Morgunblaðið - 27.08.1995, Qupperneq 1
TRAUSTUR OGNÁKVÆMUR AUDIA6íREYNSLUAKSTRI
- SUZUKISIDEKICKBREYTTUR OGSETTURÁ 35“ DEKK
- VWBJALLA MEÐ NÝJUSNIÐI- MÓÐUEYÐIR Á SPEGLUM
Sölumenn
bifreiðaumboðanna
) annast útvegun
lánsins á 15 mínútum
Giitnirfif’
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
SUNNUDAGUR 27. AGUST
1995
BLAÐ
Mini ekki
alveg dauður
ARFTAKI Rover Mini, sem upphaf-
lega var ráðgerður á markað árið
1997, tefst í hönnun og framleiðslu
og er nú væntanlegur fyrir sjónir
almennings árið 2000. Rover fram-
leiðir bílinn en eins og kunnugt er
eignaðist BMW meirihluta í Rover
á síðasta ári. BMW bað Rover að
smíða arftaka Mini á tveimur árum
en hefur nú viðurkennt að sú tima-
setning var ekki í takt við raun-
veruleikann því nýi billinn á að
taka stórum breytingum í hönnun
og útliti. Takist hins vegar ekki að
ná þessu markmiði árið 2000 verð-
ur áætlunin um nýjan Mini lögð til
hliðar.
í lok júni kom Rover upp með
þrjá hugmyndabíla sem áttu að
leysa Mini af hólmi. Sá fyrsti var
það sem kallast „retro-bíll“, þ.e.
með gamaldags útliti, annar var
nútímalegur og stíllegur smábill
með framhjóladrifi en þriðji bíllinn
var fjögurra sæta tvinnbíll með
bensínvél að aftan. Sá var byggður
á Z13 sýningarbíl BMW.
Mini bíllinn, sem Rover framleið-
ir enn í hefðbundnu útliti, fær hins
vegar andlitslyftingu 1997, og er
ætlað að halda það út á markaðnum
þar til nýi bíllinn verður kynntur
árið 2000. í fyrstu var talið að bíll-
inn yrði ekki markaðshæfur að
óbreyttu árið 1997 vegna hertra
mengunarvamarreglna en i ljós
hefur komið að hann sleppur fyrir
horn. Breytingamar á bílnum
verða ekki stórvægilegar þvi litil
sala á honum stendur ekki undir
miklum kostnaði við breytingar.
Saturn - áhuga-
verður bíll á
skikkanlegu verði
FRÁGANGUR er
vandaður að innan.
Tveir líknarbelgir
er staðalbúnaður.
SATURN er straumlinulagaður,
femra dyra bíll með 1,9 lítra, 100
hestafla vél.
Morgunblaðið/Golli
FYRSTI bíllinn af gerðinni Saturn
kom nýlega til landsins en það er
Bílabúð Benna sem flytur bílinn
inn. Saturn Corporation var stofnað
af General Motors í janúar árið
1984 og hefur á rúmlega tíu ára
ævi framleitt rúmlega hálfa milljón
bíla af fjórum árgerðum. Saturn
kemur í fjórum gerðum og einni
undirgerð af hverri. Grunngerðin
heitir SL en sportbíllinn SC og
langbakurinn heitir SW. Bíllinn
sem hingað er kominn er SL og
kostar 1.350.000 kr.
Þótt SL sé ódýrasti bfllinn í Sa-
turn línunni er hér um að ræða
fallegan bíl með rennilegum línum
og dæmigerðu „cab-forward“ útliti.
Undir vélarhlífinni er fjögnrra
strokka, 1,9 lítra, 100 hestafla vél
með fjölinnspýtingu og einum ofan
á liggjandi knastás. Bíllinn er fram-
hjóladrifinn með fímm gíra bein-
skiptum gírkassa. Hann er án
vökvastýris en með aflhemlum.
Sjálfstæð fjöðrun er á öllum hjólum
og MacPherson gormar að framan.
Hliðar og þak úr plastefnl
SL er með tveimur líknarbelgj-
um og barnalæsingu í afturhurð-
um. Halogen framlugtir eru stað-
albúnaður á öllum gerðum Saturn
en þær lýsa mun betur en aðrar
gerðir ljósa í þoku eða mistri. Hlið-
ar bílsins og þak er úr sveigjanlegu
polymer plastefni sem tekur ekki
á sig dældir. Vélarhlíf og skottlok
úr stáli með krumpusvæðum sem
taka í sig mesta höggkraftinn í
árekstrum.
Jón Eyjólfsson hjá Bílabúð
Benna segir að ráðgert sé að taka
inn fleiri bíla og aðrar útfærslur.
SL kostar 1.350.000 kr. en sé
hann tekinn með vökvastýri kostar
hann um 1.390.000. Sé einnig
bætt við rafdrifnum rúðum og
samlæsingu kostar bíllinn
1.430.000 kr.
Nánar verður sagt frá Saturn
fyrirtækinu og SL bílnum á næst-
unni.
■ PORTUGAL
;-j■ FINNLAND
83HPI ÞÝSKALAND
HH GRIKKLAND
B DANMÖRK
B ÍRLAND fo
I SVISS
iSPÁNN
BRETLAND '-------
LUXEMBORG
JYRKLAND
N-SJÁLANI
ÁSTRALÍA
MEXÍKÓ
NOREGUR
Bensínverð
í nokkrum
OECD
löndum
(Blýbensín (98 oktan).
á íslandi er miðað við
92 oktan blýlaust bensín)
flWWHHB ! wsmm mmw
mmm £ á //
//
hHHI f f
wm. m II
I
maam //
70 kr. hver litri
II HOLLAND
SVÍÞJÓÐ
ÍTALÍA
ISLAND
BELGÍA
FRAKKLAND