Morgunblaðið - 18.08.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
JfotgmHfifei*
■ FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST
BLAÐ
Skór Van
Bastens
endanlega
á hilluna
MARCO Van Basten, einn besti
miðherji síðari tíma, tilkynnti í gær
að hann myndi ekki leika knatt-
spymu framar. Þessi hollenski
landsliðsmaður, sem verið hefur á
mála hjá AC Milan á Italíu síðuitu
árin, hóaði fréttamenn á fund sinn
í Mílanó í gær og greindi frá þess-
ari ákvörðun. Astæðan eru -slæm
öklameiðsli sem hrjáð hafa leik-
manninn í rúmlega tvö ár, en hann
hefur ekkert leikið síðan í úrslita-
leik Evrópukeppni meistaraliða
1993 er Milan tapaði fyrir Mar-
seille.
Van Basten, sem á myndinni
hér til hliðar sést á blaðamanna-
fundinum í gær, var þrisvar kjörinn
knattspyrnumaður ársins í Evrópu.
Hann kvaðst hafa tekið umrædda
ákvörðun eftir að hafa ráðfært sig
við lækni sinn í Belgíu, eftir að í
ljós kom að ástand öklans hafði
nákvæmlega ekkert batnað síðasta
árið. „Þegar ég stend upp verkjar
mig í öklann. Ég get ekki einu sinni
leikið tennis við vini mína,“ sagði
þessi frábæri leikmaður, sem er
aðeins þrítugur að aldri.
.
Reuter
Þeir sem skalla
knöttinn oft
hafa lægri
greindarvísitölu
KNATTSPYRNUMENN sem skalla knöttinn oftar en
tíu sinnum í leik, hafa lægri greindarvísitölu en aðrir
leikmenn. Þetta er niðurstaða rannsóknar Andrienne
Witol prófessors í Richmond háskólanum í Bandaríkj-
unum og var niðurstaðan kynnt á ársþingi sálfræð-
inga sem haldið var í New York fyrir skömmu.
Prófessorinn gerði könnun á 60 knattspymumönn-
um á aldrinum 18 til 29 ára sem leika knattspymu
reglulega og fékk þessa niðurstöðu með greindarmæl-
ingum með jöfnu millibili. Þar kemur fram þeir sem
skalla knöttinn meira en tiu sinnum í leik eigi mun
erfiðara með að einbeita sér og fengu 103 stig á
greindarvísitöluprófi en hinir vom með 112 stig.
Ekki var merkjanlegur munur á árangri þeirra í skóla
en þó er það ljóst að „skallamennimir“ verða að leggja
harðar að sér til að ná sama árangri og hinir sem
ekki skalla mikið eða æfa ekki knattspymu.
„Það er engin ástæða til þess að láta bömin okkar
hætta að æfa knattspyrnu, en það er hins vegar fyllsta
ástæða fyrir knattpspyrnuþjálfara til að kenna nem-
endum sínum að skalla á réttan hátt til þess að draga
megi úr hættunni og nota jafnframt létta knetti,"
sagði Witol, þegar niðurstöðumar vom kynntar.
Blikarnirfá
góðan liðsstyrk
NÝLIÐAR Breiðabliks í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik hafa fengið góðan liðsstyrk. Bandaríkjamaðurinn
Michael Thele, 23 ára, kemur til Blikanna í lok ág-
úst. Hann er 23 ára, tveggja metra skytta, sem skor-
ar mikið af þriggja stiga körfum. Thele, sem er hvít-
ur, lék með liði Christian-háskólans í Texas. Þá hafa
fjórir leikmenn frá Snæfelli gengið til liðs við Breiða-
blik — Atli Sigurþórsson, Finnur Sigurðsson, Ágúst
Jensson og Davíð Sigurþórsson, sem er mjög efnileg-
ur bakvörður, 16 ára.
Gamlir búningar
teknir fram
UNGLINGALANDSLIÐIÐ í handknattleik, sem fer
til Danmerkur í dag til að taka þar þátt í móti, verð-
ur að leika í gömlum búningum á mótinu. Ástæðan
fyrir því er að búningamir sem liðið átti að fara
með, era í Færeyjum. Það em búningarnir sem 21
árs landsliðið lék í á Norðurlandamótinu, sem lauk
um sl. helgj. Þar sem 21 árs landsliðið er veðurteppt
í Færeyjum, urðu starfsmenn Handknattleikssam-
bandsins að taka upp gamla búninga, sem búið var
að pakka niður og leggja.
HANDKNATTLEIKUR
Þorbjörn Jensson og lærisveinar veðurtepptir í Færeyjum eftir Norðurlandamótið
Húmorinn hefur
ekki týnst í þokunni
„ VIÐ erum staddir á hóteli rétt
við flugbrautina og okkur hefur
tekist að sjá brautarendann öðru
hverju í dag,“ sagði Þorbjörn
Jensson, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik er Morgunblaðið náði
tali af honum í Færeyjum í gær.
í Færeyjum er Þorbjörn veður-
tepptur með 21 árs landsliði ís- •
lands, en liðið tók þátt í Norður-
landamótinu þar um síðustu
helgi.
„Við áttum að koma heim á
þriðjudaginn en hér hefur verið
svartaþoka síðustu daga og ekk-
ert verið flogið til og frá land-
inu. Eins og staðan er nú hafa
Flugleiðir aflýst flugi hingað í
dag og flugfélag heimamanna
sem er skipað sérþjálfuðum
áhöfnum til að lenda við erfiðar
aðstæður hefur ekkert geta
hreyft sig,“ bætti Þorbjörn við.
„Okkur er sagt að spáin fyrir
morgundaginn [í dag] sé góð, en
það er ekkert víst að hún rætist
því þetta hefur líka verið sagt
síðustu daga svo við erum ekk-
ert sérstaklega vongóðir um að
komast héðan á næstunni. En
það er góður andi í hópnum og
húmorinn hefur ekkert týnst í
þokunni. Það hefur verið lítið
við að vera og við höfum haft
það helst fyrir stafni að skokka
hér í nágrenninu. í dag fundum
við þorp í þokunni og þar er
knattspyrnuvöllur svo að á
morgun [í dag] ætlum við að
fara í knattspyrnu. í kvöld [gær-
kvöldi] stendur til að fara í leigu-
bíl 10 kílómetra leið inn í þorpið
og taka myndbandsspólur á
leigu.“
Þorbjörn sagði að ágætlega
færi um hópinn á hótel Vogum
og hann hefði ekki undan öðru
að kvarta en þokunni. Um árang-
urinn á Norðurlandamótinu
sagði Þorbjörn að hann hefði
verið upp og ofan. Liðið hefði
fengið skell gegn Svíum, 16:34,
en að öðru leyti hefðu úrslitin
verið eins búast hefði mátt við.
Hópurinn sem hann væri með
nú væri skipaður yngri leik-
mönnum en hópurinn sem tók
þátt í undankeppni HM í Portúg-
al í vor. „Við vorum nærri sigri
gegn Norðmönnum í leiknum um
þriðja sætið og þar réðust úrslit-
in ekki fyrr en á lokamínútun-
um,“ sagði Þorbjörn. Norðmenn
sigruðu í leiknum 23:22. íslend-
ingar sigruðu fyrst A-lið Fær-
eyja 21:19, síðan unglingalið
Færeyinga (21 árs og yngri)
23:22, og töpuðu fyrir Dönum
19:22.
„Nú erum við aðallega að
kanna hvaða möguleika við eig-
um á því að komast héðan. Einn
möguleikinn er að taka ferju
héðan til Aberdeen í Skotlandi,
fara þaðan með lest til Glasgow
og fljúga þaðan heim til íslands.
Annar möguleiki er að taka
Norrænu næst þegar hún kemur
frá íslandi og fara með henni til
Bergen og komast þaðan heim.
Við erum að skoða alla mögu-
leika og ég reikna jafnvel með
að sækja um vinnu á ferðskrif-
stofu þegar ég loksins kemst
heim!“ sagði landsliðsþjálfarinn
hress í bragði þrátt fyrir allt.
Hann lét þess að lokum getið að
allir bæðu fyrir bestu kveðjur
heim.
EYJÓLFUR SVERRISSOIM: SPENIMANDIVERKEFNI í BERLÍN / C3