Morgunblaðið - 05.08.1995, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1995 C 3
Subaru Outback -
jeppalangbakurinn
THOMAS Rádström og Benny Melander við RAV4 rafbílinn.
RAV4 keppir í
rafbílaralli
SKUTBÍLAR, langbakar, voru eitt
sinn vinsælir í Bandaríkjunum en
síðan leystu jeppar þá mikið af
hólmi í upphafi tíunda áratugar-
ins. Nú hyggst Subaru snúa dæm-
inu við á ný með því að kynna til
sögunnar Outback, sem er sam-
bland af fólksbíl og jeppa, bíl sem
Subaru kallar fyrsta jeppa-lang-
bakinn.
Outback, sem kemur á markað
á næsta ári, er útfærsla af fjór-
hjóladrifsbílnum Legacy. Bíllinn
er tilraun Subaru til að nálgast
bílkaupendur sem vilja það besta
úr flokki jeppa og fólksbíla án
þess að þurfa að kaupa pallbíl. I
þessu skyni er Outback hafður 5
sm hærri en Legacy, hann er á
15 tommu heilsársdekkjum og
þakið hefur einnig verið hækkað
um 5 sm. Fjöðrunarbúnaður
Outback er einnig annar, mýkri
LRV og Nissan Axxess hafa ekki
tekist sem skyldi.
Outback verður boðinn í tveimur
útfærslum með 2,5 lítra, 155 hest-
afla, fjögurra strokka vél með
fjögurra þrepa sjálfskiptingu og
2,2 lítra, 135 hestafla, fjögurra
strokka vél með fimm gíra hand-
skiptingu. Ráðgert er að 30-35%
af allri Legacy framleiðslunni verði
Outback.
Subaru hefur einnig gert breyt-
ingar á Legacy í þeim tilgangi að
hann falli akstursáhugamönnum í
geð. 1996 árgerð af Legacy 2,5GT
langbökum og stallbökum verður
aðeins fáanleg með einni gerð vél-
ar, þ.e. 2,5 lítra, fjögurra strokka
vél með sjálfskiptingu. Fimm gíra
handskipting verður fáanleg með
2,5 lítra vélinni á næsta ári. Bíllinn
verður sportlegri í útliti, með hlið-
arvindskeiðum og þokuluktum. ■
TOYOTA hyggst taka þátt í nýrri
grein innan rallsins, rafbílaralli, á
Skandinavíska rafbílarallinu sem fer
fram í ágúst. Það er engin nýlunda
fyrir Toyota að taka þátt í rall-
keppnum því fyrirtækið hefur státað
af sigurvegurum í heimsmeistara-
keppnunum í ralli 1993 og 1994.
Það verður þó ekki Toyota Celica
GT-Four sem keppt verður á í
Gautaborg heldur splunkunýr
RAV4-EV, það er að segja rafút-
færsla af þessum snarpa smájeppa.
Ekið verður frá Gautaborg til
Óslóar og keppnin er skipulögð af
orkufyrirtækjum borganna og
sænsku og norsku akstursíþrótta-
samtökunum. Bílnum ekur ný-
bakaður sigurvegari Suður-Sænska
rallsins, Thomas Rádström og að-
stoðarmaður hans verður Benny
Mellander.
Yfir 30 lið hvaðanæva að taka
þátt í keppninni, sem er fyrsta al-
höggdeyfar en stífari gormar.
Outback er einnig með efnismeiri
stuðurum og tveimur, stórum
þokuluktum með gijótvörn. Að
aftan er bíllinn með 12 volta rafút-
tak.
Annað og meira
en langbakur
Ráðgert er að Outback þróist
enn meira í átt frá Legacy. Innan
tíðar verður t.a.m. kynnt í honum
lágt drif sem er staðalbúnaður í
flestum jeppum og auk þess verð-
ur hann með varadekk í fullri
stærð.
Helsta verkefni Subaru verður
að fullvissa væntanlega kaupend-
uy um að Outback sé annað og
meira en langbakur. Tilraunir ann-
arra framleiðenda til að setja á
markað blending af langbak og
jeppa, eins og Mitsubishi Expo
vöru rafbílarallkeppnin í heiminum.
550 km leið
Toyota hyggst nýta sér rallið til
að afla þekkingar og gagna um
aksturshæfni rafbíla við aðstæður
eins og í rallkeppni. Fyrirtækið hef-
ur unnið að þróun rafbíla í "25 ár og
kynnt 10 mismunandi frumgerðir.
RAV4 EV er búinn nýjustu tækni,
þám. rafgeymi úr nikkel-málm og
vetnissamböndum. Enn sem komið
er þykir rafgeymirinn alltof dýr til
þess að verða fjöldaframleiddur en
hann léttari og minni en hefðbundn-
ar gerðir rafgeyma. Það gæti skipt
sköpum í rallinu sem tekur fimm
daga og liggur um 550 km langa
leið, sérstaklega á malarvegum
við brekkuklifur. Bíllinn vegur 1350
kg, eða um 200 kg meira en venju-
legur RAV4 bensínbíll. Hámarks-
hraðinn er engu að síður 125 km á
klst. ■
Rlerkingar f jallvega
VEGARSLÓÐAR um landið eru
óteljandi. Þeir liggja um láglendi og
hálendi og margir eru merktir inn á
kort. Ferðamenn freistast gjaman til
að fara þessar leiðir en oft er ökutæk-
ið ekki nógu vel búið. í Framkvæmd-
afréttum Vegagerðarinnar er sagt
frá nýju umferðarmerkjareglugerð-
inni en með henni opnast möguleiki
fyrir Vegagerðina að merkja þessar
leiðir miðað við ástand.
Sett verður upp viðvörunarmerki
„önnur hætta“ og undirmerki þar
fyrir neðan. Flokkarnir eru þrír:
Seinfarinn vegur: Leið sem er
i&jtó&ititöiÍéÍÍiM
imíMtíEti;/;
'tsimmimiasnh
fær góðum, traustum fólksbifreiðum
en er mjög seinfarin. Leiðin getur
verið gróf og brött en vötn eru lítil.
Dæmi: Kjalvegur og Kollafjarðar-
heiði.
Illfær vegur: Leið sem er fær
torfærubifreiðum, þ.e. bifreiðum sem
eru hærri en fólksbifreiðar almennt
og eru með fjórhjóladrifi. Ár. eru með
sæmilegum vöðum en á leiðinni geta
verið blautir eða grýttir kaflar og
klungur. Dæmi: Fjallabak nyrðra og
Sprengisandur.
Torleiði: Leið sem er aðeins fær
sérútbúnum torfærubifreiðum (háum
jeppum og fjallabílum). Á leiðinni
geta verið mjög brattar brekkur,
snjóskaflar eða ár sem tæplega eru
færar bifreiðum. Dæmi: Fjallabak
syðra og Gæsavatnaleið. ■
SUBARU Outback fullbúinn, með þokuljósum, toppgrind og 5 sm hærri en Legacy.
Leigja út gamla bíla
GAMLA bílaleigan í Skeifunni ber
nafn með rentu því hún leigir að-
eins út gamla bíla. Elsti bíllinn í
flotanum er af árgerð 1986 og nýj-
ustu bílarnir af árgerð 1992. Bíla-
leigan er með tólf bíla og hóf starf-
semi í nóvember 1993. Eftir því sem
næst verður komist er þetta eina
bílaleigan á landinu sem eingöngu
leigir út gamla bíla.
Pétur J. Pétursson hjá Gömlu
bílaleigunni segir að nú standi yfir
sá tími sem mest er að gera í þess-
ari grein en lítil hreyfing sé á vet-
urna. Tekið er daggjald fyrir bílana
hjá Gömlu bílaleigunni en ótak-
markaður akstur fylgir daggjaldinu
sem er frá 6.500 kr. með virðis-
aukaskatti fyrir fernra dyra bíl í
millistærðarflokki. Daggjaldið fyrir
Mitsubishi Pajero er 14.500 kr. á
dag.
Nýrra bíla aö vænta
Pétur segir að bílunum hafí verið
töluvert mikið ekið og á sumrin sé
þeim ekið 1.800-2.500 km á viku.
Að meðaltali hefur flotanum verið
ekið 110-120.000 km. Bifvélavirkj-
ar starfa hjá fyrirtækinu og sinna
viðhaldi bílanna. í haust verður
breytinga að vænta í rekstrinum
því þá tekur Gamla bílaleigan í
fyrsta sinn nýja bíla í rekstur en
Pétur segir að sama gjaldskrá verði
við lýði.
Pétur segir að viðskiptamanna-
hópurinn sé úr öllum stigum þjóðfé-
lagsins en þó einkum þeir sem vilja
ekki greiða kílómetragjald og þykir
í lagi að aka á eldri bíl. Gamla bíla-
leigan er með söluskrifstofu fyrir
Holiday Autos og segir Pétur að
Gamla bílaleigan ábyrgist lægstu
bílaleiguverðin í Evrópu í gegnum
það fyrirtæki. Holiday Autos leigir
þó eingöngu út nýja bíla.
ElTT FJÖLMENNASTA ALMENNINGSHLUTAFÉLAGIÐ
Á INNLENDUM HLUTABRÉFAMARKAÐl
FERÐ
TIL
í tilefni af því að
Hlutabréfavísitala VÍB
hefur nú náð hæsta gildi
frá upphafi býður VIB
tveimur heppnum hluta-
bréfakaupendum til
New York. Nöfn þeirra
sem kaupa hlutabréf
hjá VÍB á tímabilinu 28. júlí - 31. desember 1995
fara í pott. Dregin verða út tvö nöfn, en
vinningurinn er ferð til New York.
Þeir sem keyptu hlutabréf í HVÍB árið 1994 fá nú
endurgreiðslu frá skattinum eða lækk.un..i_ tekjuskaui.
Greiðslan nemur um 84.000 kr. fyrir hjón sem nýttu sér
fulla heimild til hlutabréfakaupa vegna skattafrádráttar. í
júlí sl. fengu hluthafar auk þess greiddan 5% arð af
nafnverði bréfanna. Á þessu ári er heimilt að nýta að
hámarki nm 260.000 kr. kaup á hlutabréfum til lækkunar
á tekjuskatti fyrir hjón.
FORYSTA 1ÍJÁRMALUM!
VlB
verðbrBfamarkaður íslandsbanka hf.
• Adili ad Verðbréfaþitigi Islands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Simi 560-8900.