Morgunblaðið - 27.08.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.08.1995, Blaðsíða 1
TRAUSTUR OGNÁKVÆMUR AUDIA6íREYNSLUAKSTRI - SUZUKISIDEKICKBREYTTUR OGSETTURÁ 35“ DEKK - VWBJALLA MEÐ NÝJUSNIÐI- MÓÐUEYÐIR Á SPEGLUM Sölumenn bifreiðaumboðanna ) annast útvegun lánsins á 15 mínútum Giitnirfif’ DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA SUNNUDAGUR 27. AGUST 1995 BLAÐ Mini ekki alveg dauður ARFTAKI Rover Mini, sem upphaf- lega var ráðgerður á markað árið 1997, tefst í hönnun og framleiðslu og er nú væntanlegur fyrir sjónir almennings árið 2000. Rover fram- leiðir bílinn en eins og kunnugt er eignaðist BMW meirihluta í Rover á síðasta ári. BMW bað Rover að smíða arftaka Mini á tveimur árum en hefur nú viðurkennt að sú tima- setning var ekki í takt við raun- veruleikann því nýi billinn á að taka stórum breytingum í hönnun og útliti. Takist hins vegar ekki að ná þessu markmiði árið 2000 verð- ur áætlunin um nýjan Mini lögð til hliðar. í lok júni kom Rover upp með þrjá hugmyndabíla sem áttu að leysa Mini af hólmi. Sá fyrsti var það sem kallast „retro-bíll“, þ.e. með gamaldags útliti, annar var nútímalegur og stíllegur smábill með framhjóladrifi en þriðji bíllinn var fjögurra sæta tvinnbíll með bensínvél að aftan. Sá var byggður á Z13 sýningarbíl BMW. Mini bíllinn, sem Rover framleið- ir enn í hefðbundnu útliti, fær hins vegar andlitslyftingu 1997, og er ætlað að halda það út á markaðnum þar til nýi bíllinn verður kynntur árið 2000. í fyrstu var talið að bíll- inn yrði ekki markaðshæfur að óbreyttu árið 1997 vegna hertra mengunarvamarreglna en i ljós hefur komið að hann sleppur fyrir horn. Breytingamar á bílnum verða ekki stórvægilegar þvi litil sala á honum stendur ekki undir miklum kostnaði við breytingar. Saturn - áhuga- verður bíll á skikkanlegu verði FRÁGANGUR er vandaður að innan. Tveir líknarbelgir er staðalbúnaður. SATURN er straumlinulagaður, femra dyra bíll með 1,9 lítra, 100 hestafla vél. Morgunblaðið/Golli FYRSTI bíllinn af gerðinni Saturn kom nýlega til landsins en það er Bílabúð Benna sem flytur bílinn inn. Saturn Corporation var stofnað af General Motors í janúar árið 1984 og hefur á rúmlega tíu ára ævi framleitt rúmlega hálfa milljón bíla af fjórum árgerðum. Saturn kemur í fjórum gerðum og einni undirgerð af hverri. Grunngerðin heitir SL en sportbíllinn SC og langbakurinn heitir SW. Bíllinn sem hingað er kominn er SL og kostar 1.350.000 kr. Þótt SL sé ódýrasti bfllinn í Sa- turn línunni er hér um að ræða fallegan bíl með rennilegum línum og dæmigerðu „cab-forward“ útliti. Undir vélarhlífinni er fjögnrra strokka, 1,9 lítra, 100 hestafla vél með fjölinnspýtingu og einum ofan á liggjandi knastás. Bíllinn er fram- hjóladrifinn með fímm gíra bein- skiptum gírkassa. Hann er án vökvastýris en með aflhemlum. Sjálfstæð fjöðrun er á öllum hjólum og MacPherson gormar að framan. Hliðar og þak úr plastefnl SL er með tveimur líknarbelgj- um og barnalæsingu í afturhurð- um. Halogen framlugtir eru stað- albúnaður á öllum gerðum Saturn en þær lýsa mun betur en aðrar gerðir ljósa í þoku eða mistri. Hlið- ar bílsins og þak er úr sveigjanlegu polymer plastefni sem tekur ekki á sig dældir. Vélarhlíf og skottlok úr stáli með krumpusvæðum sem taka í sig mesta höggkraftinn í árekstrum. Jón Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna segir að ráðgert sé að taka inn fleiri bíla og aðrar útfærslur. SL kostar 1.350.000 kr. en sé hann tekinn með vökvastýri kostar hann um 1.390.000. Sé einnig bætt við rafdrifnum rúðum og samlæsingu kostar bíllinn 1.430.000 kr. Nánar verður sagt frá Saturn fyrirtækinu og SL bílnum á næst- unni. ■ PORTUGAL ;-j■ FINNLAND 83HPI ÞÝSKALAND HH GRIKKLAND B DANMÖRK B ÍRLAND fo I SVISS iSPÁNN BRETLAND '------- LUXEMBORG JYRKLAND N-SJÁLANI ÁSTRALÍA MEXÍKÓ NOREGUR Bensínverð í nokkrum OECD löndum (Blýbensín (98 oktan). á íslandi er miðað við 92 oktan blýlaust bensín) flWWHHB ! wsmm mmw mmm £ á // // hHHI f f wm. m II I maam // 70 kr. hver litri II HOLLAND SVÍÞJÓÐ ÍTALÍA ISLAND BELGÍA FRAKKLAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.