Morgunblaðið - 14.09.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
tr®ttttM®§>í§>
1995
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER
BLAÐ
Þorbjörn velur
Rúmeníufarana
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, hefur valið fjórtán manna landsliðshóp
fyrir Evrópuleikina gegn Rúmenum 27. septem-
ber í Rúmeníu. Markverðir eru Guðmundur
Hrafnkelsson úr Val og Bergsveinn Bergsveins-
son úr Aftureldingu. Aðrir leikmenn eru Geir
Sveinsson frá Montpellier, Júlíus Jónasson úr
Guramersbach, Jón Kristjánsson, Dagur Sigurðs-
son og Ólafur Stefánsson úr Val, Bjarki Sigurðs-
son, Páll Þórólfsson og Róbert Sighvatsson úr
Aftureldingu, Valdimar Grimsson og Einar.
Gunnar Sigurðsson frá Selfossi, Patrekur Jó-
hannesson úr KA og Gunnar Beinteinsson úr FH.
Einu sinni áður
leikið í Rúmeníu
Valdimar yfir 600
marka múrinn
VALDIMAR Grímsson, sem hefur leikið 193
landsleiki, skoraði sitt 600. landsliðsmark í Aust-
urriki á dögunum, í leik gegn ítaliu. Valdimar
hefur skorað 602 mörk í landsleikjum sínum og
er orðinn þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn.
Kristján Arason hefur skorað flest mörk, 1.089,
og Sigurður Sveinsson kemur næstur á blaði
með 730 mörk.
Kvendómarar í
fyrsta sinn í lands-
leik á íslandi
Morgunblaöið/Þórhallur Jónsson
FYRSTU kvendómaratríóið sem dæmir landsleik
á íslandi mætir til leiks á sunnudagskvöldið i
Laugardal og dæmir landsleik íslands og Rúss-
lands i undankeppni Evrópumóts kvennalands-
liða. Dómaratríóið kemur frá Noregi heitir Vi-
beke Karlsen, en hún verður dómari, Ann-Wenc-
he Johansen og Lisbeth Hoch Lode, sem verða
línuverðir. Það sama verður uppi á teningnum
næst þegar íslenska kvennalandsliðið leikur í
undankeppni EM gegn Frökkum, 30. september,
þá kemur einnig kvennatríó til að fylgja eftir
reglum leiksins.
Valsmenn hirtu bikarinn
hjá okkur og við vorum lengi í
gang. Við erum með breiðan hóp
og gátum leyft okkur að hræra
svolítið í liðinu þangað til þetta
gekk upp. Þótt ekki sé hægt að
spá neinu um veturinn út frá þess-
um leik reikna ég með að bæði
liðin verði í toppbaráttunni," sagði
Jón Kristjánsson, þjálfari og stór-
skytta Valsmanna , þegar bikarinn
var í höfn. Erlingur, bróðir hans
í KA-liðinu, taldi lið sitt hafa leik-
ið ágætlega í fyrri hálfleik en
Valsmenn að sama skapi betur í
seinni hálfleik. „Við erum ekki
með sömu breidd og Valur en þetta
á að vera í lagi. Það skiptir ekki
öllu máli þótt mörkin dreifist ekki
á marga leikmenn. Framhaldið í
vetur ræðst væntanlega af fyrstu
leikjunum í deildinni en við stefn-
um að því að vera með í barátt-
unni um titlana eins og á síðasta
tímabili," sagði Erlingur.
DAGUR Slgurðsson, fyrlrliði
Vals, tók við öðrum bikarn-
um á þremur dögum á Akur-
eyri í gærkvöldl. Á stóru
myndinni reynir Sigfús Sig-
urðsson aö stöðva Kúbu-
mannlnn Duranona.
Islandsmeistarar Vals hirtu annan bikarinn á þremur dögum er
þeir sigruðu KA í meistarakeppni HSÍ í gærkvöldi. Síðastliðinn
sunnudag urðu Valsmenn Reykjavíkurmeistarar. Leikur KA og
Vals í gærkvöldi var hörkuleikur á köflum og heimamenn lengst
af með nokkur tök á framvindu hans en Valsmaskínan hrökk í
gang á réttum tíma. Valur sigraði
andi lokasprett.
IVjokkur eftirvænting ríkti i
* '■KA-heimilinu því bikar-
meistararnir voru nú að tefla fram
nýjum leikmönnum
stefán Þór óiðu menn sér-
Sæmundsson staklega spenntir
skrifarfrá eftir að sjá tröllið
Akureyri Duranona hleypa
af. Hann er burðug-
ur leikmaður og væri eflaust enn'
betri ef hann fengi brot af keppnis-
skapi Patreks að láni. Patti lék
við hvurn sinn fingur eins og kýrn-
ar í ljóði Laxness og skoraði 13
mörk en Duranona lét sér 6 nægja.
Hann virtist hafa lítið fyrir þessu
framan af en þyngdist er á leið.
26:23 eftir jafnan og spenn-
KA-menn voru sterkari í fyrri
hálfleik og yfirleitt með 2-3 marka
forystu. Guðmundur Arnar varði
rnjög vel, t.d. lokaði hann alveg á
Ólaf Stefánsson sem var loks tek-
inn út af og Júlíusi Gunnarssyni
teflt fram í hans stað. Það gekk
betur en annars var það þjálfarinn
Jón Kristjánsson sem hélt Vals-
mönnum inni í leiknum með falleg-
um mörkum og glæsilegum línu-
sendingum á Sigfús Sigurðsson.
í seinni hálfleik fór heimamönn-
um að fatast flugið. Ekkert kom
út úr hornunum eða línunni og
Patrekur stóð einn fyrir flugelda-
sýningu og gerði 6 fyrstu mörk
KA í hálfleiknum og reyndar 3
þau síðustu í fyrri hálfleik. í heilar
28 mínútur samfleytt skoraði ekki
annar KA-maður en Patrekur!
Valsmenn komust loks yfir
19:18 þegar 14 mín. voru eftir af
leiknum. Nú fór breiddin að segja
til sín sem og reynslan. Jón gat
leyft sér að hvíla sig á bekknum.
Ólafur og Dagur lifnuðu við og
Sigfús hélt áfram að skora af lín-
unni. KA-menn áttu ekkert svar
þótt Patrekur hafi reynt sitt besta.
Hann skoraði 23. mark KA þegar
4,50 mín. voru eftir og staðan þá
23:24. Valsmenn lokuðu nú öllum
glufum og læddu inn tveimur
mörkum. Guðmundur varði víti frá
Patreki þegar 1,40 mín. var eftir
og tók Duranona í nefið á svipað-
an hátt þegar 54 sekúndur lifðu
af leiktímanum. Alls varði hann
fjögur vítaköst frá þeim félögum.
„Það var lítill stöðugleiki í þessu
HANDKNATTLEIKUR
ÍSLENDINGAR hafa aðeins einu sinni áður far-
ið til Rúmeníu — það var 1968. íslenska liðið lék
tvo leiki í ferðinni, sem var á þeim tíma eins
lengsta og erfiðasta ferð sem landslið íslands
hafði farið. Fyrri leikurinn fór fram í Búkarest
og tapaðist hann, 15:17. Seinni leikurinn fór fram
i norðurhluta landsins, Cluj, þar sem heimamenn
unnu 23:14.
KR - EVERTOIM: JOE ROYLE Á GÓÐAR MINNINGAR FRÁ ÍSLANDI / D4