Morgunblaðið - 29.09.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Jty*«gtutIiIftfriU)i
1995
KNATTSPYRNA
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER
BLAÐ
KOLBRÚN Jóhanns-
dóttir, markvörður
Fram í handknattleik,
mun að öllum likindum
leika tímamótaleik í
næstu viku, þegar hún
leikur sinn sex hundr-
aðasta leik í handknatt-
leik, en enginn annar
íþróttamaður á íslandi
hefur náð svo mörgum
leikjum. „Mig minnir að ég hafi fyrst spilað á
útimóti á Húsavík fyrir tuttugu og tveimur
árum,“ sagði Kolbrún í gær, „maður gerir sér
varla grein fyrir breytingunum þó að þær séu
alltaf einhveijar. Ég ætla að reyna að þrauka
veturinn en veit ekki hvort það gengur upp.
Þetta er auðvitað stór áfangi
en breytir litlu, það bætist
bara við einn leikur til við-
bótar og skemmtilegast ef
maður nær að standa sig
almennilega. Annars lít ég
björtum augum á framtíðina
hjá okkur í Fram, við höfum
nægan mannskap í vetur en
eigum bara eftir að fínpússa
liðið saman,“ bætti Kolbrún
við.
Kolbrún nálgast
600. leikinn
__ Reuter
PAUL Rldeout, sóknarlelkmaður Everton, sækir að marki KR-inga á Goodison Park — Brynjar Gunnarsson er tll varnar. 18.422
áhorfendur sáu Evrópuleikinn, sem Everton vann 3:1. Einar Þór Daníelsson skoraði fyrsta mark lelksins á 22. mín.
1.500 stúku-
miðar til
Tyrklands
ÍSL AND og Tyrkland mæt-
ast í Evrópukeppni landsliða
á LaugardalsveUinum 11.
október. Mikill áhugi er fyr-
irleiknum í Tyrklandi og
hefur Knattspyrnusamband
íslands sent út 1.500 stúkum-
iða til Tyrklands. Þá hefur
ferðaskrifstofa í Englandi
óskað eftir að fá 200 til 300
stúkumiða til umráða.
Vegna fyrirspurna um miða
hefur KSÍ ákveðið að hefja
forsölu á miðum á leikinn í
dag og verða þeir seldir lyá
íslenskum getraunum, í
verslunum Eymundsson og í
Spörtu á Laugarvegi.
Verkfall set-
ur strik í
reikninginn
Guðjón á lörum til ÍA
íslandsmeistaramir hafa boðið Guðjóni Þórðarsyni fjögurra ára óuppsegjanlegan samning
Guðjón Þórðarson, þjálfari KR,
verður næsti þjálfari íslands-
meistara Akurnesinga í knatt-
■■■■■■ spyrnu, samkvæmt
ValurB. áreiðanlegum heim-
Jónatansson ildum Morgunblaðs-
skritarfrá jns. Hann mun að
Uverpool öllum líkindum
skrifa undir fjögurra ára samning
við félagið eftir helgina. Guðjón
hefur þjálfað KR síðustu tvö keppn-
istímabil og hefur liðið orðið bikar-
meistari undir hans stjórn bæði
árin.
Guðjón, sem lék um árabil með
Skagamönnum, þjálfaði lið ÍA áður
en hann fór yfir til KR; tók við ÍA
í 2. deild 1991, stýrði því upp í
fyrstu deild og gerði liðið að ís-
landsmeistara 1992 og 1993. KR-
ingar hafa lagt áherslu á að halda
Guðjóni í Vesturbænum, en heimild-
ir herma að af því verði ekki því
tilboð Skagamanna sé það gott.
Það spilar einnig inn í ákvörðun
Guðjóns að hann á einbýlishús á
Akranesi, sem hefur staðið autt.
Hann hefur líka verið á hrakhólum
með húsnæði í Reykjavík síðan
hann tók við KR — hefur þrisvar
þurft að skipt um íbúð þessi tvö ár.
Heimildir blaðsins herma að
Skagamenn hafi rætt við Guðjón
strax í ágúst. Fari Guðjón upp á
Akranes, eins og allt bendir til, set-
ur það KR-inga í mikinn vanda því
þeir hafa verið ánægðir með störf
hans í Vesturbænum. Ekki er hægt
að sjá í fljótu bragði hver er hugsan-
legur arftaki hans í starfi hjá KR,
og gæti þurft að leita út fyrir land-
steinana eftir þjálfara.
Eins er talið víst að ef Guðjón
fer frá KR muni hann taka með sér
tvo leikmenn, Steinar Adolfsson,
sem ávallt hefur dreymt um að leika
við hlið bróður síns, Ólafs í Skaga-
vörninni, og Guðmund Benedikts-
son. Eins er líklegt að Mihajlo Bi-
bercic verði ekki áfram hjá KR og
hann hefur reyndar lýst því yfir að
ef hann spili áfram á íslandi verði
það undir stjórn Guðjóns.
Guðjón sagði við Morgunblaðið
eftir leikinn í gær að hann vildi
ekki tjá sig mikið um þessi mál á
þessu stigi. „Ég er samningsbund-
inn hjá KR fram yfir Evrópukeppni
og því ekki tímabært að gefa neitt
út á þessari stundu. Ég neita því
ekki að Skagamenn hafa boðið mér
ijögurra ára samning. KR-inga
hafa rætt við mig tvisvar um áfram-
hald en ekki lagt fram neitt borð-
leggjandi. Þetta skýrist allt á næstu
dögum þegar við komum heim,“
sagði Guðjón.
ÍÞRÓTTALÍF í Svíþjóð er
að lamast vegna verkfalls
starfsmanna sveitarfélaga.
Ekki er ástandið reyndar
svo slæmt I öllum sveitarfé-
lögum, en þegar hefur
tveimur knattspyrnuleikj-
um, sem eru á sænsk-
íslenska getraunaseðlinum
um helgina, verið frestað
vegna verkfalls hinna ýmsu
vaUarstarfsmanna. Það eru
leikir númer 2 og 3, annars
vegar Norrköping - Deger-
fors oghins vegar Trelle-
borg - Óster. Dregið verður
um táknin sem verða á get-
raunaseðlinum, og eru mest-
ar Iíkur á að um heimasigur
verði að ræða. Farið er eftir
getspá tíu sænskra blaða
þegar táknin eru sett í pott,
og eru þau 7 heimasigrar 2
jafntefli og 1 útisigur í fyrri
leiknum og 6-3-1 í þeim
seinni.
KORFUKNATTLEIKUR: TIIMDASTOLL VAIMIMIR OVÆIMTIURVALSDEILDIIMIMI / C2