Morgunblaðið - 11.10.1995, Síða 4
■■■■
"|[.. Tirm~m------irm
KNATTSPYRNA
Þorsteinn
aftur í KR
ÞORSTEINN Guðjónsson,
sem lék með Grindvfldngum
sl. tvö keppnistímabil, hefur
ákveðið að ganga tíl liðs við
KR. Hann er KR-ingur að
upplagi og lék með félaginu
áður en hann fór til Grinda-
víkur fyrir tveiraur árum.
Tómas Ingi Tómasson og
Þorsteinn Jónsson, leikmenn
Grindavíkur, hafa einnig lýst
áhuga sinum á að leika með
KR og eru í viðræðum við
félagið.
Brann hefur
enn áhuga
áBirki
NORSKA félagið Brann setti
sig í samband við Birki Krist-
insson, landsliðsmarkvörð úr
Fram, í júlí í sumar og vildi
þá fá hann strax út til að
klára timabilið með félaginu.
Birkir neitaði þvi hins vegar
enda íslandsmótíð rétt hálfn-
að. Birkir segir að forráða-
menn norska félagsins hafi
þá sagst vi[ja fá hann fyrir
næsta tímabil. „Ég veit ekk-
ert hvað verður. Þeir hafa
ekki haft samband aftur en
þeir lýstu áhuga á að tala við
mig fyrir næsta keppnistima-
bil,“ sagði Birkir. Þrjár um-
ferðir eru nú eftir í norsku
deildinni.
Kristjáp
þjálfar ÍR
KRISTJÁN Guðmundsson
var í gær ráðinn þjálfari 2.
deildarliðs ÍR í knattspyrnu.
Samningur hans er til
tveggja ára. Kristján var með
liðið í sumar ásamt Braga
Björnssyni, eftir að Heimir
Karlsson hættí störfum hjá
félaginu. Kristinn Helgi
Gunnarsson, fojrmaður knatt-
spyrnudeildar ÍR, segir að
með ráðningu Krisljáns, sem
er heimamaður, sé verið að
byggja upp tfl framtíðar.
í kvöld
Knattspyrna
Evrópukeppni landsliða:
Laugardalur: ísland - Tyrkland 20
Handknattleikur
1. deild kvenna:
20
Kaplakriki: FH - Fylkir 18.15
20
2. deiid karla:
Digranes: HK - Ármann 20
Fylkishús: Fylkir - Fjölnir 20
Strandgata: ÍH - Fram 20
Bikarkeppnin:
Akranes: IA - ÍR b 20
Höllin: Ögri - FH b 21.30
Körfuknattleikur
1. deild kvenna:
Hagaskóli: KR - Valur 20
Keflavík: Keflavík - UMFG 20
Niarðvík: UMFN - ÍR 20
-m. ML
IÞRmR
Jtl
Lúkas í vesturbæinn
Morgunblaðið/Ásdís
LÚKAS Kostic skrifaðl í gær undir þriggja ára þjálfarasamning við KR-inga. Björgólfur GuA-
mundsson, formaAur knattspyrnudeildar KR (fyrlr mlAju), kynnti nýráAinn þjálfara á blaAa-
mannafundi í gær. Lengst til hægri er Haukur Gunnarsson, varaformaAur knattspyrnudeildar.
Lúkas Kostic, nýráðinn þjálfari KR-inga
Kominn hingad
til að vinna vel
LÚKAS Kostic, sem hefur þjálf-
að Grindvíkinga síðustu tvö
keppnistímabil, skrifaði undir
þriggja ára þjálfarasamning við
KR í gær. Hann verður einnig
framkvæmdastjóri meistara-
flokks og mun jafnframt hafa
umsjón með unglingaþjálfun
félagsins. Hann verður með
aðstoðarmann úr röðum KR-
inga, en ekki er ákveðið hver
það verður.
Björgólfur Guðmundsson, for-
maður knattspymudeildar,
sagði á blaðamannafundi í gær að
dagurinn boðaði vonandi gott því
veðrið væri það gott í vesturbænum.
„Guðjón [Þórðarson] er farinn ann-
að og við óskum honum alls hins
besta í nýju starfí. Nú er hafínn
nýr tími hjá okkur og við höldum
áfram því öfluga uppbyggingar-
starfí sem hófst hér fyrir tveimur
árum. Það verður hlutverk Kostic
að halda því starfí áfram,“ sagði
formaðurinn.
Hann sagði að allir leikmenn iiðs-
ins frá því í sumar, utan Mihajlos
Bibercic - sem þegar hefur ákveðið
að ganga til liðs við ÍA - og Stein-
ars Adolfssonar hafí lýst áhuga á
að vera áfram í herbúðum KR-inga.
Eins væri óvíst með Daða Dervic
og Sahli Heimi Porca. „Við höfum
rætt við alla strákana og erum
núna á fullu í að ganga frá samn-
ingum við þá. Það er ljóst að það
verða einhveijar breytingar á liðinu,
en ekki miklar. Við leggjum áherslu
á að uppistaðan og kjarninn í liðinu
séu KR-ingar í hjarta sínu,“ sagði
Björgólfur. „Við ræddum við fleiri
þjálfara, en töldum Kostic albesta
kostinn í stöðunni og erum því mjög
ánægðir að hafa fengið hann í Vest-
urbæinn."
Lúkas Kostic sagðist ánægður
HANDKNATTLEIKUR
Jason markahæst-
ur hjá Brixen
Jason Ólafsson, handknattleiks-
maður sem leikur með ítalska
liðinu Brixen, lék sinn fyrsta opin-
bera leik með liðinu í Aþenu um
helgina, í Borgakeppni Evrópu.
Brixen lék gegn Vrilissia i Aþenu
og tapaði 29:22 og gerði Jason 9
mörk fyrir sitt lið. Brixen var
þremur mörkum undir þegar 8
mínútur voru til leiksloka en
Grikkirnir náðu að auka muninn
fyrir leikslok. Jason átti góðan
leik og var að sögn blaða á Italíu
besti maður liðsins. Deildakeppnin
á Ítalíu byijar í kvöld og sagði
Jason í spjalli við Morgunblaðið
að sér hefði gengið vel í æfínga-
leikjum í haust en í rauninni vissi
hann ekki hvemig deildin á Ítalíu
væri og hvar Brixen stæði í henni.
með að vera kominn til KR. „Það
var gott að vera hjá Grindvíkingum
'og ég kveð þá með söknuði. Það
er hins vegar ögrandi að taka við
svona öflugu liði. Ég hef það mik-
inn metnað sem þjálfari að ég gat
því ekki skorast undan þegar KR-
ingar buðu mér starfíð. Mér líst vel
á allar aðstæður hér hjá KR og
hlakka til að takast á við þetta
verkefni sem bíður mín. Það verður
erfítt og krefjandi, en ég legg mig
allan fram. Ég er kominn hingað
til KR til að vinna vel,“ sagði þjálf-
arinn.
Kostic, sem er 37 ára og hefur
verið búsettur á íslandi í sjö ár, býr
enn í Grindavík, en sagðist ætla að
flytja til Reykjavíkur eftir áramótin.
Hann sagði að æfíngar myndu hefj-
ast hjá KR í nóvember.
Björgólfur bætti því við að KR-
ingar héldu upp á aldarafmæli fé-
lagsins árið 1999, eða þegar Kostic
er að ljúka þriggja ára samningi
sínum. ,jÞá vonumst við til að sá
„stóri“, Islandsbikarinn, verði kom-
inn i bikarasafnið okkar,“ sagði
formaðurinn.
■ JASON Willford, leikmaður úr-
valsdeildarliðs Hauka, var úrskurð-
aður í eins leiks bann vegna óíþrótta-
mannslegrar hegðunar í garð dómar-
ans eftir leik Njarðvíkinga og
Hauka sl. sunnudag. Leikbannið tek-
ur gildi á föstudag og missir hann
því af leik Hauka gegn KR á sunnu-
daginn.
■ DANIR mæta Spánveijum í 2.
riðli í undankeppni Evrópumótsins í
Kaupmannahöfn í dag og dugar lið-
unum jafntefli til að tryggja sig í
úrslitakeppnina. Danir verða án
Brians Laudrups, sem er meiddur
á ökkla og Claus Thomsen, leik-
manns Ipswich, en hann tábrotnaði
á æfíngu með landsliðinu á mánu-
daginn. í hans stað kemur Torben
Piechnik inn í hópinn.
■ ALAN Shearer verður í fremstu
víglínu enska landsliðsins sem mætir
Norðmönnum í vináttulandsleik í
Ósló í kvöld. Margir bjuggust við
að Les Ferdinand fengi loks tæki-
færi eftir góða frammistöðu með
Newcastle að undanförnu, en svo
verður ekki. Robert Lee, miðvallar-
leikmaður Newcastle, tekur stöðu
Pauls Gascoignes sem er meiddur.
Enska liðið verður þannig skipað í
kvöld: David Seaman; Gary Ne-
ville, Stuart Pearce, Tony Adams,
Gary Pallister, Robert Lee, Jamie
Redknapp, Steve McManaman,
Dennis Wise, Nick Barmby og
AlanShearer.
■ JÚRGEN Klinsmann, sem var
kosinn knattspymumaður Englands
í fyrra, kom til Englands í gær með
þýska landsliðinu sem mætir Wales
í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem
Klinsmann kemur til Englands eftir
að hann fór frá Tottenham og gerð-
ist leikmaður með Bayern Miinchen.
Framheijamir Mark Hughes og Ian
Rush leika ekki með Wales vegna
meiðsla.
■ SVISS leikur síðasta leik sinn í
3. riðli gegn Ungveijum á heima-
velli sínum í Ziirich í kvöld. Þessi
lið eru í riðli með íslendingum,
Tyrkjum og Svíum. Sviss er efst í
riðlinum með 14 stig, einu stigi meira
en Tyrkland, sem á eftir tvo útileiki
— gegn íslendingum og Svíum.
URSLIT
Handknattleikur
1. deild kvenna
Stjaman - Valur........26:14
Herdís Sigurbergsdóttir skoraði flest mörk
Stjömunnar 5, en Gerður Beta Jóhannsdótt-
ir gerði flest fyrir Val, 4.
1. DEILD KVENNA
Fj. leikja U J T Mörk Stig
HAUKAR 3 3 0 0 93: 54 6
STJARNAN 2 2 0 0 47: 30 4
FRAM 2 2 0 0 46: 30 4
FH 2 2 0 0 46: 41 4
KR 2 1 0 1 56: 44 2
ÍBV 2 1 0 1 45: 37 2
FYLKIR 2 1 0 1 36: 43 2
VÍKINCUR 2 0 0 2 36: 44 0
VALUR 4 0 0 4 76: 102 0
ÍBA 3 0 0 3 42: 98 0
Basler ekki til Ítalíu?
ÞÝSKI landsliðsmaðurinn Mario
Basler, sem hafði í hyggju að
fara frá Werder Bremen til
Parma á Ítalíu, virðist ekki ætla
að verða að ósk sinni því í gær
hafði þýska liðið ekki fengið neitt
tilboð frá Ítalíu í miðjumanninn
sem var annar af tveimur marka-
kóngum þýsku deildarinnar á
liðnu tímabili.
Gert hafði verið ráð fyrir að
Basler léki með Parma út tíma-
bilið og færi síðan tíl AC Milan.
Willi Lemke hjá Bremen sagði
að félagið væri tilbúið að láta
Basler fara ef samningar tækjust
„en hann er samningsbundinn
okkur til 2000 og við viljum frek-
ar hafa hann í liðinu en pening-
ana,“ sagði Lemke. Bremen setur
sem samsvarar um 700 milljónir
á kappann.