Morgunblaðið - 09.07.1995, Side 3
2 C SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1995 C 3
Nýjar
vélar í
MB og
Vectra
MERCEDES-Benz C180 fær
nýja vél á.næsta ári sem eykur
hestaflafjöldann úr 122 í 130
hestöfl. Þá verður Opel Vectra
sem væntanlegur er á markað
í september með nýrri vélar-
iínu. Bíllinn verður boðinn með
I, 6 lítra, 75 hestafla vél, 1,6
lítra, 16 ventla og 100 hest-
afla vél, 1,8 lítra, 16 ventla
og 115 hestafla vél, 2 lítra,
16 ventla og 136 hestafla vél,
2,5 lítra, 24 ventla, V6 vél sem
skilar 170 hestöflum.
Þá berast fregnir af því að
Ford veiti miklum fjármunum
í þróun nýrra TDI véla. Gert
er ráð fyrir að Mondeo verði
fáanlegur með tveimur gerð-
um 16 ventla dísilvélum, 2
lítra, 90 hestafla vél og 2,4
lítra, 130 hestafla vél.
Leiicmgur
um Ameríku
BMW og Rover í Frakkland
hafa skipulagt leiðangur í um
átta lönd Suður- og Norður-
Ameríku dagana 28. júlí til
20. ágúst næstkomandi. Akst-
ursleiðin er um 7 þúsund km
og í leiðangrinum taka þátt
100 BMW og tíu Range Rover
sem verða aðstoðarbílar í
þessu fyrsta París-Denver-
Panama akstri en verndari
leiðangursins er UNESCO.
Volvo semur
viöVW
VOLVO hefur samið við
Volkswagen um að þýski bíla-
framleiðandinn smíði dísilvélar
í næstu árgerð Volvo 850. Þar
með verður Renault af umtals-
verðum viðskiptum en Frakk-
arnir hafa séð Volvo fyrir dísil-
vélum í 400 línuna.
Kia Sephia
fær laka ein-
kunn
SUÐUR-kóresku bílarnir Kia
hafa verið á markaði í Banda-
ríkjunum í eitt ár og voru þeir
í upphafi kynntir sem bílar
með japönskum gæðum en á
suður-kóresku verði. Nú hefur
J. D. Power, einn kunnasti,
óháði gæðakönnunaraðilinn í
bandarískum bílaiðnaði, sett
stórt spurningamerki við slag-
orð Kia því Sephia fólksbílar
fyrirtækisins urðu neðstir í
árlegri gæðakönnun J.D. Pow-
er. Greint er frá þessu í Au-
tomobile News. Fundið var að
295 atriðum í hveijum 100
bílum en Hyundai sem kom
næst verst út í könnuninni
virðist tiltölulega gallalítill því
fundið var að 195 atriðum í
hveijum 100 bílum. Infiniti
stóð sig best allra með 55 at-
riði en meðaltalið var 103 at-
riði. Talsmenn Kia í Bandaríkj-
unum segja að könnun J.D.
Power dragi upp skakka mynd
og benda þeir á að skrölt í
hanskahólfi vegi jafn þungt í
niðurstöðum hennar og bilun
í vél. Þeir segja að tvenns kon-
ar gallar hafi oftast verið
skráðir í Kia Sephia, þ.e.a.s.
skrölt í hanskahólfi og að
krómlisti sem límdur er á stuð-
arann átti það til að losna af
á hornunum. ■
AUKASÆTI bílstjóramegin
í Chevrolet S10/GMC
Sonoma hverfur ef bíllinn
er tekinn með opnanlegum
hliðarhlera.
OPN ANLEGUR hliðar-
hleri verður fáanlegur
farþegamegin í vissar
gerðir pallbíla.
Þrennra dyra
pallbílar
CHEVROLET og GMC pallbíladeild-
irnar ætla síðar á þessu ári að setja
á markað pallbíla méð þremur hurð-
um. Þriðja hurðin er ætluð til að
spara pallbílaeigendum óþarfa snún-
inga og erfiði við að ná út úr bílnum
verkfærum eða farangri sem geymd-
ur _er fyrir aftan sætin.
í raun er þó alls ekki um hurð
að ræða, öllu heldur opnanlegan
hlera á svokallaða extra-cab pallbíla,
bæði stærri og minni gerðir. Tals-
maður Chevrolet segir að ekki sé
búið að gefa út verð á þessum bún-
aði en hann bjóst við að kostnaður-
inn yrði nálægt 800 dollurum. Chev-
rolet áætlar að 70% af S10 extra-
cab og 40% af C/Ks verði með hliðar-
hlera.
Ford hefur einnig lýst því yfir að
sambærilegur búnaður verði í nýrri
gerð F-pallbílalínunnar sem kynnt
verður í haust. Hliðarhlerinn verður
farþegamegin á stærri gerð GMC
pallbílanna en bílstjóramegin á
Chevrolet S10 og GMC Sonoma.
Hjólastólalyfta verður einnig fáanleg
í GMC pallbílana. ■
Morgunblaðið/Þorkell
GÍSLI Jón Bjarnason sölustjóri hjá Bílheimum, lengst til hægri,
afhendir Hafsteini Hasler forstjóra Bílaleigunnar Geysis bílana.
A milli þeirra standa Júlíus Vífill Ingvarsson framkvæmdastjóri
Bílheima, (hægra megin), og Garðar Vilhjálmsson framkvæmda-
stjóri Bílaleigunnar Geysis.
Bílaleigan Geysir
kaupir Opel bíla
BÍLALEIGA hefur aukist um 11%
frá því í fyrra að sögn Hafsteins
Hásler, forstjóra Bílaleigunnar Geys-
is. Bílaleigan festi nýlega kaup á níu
Opel bílum en þetta er í fyrsta sinn
í langan tíma sem bílaleiga hérlendis
kaupir Opel.
Hafsteinn segir að aukning í bíla-
leigu haldist í hendur við aukinn
ferðamannastraum til landsins. „Við
erum að vonum mjög ánægðir hjá
Bílaleigunni Geysi með pantanir
sumarsins enda hefur okkar aukning
í útleigu verið umfram meðalaukn-
inguna í bílaleigu á íslandi," segir
Hafsteinn. Gísli Jón Bjamason hjá
Bílheimum segir að þetta sé í fyrsta
skipti í langan tíma sem Opel er
seldur á bílaleigur hérlendis í þessu
magni. „Við höfum fundið fyrir mjög
vaxandi áhuga á Opel hjá bílaleigun-
um og er það í stíl við söluaukningu
almennt á þessari bíltegund," sagði
Gísli Jón. ■
TED 3 var ekið 1.389 km á einum lítra í Eco-Marathonkeppninni.
1.389 km á einum lítra
SIGURVEGARINN i elleftu Eco-
Marathon sparaksturskeppni Shell
fyrir sérútbúin farartæki, sem var
haldin fyrir skemmstu, komst hvorki
skemmri né lengri vegalengd en
1.389 km á einum lítra af Shell
Formula Superplus 98 bensíni. Far-
aríækið, TED 3, smíðað af verkfræð-
ingum Eurocopter, er eins og flug-
vélarbúkur í laginu og er afar hrað-
skreitt. 102 farartæki voru skráð til
keppninnar en einungis fjórtán kom-
ust lengra en 800 km á einum lítra
af bensíni og var meðaleyðslan 0,125
lítrar á hverja 100 km.
SPARAR SANNANLEGA allt að 20% BENSIN
Kynningarverð kr. 2.990 Sími: 565 1402
Undirbúiiingur fyrir 1-línu Mercedes Benz
EFTIR hönnun í vatn- og vind-
göngum, prófanir og tilraunir í
hermilíkönum fór lokareynslu-
akstur fram á ýmsum stöðum í
heiminum þar sem síðustu kvill-
arnir voru læknaðir.
LINDA Dugger
og dóttir henn-
ar Katie þakka
hliðarlíknar-
belg fyrir að
hafa sloppið
óskaddaðar
eftir harðan
árekstur í
Dallas.
Hliðarlíknarbelgir
það sem koma skal
Frumvarp um
strangara
árekstrapróf
EVRÓPUÞINGIÐ greiðir í næstu
viku, 11. eða 12. júlí, atkvæði um
frumvarp um árekstraprófanir á evr-
ópskum bílum. Frumvarpið gerir ráð
fyrir mun strangari stöðlum en í
sams konar prófunum í Bandaríkj-
unum. Bílaframleiðendur segja að
verði frumvarpið samþykkt leiði það
til þess að mun kostnaðarsamara
verður að framleiða svokallaða
heimsbíla sem ganga á alla markaði
í heiminum.
Samkvæmt bandarískum lögum
eiga árekstrarprófm að sýna fram
að hægt sé að veija ökumann og
farþega með líknarbelgjum án þess
að þeir noti sætisbelti en samkvæmt
lagafrumvarpinu sem greidd verða
atkvæði um í næstu viku gerir evr-
ópski staðallinn ráð fyrir því að öku-
maður og farþegi noti einnig sætis-
belti. Því er evrópska árekstrarprófið
mun strangara en það bandaríska.
Evrópskir stjómmálamenn hafa
haldið því fram að Evrópa eigi að
leiða veginn í þessum efnum þar sem
stærsti bílamarkaður heims er. Þar
sem rannsóknir hafi sýnt fram á að
95% ökumanna og farþega nota
sætisbeltin verði árekstrarpróf að
endurspegla þann veruleika.
Sumir framleiðendur, eins og
Mercedes-Benz og Volvo, hafa hins
vegar engar áhyggjur af framvindu
þessa máls. Talsmenn þeirra segja
að bílar uppfylli þegar staðlana báða.
En talsmenn Audi, VW, Ford og
General Motors hafa lýst því yfir að
það verði erfiðleikum háð að fram-
leiða bíla sem uppfylla báða staðlana
án þess að kostnaðurinn ijúki upp.
Fjárfesting fyr-
ir 3,5 milljarða
þýskra marka
E-LÍNAN frumsýnd á dögunum í Stuttgart.
EKKI eru mörg ár síðan bílar komu
fyrst á markað með búnað til að
veija ökumann og farþega fyrir
hnjaski og höggum í árekstrum.
Sumir kalla belgi þessa loftpúða eft-
ir enska heitinu „airbag" en smám
saman hefur íslenska heitið líknar-
belgur verið að vinna sér sess í
málinu, enda sérstaklega hentugt
orð yfir hlutinn. Fyrst voru líknar-
belgir fáanlegir í stýri en síðar einn-
ig farþegamegin í bílnum. Fyrir
skemmstu reið svo Volvo á vaðið
með því að kynna til sögunnar líkn-
arbelgi í sætishliðum og sérfróðir
menn í líknarbelgjaframleiðslu segja
að innan fárra ára komi á markað
skynrænir líknarbelgir sem blásast
einvörðungu upp ef farþegar eru í
bílnum.
Bandaríkjamaðurinn Linda Dug-
ger getur Iíklega þakkað líknarbelgj-
um það að hún og dóttir hennar,
Katie, komust ósködduð frá hörðum
árekstri á hraðbraut í Dallas. Dug-
BÍLAR frá Mercedes Benz eru nú seldir í 180 löndum. í lok síðasta árs
störfuðu 147.100 manns í 12 verksmiðjum, aðalstöðvum og sölustöðum
fyrirtækisins í heimalandinu. Þá rekur fyrirtækið ekki færri en 50 verk-
smiðjur erlendis og 6.200 sölu- og þjónustustöðvar fyrir utan þá umboðs-
menn sem eru sjálfstæðir eins og Ræsir á íslandi. Verksmiðjur eru í Suður
Kóreu, Suður Afríku, Mexíkó, Bandaríkjunum, Indlandi og sló sala á erlend-
um mörkuðum öll met á síðasta ári eða 341.000 en framleiðslugeta verk-
smiðjanna er nú kringum 590 þúsund bílar. Hér á eftir fara nokkur atriði
frá blaðamannafundi sem nokkrir forráðamenn Mercedes Benz héldu þegar
nýja E-línan var kynnt í Þýskalandi. Alls komu um 1.200 blaðamenn frá
55 löndum þessa kynningu sem stóð í 6 vikur. Þróunar- og undirbúnings-
kostnaður vegna framleiðslu E-línunnar er alls 3,5 milljarðar þýskra marka
eða sem svarar um 140 milljörðum íslenskra króna. Þar af er einn milljarð-
ur vegna tölvu- og tæknibúnaðar fyrir framleiðsluna.
LÍKNARBELGURINN í fram-
hurðunum á að draga úr meiðsl-
um í hliðarárekstrum en í þeim
tilvikum verður um þriðjungur
alvarlegra meiðsla.
í E-línunni er hliðarpúðinn í hurð-
inni næst póstinum nokkuð neðan
við gluggann og ver upphandlegg
og öxl. Púðinn er 15 lítrar og við
högg ákveður örtölvan á 0,007 sek-
úndum hvort hún lætur hann springa
út eða ekki. Ef hann á að vinna sitt
verk eru liðnar 0,020 sekúndur þar
til hann fer að blása út en til saman-
burðar tekur það líknarbelg í stýrinu
0,04 sekúndur að blása út. Hliðar-
loftpúðinn er þannig lagaður að hann
þenst fyrst út í miðjunni og síðan
fram og aftur og verður mest 7 cm
þykkur. Hliðarhögg valda helst al-
varlegum- meiðslum á höfði, bijóst-
kassa og kviðarholi þegar skrokkur-
inn lendir harkalega á hliðarpóstin-
um eða hurðinni og er hliðarlíknar-
belgnum ætlað að draga úr þessum
meiðslum. í fyrstu tilraunabelgjun-
um tókst ekki jafn vel að veija þá
sem sátu með sætið í öftustu eða
fremstu stellingu og þá sem höfðu
það miðsvæðis. Með því að breyta
lögun líknarbelgsins náðist hins veg-
ar að láta hann þenjast vel út í báð-
ar áttir og því var ákveðið að stað-
setja hann í hurðinni.
Brúður - vindur - vatn
Eins og hjá öðrum bílaverksmiðj-
um nota tæknimenn Mercedes Benz
brúður við árekstraprófanir. Um 20
slíkar brúður eru í nú í notkun og
kostar hver á bilinu 2-6 milljónir
króna eftir því hversu mikið er af
mælitækjum og búnaði í hverri.
Brúðurnar eru notaðar margoft og
fara um 20 milljónir króna á hveiju
ári í „lækniskostnað" við brúðurnar.
Fyrstu vangaveltur um hönnun á
útlínum nýju E-línunnar hófust fyrir
8 árum og fóru þær m.a. fram hjá
háskólanum í Stuttgart. Tilraunir
fóru til dæmis fram í vatni þar sem
prófar var hvernig vatnið streymdi
um líkan af bíl í hlutfallinu 1:5. Með
því að nota vatnsgöng en ekki vind-
göng er auðveldara að sjá hvernig
loftbólur eða hvirflar myndast og
allt gerist þetta mun hægar í vatni
sem auðveldar mælingar. Alls þurfti
að smíða 24 líkön til prófunar í vatni
og vindi áður en endanlegu útliti var
náð og er Cd eða vindstuðullinn
0,27-0,29 og eru lægri mörkin með
því lægsta í bílum af þessari stærð.
Forráðamenn Mercedes Benz
verksmiðjanna staðhæfa að bæði
hvað varðar framleiðslu og notkun
megi hiklaust telja E-línuna um-
hverfisvæna bíla. Eru notaðar hörp-
löntur og sísalhampur í klæðningar,
kókoshnetutrefjar, dýrahár og ýmis
efni úr jurtaríkinu í bólstrun sæta
og fleira, efni sem má endurvinna.
Margvíslegar prófanir fóru fram
á síðustu stigum áður en endanleg
framleiðsla hófst. Meðal annars voru
250 „venjulegir" bíleigendur látnir
prófa bílana í daglegri notkun sinni
og gefa umsögn. í desember á síð-
asta ári voru 30 bílstjórar frá verk-
smiðjunum sendir með 12 bíla í próf-
anir við ólíkar aðstæður á fjórum
stöðum í heiminum: Við Sao Paulo
í Brasilíu óku þeir 10 þúsund km í
um 1.700 m hæð, í meðalhita um
38 gráður og hitabeltisrigningu og
97% raka; í Flórída var bílunum
ekið stanslaust í nokkra sólarhringa,
í nyrstu fylkjum Bandaríkjanna voru
þeir reyndir á langleiðum í 20 gráðu
frosti og heima fyrir voru þeir reynd-
ir í langvarandi akstri á hraðbraut-
um Svartaskógar. Þeir líktu þessum
prófunum við hljómsveitaræfingu:
Hljóðfæraleikarar stilltu hljóðfærin
og æfðu síðan efnisskrána og bjuggu
sig undir tónleikana sjálfa; og á
sama hátt unnu tæknimenn og bíl-
stjórar Mercedes Benz. Það vantaði
bara áheyrendur, kaupendur og
gagnrýni þeirra. Og á meðan æf-
ingatíminn stóð var enn hægt að
gera þær lagfæringar sem þurfti
áður en frumsýningin hófst. ■
Jóhannes Tómasson
HLIÐARLÍKNARBELGUR
Volvo er festur í sætishliðina
en Mercedes-Benz E hefur
belginn innfelldan í hurðina.
ger ók Volvo 850 og fékk Toyota
Corolla inn í hliðina á sér en bílarn-
ir voru báðir á tæplega 105 km hraða
á klst. og hvorugur ökumannanna
hemlaði. Volvo Duggers snerist heil-
an hring á veginum áður en henni
tókst að stýra honum út af. Við
áreksturinn blésust upp þrír líknar-
belgir og Linda setti þar með mark
sitt á bandaríska umferðaröryggis-
sögu því samkvæmt Volvo var þetta
í fyrsta sinn sem hliðarlíknarbelgur
blés upp við raunverulegar aðstæður
í Bandaríkjunum.
Volvo var lengi vel eini bílafram-
leiðandinn sem hefur sett hliðarlíkn-
arbelg í bíl en nú eru tveir slíkir
belgir staðalbúnaður, bílstjóra- og
farþegamegin, í nýrri gerð Merce-
des-Benz E. Þessi tækni er enn á
bernskustigi og sumir halda því fram
að meira öryggi felist í hliðarlíknar-
belgjum sem festir eru í hurð bíls,
eins og í Mercedes, fremur en í
sætishliðinni eins og í Volvo. Enn
hefur heldur ekki tekist að yfirvinna
tæknilega þröskulda til að hanna
nothæfa hliðarlíknarbelgi sem veija
höfuðið.
TILBOÐ
ÓSKAST
í Ford Explorer XL 4x4, 4ra dyra, m/4,0 I. vél, árgerð '94
(ekinn 7 þús mílur),
Jeep Cherokee Sport 4x4, árgerð ’93 (ekinn 15 þús. mílur),
Toyota P/U DX X-Cab, árgerð ’93 (ekinn 19 þús. mílur),
Chevrolet Beretta, árgerð '88, Porsche “944“, árgerð '86
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar á Grensásvegi 9
þriðjudaginn 11. júlí kl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARN ARLIÐSEIGN A
Júrgen Hubbert framkvæmda-
stjóri bíladeildarinnar sagði að kynn-
ingin á nýrri C-línu fyrir tveimur
árum hafi verið upphafið að nýjum
kafla hjá fyrirtækinu. Það hafi þá
gengið gegnum víðtæka endurskipu-
lagningu og segja mætti að í dag
væri Daimler-Benz allt annað fyrir-
tæki en fyrir fimm árum.
Milli 150 og 1 .OOO bílar á dag
Hubbert sagði að árið 1994 hefði
verið fyrirtækinu mjög hagstætt eft-
ir erfiðleikaár: Metsala, allt 592
þúsund bílar, góður hagnaður og
markaðshlutdeild meiri í fjölmörgum
löndum og á fyrstu fimm mánuðum
þessa árs væri þróunin hin sama.
Samt væru þó blikur á lofti í alþjóð-
legum viðskiptum svo sem viðskipta-
stríð, hræringar í gjaldeyrismálum,
minnkandi kaupmáttur á mörgum
mörkuðum og heima fyrir nýlegar
launahækkanir en þessi atriði gerðu
yfirmenn enn staðaráðnari í því að
halda áfram umbótum í framleiðsl-
unni og sókn sinni á nýja markaði,
nú með nýrri E-línu þar sem kaup-
endur gætu nánast klæðskerasaum-
að bíl með ytri og innri búnaði eftir
eigin óskum. Gert er ráð fyrir að
framleiða 75.000 bíla af E-línunni
út árið og um 240 þúsund bíla á
næsta ári. Fyrstu vikurnar voru
framleiddir 60 bílar á dag, í júní var
hún komin í 150 bíla og þegar allt
verður komið í full afköst á næsta
ári verður framleiðslugeta á E-lín-
unni þúsund bílar á dag í verksmiðj-
unum í Sindelfingen og Rastatt.
Framleiðslu á E-línunni verður þó
hætt í Rastatt þegar undirbúa þarf
framleiðslu á A-línunni en sá bíll
verður hinn minnsti frá Mercedes
Benz.
Loftpúði eða líknarbelgur í hliðum
er ein nýjungin sem boðið er uppá
í nýju E-línunni. Tæknimenn Merce-
des Benz hófu rannsóknir á hliðar-
belg fyrir áratug en um þriðjungur
alvarlegra meiðsla er vegna hliðará-
rekstra. Segja má að með öryggis-
beltum, beltastrekkjurum og hæðar-
stillingu, líknarbelg í stýri og fyrir
farþega í framsæti og krumpusvæði
í framenda sem dregur úr áhrifum
höggs á farþegarýmið hafi bílafram-
leiðendur náð eins langt og mögu-
legt er til að draga úr meiðslum
vegna slíkra árekstra. Eftir var þá
að leysa þann þriðjung hættulegra
meiðsla sem urðu við hliðarárekstra
og það er gert að nokkru með hlið-
arpúða en auk bíla frá Mercedes
Benz hefur Volvo boðið hliðarpúða.
NÝTT í BÍLINN
FIMMTA HVER ÁFYLLING FRÍ
Segulsvið tækisins gerir eldsneytið
rokgjaniara í brunahólfinu.
EINFÖLD ÍSETNING
VERKFÆRI ÓÞÖRF
Þetta veldur jafiiari og fullkomnari bruna
MEIRI KRAFTUR - MINNI MENGUN
ÁtíYRGÐ
SKILARÉTTUR
HAGÆÐA
KERAMIC-SEGULL
I