Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.09.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA Jty*«gtutIiIftfriU)i 1995 KNATTSPYRNA FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER BLAÐ KOLBRÚN Jóhanns- dóttir, markvörður Fram í handknattleik, mun að öllum likindum leika tímamótaleik í næstu viku, þegar hún leikur sinn sex hundr- aðasta leik í handknatt- leik, en enginn annar íþróttamaður á íslandi hefur náð svo mörgum leikjum. „Mig minnir að ég hafi fyrst spilað á útimóti á Húsavík fyrir tuttugu og tveimur árum,“ sagði Kolbrún í gær, „maður gerir sér varla grein fyrir breytingunum þó að þær séu alltaf einhveijar. Ég ætla að reyna að þrauka veturinn en veit ekki hvort það gengur upp. Þetta er auðvitað stór áfangi en breytir litlu, það bætist bara við einn leikur til við- bótar og skemmtilegast ef maður nær að standa sig almennilega. Annars lít ég björtum augum á framtíðina hjá okkur í Fram, við höfum nægan mannskap í vetur en eigum bara eftir að fínpússa liðið saman,“ bætti Kolbrún við. Kolbrún nálgast 600. leikinn __ Reuter PAUL Rldeout, sóknarlelkmaður Everton, sækir að marki KR-inga á Goodison Park — Brynjar Gunnarsson er tll varnar. 18.422 áhorfendur sáu Evrópuleikinn, sem Everton vann 3:1. Einar Þór Daníelsson skoraði fyrsta mark lelksins á 22. mín. 1.500 stúku- miðar til Tyrklands ÍSL AND og Tyrkland mæt- ast í Evrópukeppni landsliða á LaugardalsveUinum 11. október. Mikill áhugi er fyr- irleiknum í Tyrklandi og hefur Knattspyrnusamband íslands sent út 1.500 stúkum- iða til Tyrklands. Þá hefur ferðaskrifstofa í Englandi óskað eftir að fá 200 til 300 stúkumiða til umráða. Vegna fyrirspurna um miða hefur KSÍ ákveðið að hefja forsölu á miðum á leikinn í dag og verða þeir seldir lyá íslenskum getraunum, í verslunum Eymundsson og í Spörtu á Laugarvegi. Verkfall set- ur strik í reikninginn Guðjón á lörum til ÍA íslandsmeistaramir hafa boðið Guðjóni Þórðarsyni fjögurra ára óuppsegjanlegan samning Guðjón Þórðarson, þjálfari KR, verður næsti þjálfari íslands- meistara Akurnesinga í knatt- ■■■■■■ spyrnu, samkvæmt ValurB. áreiðanlegum heim- Jónatansson ildum Morgunblaðs- skritarfrá jns. Hann mun að Uverpool öllum líkindum skrifa undir fjögurra ára samning við félagið eftir helgina. Guðjón hefur þjálfað KR síðustu tvö keppn- istímabil og hefur liðið orðið bikar- meistari undir hans stjórn bæði árin. Guðjón, sem lék um árabil með Skagamönnum, þjálfaði lið ÍA áður en hann fór yfir til KR; tók við ÍA í 2. deild 1991, stýrði því upp í fyrstu deild og gerði liðið að ís- landsmeistara 1992 og 1993. KR- ingar hafa lagt áherslu á að halda Guðjóni í Vesturbænum, en heimild- ir herma að af því verði ekki því tilboð Skagamanna sé það gott. Það spilar einnig inn í ákvörðun Guðjóns að hann á einbýlishús á Akranesi, sem hefur staðið autt. Hann hefur líka verið á hrakhólum með húsnæði í Reykjavík síðan hann tók við KR — hefur þrisvar þurft að skipt um íbúð þessi tvö ár. Heimildir blaðsins herma að Skagamenn hafi rætt við Guðjón strax í ágúst. Fari Guðjón upp á Akranes, eins og allt bendir til, set- ur það KR-inga í mikinn vanda því þeir hafa verið ánægðir með störf hans í Vesturbænum. Ekki er hægt að sjá í fljótu bragði hver er hugsan- legur arftaki hans í starfi hjá KR, og gæti þurft að leita út fyrir land- steinana eftir þjálfara. Eins er talið víst að ef Guðjón fer frá KR muni hann taka með sér tvo leikmenn, Steinar Adolfsson, sem ávallt hefur dreymt um að leika við hlið bróður síns, Ólafs í Skaga- vörninni, og Guðmund Benedikts- son. Eins er líklegt að Mihajlo Bi- bercic verði ekki áfram hjá KR og hann hefur reyndar lýst því yfir að ef hann spili áfram á íslandi verði það undir stjórn Guðjóns. Guðjón sagði við Morgunblaðið eftir leikinn í gær að hann vildi ekki tjá sig mikið um þessi mál á þessu stigi. „Ég er samningsbund- inn hjá KR fram yfir Evrópukeppni og því ekki tímabært að gefa neitt út á þessari stundu. Ég neita því ekki að Skagamenn hafa boðið mér ijögurra ára samning. KR-inga hafa rætt við mig tvisvar um áfram- hald en ekki lagt fram neitt borð- leggjandi. Þetta skýrist allt á næstu dögum þegar við komum heim,“ sagði Guðjón. ÍÞRÓTTALÍF í Svíþjóð er að lamast vegna verkfalls starfsmanna sveitarfélaga. Ekki er ástandið reyndar svo slæmt I öllum sveitarfé- lögum, en þegar hefur tveimur knattspyrnuleikj- um, sem eru á sænsk- íslenska getraunaseðlinum um helgina, verið frestað vegna verkfalls hinna ýmsu vaUarstarfsmanna. Það eru leikir númer 2 og 3, annars vegar Norrköping - Deger- fors oghins vegar Trelle- borg - Óster. Dregið verður um táknin sem verða á get- raunaseðlinum, og eru mest- ar Iíkur á að um heimasigur verði að ræða. Farið er eftir getspá tíu sænskra blaða þegar táknin eru sett í pott, og eru þau 7 heimasigrar 2 jafntefli og 1 útisigur í fyrri leiknum og 6-3-1 í þeim seinni. KORFUKNATTLEIKUR: TIIMDASTOLL VAIMIMIR OVÆIMTIURVALSDEILDIIMIMI / C2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.