Morgunblaðið - 06.10.1995, Side 1
LÆQSTA-VERÐ
ABYRGÐ
Á BÍLALEIGUBÍLUM
FLORIDA 7.590
BRETLAND 13.020
KANARÍ 11.690
TÚNIS 29.900
MAROKKÓ 24.700
MALAGA 9.980
BAHAMAS 21.060
Innifalið í verði er: kaskótryngina, lækkun sjólfsábyrgi
trygging g. stuldl og allir staðbundnir skattar. 011 verð i
Islenskum krónum og eru vikuverð.Florida: ótakmarka
|ðar,
... ....... eru I
ótakmarkaður
588 35 35
Oplð mán-fös 9-18 lau 10-14
Morgunblaðið/BT
LÍFVERÐIR Bretadrottningar við Buckingham-höll í Lundúnum.
Mikil asókn í stuttar
ferðir til Lunduna
UM 1.600 manns hafa bókað sæti í
haustferðir Heimsferða til Lundúna.
Þar af seldust um 1.200 sæti í ág-
úst, þegar ferðaskrifstofan auglýsti
fyrst ódýrar ferðir þangað. Uppselt
var í fyrstu ferðina, sem farin var í
gær, en flogið verður tvisvar í viku
í leiguflugi með Boeing 737-vélum
frá breska félaginu Sabre Airways.
Að sögn Andra Más Ingólfssonar,
forstjóra Heimsferða eru fyrirhugað-
ar 18 haustferðir til Lundúna með
leiguvélum frá Sabre Airways. „Eft-
irspurn er mikil og ég er að kanna
möguleika á að fá stærri flugvélar
fyrir ferðir sem farnar verða í nóvem-
ber.“ Verð á Lundúnarferðum
Heimsferða er misjafnt og kosta
ódýrustu farseðlar tæplega 17 þús-
und krónur. Er þá miðað við að flog-
ið sé út á mánudögum og komið
heim á fímmtudögum. Verð er
nokkru hærra sé flogið út á fímmtu-
dögum og heim á mánudögum.
Einnig er hægt að kaupa flug og
gistingu í þrjár nætur og kostar slík-
ur pakki tæpar 20 þúsund krónur í
október, miðað við að farið sé á
mánudegi og komið heim á fimmtu-
degi og að tveir deili herbergi. Andri
Már segir gistingu á Great Eastern
Hotel á óvenju ódýra. „Hópur fólks
átti bókuð herbergi á hótelinu í októ-
ber en hætti við og því gátum við
fengið herbergi á mjög góðu verði.“
Astæðu þess að verð á flugfari til
Lundúna er ódýrara á mánudögum
en fimmtudögum segir Andri Már
vera einfalda: „Eftirspurn er meiri í
helgarferðir en ferðir í miðri viku og
verð er einfaldlega hærra þegar eftir-
spurn er meiri." ■
Eins og greifar
|] með leigubíl í skólann
t. * ia___i„_ X
ÞAÐ er óneitanlega
sérstakt að sjá nemend-
ur Menntaskólans við
Sund mæta í fyrstu
kennslustundina þessa
dagana. Þeir koma
nefnilega eins og greif-
ar í leigubílum í kjölfar
samnings nemendafé-
lags skólans og BSR.
Nemendurnir eru eðli-
lega ánægðir með
samninginn, enda
þægilegt að vera sóttir
heim í hlað. Þeir
greiða eitt hundrað
krónur hver fyrir akst-
urinn, eða tuttugu
krónum minna en fyrir farið með
strætó. Upphæðin er óháð því hve
margir eru í leigubílnum hverju
sinni. Þannig fóru Guðjón Magn-
ússon og Hallgrímur Orn Arn-
grímsson tveir saman í leigubíl á
miðvikudag og greiddu samtals
fyrir túrinn frá Álftalandi í Foss-
voginum 200 krónur.
Guðjón sem er nemandi í 1.
bekk MS, gat ekki notfært sér
þjónustuna fyrsta daginn sem hún
var veitt þar sem hann þurfti að
mæta á æfingu vegna stærðfræði-
keppni framhaldsskólanna sem
verður haldin innan fárra vikna.
Hann fékk hins vegar leigubíl að
Morgunblaðið/Þorkell
HALLGRÍMUR Örn Arngrímsson, t.v., og Guðjón
Magnússon borga Mikael Einari Reynis hjá BSR.
heimili sínu á miðvikudagsmorgun
í fyrsta skipti, og var ánægðúr
með þjónustuna. Guðjón veit ekki
hversu lengi nemendur skólans
eiga kost á að fá far með leigubíl
í skólann en vonast til að svo verði
áfram.
Hallgrímur sem einnig er í 1.
bekk, býr við hliðina á Guðjóni
og voru þeir samferða í skólann.
Hann segir að fólk sé ánægt með
leigubílaaksturinn. „Við getum til
dæmis hlustað á útvarpið,“ segir
hann og bætir við að þeir félagar
hafi hlustað á X-ið. Þeir hafi þó
verið ánægðastir sem fengu far
með límósínu í skólann. ■
Spiladósatónlist sem
ætti að vera við hæfi jafnt
yngri sem eldri fjölskyldumeðlima
ALLIR sem hafa eignast börn
vita hvað spiladósatónlist, þar
sem sama lagið er leikið aftur og
aftur og spannar ekki meira en
eina áttund, getur verið þreyt-
andi. Nú geta foreldrar hins veg-
ar varpað öndinni léttar því loks-
ins er hægt að fá spiladósatónlist
sem allir aldurshópar geta notið.
„Um daginn kom til dæmis
fullorðin kona sem hafði heyrt
þessa tónlist spilaða í húsi þar
sem hún var gestkomandi og hún
keypti eina geislaplötu fyrir sjálfa
sig,“ segir Aðalheiður Karlsdóttir,
eigandi Englabarnanna, en hún
hefur frá því í byrjun september
haft til sölu geislaplötur og
snældur þar sem sígild tónlist og
önnur vinsæl tónlist er útsett fyr-
ir spiladós og sinfóníuhljómsveit.
„Pabbarnir eru yfirleitt ekki mjög
virkir þegar foreldrar koma hing-
að saman, en þeir skoða geisla-
plöturnar og það eru þeir sem
ákveða að kaupa plöturnar."
Vlldi láta barniA hlusta á
sígilda tónlist
Aðalheiður segir að þýskur
tónlistarmaður, Achim Perleberg,
hafi fengið hugmyndina að út-
setningunni þegar hann eignaðist
barn fyrir fjórum árum. Hann
hafði sjálfur leikið sígilda tónlist
í sinfóníuhljómsveitum og vildi
gjarnan að barnið hans hlustaði
á slíka tónlist. Hann tók hins
vegar eftir því að barnið hafði
meira gaman af að hlusta á spila-
dós. Þá datt honum í hug að slá
tvær flugur í einu höggi og út-
setja sígilda tónlist fyrir spiladós.
Þar sem spiladósir hafa venju-
lega mjög lítið tónsvið var honum
vandi á höndum því hann varð
að finna rétta dós sem gæti
náð yfir margar áttund-
ir. í Sviss er sterk
hefð fyrir spila-
dósum og
þar hafði
hann
upp á
fólki
sem gat
búið til dós sem
uppfyllti kröfur
hans.
Nú er búið að gefa út á plötum
og snældum, almenna sígilda tón-
list, tónlist eftir Mozart, fræg
evrópsk þjóðlög, tónlist þar sem
kýr, sauðfé og önnur dýr taka
undir, lög eftir Bítlana, ástarlög,
vögguljóð og lög sem er þægilegt
að hlusta á í morgunsárið, svo
það ætti að vera hægt að finna
eitthvað við hæfi allra í fjölskyld-
unni, stórra sem smárra. ■