Morgunblaðið - 16.06.1995, Blaðsíða 3
r
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 B 3
DAGLEGT LÍF
Hattastandur,
apagríma og fatahengi
á hönnunarsýningu Iðnskólans í Hafnafirði
2 VIÐ Iðnskólann í Hafnarfírði
9 hefur verið boðið upp á nám
Z í hönnun síðastliðin fjögur ár.
Z Nemendur á hönnunarbraut
tO læra meðal annars málm- og
5E trésmíði, steinaslípun, logsuðu
og einfalda rafvirkjun auk
bóklegra greina, listasögu, efnis-
fræði, tölvufræði og einnig hef-
bundinna framhaldsskólagreinar.
Námstími er að meðaltali 4-5 annir
að loknu grunnskólaprófí, en 3 ann-
ir ef nemandi hefur þegar lokið
stúdentsprófi.
Nemendur með
ólíkan bakgrunn
Fjórir útskrifuðust af brautinni í
vor en nemendur voru alls um 80
talsins og hefur þeim farið fjölg-
andi ár frá ári. Að sögn Þorkels
Guðmundssonar, sviðsstjóra hönn-
unarbrautarinnar, koma nemendur
úr ýmsum áttum og hafa mismun-
andi menntun að baki. „Sífellt
stærri hluti af nemendum okkar
hefur lokið námi í framhaldsskóla,
þó að stúdentspróf sé alls ekki skil-
yrði fyrir inngöngu. Það gæti verið
að menntunarkröfur yrðu auknar,
en mér fínnst varasamt að útiloka
alveg þá sem eru minna menntaðir,
því í þeim hópi geta rétt eins leynst
snillingar í greininni."
Meðalaldur nemenda hefur
hækkað og nú eru flestir þeirra fjöl-
skyldumenn á þrítugsaldri eða jafn-
vel eldri. Margir nota námið til
undirbúnings fyrir hönnunar- og
arkitektanám í háskólum erlendis,
aðrir stefna á nám í gull- og silfur-
smíði, leikmyndagerð og fleiri
greinum þar sem hönnunarnámið
nýtist. Þorkell segir að nemendum
hafí gengið vel að komast í skóla
erlendis og hefur hönnunarnámið
hér stundum verið metið að hluta.
Búa til minjagripl
Próf af hönnunarbrautinnni
stendur samt vel fyrir sínu þó ekki
sé bætt ofan á það annarri mennt-
un. „Nemendur okkar hafa til dæm-
is verið að framleiða minjagripi úr
beini, horni og steini. Sérstaklega
er það fólk sem kemur utan af landi.
Þessi framleiðsla þeirra er ágæt
leið til að auka fjölbreytni í atvinnu-
lífí í sveitum svo að ekki séu allir
að selja bændagistingu."
Frá og með næstu önn verður
nám á hönnunarbraut í fyrsta skipti
viðurkennt af menntamálaráðu-
neytinu og þar með lánshæft hjá
EGGLAGA skápur eftir Sess-
elju Hrönn Guðmundsdóttur
hlaut þriðju verðlaun í sam-
keppni nemenda.
Morgunblaðið/Sverrir
ÁRLEGA í lok vorannar er haldin sýning á verkum nemenda
hönnunarbrautarinnar og í tengslum við hana velur dómnefnd
bestu hönnun nemenda. Þessi hattastandur eftir Pálma Einarsson
fékk fyrstu verðlaun i vor.
JÓHANNA Lind Einarsdóttir
er höfundur fatahengis í for-
stofu sem hlaut önnur verð-
laun i hönnunarkeppninnni.
▼ÞESSI skuggalega apa-
gríma er eftir Stefán Jörgen
ÞORKELL Guðmundsson hef-
ur verið sviðsstjóri hönnunar-
brautarinnar frá byijun og
vann að undirbúningi náms-
ins. Hann vonast til að það
verði komið á háskólastig inn-
an nokkurra ára.
Lánasjóði íslenskra námsmanna.
„Ég vonast til þess að innan nokk-
urra ára verði hönnunamámið hér
komið á háskólastig. Það er í sam-
ræmi við þá stefnu sem ráðamenn
hafa verið að boða, að verkgreinum
verði gert hærra undir höfði en
verið hefur í skólakerfínu." ■
Helgi Þorsteinsson
INNFYLLINGU er smeygt
undir húðina til að slétta úr
hrukkum.
Ný aðferð til
að vinna bug á
hlátur- og broshrukkum
HRUKKUR frá nefí niður að
munni er algengt vandamál og
dýpka með aldrinum. Sagt er að
fegranarsérfræðingar eigi erfíðast
með að vinna bug á þessum hlát-
ur- og broshrakkum.
í júníhefti Allure segir að nú
sé lausn í sjónmáli fyrir þá sem
era langþreyttir á hrakkum sínum
þar sem lýtalæknar séu að fínna
nýja aðferð til þess að leysa þetta
vandamál.
Þróuð hafa verið gúmmíkennd
innfyllingarefni úr sílikoni sem
smeygt er undir húðina og á að
slétta úr djúpum hrakkum.
Sagt er að notað sé sama efni
og lengi hefur verið notað við lýta-
lækningar t.d. við að hækka kinn-
bein og laga hökur. Reynsla sé á
aðferðinni og hún eigi því ekki að
hafa alvarlegar aukaverkanir í för
með sér. ■
Nýtt frá
MARBERT
SUN MAKE UP
sumarlinan
SUN SPIRIT
sumarilmur
Við seljum MARBERT:
Libia, Mjódd; Spes, Háaleitisbraut; Brá,
Laugavegi; Sandra, Laugavegi; Bylgjan,
Kópavogi; Snyrtihöllin, Garðabæ; Gallery
Förðun, Keflavik; Krisma, (safirði; Vöru-
húsið Akuneyri; Apótekið Vestmannaeyjum,
Svefnleysi
veikir ónæmiskerfið
OFT HEFUR verið talið að streita
og þunglyndi valdi svefnleysi og
saman veiki það ónæmiskerfið.
Nýjar rannsóknir sem gerðar hafa
verið í Kaliforníuháskólanum í San
Diego benda til þess að aðeins ein
svefnlaus nótt nægi til þess að
veikja ónæmiskerfið og að líkam-
inn verði móttækilegri fyrir sýk-
ingu. Þetta kemur fram í júníhefti
Allure-tímaritsins. í rannsókninni
var haldið vöku fyrir tuttugu og
þremur hraustum sjálfboðaliðum
milli kl 3 og 7 að nóttu til. Um
morguninn kom í ljós að varnar-
frumur líkamans höfðu slappast
verulega í 18 sjálfboðaliðanna.
Sem betur fer nær líkaminn sér
fljótt aftur og eftir góða hvíld
næstu nótt höfðu varnarfrumumar
náð sér á strik.
Rannsóknarmennirnir ályktuðu
sem svo að ástæðan fyrir aukinni
svefnþörf í veikindum sé eitt af
vamarviðbrögðum líkamans. ■
SjáHsviini
T'cist þú hvers vegna skorið epli verður brúnt? Það er súrefnið
l í andrúmsloftinu sem veldur oxun í sárinu. Þegar súrefnið
umbreytist í líkamanurrt getur svipað átt sér stað af völdum
svonefndra sindurefna.
Hver fruma líkamans er varin með himnu sem inniheldur m.a. hátt
fituhlutfall. Sindurefnin valda því að þessi fita oxar, sem veikir vörn
frumunnar og gerir hana viðkvæma fyrir árásum. Þetta getur gerst
vegna utanaðkomandi áhrifa, t.d. reykinga, streytu og mengunar.
Rannsóknir vísindamanna benda til að slíkar frumuskemmdir geti
skaðað heilsuna. Líkaminn getur varist sindurefnum með svonefnd-
um andoxunarefhum. Sum andoxunarefni fáum við úr fæðunni.
Andox inniheldur valin andoxunarefni í einu öflugu hylki. Eitt
hyiki á dag getur hjálpað líkama þínum að verjast sindurefnum.
leilsuhúsið
Skólavörðustíg &Kringlunni