Morgunblaðið - 25.08.1995, Page 4
|Utir£M»Waí>tö
KNATTSPYRNA
Knattspyrnusamband Evrópu gagnrýnir Alþjóða knattspyrnusambandið
Segir FIFA hafa sofið á
verðinum í markaðsmálum
Reuter
DAPIIRLEGT ástand. Þýsk! landsliðsmaðurinn Mario Basler situr dapur á vellinum í vináttu-
landsleik gegn Belgum í fyrrakvöld. Berti Vogts þjálfari var óhress með frammistöðu hans,
eins og Knattspyrnusamband Evrópu er með gang mála hjá FIFA.
Lennart Johansson, formaður
Knattspyrnusambands Evrópu,
UEFA, hefur lagt til róttækar breyt-
ingar á markaðsmálum alþjóða
knattspyrnu og eru knattspymu-
sambönd annarra álfa sammála hug-
myndum hans en Alþjóða knatt-
spyrnusambandið, FIFA, finnst að
sér vegið. Johansson vill auka vægi
knattspymusambanda álfanna á
kostnað FIFA og markaðssetja þessa
vinsælustu íþróttagrein heims á
ámóta hátt og gert hefur verið með
Ólympíuleika.
Tilkynning þessa efnis var gefin
út í kjölfar fundar knattspymusam-
banda álfanna í vikunni og var henni
tekið sem lið í nýrri valdabaráttu
milli UEFA og FIFA. í yfirlýsingu
UEFA kom fram að Johansson hefði
lagt fram tvær tillögur fyrir Joao
Havelange, forseta FIFA, og for-
menn álfusambandanna. Þær gæfu
augljóslega til kynna að FIFA hefði
sofíð á verðinum varðandi markaðs-
setningu úrslitakeppni heimsmeist-
aramótsins og FIFA ætti að fá eins
mikið fýrir sinn snúð í peningum
fyrir helstu íþrótt heims eins og
Alþjóða ólympíunefndin fengi fyrir
Ólympíuleika. Sambönd annarra álfa
vom sammála hugmyndum Johans-
sons þess efnis að álfusamböndin
ættu að hafa meira að segja en til-
laga Svíans um að forseti FIFA yrði
kjörinn úr hópi formanna álfusam-
bandanna á fjögurra ára fresti var
dregin til baka.
Johansson lagði til að eftir alþjóða
ráðstefnuna 1998, þar sem velja á
eftirmann Havelanges, ætti FIFA
aðallega að vera ábyrgt fyrir málum
varðandi samskipti álfanna, skipu-
lagningu úrslitakeppni HM, úrslita-
keppni yngri landsliða og kvenna og
HM-mót fimm manna liða. Fundur
formannanna samþykkti einnig til-
lögu þess efnis að úrslitakeppni HM
ætti að fara fram í einni álfu á eft-
ir annarri í ákveðinni röð á fjögurra
ára fresti og var litið á þetta sem
mikinn styrk fyrir Afríku og Mið-
Ameríku.
UEFA tók fram að ákveðið hefði
verið að greina frá tillögum Johans-
sons vegna þess að viðbrögð FIFA
við þeim hefðu verið gerð opinber og
þar með hefði trúnaður verið brotinn.
Nánast á sama tíma sendi FIFA frá
sér tilkynningu þar sem sagði að
neyðamefnd FIFA yrði kölluð á fund
8. september nk. til að ræða tillögur
Johanssons en hann er í nefndinni
ásamt formönnum hinna álfanna.
Sepp Blatter, framkvæmdastóri
FIFA, sagðist harma að greint hefði
verið frá umræðunum.
Verði valdabarátta að veruleika
er gert ráð fyrir miklum átökum.
Havelange hefur sem forseti FIFA
verið sem kóngur í óyfirstíganlegu
ríki sínu í 20 ár og í fyrra kom hann
í veg fyrir tilraun UEFA til að skipta
um forseta með því að bjóða að úr-
slitalið í HM í Frakklandi 1998 yrðu
átta fleiri en verið hefur. Óánægja
með hann í forsæti hefur aukist frá
því og nefnt er að forystumenn
knattspymumála í Afríku séu æfír
vegna ákvörðunar FIFA um að flytja
HM ungmenna frá Nígeríu til Qatar.
Seinni tillaga Johanssons snýr að
markaðsmálum og var hún ekki
rædd á fundi formannanna. Þar
kemur fram að samningar FIFA
vegna HM sem samþykktir hefðu
verið 1987 rynnu út 1998 og miklar
breytingar hefðu átt sér stað á þessu
sviði. Johansson bendir á að gífur-
lega miklir markaðsmöguleikar séu
Franziska van Almsick þurrkaði
tárin og setti upp sitt fegursta
bros þegar hún vann tvenn gull til
viðbótar á Evrópumeistaramótinu í
sundi sem fram fer í Austurríki þessa
dagana - sigraði í 400 metra skrið-
sundi og 4x100 metra skriðsundi
með þýsku sveitinni. Með þriðja og
fjórða sigri sínum er Almsick orðin
sigursælasta sundkona Evrópumót-
anna frá upphafi en hún vann sex
gull á Evrópumótinu í Sheffield í
Englandi 1993. Ef henni tekst að
vinna 50 metra skriðsundið á sunnu-
daginn, vantar hana samt eitt gull
til viðbótar til að ná landa sínum
Michael Gross, sem vann 13 gull á
Evrópumótum.
Almsick mistókst klaufalega að
fyrir hendi vegna HM og þá eigi að
nýta með útboðum til að bera sem
mest úr býtum. Tekjunum ætti síðan
að skipta eins og Ólympíusamhjálpin
geri og þannig komi þær knatt-
spyrnu hvar sem er í heiminum til
góða.
í þessu sambandi er vísað til þess
að Alþjóða ólympíunefndin gekk fyr-
komast í úrslit í sinni bestu grein,
200 metra skriðsundi, en synti engu
að síður á þriggja sekúndna betri
tíma í B-úrslitum en sigurvegarinn í
A-úrslitum. En hinn 17 ára gamli
meistari og þjóðhetja í Þýskalandi
var ánægðari með tíma sinn í 200
metra sundina en gullverðlaunin og
gaf í skyn í viðtölum að það hefði
jafnvel verið betra að sigra ekki og
miklum oki og væntingum létt af
ungum herðum sínum. „Eg held að
spennan hafi verið vegna fjölmiðla.
Eg var orðin mjög óstyrk og þetta
var einfaldlega of mikið en það er
búið að leysa hnútinn," sagði Almsick
og virtist í mun meira jafnvægi en
síðustu daga. „Ég var í algeru upp-
námi eftir að komast ekki í úrslit og
ir skömmu frá samningi um sölu
einkaréttar sjónvarps frá ÓlympÚK
leikunum í Sydney árið 2000 og fær
717 milljónir dollara fyrir (tæplega
48 millj. kr.) en samsvarandi greiðsl-
ur vegna útsendinga frá HM í
Bandaríkjunum fyrir ári - bestu
HM-keppni sögunnar - voru innan
við 100 milljónir dollarar.
vildi í fyrstu ekki taka þátt í B-úrslit-
unum og hugsaði „æ,nei - ekki aftur.“
Alexander Fopov frá Rússlandi
hefur unnið 100 metra skriðsund
karla á hverju einasta móti síðan
hann tók þátt í Evrópumótinu í
Aþenu í Grikklandi 1991. Hann sló
ekki af nú og sannaði að hann er
bestur í þeirri grein í heiminum.
Rússinn sem var veikur síðustu vik-
una fyrir mótið, var nokkuð frá
heimsmeti sínu en með 0,05 sek-
úndna betri tíma en meistaramóts-
metið. „Ég syndi alltaf til að sigra
en dagurinn í dag var ekkert sér-
stakur og ég er frekar slappur þessa
dagana. Það kemur annað tækifæri
á næsta ári, á Ólympíuleikunum,"
sagði Popov eftir sundið.
Evrópukeppni bikarhafa
Undankeppnin - síðari leikin
Batumi í Georgíu:
Dynamo Batumi - Obilic (Júgóslavíu) ..2:2
Machutadze (65.), Mudzhiri (82. vsp.) -
Vilotovich (8.), Popovich (32.). 25.000.
■Dynamo Batumi vann 3:2 samanlagt.
Pioiesti í Rúmeníu:
Petrolul Ploiesti - Wrexham (Wales) „1:0
Mihai Pirlog (59.). 10.000.
■Petrolul Ploiesti vann 1:0 samanlagt.
Tirana í Albam'u:
FC Teuta - TPS Turku (Finnland)......3:0
Artan (8.), Elton (19.), Ardian Bushi (55.).
■Teuta vann 3:1 samanlagt.
Hradec Kralove í Tékklandi:
Hradec - Vaduz (Liechtenst.).........9:1
Samec (4., 9., 30., 53.), Urban (15., 82.),
Vrabel (37., 50.), Smarda (64.) - Ritter
(27.). 3.558.
■Hradec Kralove vann 14:1 samanlagt.
Kratovo i Makedóníu:
Sileks - Vac Samsung (Ungverjal.)....3:1
Memedi (15., 67.), Borov (35.) - Orguja
(20.). 12.000.
■FC Sileks vann 4:2 samanlagt.
Murska Sobota í Slóveníu:
Mura - Zalgaris (Litháen)............2:1
Kokol (10.), Alihod (90.) - Vencev. (72.).
■Zalgiris vann 3:2 samanlagt.
Baku í Aserbaídsjan:
Nefski Baku - Apoel Nicosia (Kýpur)...0:0
Áhorfendur 4.000.
■Apoel vann 3:0 samanlagt.
Yerevan í Armeníu:
Ararat - Katowice (Pólland)..........2:0
Gspeyan (23.), Tonoyan (26.). 7.000.
■Árarat vann 5:4 eftir vítaspyrnukeppni.
Tallinn í Eistlandi:
FC Lantana - Dag Liepaja (Lettland)...0:0
Áhorfendur 800.
■Dag Liepaja vann 3:0 samanlagt.
FC Lantana vann fyrsta leikinn 2:1 en
UEFA úrskurðaði að Dag Liepaja sigurinn
þar sem Lantana notaði óiöglegan leikmann.
Sofia í Búlgaríu:
Lokomotiv Sofia - Derry City (írl.)..2:0
Ivo Slavchev (6.), Boris Hvoinev (29.).
ILokomotiv vann 2:1 samanlagt.
Molde í Noregi:
Molde FK - Dinamo-93 (Hv.-rússl.)....2:1
Ole Gunnar Solskjaer (4.), Arild Stavsum
(67.) - Vadim Skripchenko (19.) 2.989.
■Molde vann 3:2 samanlagt.
Bratislava í Slóvakíu:
Inter Bratislava - La Valetta (Möltu) ..5:2
Tomko (15., 39.), Rupec (10.), Saliba (79.),
Landerl (85.) - Doncic (61.), Zarb (84.).
■Inter vann 5:2 samanlagt.
Tóftir í Færeyjum:
Klaksvikar - Maccabi Haifa (ísrael) ....3:2
Olgar Danielsen (53., 63., 70.) - Haim
Revivo (31.), Ofer Shitrit (84.). 295.
■Maccabi vann 6:3 samanlagt.
Belfast á Norður-íríandi:
Linfield - Shaktyor (Úkraínu)........0:1
- Alexander Voskoboynic (86.). 3.000.
■Shaktyor vann 5:1 samanlagt.
EM í sundi
Evrópumeistaramótið í sundi í Austurríki.
200 m bringusund karla:
1. Alexandre Tkatchev (Rússl.)..2.14,69
2. Steven West (Bandar.)........2.15,41
3. Akira Hayashi (Japan)...........2.15,48
4. Yiwu Wang(Kína).................2.16,08
5. Nathan Thomson (Bandar.).....2.17,21
400 m fjórsund kvenna:
1. Fumie Kurotori (Japan)..........4.45,66
2. Hideko Hiranaka (Japan..........4.50,31
3. Kerri Hale (Bandarfkjunum)......4.54,45
4. Anne Kampfe (Bandaríkjunum) ..4.54,64
5. Nadine Neumann (Ástralíu) ...4.55,89
200 m skriðsund karla:
1. Yann Defabrique (Frakklandi)....1.50,04
2. Daniel Kanner (Bandar.).........1.50,84
3. Masayuki Fujimoto (Japan).......1.51,01
4. Iouri Moukhine (Rússlandi)......1.51,11
5. Chris Rumley (Bandaríkjunum) ...1.51,14
4 x 200 m skriðsund kvenna:
1. Bandaríkin ..................8.05,18
2. Japan...........................8.15,13
3. Bretland ....................8.23,84
4. Ítalía.......................8.27,90
5. Frakkland.......................8.36,20
400 m skriðsund kvenna:
1. Franziska v. Almsick (Þýskal.) ...4.08,37
2. Carla Geurts (Hollandi) ........4.10,73
3. Irene Dalby (Noregi) ........4.13,44
4. Malin Nilsson (Sviþjóð).........4.13,66
5. Sandra Cam (Belgíu).............4.15,48
100 m skriðsund karla:
1. Alexander Popov (Rússlandi) ......49,10
2. Torsten Spanneberg (Þýskalandi) ..49,67
3. Bjoem Zikarksy (Þýskalandi).......50,23
4. Pavlo Khnykin (Ukraínu)...........50,31
5. Nicolaelvan (Rúmeníu).............50,55
100 m baksund kvenna:
1. Mette Jacobsen (Danmörku).......1.02,46
2. Cathleen Rund (Þýskalandi)......1.02,91
3. Nina Zhyvanevskaya (Rússl.).....1.03,06
4. Therese Alshammer (Svíþjóð).....1.03,12
5. Antje Buschschulte (Þýskal.).1.03,40
200 m baksund karla:
1. Vladimir Selkov (Rússlandi).....1.58,48
2. NicolaeButacu (Rúmenfu).........1.59,96
3. Adam Ruckwood (Bretlandi) ......2.00,16
4. RalfBraun(Þýskalandi)...........2.00,30
5. TamasDeutsch(Ungverjal)......2.00,67
4 x 100 m skriðsund kvenna:
1. Þýskaland.......................3.43,89
(Franziska van Almsick, Simone Osygus,
Kerstin Kielgass, Daniela Hunger)
2. Svíþjóð ........................3.45,21
3. Bretland....:................3.46,89
4. Rússland .s.....................3.48,23
5. Spánn...........................3.49,97
SUND / EVROPUMEISTARAMOTIÐ
Franziska van Almsick
leyfði sér að þerra tárín