Morgunblaðið - 01.07.1995, Blaðsíða 2
2 E LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 1995 E 3
KNATTSPYRNA
Unglingarnir til Færeyja
LANDSLIÐ 18 ára og yngri leikur vináttulandsleik við jafnaldra sína
frá Færeyjum í Tóftum á morgun klukkan tvö.
Liðið hefur verið valið og er skipað eftirtöldum leikmönnum: markverðir eru Gunnar
Sveinn Magnússon, Fram og Tómas Ingason, Val, aðrir leikmenn, Rúnar Ágústsson,
Fram, Sigurður Elí Haraldsson, Fram, Valur Fannar Gislason, Fram, Þorbjörn Atli
Sveinsson, Fram, Ámi Ingi Rjetursson, KR, Edilon Hreinsson, KR, Ivar Ingimarsson,
Val, Amar Viðarsson, FH, ívar Öm Benediktsson, ÍA, Jóhann Bimir Guðmundsson,
Keflavík, Jón Freyr Magnússon, Grindavík, Amgrimur Arnarson, Völsungi, Hjalti Þór
Vignisson, Sindra og Sigurður Friðriksson, IF Elfsborg.
HESTAR / FJORÐUNGSMOT AUSTFIRÐINGA
KNATTSPYRNA
„Getum blandað okkur í
baráttuna á toppnum"
Júgóslavar
á siglingu
JÚGÓSLAVAR, Litháar, Króatar
og Grikkir eru komnir í undan-
úrslit Evrópukeppninnar í
körfuknattleik sem fram fer í
Aþenu.
Jugóslavar, sem urðu heimsmeist-
arar árið 1990 en voru síðar
settir í alþjóðlegt keppnisbann,
sýndu í gær að þeir eru ákveðnir í
að snúa aftur á toppinn. Þeir sigruðu
Frakka 104:86 og áttu ekki í nokkr-
um vandræðum með það. Júgóslavar
munu leika við Grikki í dag í fyrri
undanúrslitaleiknum en í hinum
mætast Litháar og Króatar og er
fastlega búist við að Króatar vinni
þar og mæti Júgóslövum í úrslitum
á sunnudaginn og er ekki að efa að
það verður hörkuleikur.
Það gæti þó komið Júgóslövum í
koll að þeir hafa ekki enn þurft að
taka verulega á í mótinu og ef Króat-
ar ná að standa í þeim gæti allt
gerst. Frakkar voru engin fyrirstaða
í gær og höfðu Júgóslavar 59:35 í
yfir í leikhléi. Predrag Danilovic sem
leikur með Miami Heat var í miklu
stuði svo og Vlade Divac sem spilar
með LA Lakers. Ungur piltur í
franska liðinu, Yann Bonato sem
þykir gríðarlega efnilegur, gerði 38
stig sem er mjög gott á móti slíku
liði.
Króatar sigruðu ítala 71:61 og fór
Toni Kukoc fyrir sínum mönnum
þrátt fyrir að sauma þyrfti þrjú spor
í hönd hans og hann verður tilbúinn
í slaginn á nýjan leik í dag. Króatar
náðu strax tíu stiga forystu sem
þeir héldu svo til fram að hléi, en
þá tóku ítalir góðan sprett og náðu
að minnka muninn í 47:48 fyrir hlé.
Það stóð þó ekki lengi því Króatar
settu í fluggírinn og stungu af.
Risinn Arvydas Sabonis (2,21 m),
sem hóf að leika með Portland Tra-
il Blazers í vetur, fór fyrir liði Lithá-
en þegarþað sigraði Rússland 82:71.
Kappinn gerði alls 33 stig og var
allt í öllu hjá Litháen. Sergei Babkov
gerði 25 stig fýrir Rússa og þar af
17 í síðari hálfleik er Rússum tókst
að minnka muninn í 49:50. „Ég skil
ekki hvað mínir menn taka þessu
tapi rólega. Þetta var spurning um
líf eða dauða fýrir körfuknattleikinn
í Rússlandi. Nú komumst við ekki á
Ólympíuleikana þrátt fyrir að íþrótt-
in sé á mikilli uppleið heima. Ég
skil ekki að leikmenn mínir skyldu
ekki gera meira til að tryggja sæti
á Ólympíuleikunum," sagði Sergei
Belov þjálfari Rússa eftir tapið.
Evrópumeistararnir frá því 1987,
Grikkir, voru undir gegn Spánveij-
um í leikhléi, 30:33, en vel studdir
af 20 þúsund Grikkjum tókst þeim
að komast yfir og halda forystu, þó
aldrei yrði munurinn mikill. Það var
skyttan Alberto Herreros sem átti
stærstan þátt í sigri Grikkja, hann
gerði 15 stig með skotum fyrir utan
á lokakaflanum auk þess sem hann
lék mjög góða vörn eins og allt
gríska liðið.
KRÓATAR hafa leikið vel í Evrópukeppninni til þessa og eru á hraðri leið í úrslltaleiklnn. Hér er það
Aridjan Komazec sem skorar gegn ítölskum varnarmönnum í gær.
—^ u _ m Morgunblaðið/Valdimar
Seimur hefur vinninginn
SEIMUR frð Víðfvöllum á skeiði á fjórðungsmóti austflrskra hesta-
manna á Fornustekkum í gær. Knapl er Þórður Þorgeirsson.
EVRÓPUBIKARKEPPNI í tugþraut karla og sjöþraut kvenna, 2.
deild, fer fram á Laugardalsvelli um helgina og hefst keppni
báða dagana klukkan 10. Þar keppir karlalið íslands í riðli nieð
Dönum, Irum, Slóvenum og Lettum en kvenfólkið með Lettum,
írum og Dönum. Að sögn Gísla Sigurðssonar, sem er þjálfari
Jóns Arnars Magnússonar tugþrautarkappa og landsliðsþjálfari
ásamt Þráni Hafsteinssyni, mæta allar þjóðirnar með sfn sterk-
ustu lið og eftir góðan árangur kvennasveitarinnar á Evrópu-
keppninni í Tallin fyrir skömmu, er Ijóst að ekkert verður gefið
eftir. „Við höfum náð best þriðja sæti en ætlum ofar nú, fá enn
fleiri stig og blanda okkur í baráttuna á toppnum þó að Lettar
og Danir séu með sterkasta lið á pappírnum," sagði Gísli.
Fjórir keppendur skipa hvort lið
og allir keppa en árangur
þriggja bestu gilda og einn fellur
út. Karlaliðið skipa Jón Amar, Ólaf-
ur Guðmundsson, Friðgeir Hall-
dórsson og Theódór Karlsson en
kvennaliðið Þuríður Ingvarsdóttir,
Vala Flosadóttir, Sunna Gestsdóttir
og Sigríður Guðjónsdóttir.
„Það er góð stemmning í liðinu,
undirbúningur hefur gengið vel og
útlitið er bjart,“ sagði Gísli. „Við
stefnum hærra eins og alltaf og ég
hef trú á að við getum blandað
okkur í baráttuna um sigur hjá
báðum okkar liðum ef vel tekst til.
Við keppum nú á íslandi og ég hef
ekki bara trú, heldur veit, að það
spilar inní. Við erum tilbúin, ekki
bara við þjálfaramir, heldur liðið
líka.“
Gísli segir að danska sjöþrautar-
liðið sé sterkast á pappírnum, besti
árangur þeirra er 5.379, 5.309 og
4.995 stig sem gerir samtals 15.683
stig á meðan íslensku stúlkurnar
hafa náð best 6.971, 4,756 og rúm-
lega 4.500 stigum, alls um 16.227.
Möguleiki á sigri íslensku stúlkn-
anna ætti því að vera fýrir hendi
enda spurning hvort þær geti ekki
bætt sig enn meir.
í karlaflokki hafa íslendingar
mest náð 22.139 stigum, þaraf Jón
Arnar með 8.237 stig og næstu
með 7.225 og 6.677, en Gísli segir
að strákarnir frá Lettlandi sé með
sterkasta liðið í keppnini, hafa náð
best 7.830, 7.918 og 7.592 sem
gera samtals 23.340 stig.
íslandsmet kvenna í sjöþraut er
14.386 stig og er síðan 1987, þegar
keppni var haldin á Spáni en þá
náði liðið ekki góðu sæti þrátt fyrir
íslandsmet. íslandsmet karla er
20.800 stig og síðan 1979.
Jón Arnar Magnússon
Eigum mögu-
leika á sigri
Ef allt fer vel og engin óhöpp
verða eigum við jafnvel mögu-
leika á að ná í fyrsta eða annað
sætið,“ sagði Jón Amar Magnús-
son, sem verður í eldlínunni um
helgina þegar 2. deild Evrópubikar-
keppninnar fer fram á Laugardals-
velli. „En ef það gengur ekki upp,
þá er allavega möguleiki á að slá
Islandsmetið í samanlögðu og það
er ekki bara ég, heldur erum við
fjórir og ætlum að gera okkar
besta. Stelpurnar eiga jafna mögu-
leika og við strákarnir."
Jón segir að undirbúningur hafi
verið mjög góður en mikið atriði
sé að sleppa við meiðsli. „Áherslan
verður lögð á að komast heill í
gegn og gera allt gilt því það má
ekkert klikka. Það var alveg hroða-
legt í fyrra þegar þrír af fjóram
keppendum duttu út úr keppni og
ég vona bara að við séum búnir
með óhappakvótann. Svo vil ég
auglýsa eftir áhorfendum og góðu
veðri en það hefur alltaf rejmst
erfitt að semja um veðrið en ef það
verður slæmt, gæti það verið okkur
í hag því við eram vön því.“ Ef
Islendingar vinna riðil sinn, fara
þeir sjálfkrafa upp í fyrstu deild.
Jón Arnar Magnússon
Sigurður og Þorvaldur ekki með gegn Færeyingum
Ríkharður og Rútur
í landsliðshópinn
Tvær breytingar hafa verið
gerðar á landsliðshópi íslands
sem mætir Færeyingum á Nes-
kaupstað á morgun kl. 14. Sigurð-
ur Jónsson frá Akranesi getur ekki
tekið þátt í leiknum vegna meiðsla
og Þorvaldur Örlygsson, leikmaður
Stoke, gaf heldur ekki kost á sér,
en í þeirra stað koma Ríkharður
Daðason úr Fram og Rútur Snorra-
son úr Eyjum.
Þetta verður fyrsti landsleikur-
inn sem fram fer á Ausurlandi og
jafnframt fimmtándi A-landsleikur
Islands og Færeyja. ísland hefur
unnið 13 af þeim 14 leikjum sem
þjóðirnar hafa leikið, en einum leik
lauk með markalausu jafntefli.
Langt er síðan ísland hefur stillt
upp jafn sterku liði gegn Færey-
ingum og gert verður á morgun
en það verða þrír atvinnumenn í
liðinu, Eyjólfur Sverrisson frá Be-
siktas, Lárus Orri Sigurðsson frá
Stoke og Bjarki Gunnlaugsson frá
Numberg.
Leikreyndasti maður liðsins er
Ólafur Þórðarson frá Akranesi og
mun hann leika sinn 60. landsleik
á morgun og sá sem næstur kemur
onum er Kristján Jónsson úr Fram
sem leikur sinn 40. landsleik. Tveir
nýliðar eru í hópnum, Rútur og
Lárus Orri hafa ekki leikið A-
landsleik og Einar Þór Daníelsson
úr KR hefur leikið einn A-lands-
leik. íslensku leikmennirnir hafa
samtals Ieikið 247 A-landsleiki og
gert í þeim 8 mörk, þar af Eyjólf-
ur fjögur. Haraldur Ingólfsson hef-
ur tvívegis skorað og þeir Ólafur,
Arnar Grétarsson og Bjarki hafa
gert eitt mark hver í landsleik.
íslenska landsliðið er annars
skipað eftirtöldum leikmönnum.
Markverðir era þeir Birkir Krist-
insson úr Fram og Friðrik Friðriks-
son úr IBV. Varnarleikmenn eru
Kristján Jónsson, Fram, Izudin
Daði Dervic, KR, Lárus Orroi Sig-
urðsson, Stoke og Skagamennirnir
Sigursteinn Gíslason og Ólafur
Adolfsson. Á miðjunni leika Ólafur
Þórðarson og Haraldur Ingólfsson,
ÍA, Arnar Grétarsson, Breiðabliki,
Gunnar Oddsson úr Leiftri og Rút-
ur Snorrason úr ÍBV. Frammi
verða Eyjólfur Sverrisson, Besikt-
as, Bjarki Gunnlaugsson,
Niimberg, Ríkharður Daðason,
Fram og Einar Þór Daníelsson, KR.
Á leið í úrslit
Reuter
ÚRSLIT
Tennis
Wimbledon-mótið
Einliðaleikur karla, þriðja umferð:
Michael Joyce (Bandaríkjunum) — Chris
Wilkinson (Bretlandi) 5-7 6-4 7-6 (7-3) 6-4
14- Todd Martin (Bandaríkjunum) — Derrick
Rostagno (Bandaríkjunum) 6-3 4-6 4-6 6-2
6-4
Aaron Krickstein (Bandaríkjunum) — Tom-
as Carbonell (Spáni) 6-7 (2-7) 7-5 5-7 6-3
6-2
4-Goran Ivanisevic (Króatíu) — Amaud
Boetsch (Frakklandi) 6-4 6-4 6-4
Greg Rusedski (Bretlandi) — Olivier Delai-
tre (Frakklandi) 6-7 (6-8) 6-4 6-4 7-6 (7-3)
Shuzo Matsuoka (Japan) — Javier Frana
(Argentínu) 7-6 (7-3) 3-6 6-7 (6-8) 7-6
(7-4) 6-3
6-Yevgeny Kafelnikov (Rússlandi) — Alex-
ander Volkov (Rússlandi) 7-6 (7-2) 6-2 6-4
2- Pete Sampras (Bandaríkjunum) — Jared
Palmer (Bandaríkjunum) 4-6 6-4 6-1 6-2
Einliðaleikur kvenna, þriðja umferð:
8- Gabriela Sabatini (Argentínu) — Nancy
Feber (Belgíu) 7-5 6-1
15- Brenda Schultz-Mccarthy (Hollandi) —
Radka Zrubakova (Slóvakíu) 6-4 7-5
Lisa Raymond (Bandaríkjunum) — Irina
Spirlea (Rúmeníu) 6-4 2-6 6-4
3- Conchita Martinez (Spáni) — Shaun Staf-
ford (Bandaríkjunum) 6-1 6-1
2-Arantxa Sanchez Vicario (Spáni) — Zina
Garrison-Jackson (Bandaríkjunum) 6-1 6-2
Petra Kamstra (Hollandi) — 14-Naoko
Sawamatsu (Japan) 6-1 7-6 (7-5)
Yayuk Basuki (Indónesiu) — Nathalie Tauz-
iat (Frakklandi) 6-7 (4-7) 6-3 6-4
9- Anke Huber (Þýskalandi) — Chanda Rub-
in (Bandaríkjunum) 6-2 6-4
ÍA U23 - Þór U23 1:2
Akranesvöllur, 16-Iiða úrslit bikarkeppni
KSÍ, föstudaginn 30. júní 1995.
Aðstæður: Suð-vestan strekkingur og völl-
urinn blautur.
Mark ÍA U23: Bjami Guðjónsson (78.).
Mörk Þórs U23: Hreinn Hringsson (50.,
74.)
Gult spjald: Heimamennimir Unnar Val-
geirsson (35.), Viktor Viktorsson (85.), báð-
ir fyrir brot. Akureyringamir Örlygur
Helgason (76.) og Brynjar Óttarsson (86.)
báðir fyrir brot.
-Rautt spjald: Enginn.
Áhorfendur: 400.
Dómari: Gísli Guðmundsson átti ekki góðan
dag.
Línuverðir: Pjetur Sigurðsson og Hallgrím-
ur Friðgeirsson.
lA U23: Ámi Gautur Arason - Freyr
Bjamason, Viktor Viktorsson, Gunnlaugur
Jónsson, Unnar Valgeirsson - Bjami Guð-
jónsson, Jóhannes Harðarson, Sigurður Sig-
ursteinsson, Pálmi Haraldsson - Theodór
Hervarsson, Dejan Stjoic.
Þór U23: Brynjar Davíðsson - Brynjar Ótt-
arsson, Páll Þ. Pálsson, Guðmundur Hákon-
arson, Sigurður Bjamason - Öriygur Helga-
son, Amar Guðmundsson, Sigurður Pálsson
(Orri Stefánsson 84.), Elmar Eiríksson -
Kristján Ömólfsson, Hreinn Hringsson.
3. deild:
Völsungur - Ægir...................2:0
Guðni Rúnar Helgason, Kristján Magnús-
son.
Leiknir - Dalvík...................3:3
Steindór Elísson, Róbert Amþórsson, Krist-
inn Gunnarsson - Örvar Eiríksson 2,Jón
Þórir Jónsson.
Selfoss - Fjölnir..................2:1
Njörður Steinarsson, Sævar Gíslason -
Steinar Ingimundarson.
Haukar - Höttur....................0:2
Kári Jónsson, sjálfsmark.
Fj. leikja u J T Mörk Stig
LEIKNIR 7 5 1 1 16: 7 16
VÖLSUNGUR 7 5 1 1 16: 7 16
DALVIK 7 3 4 0 13: 7 13
ÆGIR 7 3 1 3 10: 10 10
Bi 6 2 3 1 7: 7 9
SELFOSS 7 3 O 4 12: 17 9
ÞROTTURN. 6 2 0 4 7: 8 6
FJÖLNIR 7 2 0 5 12: 14 6
HAUKAR 7 2 0 5 3: 16 6
HÖTTUR 7 1 2 4 8: 11 5
4. deild:
Þrymur-KS.......................0:7
Huginn - KVA...................0:6
■Ieik ÍBV og ÍBA í 1. deild kvenna var
frestað.
■Leik Magna og Tindastóls í 4. deild C var
frestað fram á mánudag.
Körfuknattleikur
Evrópukeppni landsliða, 8-liða úrslit:
Litháen - Rússland................82:71
Flest stig Litháa: Arvydas Sabonis 33, Artu-
ras Kamishovas 18, Sarunas Marciulionis
16.
Fiest stig Rússa: Sergei Babkov 25, Sergei
Bazarevich 19, Andrei Fetisov 13.
Króatía - Italia..................71:61
Flest stig Króata: Toni Kukoc 24, Ivica
Maric 14, Arijan Komazec 12.
Fiest stig ítala: Gregor Fucka 16, Vincenzo
Esposito 14, Stefano Rusconi 7.
Grikkaland - Spánn................66:64
Flest stig Grikkja: Panayotis Fassoulas 20,
Fanis Christodouiou 17, Nikos Economou
16.
Flest stig Spánveija: Alberto Herreros 15,
Ferran Martinez 14, Alfonso Reyes 13.
•lúgóslavía - Frakkland..........104:86
Flest stig Júgóslava: Predrag Danilovic 24,
Sasa Obradovie 13, Vlade Divac 13.
Flest stig Frakka; Yann Bonato 38, Thierry
Gadou 15, Stephane Ostrowski 12.
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
IÞROTTIR
FRJALSIÞROTTIR / EM I FJOLÞRAUTUM
íslendingar tóku fyrst þátt í þess-
ari keppni 1973 og fór hún þá fram
á íslandi. Fyrstu árin voru þeir að
verma botnsætin en í Kaupmanna-
höfn 1977 komst karlaliðið í 3ja
sætið og aftur náðu þeir bronsi í
Belgíu 1993. Kvennaliðið náði einn-
ig sínu besta í Kaupmannahöfn
1977 og hafnaði í þriðja sæti.
UM HELGINA
Frjálsar
Evrópubikarkeppnin í fjölþraut á Laugar-
dalsvelli, 2. deild, fyrsti riðill. í karlaflokki
keppir ísland, írland, Slóvenfa, Lettland og
Danmörk og í kvennaflokki Ssland, Irland,
Lettland og Danmörk:
Laugardagur
10.00 100 m hlaup karla
10.40 Langstökk karla
10.45 100 m grindarhlaup kvenna
11.30 Hástökk kvenna
12.10 Kúluvarp karla
13.30 Hástökk karia og kúluvarp kvenna
14.50 200 m hlaup kvenna
16.50 400 m hlaup karla
Sunnudagur
10.00 110 m grindarhlaup karla
10.45 Kringlukast karla
12.00 Stangarstökk ka. og langstökk kv.
13.40 Spjótkast kvenna
15.00 Spjótkast karla
15.30 800 m hlaup kvenna
17.00 1.500 m hlaup karla
Barna og unglingamót í Mosfellsbæ
5 ára afmælismót Gogga galvaska fer fram
á Varmárvelli i Mosfellsbæ og er fyrir 6
til 14 ára krakka.
Knattspyrna
Laugardagur
2. deild kvenna:
Höfn: Sindri-KVA......................14
Vopnafj.: Einherji - Höttur...........17
Djúpivogur: Neisti D,- KBS............17
4. deild:
Grýluvöllur: Hamar - GG..............14
Helgafellsv.: Framherjar - TBR.......14
Ólafsvfk: Vík. Ó.- Afturelding.......14
Akranes: Bruni - Reynir S............14
Leiknisvöllur: Ökkli -ÍH.............14
Gróttuvöllur: Grótta - Njarðvík.......14
Djúpivogur: Neisti D,- UMFL...........14
Sunnudagur
Vináttulandsleikur:
Neskaupstaður: fsland - Færeyjar.....14
2. deild karla:
Stjömuvöllur: Stjaman - ÞrótturR.....16
Akureyri: KA - Þór A..................20
ÍR-vöiiur: ÍR- HK.....................20
Víkingsvöllur: Vík. - Skallagrímur...20
4. deild:
Höfn: Sindri - UMFL’..................14
Minudagur
2. deild karla:
Garðsvöllur: Víðir - Fylkir...........20
3. deild:
Neskaupsstaður: Þróttur N.-BÍ.........20
4. deild:
Grenivík: Magni - Tindastóll..........20
2. deild kvenna:
Varmá: Afturelding - Fjölnir..........20
Sund
Vestijjarðarmótið í sundi verður haldið í
sundlauginni á Tálknafirði um helgina.
Hefst kl. 14 á laugardag og kl. 10 sunnu-
dag en mótslok era áætluð kl. 14. Keppend-
ur verða um 80.
Hlaup
Suðurnesjamaraþon
Suðurnesjamaraþonið fer fram í Keflavík á
sunnudaginn og hefst kl.14. Hlaupnir verða
25, 10 og 3,5 kílómetrar.
Skúlaskeiðið
Þriggja kílómetra hlaup verður í Viðey á
laugardaginn kl.14. Siglt verður út í Viðey
úr Sundahöfn.
Hlaup í Hörgárdal
Þorvaldsdalsskokkið hefst við Fornhaga í
Hörgárdal á laugardaginn og hefst kl. 10.
Hlaupin, skokkuð eða rölt er 26 km leið f
gegnum Þorvaldsdal.
Golf
Kvennamót í Grafarholti
Opna Diletto-mótið í golfi fer fram á Grafar-
holtsvelli á sunnudag og ræst verður út kl.
10. Leiknar verða 18 holur með fullri forg-
jöf í þremur forgjafarflokkum. Skráningu
lýkur í dag kl. 16.
Unglingamót lyá Keili
Opna Mitsushiba-unglingagolfmótið verður
haldið á Keilisvellinum í Hafnarfirði á
sunnudaginn og ræst verður út frá kl. 10
til 13. Keppt er í drengjaflokkum 15-18
ára, 14 ára og yngri og einnig í telpnaflokki.
Mót lijá Keili
Jónsmessumðt verður haldið á Keilisvellin-
um á laugardaginn. Leikið verður eftir
„Texas scramble" kerfi og þrír í hveiju liði.
Keppni hefst kl. 20.
Stefnir í uppgjör
Seims og Jörfa
Va/dimar
Kristinsson
skrifar
Allt stefnir í spennandi uppgjör
milli Seims frá Víðivöllum
fremri í Fljótsdal og Jörfa frá
Höfðabrekkku á
fjórðungsmóti
austfirska hesta-
manna, sem haldið
er á Fornustekkum,
því litlu munar á þeim eftir for-
keppnina.
Seimur, sem keppir fyrir Frey-
faxa, hefur vinninginn, er með 8,69
en Jörfi, sem keppir fyrir Hornfirð-
ing, er með 8,64. Báðir koma klár-
arnir fyrir hjá knöpunum Þórði
Þorgeirssyni, sem sat Seim og Atla
Guðmundssyni, sem sat Jörfa.
Næst komu Blika frá Glúmsstöðum,
knapi Ragnheiður Samúelsdóttir,
8,45, Komma frá Ketilsstöðum,
knapi Daníel Jónsson, 8,43, Garri
frá Kampholti, knapi Kári Gunnars-
son, 8,43, Ringó, knapi Sigurður
Sveinbjömsson, 8,38. Djákni frá
Efri-Brú, knapi Ragnar Hinriksson,
8,38. Jöfn í 8. og 9. sæti með 8,34
eru Stelpa frá Hoftúni, knapi Ólaf-
ur G. Reynisson og Már frá Sand-
hólaferju, knapi Jón Finnur Hans-
son. Þessi tvö hross mætast í bráða-
bana um úrslitasæti.
í keppni unglinga er efst Lára
Magnúsdóttir, Homfirðingi, á
Garpi frá Gerði með 8,54, Sigur-
björg Sigurbjörnsdóttir, Freyfaxa á
Merði frá Eyvindará, 8,42. Jón M.
Bergsson, Freyfaxa á Matthildi frá
Ketilsstöðum, 8,33, Guðrún A.
Kristjánsdóttir, Hornfirðingi á
Loftsokka, 8,27. Kristín Þ. Jóns-
dóttir, Freyfaxa á Skýfaxa frá
Brekku, 8,24, Einar K. Eysteins-
son, Freyfaxa á Kiljan frá Reyðar-
firði, 8,22, Eyrún B. Jóhannesdótt-
ir, Freyfaxa á Pening frá Reykja-
völlum, 8,17, Jenný Magnúsdóttir,
Hornfirðingi á Tilviljun frá S-
Skörðugili 8,13, og Rannveig Jú-
níusdóttir, Freyfaxa á Fáfni frá
Sandbrekku, einnig með 8,13.
Ekki var spennan minni í tölt-
keppninni þar sem keppt er um
hundrað þúsund krónumar. Eftir
forkeppnina eru Sigurbjörn Bárðar-
son og Oddur frá Blönduósi efstir
með 99,6 stig. Næstir koma Sveinn
Jónsson og Tenór frá Torfunesi
með 97,2, Halldór Victorsson á
Herði frá Bjarnastöðum, 94,8,
Vignir Siggeirsson á Kjarki frá
Egilsstöðum 91,2 stig, Þórður Þor-
geirsson á Höldi frá Reyðarfirði,
90. Allt bendir til þess að þeir
Sveinn og Sigurbjörn muni beijast
um aurinn.
Yfírlitssýning kynbótahrossa fór
fram í gær og var illa mætt með
hrossin. Klárhryssurnar vom þar
sem fyrr í aðalhlutverkum. Kristinn
Hugason ráðunautur sagðist mjög
sáttur við þann hóp hrossa sem
fram kom á mótinu. „Það gleður
mjög að þau standa öll undir þeim
einkunnum sem þau fengu í for-
skoðun og gott betur, því mörg
hver hækka sig á mótinu. Gott tölt
virðist einkennandi fyrir hrossin,"
sagði Kristinn og hvatti eigendur
þessarra góðu hryssa að selja ekki
frá sér þessa góðu gripi, sem ættu
að mynda hornsteininn í ræktunar-
starfínu.