Morgunblaðið - 04.08.1995, Page 1
1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
KNATTSPYRNA
GOLF / LANDSMOTIÐ
1995
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST
BLAD
Forysta Björgvins orðin fimm högg fyrirsíðasta keppnisdag
Mjög ánægður með daginn
MEISTARFLOKKSMENNIRNIR létu það ekki á sig fá þó þeir
hafi byrjað leik eldsnemma ígærmorgun á landsmótinu. Björg-
vin Sigurbergsson úr Keili hefur fimm högga forskot á Birgi
Leif Hafþórsson úr Leyni. Þeir félagar léku mjög vel f gær og
komu báðir inn á einu höggi undir pari. Björgvin hefur því leikið
holurnar 36 á 210 höggum eða á pari, og Birgir Leifur á 215.
Björgvin átti þrjú högg á Helga
Þórisson úr GS fyrir daginn í
gær en Helga gekk illa og heltist
fijótlega úr lestinni.
SkúliUnnar Þórður Emil Ólafs-
Sveinsson son lék á fimm yfir
skrifar pari en er enn í þriðja
sæti á 220 höggum.
Björgvin náði höggi á Birgi Leif á
3. holu en Birgir Leifur náði því til
baka á 7. og á þeirri næstu vann
hann eitt. Birgir Leifur var á einu
höggi undir pari eftir fyrri níu en
Björgvin á einu yfir. „Ég hafði engar
áhyggjur af þessu því það hlaut að
koma að því að ég fengi fugl,“ sagði
Björgvin og fuglarnir urðu þrír á síð-
ari níu.
Björgvin náði aftur fimm högga
forystu með því að vinna högg á 11.
og 12. holu en Birgir Leifur svaraði
með því að vinna tvö högg á 13.
braut. Á 14. og 15. náði Björgvin
síðan aftur fimm höggum og þar við
sat. Birgir Leifur gerði glæsilega til-
raun til að minnka forystuna á 17.
holunni er hann sló upphafshöggið
yfir hættulegt svæði til að komast
sem næst holu, en Björgvin spilað
öruggt á vinstri kantinn á brautinni.
Björgvin sló síðan frábært högg al-
veg inn að holu og þar með mistókst
hetjuleg tilraun Birgis Leifs að hluta.
„Ég er mjög ánægður með dag-
inn. Eg er að spila mjög vel, líður
vel með járnin og hef því ekki svo
miklar áhyggjur þó upphafshöggin
séu kannski ekki alltaf á besta stað,
mér hefur tekist að redda mjög góð-
um pörum þrátt fyrir það. En ég
þarf endilega að fara að fá fugl á
þessa áttundu holu,“ sagði Björgvin.
Áttunda holan hefur gefið meistara-
flokksmönnum 18 fugla til þessa.
Björgvin hefur lækkað skor sitt um
eitt högg á milli daga og ef hann
heldur því áfram mun hann koma inn
á 68 í dag. „Auðvitað stefni ég að
því að bæta skorið en annars ætla
ég að stefna að því að halda mig í
kringum parið eins og ég hef gert
þessa þijá fyrstu daga. Ég hugsa
ekki um að ég sé í fyrsta sæti, held-
ur að gera eins og ég get og ég vona
bara að það verði eitthvað af áhorf-
endurn," sagði Björgvin, sem hefur
orðið í þriðja sæti síðustu þijú árin.
Þijár fyrstu holur á fyrsta degi
gætu reynst Birgi Leifi dýrkeyptar,
en hann fékk skolla á þær allar og
var síðan kominn fjóra yfir par eftir
fnnm holur. Auðvitað er alltaf hægt
að velta sér upp úr hinu og þessu
högginu en þessar holur voru langt
frá því að vera eðlilega leiknar af
þessum snjalla kylfingi.
Rana vill bjóða
íslendingum
til Mexíkó í
æfingabúðir
MARIO Vázquez Rana, forseti Heimssambands
ólympíunefnda, sem staddur var hér á landi um
helgina, lýsti yfir áhuga á að bjóða íslenskum
íþróttamönnum til æfinga í Mexíkó. Að sögn
Júlíusar Hafstein, formanns Ólympíunefndar
íslands (Óí) vill Rana gera vináttusamning milli
Óí og ólympíunefndar Mexikó — sem hann er
formaður fyrir — sem fæli í sér að Ólympíu-
nefnd íslands sæi um að koma viðkomandi
íþróttamönnum á áfangastað en mexíkanar
greiddu allan annan kostnað, í allt að þrjá mán-
uði. „Ef af þessu verður myndum við greiða
farseðla til Mexíkó, fyrir þá toppiþróttamenn
okkar sem færu, en Mexíkanar sæu um afgang-
inn — myndu greiða fyrir fæði og uppihald og
allan annan kostnað í allt að þijá mánuði. Það
vill þannig til að Ólympíunefnd íslands er með
góða samninga við Flugleiðir þannig að það
ætti að vera mögulegt að senda okkar bestu
menn í svona æfingabúðir án verulegs kostnaðar
fyrir Ólympíunefnd íslands," sagði Júlíus Haf-
stein við Morgunblaðið í gær. „Eg tel þetta væn-
legt og mjög spennandi mál. Við ættum að at-
huga möguieika á þessu mjög vel og gera það
strax.“
Arnór meiddist
ARNÓR Guðjohnsen tognaði aftan í lærvöðva í
markalausum og tilþrifalitlum leik með Örebro
gegn Örgryte í sænsku deildarkeppninni í knatt-
spymu í gærkvöldi. Arnóri var skipt út af í seinni
hálfleik og kvaðst búast við að hann yrði 10-14
daga að jafna sig. Leikur íslands og Sviss í
Evrópukeppninni er eftir 13 daga á Laugardals-
velli og vildi Arnór hvorki segja af eðáá um
hvort hann yrði með. Arnór sagðist jafnvel fara
strax heim til íslands í meðferð hjá læknum, til
að reyna að fá sig góðan af meiðslunum.
Leikurinn í gærkvöldi var nijög daufur en
íslendingarnir, Amór og Hlynur Stefánsson hjá
Örebro og Rúnar Kristinsson hjá Örgryte, stóðu
þó allir vel fyrir sínu.
1.500
miðar seld-
ir til Sviss-
lendinga
SVISSNESKA knattspyrnusam-
bandið hefur pantað 300 miðar
til viðbótar þeim 1.200 sem það
hafði þegar fengið á Evrópuleik
íslands og Sviss. Það virðist því
ljóst að 1.500 stuðningsmenn
svissneska liðsins verða í stúk-
unni á Laugardalsvelli meðan
leikurinn fer fram, álíka margir
og þeir íslensku.
Helgi ekki í
landsleikinn
HELGI Sigurðsson, leikmaður
VfB Stuttgart í Þýskalandi, verð-
ur ekki með landsliði 21 árs og
yngri gegn Sviss eftir tæpan
hálfan mánuð. Helgi kom í gær
heim af sjúkrahúsi þar sem verið
var að taka járnplötu úr fæti
hans, sem sett var á sínum tíma
er hann fótbrotnaði. Helgi fer
ekki að æfa aftur fyrr en eftir
nokkrar vikur.
Áfrýjun
Þróttara
vísað frá
DÓMSTÓLL ÍSÍ vísaði frá máli
Þróttar gegn Sljöraunni í máli
Ágústs Hauksson, þjálfara Þrótt-
ar, en sem kunnugt er stjórnaði
hann Iiðinu í leik gegn Stjörn-
unni á dögunum, á sama tima og
hann var í leikbanni sem þjálf-
ari. Þróttur sigraði í leiknum
4:2, en Stjarnan kærði til Héraðs-
dómstóls Reykjaness. Þar hafði
Þróttur sigur en Stjörnunni var
síðan dæmdur sigur fyrir Dóm-
stóli KSI. Forráðamenn Þróttar
vísuðu málinu áfram til Dómstóls
ÍSÍ, en hann vísaði málinu frá
vegna þess að „sérsamband er
æðsti aðili innan Iþróttasam-
bands íslands um sérfræðileg
málefni íþróttagreinar sinnar,"
eins og sagði í dómsorði, „og
verður dómi sérsambandsdóm-
stóls í slíku máli ekki skotið til
Dómstóls ÍSÍ.“
Morffunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
BJÖRGVIN Sigurbergsson, til vinstri, og Birgir Leifur Hafþórsson gera að
gamni sínu í gær. Báðir léku mjög vel þennan næst síðasta dag og komu inn
á einu höggi undir pari. Björgvin er enn efstur en Birgir Leifur í öðru sæti.
KAPPROÐUR: GOTT HJA ONNU LARU STEINGRIMSDOTTUR A HM UNGLINGA / C3
4-