Morgunblaðið - 24.09.1995, Blaðsíða 1
A UDITT - NOAHFRA VW - GLÆSILEGURINITIALE -
MITSUBISHIGA US - GAZ 69 RÚSSAJEPPIÁRGERÐ1956
Sölumenn
bifreiðaumboðanna
annast útvegun
lánsins á 15 mínútum
Giitnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER
1995
BLAÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FERÐAKLÚBBURINN 4x4 heldur sína árlegu jeppasýningu I Laugardalshöllinni um helgina. Þar eru hátt í 50 mikið breyttir jeppar
sýndir en sýningin verður opinn fram til kl. 22 í kvöld, sunnudag. A bls. C4 er sagt frá breytingum á Ram pallbíl í máli og myndum.
Volvo S4 í stað 400
FYRIR rúmu hálfu ári var frum-
kynntur í Amsterdam Mitsubishi
Carisma,_ bíll mitt á milli Laneer og
Galant. A alþjóðlegu bílasýningunni
í Frankfurt var tvíburi Carisma frá
Volvo, S4, frumkynntur en bílarnir
eru báðir smíðaðir í NedCar verk-
smiðjunum í Hollandi sem Mitsubis-
hi og Volvo eiga með hollenska rík-
inu. S4 er líka mitt á milli núver-
andi 400 línu og 850 en hann er 4
sm lengri en Carisma og meira í
hann lagt. Framleiðslu á 400 bílun-
um verður hætt nú með tilkomu S4.
Volvo S4 er framhjóladrifínn,
fjögurra hurða bíll, 4,48 m á lengd.
Línurnar eru allar mun mýkri en
menn eiga að venjast frá Volvo. S
stendur fyrir stallbak en seinna
kemur á markað F4 sem er hlað-
baksútfærsla og þriðja nýjungin frá
Volvo verður C7 sem er blæju- og
tveggja dyra sportútfærsla af 850
bílnum.
S4 verður líklega kominn á mark-
að næsta vor víðast hvar í Evrópu
og verður bíllinn á svipuðu verði
og Audi A4. Staðalbúnaður í S4
verður m.a. fjórir líknarbelgir, þar
af tveir í hliðunum. Hurðir eru
styrktar til að þola árekstur á 65
km hraða á klst. Einnig verður
ABS-hemlalæsivörn og fjórir
hnakkapúðar staðalbúnaður. Inn-
byggður barnabílstóll í aftursæti
verður aukabúnaður sem og raf-
stýrð sjálfskipting og loftræstikerfi.
Val um fjöðrun
S4 verður boðinn með tveimur,
nýjum vélum, þ.e. 1,8 lítra vél sem
skilar 115 hestöflum, er 10,5 sek-
úndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða
á klst og nær 195 km hámarks-
hraða. 2,0 lítra vélin skilar 137
hestöflum, er 9,3 sekúndur úr kyrr-
stöðu í 100 km hraða á klst og nær
210 km hámarkshraða.
Þá getur kaupandi valið um hvort
hann tekur undirvagn með þægi-
legri og slaglangri fjöðrun eða stíf-
ari og sportlegri fjöðrun. Volvo
bryddar einnig upp á þeirri nýjung
að um leið og kveikt er á ökuljósun-
um kviknar á fjórum gulum stöðu-
ljósum sem staðsett eru nálægt öll-
um fjórum hornum stuðaranna.
Auk þess er ný gerð hemlaljósa á
S4, svonefnd LED-lugt, sem kvikn-
ar mun fyrr á, eða á einni millisek-
úndu, en á hefðbundnum hemlaljós-
um tekur það 250 millisekúndur að
verða ljós frá því stigið er á heml-
ana. Þetta þýðir að hemlunarvega-
lengd ökumanns sem ekur á eftir
S4 á 130 km hraða á klst styttist
um 8,7 m þurfi hann að snögg-
hemla. ■
VOLVO S4 með mjúkar
línur og ríkulegan búnað
tekur við af 400-línunnL