Morgunblaðið - 23.08.1995, Blaðsíða 1
I-
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JM#rgtmÞIafeib
1995
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST
BLAÐ
C
SUND / EVROPUMEISTARAMOTIÐ
Sunddrottningin
Reuter
ÞYSKA sunddrottnlngin Franzlska van Almisick gaf sér tíma tll aA veifa tll áhorfenda eftlr að fyrstu gullverð-
laun hennar voru í höfn, en gaf sér ekkl tíma til að ræða vlð blaðamenn, sagðlst ekki mega vera að því að hangsa.
Ávoná •
hörkuleik !
SKAGAMENN leika í kvöld klukkan 18 á Akra-
nesi seinni leik sinni í Evrópkeppni félagsliða
gegn irska liðinu Shelboume. Fyrri leik liðanna
sem háður var ytra lauk með 3:0 sigri í A og
hafa þeir því vænlega stöðu fyrir lcikinn í kvöld.
„Því er ekki að neita að sigurinn í fyrri leiknum
gefur okkur gott veganesti fyrir leikinn, en það
nokkur vegur frá því að við séum búnir að vinna,“
sagði Logi Ólafsson, þjálfari ÍA í gær.
„Þrátt fyrir sigurinn í fyrri leiknum þá voram
við oft vandræðum með þá, sérstaklega þangað
til við fórum að láta boltan ganga og vinna fyrir
okkur. Sheibourne liðið leikur dæmigerðan bresk-
an bolta frá a til ö. Uppstillingin er fjórir, fjórir,
tveir og það pressir mikið og reyna að finna fram-
línumennina með löngum og háum sendingum."
Logi sagði að leikmenn Shelbourne hafi vanmet-
ið Skagaliðið í fyrri leiknum og því muni þeir
koma grimmir til leiks og staðráðnir í að tapa
ekki annað sinn. „Það tap var að þeirra mati botn-
in fyrir irska knattspyrau. Því á ég vona á hörku-
leik sem verður mjög erfiður fyrir okkur. Mitt lið
er í góðu formi og ég óttast ekki að leikurinn
gegn Leiftri síðasta laugardag sitji í strákunum.
Þessi leikur er mjög þýðingarmikill fyrir okkur
að fleiru en einu leyti. Með sigri hækkar Akranes
enn að stigum í Evrópustaðlinum, en tap lækkar
okkur niður og um leið fjarlægumst við aðal-
keppnina svo það hangir ýmislegt á spýtunni.
Sigur er mikilvægur og því mun Akranesliðið
leika mjög ákveðið til sigurs og ég reikna með
hörkuleik og að sem flestir áhorfendur Iáti sjá
sig,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari Skagamann að
lokum.
Kólumbía vill
hlaupa í skarði
LANDSLIÐ Kólumbíu er tilbúið að leika vináttu-
landsleik gegn Englandingum á Wembley, en
þegar ljóst var að Englendingar höfðu ákveðið
að hætta við leik gegn Króatíu á Wembley. Terry
Venables, landsliðseinvaldur Englands, er spennt-
ur fyrir leik gegn Kólumbíumönnum. „Þeir eru
með eitt sterkasta landslið Suður-Ameríku og það
væri tilvalið að byxja leik gegn þeim á keppnis-
tímabilinu." Landslið Kólumbíu lék síðast á
Wembley 1988.
íslenskir róðra-
menn í HM
RÓBERT Örn Arnarson og Ármann K. Jónsson
kepptu á tvíæringi á heimsmeistarakeppninni í
róðri, sem hófst í Tampere í Finnlandi í gær.
Þeir félagar kepptu í undanrásum í 2000 m róðri
i gær og komu síðastir í mark [7.21,38 mín.] —
af þeim þrjátíu, sem tóku þátt. Anthony Edwards
og Bruce Hick frá Ástralíu fengu bestan t.íma,
6.39,83 mín.
Almsick með tvö gull
Franziska van Almsick frá Þýska-
landi er þegar búin að hirða tvö
gull á Evrópumeistaramótinu í sundi,
sem fram ferí Vín í Austurríki. Hún
mun líklega ekki láta þar staðar num-
ið því hún hefur fimm gull til viðbót-
ar að veija - vann sex gull og eitt
silfur á síðasta Evrópumóti, sem hald-
ið var í Sheffield í Engíandi fyrir
tveimur árum. Hin 17 ára gamla Van
Almsick byrjaði með sigri í 100 metra
skriðsundi og síðar um daginn vann
hún gull með félögum sínum í þýsku
sveitinni fyrir 4x200 metra skriðsund.
Van Almsick var komin með góða
forystu eftir 50 metra í 100 metra
sundinu þar sem hún fékk tímann
55,34 sekúndur. Daninn Mette
Jacobsen, sem komst í úrslitakeppn-
ina á lakasta tímanum, var í öðru
sæti á 56,02 en aðeins 0,03 sekúnd-
um á undan Karen Pickering frá
Bretlandi, sem náði bronsi og fyrsta
verðlaunapening Breta.
í boðsundinu tók Van Almsick við
góðri forystu þýsku sveitarinnar og
kláraði sundið auðveldlega en spar-
aði kraftana fyrir næstu átök, sleppti
meðal annars blaðamannafundi og
sagðist ekki hafa tíma til að hangsa
áður en hún færi í lyfjapróf. í riðla-
keppninni í boðsundinu vann sænska
liðið sinn riðil auðveldlega en var
vísað úr keppni vegna ólöglegrar
skiptingar, var 0,05 sekúndum of
fljótt á sér en aðeins er leyft 0,03
sekúndna frávik.
Hin ungverska Krisztina
Egerszegi, sem fékk fjögur gull í
Sheffíeld 1993, sigraði í 400 metra
fjórsundi á tímanum 4.40,33 sekúnd-
um. Michelle Smith frá írlandi, næst
á 4.42,81 sekúndum, leiddi sundið
með sérgrein sinni, flugsundi, en
Egerszegi náði góðri forystu þegar
kom að sinni sérgrein, baksundi.
Þjóðverjinn Cathleen Rund hafnaði í
þriðja sæti á 4.46,22. Ungveijinn
sem varð ólympíumeistari í 200
metra baksundi 1988, þá 14 ára,
keppir aðeins í 400 metra fjórsundi
og 200 metra baksundi. „Ég er eftir
allt saman að eldast og mun örugg-
lega aðeins keppa í þessum tveimur
greinum á Ólympíuleikunum í Atl-
anta,“ sagði Egerszegi.
En úrslitin sem komu mest á óvart
í gær áttu sér stað þegar Finninn
Jani Sievinen sigraði landa sinn og
heimsmeistara Antti Kasvio í 200
metra skriðsundi en Sievinen hafði
aldrei áður unnið sigur í skriðsundi
á stórmóti. „Ég var mjög hiss á að
vinna. Þetta var góður dagur fyrir
mig en ekki fyrir hina og þeir eru
mun betri en þeir sýndu í dag,“ sagði
Sievinen, sem var sjötti og sekúndu
á eftir fremsta manni þegar kappam-
if sneru í síðasta sinn á brautinni
en náði með frábærum endaspretti
að snerta bakkann 0,14 sekúndu á
undan Anders Holmertz frá Svíþjóð.
Kasivo varð að sætta sig við þriðja
sætið á 1.49,24 og var ekki sáttur
við eigin frammistöðu.
Hlynur kom
Örebro áfram
Guðni Bergsson gerði sögulegt marktyr-
ir Boston í tapleik gegn Newcastle
Islensku knattspyrnumennirnir
Guðni Bergson og Hlynur Birg-
isson skorðu báðir mark fyrir lið
sín í gærkvöldi. Guðni og félagar
hjá Bolton tómu á móti Newcastle
í úrvalsdeildinni ensku og urðu að
sætta sig við að tapa 1:3 á heima-
velli. Les Ferdinand skoraði tvíveg-
is fyrir Newcastle, fyrst á 17. mín-
útu og síðan gerði hann þriðja
mark liðsins á 84. mínútu. Lee
gerði annað markið á 77. mínútu.
Guðni jafnaði 1:1 á 51. mínútu
með góðum skalla eftir hornspyrnu
og var þetta jafnframt fyrsta
markið sem Bolton gerir í efsti
deild á sínum heimavelli í ein 15
ár, þannig að markið er á vissan
hátt sögulegt.
Orebro, lið Hlyns Birgissonarj
nafna háns Stefánssonar og Arn
órs Guðjohnsens, lék síðari leikinn
í UEFA keppninni í gær við
Avenie Beggen frá Lúxemborg en
fyrri leik liðanna lauk með marka ■
lausu jafntefli í Svíþjóð. Leiknum
lauk með 1:1 jafntefli og gerði
Hlynur Birgisson jöfnunarmarkið
á 88. mínútu og kom liði sínu
áfram.
KIMATTSPYRIMA: KR-IIMGAR AFRAMIEVROPUKEPPIMIBIKARHAFA / C3
+