Morgunblaðið - 29.07.1995, Qupperneq 4
4 B LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GAMLI kastalinn, mynd frá árinu 1893 eftir sænska listmál-
arann Eugen Prins, er hér á milli Beru Nordal og starfs-
manns Listasafnsins.
UMBÚÐIR fjarlægðar af einu verkanna sem
verða á sýningunni.
KOSSINN er önnur tveggja mynda hins þekkta norska list-
málara Edwards Munchs sem Islendingar fá að sjá á sýning-
unni Ljós úr norðri; Norrænni aldamótalist.
FYRRI hluti myndlistarsýn-
ingarinnar Ljós úr norðri; Nor-
ræn aldamótalist, var tekin upp
úr kössum í gær í Listasafni ís-
lands að viðstöddum Beru Nor-
dal, forstöðumanni Listasafns-
ins, starfsmönnum þess og for-
LJÓ S ÚR NORÐRI
verði sem sá um að kanna ástand
verkanna, skrá þau og yfirfara.
Sýningin, sem verður opnuð
fimmtudaginn 10. ágúst í Lista-
safni íslands, er hingað komin frá
Barcelona á Spáni en þangað kom
hún frá Þjóðlistasafninu í Madrid
þar sem hún var liður í norrænni
menningarhátíð á Spáni. Sýning-
in er, að sögn Beru Nordal, viða-
mesta og verðmætasta listsýning
sem komið hefur hingað til lands
og hefur að geyma verk allra
merkustu listmálara Norðurlanda
frá þessum tíma.
DULÚÐ er ríkjandi í þessari mynd Paoluzzos frá Gróttu.
RAUNSÆI og dulúð skiptast á og samtvinnast í Ijósmyndum Paoluzzos,
Svarthvít dulúð landsins
Ljósmyndabókum um ísland fer fjölgandi.
Einn þeirra ljósmyndara sem hrífíst hefur
af Islandi er Marco Paoluzzo. Jóhann
Hjálmarsson fræddist af Paoluzzo um sjón-
arhom hans og þá dulúð sem er að fínna í
myndunum.
MARCO Paoluzzo er sviss-
neskur ljósmyndari sem
nýlega hefur sent frá sér
fyrstu bók sína, Island, og kemur
hún út með texta á þremur tungu-
málum, þýsku, frönsku og ensku.
Höfundur texta er Illugi Jökulsson.
Myndirnar eru svarthvítar. Bókin
er 120 síður í stóru broti og er út-
gefandi Flashback Publications,
Nidau. Bókin er fáanleg í bókaversl-
unum hér.
Ljósmyndarinn kom fyrst til ís-
lands 1991 og þá sem venjulegur
ferðamaður. Síðan hefur hann kom-
ið til landsins nokkrum sinnum,
enda ákvað hann fljótlega að efna
til bókar um ísland. Fyrstu mynd-
irnar tók hann í lit, en valdi fljót-
lega að mynda í svarthvítu.
„Ég sá landið í svörtu, það birt-
ist mér þannig, segir Paoluzzo sem
er staddur hér á landi ásamt konu
sinni, Mireille. Hún sér um matseld-
ina á ferðum þeirra um landið.
„Ekki má þó skilja það sem ég segi
sem eitthvað neikvætt og í því er
ekki fólgin bölsýni."
Á ferðum sínum um landið er
það einkum náttúran sem þau hjón
eru í sambandi við. Tungumálaerf-
iðleikar hindra samskipti við fólkið.
„En það er í heita pottinum í sund-
laugunum sem samskipti verða,
hann er besta leiðin til að kynnast
Islendingum," segja þau. Paoluzzo
segist hafa af tilviljun hitt Sigur-
geir Siguijónsson ljósmyndara á
ferðum sínum og hrósar myndum
hans. Meðal annarra ljósmyndara
sem hann héfur séð myndir eftir eru
Páll Stefánsson og Björn Rúriksson.
Ekki venjulegar
landslagsmyndir
Fólk sér dulúð í myndum þínum,
sjónarhomin eru óvænt, þær eru
ekki venjulegar landslagsmyndir?
„Sé dulúð í myndunum, þá er það
dulúð landsins. Myndir mínar frá
Kúbu og New York eru ólíkar ís-
landsmyndunum. Ég varð altekinn
af íslandi."
Mireille bætir við: „Landið fang-
aði hann algjörlega.“
Hvað er það sem þú vilt sér-
staklega tjá í íslandsmyndum
þínum?
„Af því að ég get ekki
sagt það í orðum, ljós-
mynda ég. I ljósmynd-
unum er það sem ég
vil segja.“
Niðurstaðan
verður sú í
tali okkar að þótt Paoluzzo sé raun-
sæislegur í myndum sínum verði
hann dulúðlegur af því að landið
krefst þess. „ísland verkar á mig
framandi og skapandi í senn,“ seg-
ir hann. Viðfangs-
efni hans er
andartakið.
Marco Pa-
oluzzo segist
hafa val-
ið myndimar í bók sinni úr um það
bil 5.000 myndum. Hann er á hött-
unum eftir sýningarsal þar sem
hann gæti sýnt myndir sínar. I dag
kl. 12-16 áritar hann íslandsbók
sína í bókabúð Máls og menningar
við Laugaveg. Síðan liggur
leiðin út á land til að finna
myndefni.
MIRIELLE og
Marco Paoluzzo
eru á íslandi í til-
efni nýútkom-
innar Islandsbók-
ar.
Morgunblaðið/Emilía