Morgunblaðið - 14.06.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
rgunMa&i&
■ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Sverrir
Ottó Karl og
Dulic með Fram
OTTÓ Karl Ottósson lék ekki með Stjörnunni
gegn Víði í 2. deildinni í gærkvöldi en var á æf-
ingu hjá 1. deildarliði Fram. Ottó, sem var i U-
21s árs liðinu sl. haust, hefur áhuga á að skipta
yfir í Fram og eins er líklegt að miðjumaðurinn
Josip Dulic gangi til liðs við liðið. Dulic, sem er
fæddur 1970 og hefur leikið með Spartak frá
Subotica undanfarin áratug, kom til landsins í
fyrrinótt og mætti á æfingu hjá Fram í gær.
Hann þykir góður skotmaður, er sagður útsjónar-
samur, fljótur og skotviss. Júgóslavnesku leik-
mennirnir hjá Leiftri á Ólafsfirði Iéku með honum
ytra og bera honum vel söguna en erlendur leik-
maður hefur ekki leikið með Fram. Framarar taka
á móti Breiðablik á Laugardalsvelli á morgun.
Guðmundur loks
í hópinn hjá KR
GUÐMUNDUR Benediktsson verður í 16 manna
leikmannahóp KR sem mætir Grindavík i 1. deild-
inni á KR-velli í kvöld en þá hefst fjórða umferð
deildarinnar með fjórum leikjum. Guðmundur var
iðinn við að skora í vorleikjunum en hann meidd-
ist á hné gegn Víkingi í Reykjavíkurmótinu í bytj-
un mai og hefur ekki getað leikið síðan. Hins
vegar verður Steinar Adolfsson ekki í hópnum
hjá KR. Hann meiddist í leik gegn Leiftri í 2.
umferð fyrir tæplega þremur vikum. Sár á hné
hefur komið í veg fyrir nauðsynlega meðferð en
gert er ráð fyrir að hann fari í speglun í dag.
íslandsmeistarar í A, sem hafa ekki tapað stigi,
sækja nýliða Leifturs heim í kvöld, Keflavík tekur
á móti Eyjamönnum og FH og Valur eigast við í
Kaplakrika en umferðinni lýkur á morgun með
leik Fram og Breiðabliks.
Sigurjón í fjórða sæti
KYLFINGURINN Siguijón Arnarsson leikur um
þessar mundir á Tommy Armour atvinnumótunum
í golfi í Florída í Bandaríkjunum. Hann spilaði á
þremur mótum á síðustu dögum og náði í fjórða
sætið á síðasta mótinu. Sigurjón náði 15. sæti á
Ridgewood Lakes vellinum þegar keppt var 7.-9.
júní en 50 keppendur tóku þátt. Völlurinn er par
70 og lék hann á 207 höggum.
Á föstudaginn var eins dags mót á Mission Inn
vellinum, sem er par 72. Þar lék Siguijón á 69
höggum sem er þremur höggum undir pari og
náði sjötta sæti af 35 keppendum en sigurvegar-
inn fór völlinn á 66 höggum.
Besta árangrinum náði Sigurjón síðan á mánu-
daginn á Forest Lake vellinum, sem er par 72.
Þar hafnaði Siguijón í fjórða sæti á 70 höggum en
í þremur efstu sætunum voru menn með 68 högg.
Keppendur voru 40.
Tvö mörk
Þróttar í af-
mælisgjöf
KNATTSPYRNUDEILD ÍR hélt
upp á 25 ára afmæli deildarinnar
í gær en Þróttarar voru ekki á
þeim buxunum að gefa neitt inni
á vellimim í tilefni dagsins og
unnu IR-inga 2:1 í viðureign lið-
anna i 2. deildinni. Að ofan sést
hvar boltinn er á leið i net ÍR-
inga eftir skalla Hreiðars Bjarna-
sonar í fyrri hálfleik, Gunnar
Gunnarsson og Sævar Guðjóns-
son Þróttarar fylgjast vel með
en Óli H. Sigurjónsson ÍR-ingur
er ekkert sérlega kátur svo ekki
sé talað um markvörðinn Ólaf
Gunnarsson.
Þróttarar komust síðan í 2:0
með marki Gunnars Gunnarsson-
ar í síðari hálfleik, en Tómas
Björnsson minnkaði muninn fyr-
ir ÍR nokkru síðar. ÍR-ingar eru
án stiga í deildinni eftir fjóra
leiki en Þróttarar í toppbarátt-
unni, hafa aðeins tapað einum
leik.
■ Leikirnlr/C4
ISI OGOI
Forseti Evrópusambands Ólympíunefnda um hugsanlega sameiningu
Olympíugreinasambönd
verða að hafá meirihluta
Jacques Rogge, forseti Evrópu-
sambands ólympíunefnda,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að sérsambönd þeirra íþrótta-
greina sem keppt er í á ólympíu-
leikum, verði alltaf að hafa meiri-
hluta í stjóm og á ársþingum,
komi til sameiningar íþróttasam-
bands íslands og Olympíunefndar
íslands. Talsverð umræða hefur
verið um sameiningu þessara afla
íþróttahreyfingarinnar.
Juan Antonio Samaranch, for-
seti alþjóða ólympíunefndarinnar
(IOC) sagði — er hann kom til
landsins í tilefni heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik í byij-
un síðasta mánaðar — að það
væri alfarið mál íslendinga hvort
þeir sameinuðu íþróttasambandið
og ólympíunefndina; „Við hjá IOC
emm hvorki með eða á móti sam-
einingu, viljum aðeins að ólympíu-
sáttmálinn sé haldinn," sagði
Samaranch.
Rogge, sem auk þess að vera
forseti Evrópusambands ólympíu-
nefnda, er fulltrúi í alþjóða ólymp-
íunefndinni og einn af varaforset-
um heimssambands ólympíu-
nefnda, tekur í sama streng, og
það sem felst i þeirri yfirlýsingu
að ólympíusáttmálinn verði hald-
inn, er eftirfarandi, að sögn Rogg-
es: „í fyrsta lagi verður orðið
ólympíu- að koma fram í nafni
hins nýja sambands. í öðru lagi
verða ólympíuíþróttasamböndin —
það er að segja sérsamböndin sem
hafa með að gera þær greinar,
sem keppt er í á ólympíuleikum —
að hafa meirihluta atkvæða á árs-
þingi sambandsins. í þriðja lagi
verða umrædd ólympíuíþrótta-
sambönd að hafa meirihluta at-
kvæða í framkvæmdastjóm nýju
samtakanna — í öllum málum —
og í fjórða lagi verður að vera
sérstakt ákvæði í nýju lögunum,
sem kveður á um að ólympíu-
íþróttasamböndin hafi ein at-
kvæðisrétt um öll málefni sem
tengjast ólympíuhreyfingunni.“
Rogge sagði þrenns konar fyr-
irkomulag við lýði í Evrópu; sums
staðar væri um að ræða ríkisrekn-
ar ólympíunefndir, sem væru
nokkurs konar íþróttamálaráðu-
neyti, eins og t.d. á Ítalíu, annars
staðar væri um að ræða eitt yfir-
vald sem væri annað hvort sjálf-
stæð ólympíunefnd eða sameinuð
ólympíunefnd og íþróttasamband
og sums staðar væri það sama
upp á teningnum og hér á landi,
þ.e.a.s. íþróttasamband og ólymp-
íunefnd störfuðu sitt í hvoru lagi.
„Það er algjörlega mál hvers
lands fyrir sig hvort af samein-
ingu verður eða ekki, en ef menn
ætla sér að sameinast, verður það
að gerast í sátt og samlyndi —
annars er það dæmt til að mistak-
ast,“ sagði Rogge.
HESTAR: ÓGLEYMANLEG SÝNING SVARTS OG ÞÓRÐAR / C3