Morgunblaðið - 18.08.1995, Page 2
2 C FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
RALL
Fyrrum Bretlandsmeist-
ari keppir í alþjóðarallinu
KNATTSPYRNA
Milutinovic
aftur lands-
liðsþjálfari
Mexíkó
Bora Milutinovic hefur verið ráð-
inn landsliðsþjálfari Mexíkó í
knattspyrnu á ný og tekur hann við
af Miguel Mejia Baron sem var sagt
upp eftir tap gegn Bandaríkjunum
á dögunum. Milutinovic, sem er 51s
árs og fæddur í Júgóslavíu, var
landsliðsþjálfari Mexíkó þegar liðið
komst í átta liða úrslit Heimsmeist-
arakeppninnar í Mexíkó 1986 og er
það besti árangur þjóðarinnar. Hann
hætti sem landsliðsþjálfari Banda-
ríkjanna í apríl sem leið eftir fjög-
urra ára starf en Bandaríkin komust
áfram eftir riðlakeppni HM í fyrra
undir hans stjóm.
Milutinovic, sem talar spænsku
reiprennandi og er kvæntur mexí-
kóskri konu, nýtur mikillar virðingar
í Mexíkó eftir árangurinn í HM 1986,
en áður var hann bæði leikmaður
og þjálfari í 1. deild í Mexíkó. Með
ráðningunni vonast Mexíkóbúar til
að komast á rétta braut fyrir undan-
keppnina vegna HM í Frakklandi
1998. „Við höfum sett liðinu ákveð-
in markmið og teljum að Bora sé
rétti maðurinn til að ná þeim,“ sagði
formaður landsliðsnefndar.
Mexíkó sigraði í 37 leikjum og
tapaði sjö undir stjóm Milutinovic
sem er sumsstaðar í Mexíkó kallaður
„kraftaverkamaðurinn“. „í>að er gott
að vera kominn aftur," sagði Milut-
inovic sem er eini þjálfarinn í sög-
unni sem hefur stjómað þremur
landsliðum í þremur heimsmeistara-
mótum í knattspymu í röð. Eftir HM
í Mexíkó tók hann við liði Costa Rica
og kom því í aðra umferð í HM á
Ítalíu 1990.
SKIÐI
Samhlidasvig í
Kerlingarfjöllum
MÓT í samhliðasvigi, Fannborgar-
mótið, verður haldið í Kerlingarfjöll-
um á morgun, laugardag. Að sögn
Valdimars Ömólfssonar byijuðu
þeir Kerlingarfjallamenn með sam-
hliðasvig á svæðinu fyrir um tutt-
ugu ámm og ætla nú að endur-
vekja mótið. Þetta er næst síðasta
helgin sem svæðið verður opið í
sumar og að sögn Valdimars er
mjög góður snjór til staðar, harður
og góður keppnissnjór.
BRETINN David Mann, meistari
í bresku landskeppninni í rall-
akstri 1993 keppir, í alþjóðarall-
inu hérlendis í september.
Keppnin verður 9.-11. september
og eru sex erlendar áhafnir
skráðar til leiks. David Mann
ekur 300 hestafla fjórhjóladrifn-
um Toyota Celica, sem hann hef-
ur keppt á í sex ár.
„Ég ákvað að sleppa því að
keppa i Bretlandi á þessu ári og
koma frekar til íslands. Alan
Catchart verður aðstoðaröku-
maður minn, en hann keppti með
Peter Vassallo í alþjóðarallinu í
fyrra. Ég reyni náttúrulega að
Nú fer í hönd mikill annatími hjá
siglingamönnum því fram
undan em þrjú íslandsmót. í dag
hefst keppni í Optimist-, Topper- og
Europe-flokkum, en það em kænu-
flokkar unglinga og keppa 12-15 ára
krakkar á Optimist en 16 ára og
eldri á Topper og Europe. Þá hefst
keppni á kjölbátum á þriðjudaginn
og að lokum á Laser-kænum um
miðjan september.
íslandsmót Optimist, Topper og
Europe verður haldið á Sketjafirði
og er mótið í umsjá Siglingafélags-
ins Ýmis í Kópavogi. Fyrsta keppni
hefst kl. 16 í dag og síðan verður
tvívegis keppt á laugardag og
sunnudag — samanlagður árangur
gildir til úrslita. Búast má við harðri
keppni í öllum flokkum og kannski
helst í Optimista-flokki þar sem
keppnin mun verða mest á milli Ól-
afs Víðis Ólafssonar úr Ými og Haf-
steins Ægis Geirssonar úr Brokey
en þeir hafa barist um titlana í sum-
ar. Þess skal getið að Ólafur Víðir
er aðeins tólf ára og er strax kominn
í toppbaráttuna, það er því ljóst að
þar er komið mikið efni í frábæran
siglingamann. Mikið verður um að
vera hjá Ými á meðan mótinu stend-
ur og ættu allir áhugasamir að líta
inn á félagsvæðið við Vesturvör í
Kópavogi.
A þriðjudaginn, 22. ágúst, kl. 18
hefst svo íslandsmót kjölbáta fyrir
komast á leiðarenda með góðum
árangri, sagði David Mann í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann hef-
ur síðustu ár verið í fremstu röð
í bresku landskeppninni í rall-
akstri og hefur att kappi við
ökumenn eins og Richard Burns,
sem ekur nú fyrir verksmiðjulið
Subaru, David Gillanders, Chris
Mellors og Murray Grierson, sem
allir eru í miklum metum í Bret-
landi.
„Mig hefur Iangað til íslands
í mörg ár, en það er talsvert
dýrt að koma og því hefur ekki
orðið úr því fyrr. Það verður
fróðlegt að aka á svartri ösku í
utan Reykjavíkurhöfn og er mótið
að þessu sinni í umsjá Siglingafé-
lagsins Brokeyjar í Reykjavík. Það
má búast við því að allt að tuttugu
bátar með áttatíu til hundrað manns
taki þátt í mótinu sem gæti orðið
það stærsta og mest spennandi sem
haldið hefur verið. Margir koma til
greina í toppbaráttuna og er erfitt
að spá í úrsitin. Veðrið gæti haft
talsverð áhrif á úrslit þessa móts.
Ef skoðaður er árangur móta sum-
arsins hefur Viðar Olsen og áhöfn
á Sæstjörnu unnið tvö mót. Anton
Jónsson og áhöfn á Evu II hafa
unnið eitt mót, lent einu sinni í öðru
sæti og einu sinni í þriðja sæti. Páll
Hreinsson og hans áhöfn á Sigur-
borgu hafa tvívegis náð fyrsta sæti
og tvisvar þriðja. Þá hefur Niels
Chr. Nielsen og áhöfn á Urtu náð
öðru sæti tvívegis í sumar. Þessir
bátar raða sér einnig í fjögur efstu
sætin í þriðjudagskeppni sumarsins.
Ýmsir aðrir gætu þó hreift við úrslit-
um og má þar nefna Rúnar Steinsen
sem keppir á Skeglu úr Þyt Hafnar-
firði en hann hefur ekki keppt mikið
en þó náð einu bronsi og einu silfri.
Það er Ijóst að mótið verður spenn-
andi og úrsitin gætu farið á alla
vegu.
Þá verður haidið íslandsmót Laser
í september og verður Guðjón Guð-
jónsson úr Brokey að teljast líkleg-
astur til sigurs í því móti. Guðjón
fyrsta skipti, á Dómadalsleið",
sagði Mann.
Aðrir erlendir ökumenn sem
keppa verða Niell Dougan á Ford
Sierra Cosworth, Philip Walker
á Mazda 323 og þá munu þrír
breskir ökumenn frá breska
hernum mæta á Land Rover
jeppum. Alþjóðrallið er þriggja
daga keppni. Rásmark og enda-
mark verður við Perluna og
sterkustu íslensku áhafnirnar
verða meðal keppenda. Þá mun
sérstök áhorfendaleið verða í
Öskjuhlíð og munu 10 mótor-
hjólaökumenn einnig keppa á
þeirri leið í sérstakri keppni.
hefur unnið þennan titil tvö síðastlið-
in ár og hefur mesta reynslu af þeim
sem taka þátt. Einnig verður keppt
í svokölluðum Radíal-flokki en þá
eru notuð minni segl. Keppnin er í
umsjá Brokeyjar í Reykjavík og
verður keppt á Skerjafirði.
í kvöld
KNATTSPYRNA
1. deild karla
Grindavík: Grindavík-KR.....18.30
Kópav.: Breiðablik - Fram..18.30
3. deild:
Dalvík: Dalvík-Ægir........18.30
Egilsstaðir: Höttur - leiknir.18.30
Fjölnisv.: Fjölnir - Haukar.18.30
Isafjörður: BÍ-Völsungur....18.30
4. deild:
Laugardalur: Víkverji - GG...20
Njarðvík: Njarðvík - Grótta...18.30
Sandgerði:' Reynir - Bruni....18.30
Ásvellir: ÍH-Ókkli.........18.30
Grenivík: Magni-Hvöt.......18.30
Hörgárd.: SM-Tindast........18.30
Sauðárkr.: Þrymur - Neisti....18.30
■Hópferð verða frá KR heimilinu í
kvöld kl. 17 á leik Grindavíkur og
KR.
GOLF
Golfmót knattspyrnumanna verður
haldið í dag á golfvellinum í Grafar-
holti og ræst verður út kl. 12. Mótið
er öllum opið, knattspyrnumönnum,
forráðamönnum, dómurum og
íþróttafréttamönnum. Leikið verður
með og án forgjafar.
SIGLINGAR / ISLANDSMOTIÐ
Hörð keppni framundan
BYKO-MÓTIÐ
Verður haldið á Kiðjabergsvelli,
Grímsnesi, sunnudaginn 20. ágúst.
Vegleg verðlaun, bæði með og
án forgjafar, auk annarra verðlauna.
Skráning á Kiðjabergi í síma 486-4495
kl. 16-20 miðvikudag, fimmtudag og föstudag
og frá kl. 10-20 á laugardag.
Komið og spilið á hinum stórglæsilega
Kiðjabergsvelli. Allir kylfingar velkomnir.
BYKO
SJ MEIjSTARASAMBAND
HUSASMIÐA
KNATTSPYRNA
EYIÓLFUR Sverrlsson með knöttinn í lar
um á Laugardalsvelll
FRJALSIÞROTTIR
Bætir Vala Norð-
urlandametið í
stangarstökki?
REYKJAVÍKURLEIKARNIR í fijáls-
íþróttum verða í kvöld á Laugardalsvelli.
Mótið hefst kl. 19 og stendur í tvær
klukkustundir. Hin unga og efnilega Vala
Flosadóttir verður meðal keppenda og
keppir í bestu grein sinni, stangarstökki,
en hún á Norðurlandameti í greininni —
hefur hæst stokkið 3,80 metra — og auk
þess keppir hún í hástökki. Vala er búsett
í Svíþjóð og kemur sérstaklega til lands-
ins fyrir leikana.
Flest allt besta fijálsíþróttafólk lands-
ins verður í eldlínunni í kvöld, en um er
að ræða boðsmót og valið er eftir afreka-
skrá FRÍ. Þess má geta að Guðrún Arnar-
dóttir, sem keppti í 400 metra grinda-
hlaupi á HM í Gautaborg á dögunum,
hyggst keppa í 800 metra hlaupi í kvöld
og verður fróðlegt að sjá hvernig henni
gengur.
Einn útlendingur verður meðal kepp-
enda að þessu sinni, Japaninn Yoshito.
Konno í 800 metra hlaupi. Hann á best
1.46,22 mín. en best á þessu ári 1.47,50.
Spennandi verður að sjá hvort hann bæt-
ir vallarmetið í greininni en það er 1.49,40
mín., er í eigu Sovétmannsins Srotowot-
os, og hefur staðið allar götur síðan 1978.