Morgunblaðið - 25.08.1995, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995 C 3
ÍÞRÓTTIR
akeppninni
KNATTSPYRNA
Liverpool
leikur gegn
Sunderland
H OPNA tt
SPARISJÓÐSMÓTIÐ
Opna Sparisjóðsmótið í golfi verður haldið laugardaginn
26. ágúst hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.
í fjórmenningnum unnu þeir Björn
Knútsson og Guðmundur Sveinbjörns-
son þá Helga Dan Steinsson og Þórð
Emil Ólafsson og þurfti bráðabana til
fá fram sigurvegara. Allt var jafnt
eftir 18 holur og það var ekki fyrr en
á 21. holu, Bergvíkinni alræmdu, sem
úrslit réðust en þá átti Björn fallegt
högg inná flöt sem dugði fyrir pari og
sigri. Kristinn G. Bjarnason úr Leyni
vann Tryggva Traustason á 16. holu
og því _var allt jafnt og einvígi ný-
krýnds íslandsmeistara, Björgvins Sig-
urbergssonar úr Keili, og aðal keppi-
nautar hans, Birgis Leifs Hafþórsson-
ar. Þar hafði íslandsmeistarinn betur
á 17. holu og Keilismenn orðnir meist-
arar í sveitakeppni, en Leynir varð í
öðru sæti og GS í því þriðja. Keilir
vann GS 2:1 eftir að Björgvin hafði
verið þremur höggum undir á móti
Helga Þórissyni en náði að jafna á 17.
holu og sigra síðan í bráðabana á þeirri
nítjándu.
Ömmurnar
stóöu fyrir sínu
í 1. deild kvenna var einnig mikil
keppni og í raun ekki síðri en hjá strák-
unum. Síðasti leikurinn var við seit
Golfklúbbs Reykjavíkur og var það
úrslitaleikurinn. Kristín Pálsdóttir og
Inga Magnúsdóttir, „ömmurnar í lið-
inu“ sigruðu þær Jóhönnu Ingólfsdótt-
ur og Ásthildi Jóhannsdóttur úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur á 16. holu og Ólöf
María Jónsdóttir vann Ragnhildi Sig-
urðardóttur á sömu holu en viðureign
Þórdísar Geirsdóttur og Herborgar
Arnarsdóttur var jafnari og þar náði
Þórdís að knýja fram sigur á 20. holu,
eftir bráðabana.
Þetta er í annað sinn sem Keilir vinn-
ur tvöfallt, lék þetta einnig árið 1991
í Vestmannaeyjum. GR varð í öðru
sæti að þessu sinni og heimamenn í
GS hafnaði í því þriðja.
Keppnin í 2. deild var æsispennandi
og þar voru B-sveit Keilis og A-sveit
Golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ jafn-
ar að stigum en Keilir vann Kjöl í inn-
byrgðisviðureign sveitanna og varð því
í fyrsta sæti.
Nokkurt millibilsástand er á sveita-
keppninni í ár og því færast engar
sveitir upp um deild, en það falla þeim
mun fleiri. B-sveitir Golfklúbbs Akur-
eyrar og GS falla í 2. deild, fjórar
neðstu sveitirnar úr 2. deild falla í 3.
deild, GH, GR-b, GK-b og GSS, og úr
3. deild falla allar nema tvær efstu
sveitirnar, Golfklúbbur Garðabæjar og
Kópavogs og Golfklúbburinn Hellu.
Með þessu fyrirkomulagi er verið að
koma sex liðum í hveija deild, nema
4. deildina, þar voru sautján sveitir
með í ár og líklega verða fleiri deildir
á næsta ári.
DREGIÐ var í 2. umferð ensku
deildarbikarkeppnina í gær og hér
á eftir má sjá hvaða lið leika.
Watford - Bournemouth
Oxford - Queen’s Park Rangers
Wimbledon - Charlton
Birmingham - Grimsby
Tranmere - Oldham
Cardiff - Southampton
Sheff. Utd. - Chesterfield/Bury
Stoke - Chelsea
Tottenham - Chester
Leeds - Notts County
Southend - Crystal Palace
Huddersfield - Barnsley
Norwich - Torquay
Bradford - Nottingham Forest
Hartlepool - Arsenal
Bolton - Brentford
Coventry - Hull
Middlesbrough - Rotherham
Shrewsbury - Derby
Wolverhampton - Fulham
Wycombe - Manchester City
Leicester - Burnley
Crewe/Darlington - Sheff. Wed.
Stockport/Wrexham - Ipswich
Reading - West Bromwich
Bristol Rovers - West Ham
Aston Villa - Peterborough
Liverpool - Sunderland
Millwall - Everton
Manchester United - York
Swindon - Blackburn
Bristol City - Newcastle
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
menn eru melri hörkutól en Þorlákshaf narbúinn Gísli G. Jónsson. Hann
r- og íslandsmótinu f torfæru og keppir í Grindavík á morgun.
Ætla að
vinna
tvöfalt
ÚRSLITAMÓT bikarmeistara-
keppni torfæruökumanna
verður á morgun í Grindavik
og hefst kl. 14.00. Allir bestu
torfæruökumenn landsins
verða meðal keppenda og
eiga 5-6 ökumenn í báðum
flokkum góða möguleika á
titli. Keppendur fflokki götuj-
eppa munu aka á skófludekkj-
um, sem er ólíkt því sem ger-
ist á íslandsmótinu.
Eg ætla að vinna tvöfalt, bæði
bikarinn og íslandsmeistara-
titilinn í flokki sérútbúinna jeppa“,
sagði Þorlákshafnarbúinn Gísli G.
Jónsson í samtali við Morgunblað-
ið. Með einstöku harðfylgi hefur
honum tekist að ná forystu í bæði
bikar- og íslandsmótinu. „Það
verður hörð keppni, en Haraldur
Pétursson, Einar Gunnlaugsson,
Helgi Schiöth og Gunnar Egilsson
verða líklega helstu andstæðing-
arnir. Annars eru svo margir góðir
að það er ómögulegt að segja. Ég
ætla bara að vinna og vona að
jeppinn hangi í lagi“, sagði Gísli.
í síðasta bikarmóti velti hann tví-
vegis, en vann samt. Vann í raun
á seinni veltunni, þannig að harkan
skilaði honum árangri.
í flokki götujeppa er Gunnar
Guðmundsson efstur, en Árni Páls-
son og Rafn Guðjónsson koma
honum næstir. Sigurður Jónsson
er síðan skammt undan. Sú ný-
breytni verður í keppninni að götuj-
eppar munu aka á skófludekkjum
og verður rásröðin blönduð þannig
að sérútbúnir jeppar og götujeppar
skipast á að aka sömu þrautirnar.
Síðan er hugmyndin að fá eigin-
konur keppenda til að spreyta sig
í einhveijum þrautum að lokinni
keppni, ef tími leyfir.
Keppnisfyrirkomulag: 18 holu höggleikur.
Veitt verða glæsileg verðlaun með og án forgjafar.
Án forgjafar:
1. sæti: Vöruúttektfyrir kr. 30 þús.
2. steti: Vöruúttektfyrir kr. 20 þús.
3. sceti: Vöruúttektfyrir kr. 15 þúe.
Með forgjöf:
1. steti: Vöruúttektfyrir kr. 20 þús.
2. steti: Vöruúttektfyrir kr. 15 þús.
3. steti: Vöruúttektfyrir kr. 10 þús.
Vöruúttektir fyrir kr. 10 þús. verða veittar fyrir að vera
næst holu á 6, 9 og 16 og einnig á 18 í tveimur höggum.
Heppinn keppandi fær óvœntan glaðning í
mótslok verði hann á staðnum.
Ræst verður út frá ki. 8.0Ó.
Skráning er í síma 565 3360.
SPARISJ ÓÐUR HAFNARFJARÐAR
Strandgðtu • Reykjavíburvcgi • Garðabæ
Opna Bláalónsmót
Golfklúbbs Suðurnesja
verður haldið á Hólmsvelli, Leiru, sunnudagin 27.ágúst
kl. 9.00. í boði eru glæsilegir ferðavinningar.
1. verðlaun: Ameríkuferð
2. verðlaun: Evrópuferð
3. verðlaun: Innanlandsferð
Ferðirnar eru algerlega að frjálsu vali
á áfangastaði Flugleiða.
Gildistími er 1 ár.
Sömu verðlaun með og án forgjafar.
Fern holuverðlaun.
Skráning í síma 421 4100
Kylfingar athugið!
Þetta er síðasta mótið af þremur í Bláalónsmótaröð
golfklúbbanna á Suðurnesjum. Veitt verða stig fyrir
20 efstu sætin með og án forgjafar. Titilinn Bláalóns-
meistarinn 1995 hlýtur sá, sem fær flest stig samanlagt
úr öllum þremur mótunum, skv. reglugerð
HITAVEITA
SUÐURNESJA
TEYMI
^jjBIÁA LÓNIÐ
-ævintýri líkast
ORALE HUGBÚNAÐUR Á ÍSLANDI
BIAA LONIÐ .
^ -ævintýri líkast
Útivistarparadís fjölskyldunnar.
Opið alla daga frá kl. 10-22.
Sími 426 8800.