Morgunblaðið - 03.06.1995, Síða 4
KNATTSPYRNA
Sænsku fjölmiðlarnir segja að Svíar hafi verið sjálfum sér verstir
Ravelli var varaður við
aukaspymum Amars
Sænskir fjölmiðlar eru allt annað
en ánægðir með frammistöðu
Svía í landsleiknum við íslendinga
■■■■■■ í Evrópukeppninni í
Frg fyrrakvöld og segja
Grétari Þór að þeir hafi verið
Eyþórssyni sjálfum sér verstir.
i Sviþjóð Þeir hafi átt að sigra
en klúðrað tækifærinu.
„Hann heKir Amar“
Expressen segir í fyrirsögn að
EM-draumurinn sé sprunginn og
„hann heitir Amar“ er millifyrir-
sögn þar sem fjallað er um Amar
Gunnlaugsson sem gerði drauminn
að engu. „Bless England“ segir
Aftonbladet í risastórri fyrirsögn
en þar kemur jafnframt fram að
úrslitin gegn íslandi séu bara enn
ein staðfesting á því hrani sem
hafi átt sér hjá sænska landsliðinu,
hrani sem hafí byijað með tapinu
gegn Sviss í fyrra. „Með svona leik
hefðu Svíar sigrað með þriggja til
fjögurra marka mun hefði leikurinn
verið fyrir ári, þegar sjálfstraustið
og heppnin var með sænska lið-
inu.“ Tommy Svensson, landsliðs-
þjálfari Svía, tók undir þetta í við-
tali í gær þar sem hann fullyrti að
liðið hefði sigrað Qögur til fímm
núll fyrir ári með eins leik „en nú
gengur ekkert upp.“
„PassaðuNg“
Rétt fyrir leikinn fór Svensson
til Ravellis, markvarðar, og sagði:
„Ég sá að númer níu, Gunnlaugs-
son, stóð og æfði aukaspymur í
upphituninni. Hann skrúfar boitann
með vinstri yfír vamarvegginn.
Passaðu þig.“ Þrátt fyrir aðvöran-
ina skoraði Amar hjá Ravelli á fyrr-
nefndan hátt en „aukaspyrnan var
óveijandi," sagði markvörðurinn.
Svensson var ekki á sama máli.
„Aukaspyrnan kom okkur ekki á
óvart. Ravelli vissi hvemig hún yrði.
Ég var búinn að segja honum það.“
Lars Eriksson, fyrrverandi vara-
markvörður Ravellis, var í útsend-
ingu sænska sjónvarpsins og þegar
Amar skoraði gagnrýndi hann
þjálfarann fyrir að stilla upp svo
mörgum mönnum í vamarvegg,
„því fyrir vikið er gríðarlega erfítt
að sjá boltanrt."
Ekkert er fjallað um frammi-
stöðu íslenska liðsins nema hvað
Birki Kristinssyni er hrósað fyrir
markvörsluna. Hins vegar fá Svíar
slaka dóma fyrir að nýta ekki fær-
in og sérstaklega fá Martin Dahlin
og Henrik Larsson skammir fyrir
að hafa brennt af dauðafæram.
Sagt er að Svíar hefðu sigrað ef
Anders Limpar hefði ekki meiðst
en hann fékk fimm stjörnur af
fimm mögulegum í Aftonbladet
sem þýðir frammistaða á heims-
mælikvarða. Jonas Them fær þijár
stjömur en aðrir eina eða tvær.
„3-5-2 leikaðferð íslenska liðsins
hentaði mér vel,“ sagði Limpar,
„því það var svo mikið autt svæði
á köntunum."
Tommy Svensson sagði að hann
ætlaði ekki að halda áfram með
liðið eftir forkeppnina. „Þrek mitt
er á þrotum," segir hann í Express-
en. „Mér fínnst ég vera útbrunn-
inn. Það er gríðarlega mikið álag
því samfara að vera landsliðsþjálf-
ari og ég vil losna. Hins vegar vil
ég ekki gefast upp og það er skylda
mín að stappa stálinu í leikmennina
svo lengi sem við eigum fræðilega
möguleika," er haft eftir honum
en jafnframt bendir hann á að vinni
Svíþjóð Tyrkland 1:0 og sigri ís-
land Tyrkiand verði Svíþjóð í öðru
sæti en Svíar eiga líka eftir heima-
leik gegn Sviss.
Morgunblaðið/Golli
Húfan kom of seint
RAVELLI, markvörður Svía, hafði sóllna í augun í fyrri hálf-
lelk og fékk á slg mark á upphafsmínútunum. Þá var hent
tll hans húfu eins og sjá má á myndinn! en hún kom of selnt.
Hakeem fór
fór illa með
Robinson
„ÞAÐ hljómar ef til vill hjá-
kátlega en mér fannst sem ég
hefði góð tök á Oljauwon í
vörninni allan tímann,“ sagði
David Robinson, liðsmaður
San Antonio og leikmaður
NBA deiidarinnar 1995 eftir
að Hakeem Olajuwon hafði
tryggt Houston sigur gegn
San Antonio Spurs með stór-
leik þar sem hann skoraði
m.a. 39 stig.
Houston var
lakasta liðið
MEISTARAR Houston Rock-
ets sem nú hafa tryggt sér
sæti í úrslitaleikjum NBA
deildarinnar var með iakasta
útkomu allra liða sem upp úr
deildarkeppninni komu og
fóru í úrslitakeppnina.
Leikmenn
San Antonio
hittu betur
ÞRÁTT fyrir að leikmenn San
Antonio Spurs hafi tapað
sjötta leiknum gegn Houston
þá hittu þeir betur úr lang-
skotum sínum. Þijátíu og sex
af sjötíu og fjórum langskot-
um þeirra rötuðu rétta leið
eða 49%, en Houston menn
skoruðu úr þrjátiu ogsjö skot-
um af áttatíu og einu eða 46%.
Eitt frákast
skildi liðin að
AÐEINS eitt frákast skildi
liðin að þegar upp var staðið
í sjötta leiknum. Houston
menn náðu 43, en leikmenn
San Antonio 42.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Reuter
SEAN Elllot hefur hér teklst
að brjóta sér leló framhjá
stjörnum Houston IIAslns,
þelm Hakeem Oljauwon og
Clyde Drexler.
Loks heimasigur hjá meisturum
Houston og sæti í úrslitum tryggt
MEISTARARNIR í Houston
Rockets létu ekki gullið tæki-
færi að sigra einvígið við San
Antonio sér úr greipum ganga
ífyrrinótt. Þeir sigruðu and-
stæðinga sína 100:951ryggðu
sér sæti Vesturdeildar í úrslita-
leikjum NBA. Enn einu sinni var
það Hakeem Oljauwon sem fór
fyrir liðið sínu með stórleik,
hann skoraði 39 stig, tók 16
fráköst, átti 5 stoðsendingar
og varði 5 bolta.
Leikmenn Houston hófu fjórða
leikhluta af miklum krafti og
skoruðu átta fyrstu stigin og náðu
forystu, 84:77. í framhaldinu bættu
þeir um betur og náðu níu stiga
forskoti 92:83. Liðsmenn San An-
tonio vora ekki tilbúnir af skiljan-
legum ástæðum að gefa sinn hlut
og komu grimmir til baka og gerðu
tíu stig í röð og náðu eins stig for-
skoti eftir vítaskot Davids Robin-
sons þegar 2,42 mín. vora tii leiks-
loka. Clyde Drexler kom Hoston
yfir að nýju með tveimur stigum
og Robert Horiy bætti um betur
með þriggja stiga skoti sem rataði
rétta leið. Hoston hafði því fjögurra
stiga forystu þegar tvær mínútur
vora eftir.
Leikmaður ársins í NBA deildinni
David Robinsson mistókst að skora
úr tveimur vítaskotum þegar 1,06
mín. var eftir og Sam Cassel nýtti
sér það með því að bæta við for-
skot Hostons með stigi úr vítakasti
þegar 37 sek. lifðu af leiknum.
Dennis Rodman klóraði í bakkann
með tveggja stiga körfu fyrir San
Antonio en Robert Horry innsiglaði
sigur Houstons með tveimur stigum
úr vítaköstum og San Antonio varð
að bíta í það súra epli að komast
ekki í úrslitaleikina enn eitt árið.
Eins og áður sagði var Hakeem
Oljauwon stighæstur hjá Hoston
með 39 stig, Robert Horry kom
honum næstur með 22 stig og Clyde
Drexler gerði 16 stig og tók auk
þess 10 fráköst. David Robinson
og Avery Johnson voru stigahæstir
hjá San Antonio með 19 stig hvor,
Sean Elliot skoraði 18 og Dennis
Rodman gerði 14 stig auk þess að
taka 17 fráköst.
„Eftirá að hyggja var það sorg-
legast að okkur tókst ekki að sigra
í leikjunum á heimavelli," sagði
Vinny Del Negro, leikmaður San
Antonio Spurs vonsvikinn að leiks-
lokum. Clyde Drexler var öllu bratt-
ari og sagði að hann og félagar
hans hefðu komið vel einbeittir til
leiks og staðráðnir í að ljúka verk-
efninu og það hefði tekist.