Morgunblaðið - 28.06.1995, Síða 1
Kanínan
EINU sinni var kanína sem
var að leita að æti. Þá sá hún
gulrótagarð langt í burtu og
hún hljóp og hljóp þangað til
hún kom að honum.
En það var krakki sem sá
þegar kanínan hafði borðað
gulræturnar. Honum fannst
hún svo sæt að hann hljóp
inn til mömmu sinnar og
spurði:
Má ég eiga kanínuna?
Mamman sagði: Já, þú
mátt eiga hana.
Þá fór krakkinn út og sótti
allar gulrætumar og gaf kan-
ínunni. En þá varð mamman
reið, svo að hún þurfti að
skamma krakkann og krakk-
inn lofaði að gera þetta
ALDREI! ALDREI! aftur.
Það skrítna?
EINU sinni var hvítur litur.
En hann vildi ekki vera eins
og hann var. Þá fór hann
til afa síns. Afi hans hét: X.
- Afi, sagði Hvítur, - mig
langar að vera öðruvísi á
litinn.
- Þú segir nokkuð.
(Afi hringir.)
- Já, halló, Poppi? Já,
blessaður, þetta er X.
Barnabarnið mitt kom til að
athuga hvort það gæti feng-
ið nýjan lit. Er það hægt?
- Ja ... tja, ég ætla að
spyija hann Polla.
Polli er vinur Hvíts. Poppi
spyr Polla.
- Já, segir Poppi í sím-
ann, hvernig viltu hafa lit-
inn?
(X spyr Hvít.)
- Hann vill vera X-óttur,
svarar X.
- Ég ætla að gá í nýjasta
tískublaðið. Það heitir Page
tú.
- Já, það er einmitt í
tísku. Hann getur orðið X-
óttur!
- Mér finnst mjög gaman
að heyra þetta.
- Hvítur! Þú mátt vera
X-óttur alla þína ævi!
- Núna förum við á Máln-
ingarstofuna.
(Þeir eru komnir á Máln-
ingarstofuna.)
- Hann á að vera X-óttur.
- Jæja, lokaðu augunu,m
o g munninum og ekki
gleyma að loka eyrunum.
(Eftir smástund.)
- Svona, nú ertu orðinn
X-óttur.
Og eftir þetta var hann
alltaf glaður.
(ENDIR.)
Er það ekki ótrúlegt? Hún
Hildur Kristín Stefánsdóttir,
7 ára, Skaftahlíð 1, 105
Reykjavík, er höfundur þess-
ara tveggja frábæru sagna.
Þú ert enginn aukvisi, Hildur
Kristín mín, það má nú segja.
Og, krakkar, hún notar
tæknina til hins ýtrasta; hún
sendi efnið sitt bæði á hand-
riti og líka á disklingi sem
ég stakk bara inn í mína tölvu
og eftir smá stund var efnið
hennar tilbúið til vinnslu.
Tæknin lengi lifí!
Krakkar, látið hana Hildi
Kristínu vera ykkur hvatn-
ingu til dáða á ritvellinum,
það er svo meiriháttar að fá
efni frá ykkur; stórum,
smáum, hvítum, gulum,
brúnum, svörtum, þybbnum,
grönnum, skolhærðum, ljós-
hærðum, dökkhærðum, rauð-
hærðum, smámæltum, stam-
andi.
Athugið að þið eruð öll
börn, mannsbörn - jafningjar
- þetta er svo einfalt, og ekki
orð meira um það, takk fyrir!
Georg
MÖRGÆSIN Georg birtist
okkur hér á mynd, sem Úlf-
ur Jóhann 6 ára, Kjarrhólma
18, 200 Kópavogi, sendi
okkur. Georg sprangar
þarna um í grasinu, en á
himninum sjáum við heldur
en ekki skemmtilegt safn
himintungla og eitt ský hef-
ur þarna einnig læðst með.
Helst hefði ég líka viljað
sýna ykkur umslagið, sem
hann Georg kom í. Það var
nefnilega Úlfur Jóhann
sjálfur sem bjó það til og
það var ekki síðra en mynd-
in hans.
Það er gaman að vita til
þess að við íslendingar eig-
um svona margt upprenn-
andi lista- og handverksfólk,
svo ekki sé minnst á skáld-
in. Framtíðin er okkar og
hún virðist björt.
Afsökun
HVAÐ er það, sem
er leiðinlegt við
Myndasögur Mogg-
ans?
Svar: Þegar allt
leggst á eitt um að
klúðra hlutunum.
Það gerðist í sið-
asta blaði. Á hverri
einustu síðu þessa
fjórblöðungs okkar
urðu mannleg mistök
þess valdandi að
myndir vantaði þar
sem þeim hafði verið
ætlaður staður, texti
kom ekki með mynd,
þraut birtist ekki, en
lausnin vildi alls ekki
missa af birtingu,
tvær bráðskemmti-
legar sögur runnu
saman í eina kássu,
og fleira mætti tína
tiT.
En - úff! - er ekki
nóg komið af því
neikvæða. Snúum
okkur að uppbygg-
ingunni. Við birtum
aftur það sem ekki
vildi rata rétta leið
til ykkar, kæru les-
endur.
Heiðruðu höfund-
ar, Myndasögurnar
biðja ykkur afsökun-
ar.
Ruglingur
ÞESSI þraut er heimatilbúin að öllu
leyti og því er það okkur mikill heiður
að birta hana. Steinunn Lilja Emils-
dóttir, Löngufít 38, 210 Garðabæ,
sendi okkur þrautina. Steinunn Lilja
er 11 ára.
Það er gaman að því þegar þið legg-
ið sjálf til þrautir og þess háttar í blað-
ið. Og ekki spillir það fyrir þegar þetta
er svona vandað og vel gert. En snúum
okkur nú að þrautinni.
Strákurinn á myndinni heitir tveim-
ur nöfnum. Nöfnin virðast þó hafa lent
í einhveijum ruglingi og stafirnir farið
á flakk.
Annað nafnið er vinstra megin við
hann en hitt hægra megin. Nú er það
ykkar verkefni að raða stöfunum rétt
saman og finna þannig út hvað strák-
urinn heitir. Hann getur víst ekki ver-
ið nafnlaus svona til lengdar.
Þegar þið hafið lokið við þrautina
getið þið svo borið ykkar svar saman
við lausnina, en hana er að finna ann-
ars staðar í blaðinu.