur: KR - Stjaman............20
2. deild kvenna
Þriðjudagur 6. júní:
Kaplakr.völlur: FH - Selfoss.........20
Sandg.völlur: Reynir - Aftureldingu.20
Dalvíkurvöllur: Dalvík - Leiftur.....20
Siglufj.völlur: KS - Tindastóll......20
Golf
Flugleiðamótið, sem er opið stigamót tii
landsliðs, verður f Vestmannaeyjum um
helgina og hefst 9 á laugardag.
Hestar
Hvftasunnumót Fáks heidur áfram í dag
með forkeppni í fiokki bama og unglinga,
forkeppni f tölti, yfirlitssýningu kynbóta-
hrossa og kappreiðum þar sem keppt verð-
ur f brokki og 150 metra skeiði en átta
efstu í a- og b-flokki gæðinga keppa f úr-
slitum á mánudag.
Martha og Sigurður í sérflokki
Miklir yfirburðir
MARTHA Ernstsdóttir og Sig-
urður Einarsson sigruðu með
nokkrum yfirburðum í sínum
greinum, 5.000 metra hlaupi og
spjótkasti, á Evrópuleikum
smáþjóða í Lúxemborg í gær.
Auk þess unnust ein silfurverð-
laun og fern bronsverðlaun á
Josy Barthel frjálsíþróttavellin-
um. Helga Halldórsdóttir varð
önnur í 400 metra hlaupi, Lauf-
ey Stefánsdóttir varð þriðja í
800 metra hlaupi, Guðlaug Hall-
dórsdóttir 1400 metra hlaupi,
Sigurður Einarsson f kúluvarpi
og Ingi Þór Hauksson í 400
metra hiaupi.
Martha hafði forystu í 5.000
metra hlaupinu frá byijun
og hljóp ein og án keppni síðustu
ggggggggg 2.000 metrana og
Valur B. var mjög létt og sig-
Jónatanson urinn án fyrirhafnar.
skrifar frá Hún var komin ein-
Lúxemborg um ^ring á undan
Fríðu Rún Þórðardóttur, sem varð
sjöunda, þegar einn hringur var eft-
ir. Martha hljóp á 16.19,31 mínútu
sem er nýtt mótsmet, en íslandsmet
hennar er 15.55,91 mín.
„Þetta var nú frekar létt hlaup
fyrir mig enda er ég að spara mig
fyrir sterkt mót í Hollandi á mánu-
daginn. Ætli ég reyni ekki við ís-
landsmetið þar, enda fæ ég þá meiri
keppni. Þessi tími segir mér að ég
á að geta bætt metið fljótlega. Ég
er í mjög góðri æfingu, en er aðeins
seinni inn í formið en á sama tíma
í fyrra og er það vegna þess að ég
ætla mér að toppa á HM í Gauta-
borg í ágúst,“ sagði Martha.
Sigurður Einarsson hafði mikla
yfir í spjótkastinu, kastaði lengst
73,92 metra. Öll köst Sigurðar voru
yfir 70 metra. „Þetta var allt í lagi.
Ég var svolítið hræddur við brautina
vegna þess að það var nýtt efni á
henni og eins hafði rignt og því var
hún svolítið hál. Ég hef kastað lengst
77 metra í ár og er að koma úr erfið-
um æfingum og er að fara að létta
núna og vonandi kemur lengra kast
fljótlega. Ég er að fara að keppa á
móti í Grikklandi á sunnudag og
síðan í Evrópubikarnum í Tallin. Ég
er líkamlega í mínu besta formi og
þetta er bara spurning um að ná
því út úr sér og smella tækninni
saman. Ég er bjartsýnn á sumarið,“
sagði Sigurður.
Þráinn Hafsteinsson, landsliðs-
þjálfari, var ánægður með árangur-
inn. „Við höldum áfram á þessari
siglingu sem við höfum verið. Það
voru sett átta persónuleg met í dag
og verðlaunapeningarnir voru sjö.
Unga fólkið var að koma á óvart.
Laufey í 800 metrunum og Guðlaug
í 400 og Helga sýndi líka góða takta
í 400 þar sem hún er að keppa í
fyrstu landskeppni sinni í mörg ár.
Martha var mjög létt í 5.000 metr-
unum. Allir bættu sig í undanrásun-
um í 200 metra hlaupi og við ættum
að eiga möguleika á verðlaunsæti
þar. Sunna Gestsdóttir náði lág-
markinu fyrir Evrópumeistaramót
unglinga í undanrásunum í 200
metra hlaupi. Þannig að ég get ekki
annað en verið ánægður með dag-
inn,“ sagði þjálfarinn.
Keppni á leikunum lýkur á morg-
un. Þá verður keppt í fijálsíþróttum,
sundi og hjólreiðum og íslenska
karlalandsliðið í körfubolta leikur
um bronsverðlaunin við San Marínó.
MARTHA Ernstsdóttir hafði mikla yfirburöi í 5.000 m hiaupi.
Utséð með gullið hiá strákunum
Islenska karlalandsliðið í körfuknatt-
leik leikur um þriðja sætið við San
Marínó á Smáþjóðaleikunum, en það
fór með sigur á leikun-
SkúH Unnar um fyrir tveimur árum
Sveinsson í Möltu og Andorra fyr-
skrifar frá jr fjórum árum. Lúxem-
Lúxemborg borg lék betur í gær og
verðskuldaði sigurinn, 86:95, og liðið
leikur til úrslita við Kýpur.
Leikurinn var í jámum allan tímann,
heimamenn oftast með frumkvæðið en
okkar strákar komust nokkrum sinnum
yfir og meðal annars undir lok fyrri
hálfleiks er þeir breyttu stöðunni úr
24:27 í 36:29, mest fyrir það hversu
miklu stuði Guðjón Skúlason var í, en
hann hitti mjög vel eftir að hann kom
inná. En svo hætti Guðjón að fá bolt-
ann þannig að hann gæti skotið og
heimamenn, sem léku mjög góða svæð-
isvörn, breyttu stöðunni í 44:49 fyrir
hlé.
Eftir slakan fyrri hálfleik bjóst mað-
ur við einhveijum breytingum á liðinu
eftir leikhléið, en Torfi Magnússon
landsliðsþjálfari gerði litlar breytingar.
Falur, Guðjón og Hermann, sem léku
einna skárst í fyrri hálfleiknum voru
allir á bekknum og Marel vermdi enn
bekkinn en hann kom ekkert inná í
fyrri hálfleik.
Lúxemborg hélt forystunni allan síð-
ari hálfleikinn og miðað við leik strák-
anna okkar var lítil von um að þeim
tækist að sigra. Menn virtust hálf rag-
ir í sókninni og það vantaði allt frum-
kvæði þannig að menn skutu úr vonlitl-
um færum og stundum gengu móther-
jamir hreinlega í gegnum vörnina.
Slíkt er ekki líklegt til árangurs eins
og kom í ljós.
Torfí Magnússon þjálfari var að
vonum allt annað en hress og hann
átti eiginlega engin svör við því hvers
vegna liðið hefði leikið svona illa.
„Lúxemborg er komið með miklu
betra lið en það hefur nokkru sinni
átt og það er greinilegt að þjálfarinn
er að gera góða hluti með liðið, svo
munar auðvitað miklu fyrir þá að
hafa Derek Wilson [þann bandaríska].
Við spiluðum illa og menn hittu ekki
vel. Teitur byijaði þó vel en svo hætti
hann að fá boltann og sama má segja
um Guðjón þegar hann kom inná,
hann hætti líka að fá boltann. Við
lékum langt undir getu, en við fáum
bronsverðlaunin, það er alveg ör-
uggt,“ sagði Torfi.
Amar Freyr hafði stóra bróður
SUNDFÓLKIÐ okkar hélt áfram
að raka inn verðlaunapeningunum
í gær, hlaut þá 6 gull, 2 silfur og
4 brons og hef ur alls fengið 16
gull, 6 silf ur og 10 brons verðlaun
þegar aðeins á eftir að keppa i
sex greinum þannig að það er
Ijóst að verðlaunapeningarnir
verða færri í sundinu núna en á
síðustu tveimur leikum. Árangur-
inn er samt góður og allflestir
hafa verið að bæta sig, sumir
verulega. Arnar Freyr Ólafsson
og Eydís Konráðsdóttir hafa verið
dugleg að raka inn verðlaununum
og í gær hlutu bæði sína sjöttu
gullverðlaun, íjafn mörgum til-
raunum. Arnar Frey vann líka
stóra bróður, Magnús Má, í 200
metra skriðsundi.
Tö íslandsmet litu dagsins ljós í
gær, bæði í boðsundum. Fyrst
settu stelpumar met í 4x100 metra
fjórsundi er þær syntu
á 4 mínútum, 32,15
sekúndum en gamla
metið, 4.33,56, var frá
því á Möltu. Strákamir
fylgdu síðan í kjölfarið og settu met í
4x100 metra fjórsundi á 3.55,82 en
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar frá
Lúxemborg
gamla metið, sem var einnig frá Möltu,
var 3.57,73.
Logi Jes Kristjánsson ætlaði að ná
lágmarki í 100 metra baki er hann
synti fyrsta sprett, en það tókst ekki
alveg, hann synti á 58,91 en lágmark-
ið er 58,33. „Nei, þetta tókst ekki, ég
fór allt of hægt út og það er svekkj-
andi þó svo mér hafi gegnið vel á
mótinu. Ég sé að ég get betur og nú
er bara að stefna að lágmörkunum
fyrir Ólympíuleikana. Þangað ætla ég
alveg örugglega, það er alveg óhætt
að fara að panta farið,“ sagði Logi Jes.
Hann byijaði illa í sundinu og milli-
tíminn var 29,52 en síðari hlutinn var
mjög góður hjá honum. Magnús Konr-
áðsson synti bringusundið og gerði það
glæsilega, synti á 1.04,99 sem er veru-
leg bæting hjá honum og þegar Magn-
ús Már stakk sér í flugsundið hafði
íslenska sveitin 5 metra forystu. Magn-
ús Már flaug áfram og náði 12 metra
forskoti fyrir bróður sinn Amar Frey
sem var síðastur.
Eydís Konráðsdóttir gaf tóninn í gær
með því að sigra í 50 m skriðsupdi,
synti á 28,39 sekúndum. Elín Sigurðar-
dóttir þjófstartaði og því þurftu stúlk-
umar að byija aftur og enn þjófstart-
aði Elín en synti samt þessa hundrað
metra og var fyrst að bakkanum en
var dæmd úr leik og þar með fór einn
verðlaunapeningur, en á hún ekki alveg
nó af þeim?. „Nei, maður á aldrei nóg
af þeim,“ sagði Elín sem sagði að
tíminn hjá sér hefði ekki verið neitt
sérstakur.
Tveir íslendingar fóru á pall í 50
metra skriðsundi karla. Logi Jes varð
í öðru sæti á 24,52 sekúndum og bætti
árangur sinn nokkuð, og Magnús Már
Ólafsson varð þriðji á 24,75 sekúndum.
Skemmtilegt fyrir Loga Jes að sigra
Magnús, en íslandsmet Magnúsar frá
því í Aþenu árið 1991 stendur enn,
23,86.
Bima Björnsdóttir varð í þriðja sæti
í 200 metra bringusundi, synti á
2.50,13 sem er ekki langt frá hennar
besta árangri. Birna byijaði best og
var 5/100 úr sekúndu á undan heima-
stúlku eftir 100 metrana en hún varð
að gefa eftir á lokasprettinum og
stúlka frá Kýpur skaust einnig fram
úr henni. Lára Hrund Bjargardóttir
varð í fjórða sæti á 2.50,98.
Magnús Konráðsson varð annar í
200 metra bringu, synti á 2.24,78 en
sigurvegarinn var frá Mónakó. Keppn-
in var jöfn og spennandi framan af en
Mónakómaðurinn renndi sér framúr
af miklum krafti og sigraði örugglega.
Óskar Guðbrandsson var í fjórða sæti
á 2.26,51.
Stúlka frá Kýpur setti nýtt leikja-
met í 200 metra skriðsundi, 2.10,80,
en Hildur Einarsdóttir varð í þriðja
sæti á 2.11,34 og Sigurlín Garðarsdótt-
ir sjöunda á 2.16,37.
Bræður mættust
Það var beðið með nokkurri eftir-
væntingu eftir viðureign þeirra Arnars
Freys og Magnúsar Más í 200 metra
skriðsundi. Magnús á íslandsmetið en
Amar Freyr er í miklu formi núna og
hann hafði betur og sigraði á 1.53,96,
en Magnús Már varð að sætta sig við
þriðja sætið því heimamaður skaust
upp á milli þeirra bræðra með miklum
endapretti. Bræðurnir náðu með þessu
sundi B-lágmörkum fyrir Ólympíuleik-
ana í Atlanta.
„Strákurinn er í góðu formi og ég
frekar slappur þannig að maður verður
bara að játa sig sigraðan. Ég toppaði
aðeins fyrir tveimur vikum og svo
hérna en ég ætla að vera á toppnum
um næstu helgi í Barcelona,“ sagði
Magnús Már og var bara ánægður
með árangur litla bróður.
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995 D
Eva fyrst
kvenna
á borð-
tennis-
pailinn
EVA Jósteinsdóttlr
^va Jósteinsdóttir vann brons-
Valur B.
Jónatansson
skrifar frá
Lúxemborg
verðlaun í einliðaleik kvenna á
Evrópuleikum smáþjóða í Lúxem-
borg í gær og varð
um leið fyrst ís-
lenskra kvenna til
að komast á verð-
launapall á móti á
erlendri grundu. Guðmundur Steph-
ensen varð í fjórða sæti í einliðaleik
karla og Lilja Rós Jóhannesdóttir
og Ingólfur Ingólfsson í 7. sæti.
Lúxemborgarar urðu í tveimur
efstu sætunum í einliðaleik eins og
í tvíliðaleiknum.
Eva og Guðmundur komust bæði
í undanúrslit, en leikið var í tveimur
riðlum og komust tveir efstu kepp-
endur í hvorum riðli í undanúrslit.
Eva lék gegn Bremer frá Lúxem-
borg í undanúrslitum og tapaði
17:21 og 14:21. Síðan mætti hún
Monaldini frá San Marínó í leik um
þriðja sætið og sigraði 21:19, 19:21
og 21:9.
„Ég bjóst ekki við neinu áður en
ég kom hingað. Nú stend ég uppi
með tvenn bronsverðlaun og það
er æðislegt. Þessi árangur í einliða-
leiknum hvetur mig enn frekar til
dáða. Nú er ég ákveðin í að æfa
enn meira en áður,“ sagði Eva sem
er 17 ára og er á öðru ári í MS.
Gott hjá Guðmundi
Guðmundur tapaði fyrir Winter-
dorf frá Lúxemborg í undanúrslit-
um 21:19, 9:21 og 8:21, en þess
má geta að Guðmundur var eini
keppandinn sem vann lotu gegn
Winterdorf í allri keppninni og verð-
ur það að teljast frábær árangur
hjá þessum unga og efnilega borð-
tennismanni. Winterdorf er 26 ára
og spilar í atvinnumannadeildinni í
Þýskalandi og er í 80. sæti á heims-
listanum. Guðmundur tapaði fyrir
Geroudes frá Kýpur í leik um þriðja
sætið, 15:21 og 19:21.
Peter Nilsson, 1 andsliðsþjálfari,
sagðist ánægður með árangur ís-
lenska liðsins. Hann sagði að liðið
væri ungt og keppnin því mikil og
góða reynsla fyrir liðsmenn.
„Árangur Evu kemur mjög á óvart
og ætti að hvetja enn frekar til
dáða. Þessi frammistaða sýnir að
með meiri æfingu getur hún náð
langt. Bestu borðtennismenn heims
eru á aldrinum 25 til 26 ára svo
efniviðurinn er góður. Ef heldur
áfram sem horfír vinnum við til
gullverðlauna á Smáþjóðaleikunum
á íslandi eftir tvö ár,“ sagði þjálfar-
inn.
FOLX
■ GUÐMUNDUR Stephensen
keppir fyrir hönd íslands á ólymp-
íumóti æskunnar sem fram fer í
Dsseldorf í Þýskalandi í ágúst og
verður eini fulltrúi íslands í borð-
tennis. Keppnin er fyrir 15 ára og
yngri og gera forkálfar Borðtennis-
sambandsins ráð fyrir að hann eigi
þar góða möguleika á sigri.
■ GUNNAR Jóhannsson, fyrr-
um formaður BTÍ og Albrecht
Ehmann dæmdu úrslitaleikinn í
einliðaleik kvenna á leikunum í
gær. Þetta er í fyrsta sinn sem
borðtennisdómarar frá íslandi fá
að dæma úrslitaleik á mót erlendis.
■ LANDSLIÐIÐ í borðtennis
verður á faraldsfæti' næstu vikur.
Það heldur til Belgíu á sunnudag
til að keppa í alþjóðlegu móti. 25.
júní fer liðið í æfíngaferð til Dan-
merkur og síðan er HM unglinga
í júlí.
■ EGGET Bogason keppti ekki
í kúluvarpinu í gær, eins og hann
átti að gera, vegna meiðsla. Hann
segist hafa snúið sig á ökkla og svo
væri hann með brotið handarbak.
■ SIGURÐUR Einarsson hljóp
í skarðið fyrir Eggert í kúluvarpinu
og endaði í þriðja sæti. „Þetta var
meira í gamni gert. Það var ágætt
að fá brúður fyrir báðar dætur
rnínar," sagði hann. En allir verð-
launahafar fá brúður, sem er tákn
leikanna. _
■ JÚLÍUS Hafstein, formaður
Ólympíunendar íslands, mun taka
við fána leikana við lokaathöfnina
á fijálsíþróttavellinum í dag því
næstu Smáþjóðaleikar eru á íslandi
1997.
Körfuboltaskóli
KR og adidas
adidas
( sumar mun körfuknattleiksdeild KR og adidas standa fyrir
körfuboltanámskeiði sem haldið verður í íþróttahúsi KR við
Frostaskjól 2. Námskeiðið er ætlað fyrir krakka á aldrinum
12 ára (fædd ’83) og yngri og verður þátttakendum skipt í
hópa eftir aldri.
Hvert námskeið stendur yfir í 2 vikur og kennt verður alla
virka daga vikunnarfrá klukkan 13 til 17.
Eftirfarandi tímabil eru í boði:
6. júní -16. júní 4.500 kr.
19. júnf - 30. júní 4.900 kr.
3. júlí - 14. júlí 4.900 kr.
Innifalið í verði er boiti og bolur. Systkinaafsláttur er 1.500 kr.
Skráning fer fram á skrifstofu körfuknattleiksdeildar KR
f síma 511-5520 alla virka daga milli kl. 10.00 og 16.00
og um helgar milli kl. 12.00 og 14.00
KIMATTSPYRIVIA
Fylkismenn
einir á toppnum
Stefán
Stefánsson
skrifar
Fylkismenn lögðu ÍR-inga 4:2 í
Árbænum í gærkvöldi og hafa
þá unnið alla þijá leiki 'sína í 2.
deildinni. Fylkir
hafði undirtökin en
Guðjón Þorvarðar-
son skoraði fyrir
gestina eftir klaufa-
skap í vörn Fylkis.
Eftir hlé urðu Breiðhyltingar að
færa vamarlínu sína enn aftar und-
an pressu Árbæinga og hún hélt
þar til Ólafi Stígssyni leiddist þófíð
og þrumaði í markið af rúmlega
20 metra færi, 1:1. Þremur mínút-
um síðar felldi Bogi Petersen, mark-
vörður ÍR, sóknarmann Fylkis og
Aðalsteinn Víglundsson kom Fylki
í 2:1. ÍR-ingar fengu vítaspymu á
75. mín. og Guðjón jafnaði 2:2 með
öðru marki, hann skoraði fyrst en
þurfti að endurtaka spyrnuna þar
sem samheiji var hlaupinn inní teig.
Þremur mínútum síðar kom Ingvar
Fylki yfír á ný eftir góða fyrirgjöf
Aðalsteins og Guðmundur Torfason
innsiglaði sigurmn.
Borgnesingar betrf
Skallagrímur sigraði Þrótt sann-
gjarnt 2:3 í annars kaflaskiptum
leik á Þróttarvellinum. Þróttarar
byijuðu betur, spiluðu markvisst,
og uppskára mark á
9. mín., þegar
Gunnar Gunnarsson
fékk boltann í miðj-
um vítateig Skalla-
gríms eftir aukaspyrnu, og skaut í
slá og inn. Skallgrímsmenn sem
fram að þessu virtust ólíklegir til
afreka rönkuðu við sér og gerðu
næstu þijú mörk, af einfaldri upp-
skrift. Boltinn var sendur inn í teig
þar sem Hjörtur Hjartason lúrði
inni á milli áttavilltra varnarmanna
Þróttara og sendi boltann þrisvar í
netið. Þróttarar náðu þó að klóra í
bakkann, og á 85. mín. skoraði
Heiðar Siguijónsson með fallegri
„klippu“. „Ég er mjög ánægður
með sigurinn, en þetta var erfíður
leikur. Völlurinn var ósiéttur og við
spiluðum ekkert sérlega vel. Mér
fínnst við eiga möguleika í 2.deild,“
sagði markaskorari Skallagríms,
Hjörtur Hjartarson.
Fyrstu stig Þórs
Þórsarar sigruðu HK á Akur-
eyrarvelli 1:0 og voru þetta fyrstu
stig Þórs í deildinni og jafnframt
fyrsta markið sem liðið skorar. At-
hygli vakti að leikið
var á hinum við-
kvæma aðalleik-
vangi bæjarins sem
yfirleitt hefur verið
hlíft við öllu raski fram undir miðj-
an júní.
Sindri
Bergmann
Eiðsson
skrifar
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar frá
Akureyri
Ekki var annað að sjá en völlur-
inn væri ágætlega leikhæfur þótt
grængresinu hafi ekki verið fyrir
að fara. Þórsarar áttu ein fimm
marktækifæri í fyrri hálfleik en
HK-menn eitt. Mark Þórs kom 5
sekúndum áður en dómarinn flaut-
aði til leikhlés.
í seinni hálfleik vom yfírburðir
Þórsara miklir og liðið spilaði oft
ágæta knattspymu. Páll Gíslason
og Dragan Vitorovic voru einráðir
á miðjunni og bakverðimir Sveinn
Pálsson og Órn Viðar Arnarson
tóku virkan þátt í sóknarleiknum.
HK náði fáeinum skyndisóknum og
liðið fékk hættulegasta færi sitt á
80. mín. þegar Ólafur markvörður
Þórs varði skot Valdimars Hilmars-
sonar í þverslá. Sanngjarn sigur
Þórs og greinilegt að ýmislegt býr
í liðinu en HK-menn virðast ekki
líklegir til stórafreka.
Tilþrifalítið en öruggt
Stjaman þurfti lítið að leggja á
sig til að sigra slakt lið Vík-
ings með þremur mörkum gegn
engu. Guðmundur
Stefán Steinsson kom
Eiríksson Stjörnumönnum á
skrifar bragðið á 18. mín-
útu er hann skoraði
af stuttu færi, og rétt fyrir leikhlé
skoraði Baidur Bjarnason eftir
stórglæsilegan samieik Stjörnu-
manna gegnum götótta Víkings-
vömina. Síðari hálfleikur var tíð-
indalítill framan af, en þegar Guð-
mundur Steinsson skoraði þriðja
mark Stjörnumanna á 66. mínútu,
af stuttu færi, lifnaði ögn yfír
heimamönnum. Að minnsta kosti
fjögur vænleg færi litu dagsins ljós
en boltinn rataði ekki oftar rétta
leið.
Stjörnumenn léku vel lengst af,
en duttu þó nokkuð niður þess á
milli. Víkingar voru slakir og ljóst
að sumarið verður þeim erfitt ef
þeir taka sig ekki verulega á.
Tíðindalaust í Garðinum
VÍÐIR og KA leiddu saman hesta
sína í Garðinum í gærkvöldi og
þrátt fyrir 90 mínútna baráttu urðu
liðin að sættast á skiptan hlut án
þess að koma knett-
inum í annað hvort
markið. Fyrri hálf-
leikur var opin og
skemmtilegur og
bæði lið sóttu af nokkmm krafti,
en þó hafði KA liðið undirtökin.
Heldur dofnaði yfír leiknum í síð-
ari hálfleik og virtust menn hafa
misst móðinn eftir fjörið í fyrri
hálfieik og fátt var um færi. Sér-
staklega virtust heimamenn eiga í
vandræðum með að skapa hættu á
vallarhelmingi gestanna.
Bjöm
Blöndal
skrifar
frá Keflavik
KNATTSPYRNUSKOLIKR
Skráning í knattspyrnuskóla KR stendur nú yfir.
Haldin verða 5 námskeið fyrir ban á aldrinum 6-12 ára
Námskei&sdagar:
6.-16. júní « 19,-30. júni • 3. -14. júlí« 17. -28. júli » 31. -11, ágúst
Hvert námskei& stendur yfir í 2 vikur og er kennt virka daga frá kl. 9-12
Skráning fer fram í síma knattspyrnudeildar: 511 5515 milli kl. 13 og 15 alla virka daga
Verð kr 3.500,-
Sumarblóma og garbplöntusala við KR-heimilið
Laugardaga og sunnudaga kl. 10 - 22.
Virka daga kl. 17.30 - 21. til 16. júní
Utvegum tré og runna.
Verslið ódýrt- sty&jum knattspynudeild KR.
Knattspyrnudeild KR