Morgunblaðið - 07.06.1995, Qupperneq 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Árangur þátttökuþjóöanna á
Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg
Gull Silfur Brons SAMT.
ísland 33 17 28 78
Kýpur 22 25 12 59
Lúxemborg 20 26 12 58
Mónakó 3 4 17 24
Andorra 2 5 8 15
Malta 1 4 7 12
San Marínó 2 5 2 9
Liechtenstein 5 2 1 8
Skipting verðlauna íslands: Gull Silfur Brons SAMT.
Sund 20 8 11 39
Frjálsar íþr. 8 7 10 25
Júdó 5 1 1 7
Borðtennis 0 0 3 3
Körfuknattl. 0 1 1 2
Tennis 0 0 1 1
Skotfimi 0 0 1 1
Blak 0 0 0 0
Verðlaun Islands frá upphafi
á Smáþjóðaleikunum
m
21
I
21
14
I
20
I
27
33
17
17
1985 1987 1989 1991 1993 1995
San Múnakó Kýpur Andorra Mafta Lúxem-
Marfnó
Island hefur alls hlotið 340 verðlaunapeninga
á Smáþjððaleikum, en Kýpur flesta, 348 ails.
■ RÚNAR Kristinsson var heið-
ursgestur á 1. deildar leik KR og
Fram í fyrrakvöld og var fyrir leik-
inn gerður að heiðursfélaga í KR-
klúbbnum.
■ NAFNARNIR og laganemarnir
Steinar Adolfsson og Steinar Guð-
geirsson fylgdust með leik Fram
og KR úr stúkunni á mánudags-
kvöldið; meiddir. KR-ingurinn
meiddist í siðasta leik gegn Leiftri
en Framarinn á æfingu daginn fyr-
ir leik.
■ ÁSMUNDUR Haraldsson hetja
KR-inga frá því í leiknum gegn
Leiftri á dögunum kom inn á hjá
KR undir lokin gegn Fram, en lék
ekki lengi. Nákvæmlega fjórar sek-
úndur liðu frá því að leikurinn hófst
eftir að hann var kdminn inn á og
þar til Guðmundur Stefán Marías-
son dómari flautaði til leiksloka.
■ ÞORSTEINN Guðjónsson fyr-
irliði Grindvíkinga var að vonum
kátur eftir sigurinn á Leiftri enda
hafði hann æma ástæðu til að fagna,
hann varð 26 ára á mánudaginn.
■ ÞORSTEINN Jónsson var einn-
ig í sjöunda himni eftir sigurinn og
sagði að Lúkas Kostic væri fæddur
sigurvegari.
■ KOSTIC sagði að það væri erfitt
að ná réttum takti í liðið þegar allt-
af vantaði einhveija. „Við vorum
með fjóra úti núna og svo einn sem
á bara að leika í eldri flokki,“ sagði
hann _og meinti sjálfan sig.
■ HÖRÐUR Magnússon lék ekki
með FH gegn ÍA á mánudaginn því
hann er meiddur á læri. FH-ingar
segja að líklega verði hann með í
næsta leik.
■ KAPPARNIR Ólafur Krist-
jánsson úr FH og Alexander
Högnason frá Skaganum fengu
báðir að líta rauða spjaldið, eftir að
hafa kíkt á það gula fyrr í leiknum
á Akranesi á mánudaginn, að því
virtist fyrir litlar sakir. Þeir mölduðu
aðeins í móinn en tókust síðan í
hendur og röltu útaf hönd í hönd.
■ SKAGALIÐIÐ lék með sorgar-
bönd og mínútu þögn var fyrir leik-
inn gegn FH vegna andláts Alberts
Gunnarssonar, 21 árs, sem spilaði
með ÍA í yngri flokkunum og vann
hjá félaginu.
QMÁbinniR
WlVlflKJWIIi
Sjöttu Smáþjóðaleikunum metin sem féllu, utan fimm boð-
lauk í Lúxemborg á laug- sundsmeta og átti hann hlut I
ardaginn og var met þátttaka að þremur þeirra. Eydís, sem er 17
þessu sinni eða um 900 þátttak- ára Keflavíkurmær, stakk sér sjö
endur frá átta þjóðum.
Leikamir hafa vaxið
mjög fiskur um hrygg
og sem dæmi um það
sendu íslendingar inn-
an við 30 keppendur á
fyrstu leikana sem fóm
fram í San Marínó árið
1985 en nú voru þeir 130 í Lúx-
emborg. íslenska íþróttafólkið
var sigursælt að vanda, hlaut
flest guliverðlaun allra átta þátt-
tökuþjóðanná eins og á undan-
fomum leikum; hlaut 33 gullverð-
laun, 17 silfurverðlaun og 28
bronsverðlaun eða samtals 78
Karlalidid í körfuknatt
ieikþarf adfara í ræki
lega naflaskodun
sinnum í laugina og kom með
jafn mörg gullverðlaun að bakk-
anum. Þessi efnilega sundkona á
svo sannarlega framtíðina fyrir
sér. Þessi tvö bám af en eins var
unga sundfólkið að bæta sig og
það er vel.
Júdómennimir tóku sín verð-
verðlaun. Kýpur kom næst með Iaun að vanda og undirstrikuðu
59 og Lúxemborg með 58 verð- styrk íslands þar. Fijálsíþrótta-
laun. Framkvæmdin var til fyrir- fólkið vann engin stór afrek, ekk-
myndar hjá Lúxemborgurum ert íslandsmet en mörg persónu-
varðandi aðstöðu og aðbúnað leg met féllu og það segir okkur
keppenda og mega Islendingar að unga fólkið er að bæta sig.
hafa sig alla við ef feta á í fót- Borðtennislandsliðið stóð sig
spor þeirra eftir tvö ár. framar vonum og kom heim með
Juan Antonio Samaranch, for- þrenn bronsverðlaun og vakti
seti Alþjóða ólympíunefndarinn- frammistaða Guðmundar Steph-
ar, átti hugmyndina að leikunum ensen athyglj. Stúlkumar héldu
sem eru sérstaklega hugsaðir uppi merki íslands í tennis og
fyrir smáþjóðir Evrópu sem em Reynir Reynisson í skotfími.
með minna en milljón íbúa og Kvennalandsliðið í körfu stóð
eiga yfírleitt ekki mikla mögu- undir þeim væntingum sem gerð-
leika á Óiympfuleikum. Samar- ar voru til þess og nældi sér í
aneh flutti ávarp við setningu silfurverðlaunin, en karlaliðið,
teikanna og sagðist ekki hafa sem varði gullið á síðustu leikum,
búist við þvf fyrir tólf árum þeg- olli vonbrigðum og kom heim með
ar hugmyndin kviknaði að leik- bronsið. Það er ljóst að karlaliðið
arnir ættu eftir að vaxa svona þarf að fara f rækilega naflaskoð-
mikið. un eftir útreiðina í Lugano og í
íslenska sundfólkið var að Lúxemborg. Frammistaða okkar
vanda í forystuhlutverki; hlaut 5 blaki var ekki til að hrópa húrra
20 guliverðlaun, 8 silfurverðlaun fyrir frekar en á fyrri leikum og
og 11 bronsverðlaun. Amar Freyr eins voru hjólreiðamenn ekki til-
Olafsson yann sjö gullverðiaun, búnir f alþjóða keppni.
settí tvö ísiandsmet í einstakl- Valur B.
ingsgreinum og voru það einu Jónatansson
Hvað ætlar ARNAR FREYR ÓLAFSSOM að gera næst ísundinu?
Stefnan sett
á Atlanta
ARNAR Freyr Ólafsson sundkappi úr Þorlákshöfn var annar
tveggja íþróttamanna til að vinna til sjö gullverðlauna á Smá-
þjóðaleikunum sem lauk í Lúxemborg á laugardaginn. Hann
og Eydís Konráðsdóttir sigruðu í öllum þeim greinum sem
þau tóku þátt í, máttu ekki stinga sér til sunds nema fá gull-
verðlaun fyrir. Arnar Freyr kemur úr þekktustu sundfjölskyldu
landsins, sonur Hrafnhildar Guðmundsdóttur sunddrottningar
sem setti tugi íslandsmeta á árum áður og keppti á tvennum
Ólympíuleikum. Hrafnhildur keppti aldrei á Smáþjóðaleikum
en börn hennarfjögur, Bryndís, Magnús Már, Hugrún og
Arnar Freyr hafa hins vegar keppt þar og eru búin að vinna
til 93 verðlauna á leikunum, þar af til rúmlega 60 gullverðlauna.
Amar Freyr er jólabam, fæddur
24. desember 1973 og hefur
búið í Þorlákshöfn frá fæðingu.
■■■■■■ Hann var f Fjöl-
Eftir brautaskólanum á
Skúla Unnar Selfossi eftir að
Sveinsson hann lauk grunn-
skólanum i Þor-
lákshöfn, síðan í eitt ár í Fjöl-
brautaskólanum í Keflavík, eitt ár
í menntaskóla í Kalifomíu í Banda-
ríkjunum og hefur nú lokið við eitt
og hálft ár í háskóla í Alabama en
þaðan ætlar hann að útskrifast úr
viðskiptafræði eftir þijú ár. Miðað
við að hann kemur úr sundfjöl-
skyldunni er hálf asnalegt að spyija
hvers vegna hann hafi byijað í
sundi, en við látum okkur hafa það.
„Það liggur eiginlega alveg í
augum uppi, fínnst þér það ekki?
Mamma átti tvö hundruð verð-
launapeninga sem voru rammaðir
inn og héngu uppi á vegg í herberg-
inu. Það hafði loðað við hana að
vera sunddrottning og þetta virkaði
allt mjög spennandi á mig þannig
að ég var alveg vitlaus í sund. Ég
byijaði að synda í september 1981
en sundlaugin hér í Þorlákshöfn
kom árið 1980 og fram að þeim
tíma þurftu krakkarnir að fara til
Hveragerðis."
Þú náðir ekki aðaltakmarki þínu
á Smáþjóðaleikunum, lágmarkinu
fyrir Evrópumeistaramótið. Hvað
tekur nú við hjá þér?
'Maður verður að sætta sig við
það og nú er markið sett á Ólymp-
íuleikana. Ég ætla að æfa stíft
næstu fjóra mánuðina og ná síðan
þessu bíessaða lágmarki. Það lítur
sjálfsagt út fyrir það að ég sé tals-
vert langt frá því en ég veit að ég
get meira og fann það vel á Smá-
þjóðaleikunum. Maður hefur heyrt
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
ARNAR Freyr var að hvíla slg frá sundinu í garðinum heima
hjð sér í gær, enda búið að vera miklð að gera hjð honum.
ýmislegt um Ólympíuleika og mig
langar mikið á leikana í Atlanta.
Mamma keppti í Tókíó 1964 og svo
aftur í Mexíkó 1968 og þau Brynd-
ís og Magnús kepptu í Seoul 1988.
Ég veit að ég get náð lágmarkinu
og ég ætla mér það.“
Er ekki hræðilega leiðinlegt að
æfa sund, vera meira og minna á
kafí allan daginn?
„Nei, nei, alls ekki. Þetta er allt
í lagi þegar maður er kominn ofan
í laugina. Það getur hins vegar
verið þreytandi að vakna alla
morgna klukkan hálf sex og hjóla
og fleira í þeim dúr og svo er stund-
um erfitt að þurfa að skipuleggja
daginn í kring um sundæfingar.
Annars er andinn í kringum sundið
mjög góður og það er oft mjög
gaman og mikið grínast þegar
menn slappa af í heita pottinum
eftir æfingar. Þó svo menn séu
keppinautar eru menn vinir og það
er alltaf gaman þegar vinum manns
gengur vel.“
Þið æfið lengi og mikið, fáið þið
aldrei hvíld frá æfíngum?
„Jú, stundum, en ekki langa.
Stærstu mótin eru venjulega í ág-
úst og þeir sem ná ekki á þau fá
ef til vill smá hvíld, kannski rúman
mánuð en hinir sem komast á stóru
mótin mega kannski hvíla sig í
tvær vikur áður en þeir stiga sér
til sunds á ný.“
Hvað reiknar þú með að vera
lengi á fullu í sundinu?
„Eins og staðan er núna geri ég
ráð fyrir að vera alla vega næstu
þijú árin á fullu. Þegar ég hef lok-
ið námi mun ég vega og meta stöð-
una með hliðsjón af því hvort ég
verð enn að bæta mig í sundinu.
Einnig kemur að því að maður
verður að vinna eitthvað, því maður
verður jú að lifa líka.“