Morgunblaðið - 13.10.1995, Side 2

Morgunblaðið - 13.10.1995, Side 2
2 B FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Breytingaskeið kvenna ekki vandamál ef tilfinningarnar eru í jafnvægi Morgunblaðið/Kristinn DR. Farida Sharan segir vandamál alltaf tilfinningalegs eðlis áður en þau verði að líkamlegum vanda. ^ „ÞAÐ var svo heitt í Colorado W) að ég gat ekki hugsað mér “J að hita vatn. Þess vegna kom ftli ég með teið hingað," segir 3E Farida Sharan, rúmlega fimmtug kanadísk kona sem stödd var hér á landinu fyrir skömmu í boði Fannýjar Jónmundsdóttur. Teið er grískt, afar bragðsterkt og sérkennilegt og lyktin af því er enn í vitum manns mörgum klukkustundum síðar. Og Farida er ekki ósvipuð - hún hefur sterk- an persónuleika, hún er sérstök og lyktin sem umvefur hana er mild og notaleg jurtalykt. Farida Sharan var stödd hér á íslandi til að halda fyrirlestra og námskeið um breytingaskeið kvenna, um lithimnugreiningu, náttúrulækningar, blómadropa og um það hvernig fólk verður að bera sjálft ábyrgð á eigin heilsu. Um fjörutíu konur sóttu nám- skeiðið og segir Farida að hún hafi sjaldan kynnst jafnáhugasöm- um nemendum. „Það er helst að ég hafi orðið vör við þennan mikla áhuga í Malasíu og þar er hann ekki síður meðal karla en kvenna.“ Konurnar, sem eru á mismunandi aldri úr öílum stéttum þjóðfélags- ins, eru bæði byrjendur og lengra komnar í fræðunum. Og þær ætla ekki að láta hér við sitja heldur stofna náttúrulækningaskóla á ís- landi og verður hann rekinn í tengslum við heimaskóla sem Farida rekur í Boulder í Colorado í Bandaríkjunum. Þær sem sækja skólann í vetur geta útskrifast í maí 'að ári en þá ætlar Farida að koma aftur til landsins. Læknaði slg sjálf af krabbameini Farida hefur stundað náttúru- legar heilunaraðferðir í yfir tutt- ugu ár eða allt frá því að hún greindist með krabbamein í bijósti. Hún segist hafa farið til læknis og hann hafi sagt henni að það yrði að taka af henni bijóstið. Það vildi hún ekki en þess í stað fór hún að stunda sjálfsrækt. „Ég hugsaði með mér að ég myndi þá að minnsta kosti deyja hamingju- söm,“ segir hún. „Nú er krabba- meinið hins vegar horfið og það eina sem minnir mig á það er ofurlítinn tilfinn- ingalegur sársauki ef ég ýti á svæðið þar sem berið var.“ Þó hún sjálf hafi kosið þessa leið segist Farida bera fullt traust til lækna og hefðbund- innar heilsugæslu. Aðferðir hefð- bundinnar læknisfræði dugi bara ekki einar. Náttúrulækningar, heilun og aðrar þær aðferðir sem hún noti byggist á aldagömlum hefðum og þær snúist m.a. um að kenna fólki leiðir til sjálfshjálpar og að þekkja þau merki sem líkam- inn notar til að segja að honum sé nóg boðið. Farida hefur haldið fyrirlestra og námskeið víða um heim og skrifað nokkrar bækur t.d. um breytingaskeiðið. Þá hefur hún hlotið margar viðurkenningar fyrir störf sín og m.a. er hún heiðurs- doktor við Mediciana Alt- emativa í Kaupmannahöfn. Sharan fæddist í Kanada árið 1942. Hún flutti til Cambridge í Englandi, seint á áttunda áratugn- um, þar sem hún stofnaði lit- himnulestursskóla og náttúru- lækningaskóla. Fyrir sjö árum flutti hún til Colorado þar sem hún setti höfuðstöðvar skólanna á stofn. Náttúrulækn- ingaskóli á ís- landi í tengl- um við skóla Sharan. Basískar fæðutegundir (80% fæðunnar) ÁVEXTIR Apríkósur Avokndo Bananar, þroskaðir Ber Döðlur Epli Ferskjur Gráfíkjur Greipávextir Kirsuber Mangó Melónur Ólífur, ferskar Perur Rúsínur Sítrusávextir (appeisínur, sítrónur ofl.) geta virkað ýmist sem basískir eða súrir þar sem þeir innihalda.mikið af kalki. 1ÆNMETI lúrkur lunaspírur lunir, grænar íimkál aslaukur tlaukur t- og rauðkál pur ■rikur, grænar og rauðar ipir, flestir MJOLKURVORUR AB-mjólk Mjólk (ógerilsneydd) Mysa ANNAÐ Alfalfa spírur Engifer, þurrkað Eplaedik Hunang Möndlur Heimild: Faride Sharon „Herbs of Grace“ Súrar fæðutegundir (20% fæðunnar) ÁVEXTIR Bananar, grænir Niðursoðinn matur Plómur Sítrusávextir Sveskjur og sveskjusafi Ólífur og matur í pækli GRÆNMETI Baunir Hnetur Laukar Linsubaunir Rabarbari Tómatar MJÓLKURVÖRUR Kotasæla Ostur Smjör is Mjólk KJÖTOG FISKUR Fiskur, allur Fuglakjöt Kjöt, allt KORNMETI Brauð Bökur og sætabrauð Haframjöl Hveitivörur, allar Hrísgrjón Kleinuhringir Kökur Núðlur Pasta ANNAÐ Áfengi Edik Egg Kakódrykkir Kaffi Kóladrykkir Krydd Matarolíur Salatsósur Sósur Sultur og hlaup Sælgæti Tóbak RÁÐ VIÐ SÚRNUN Sítrónusafi með 1 tsk af eplaediki, heitu vatni og hunangi Kalk Súr og basískur matur FARIDA Sharan hefur skrifað nokkrar bækur og er ein þeirra Herbs ofGrace. Þar er lítill kafli sem heitir Súrt/basískt jafnvægi þar sem hún fjallar um flokkun fæðu. Hér á eftir fer lausleg þýðing á því sem þar segir svo lesendur geti glöggvað sig á hvað höfundur á við þegar hann talar um rétt mataræði. Vísindin hafa skipt mat, rétt eins og efnafræðilegum efnum, í tvo hópa: basískmyndandi eða jákvæðan, hollan mat og sýru- myndandi eða neikvæðan, óholl- an mat. Ef yfir 80% af fæðunni sem við borðum er basísk við- helst eðlilegt sýrustig blóðsins. Þetta er mikilvægur lykill að réttu fæðuvali. Þó sumar fæðutegundir séu sýrumyndandi, skuluð þið ekki sleppa þeim alveg. Notið þær rétt og í réttu magni þannig að fæða ykkar verði góð. Hvíld og svefn eru basísk sem og æfingar, ferskt loft, ánægja, hlátur, gott spjall, skemmtun og ekki síst ást. Farið í kalda sturtu á eftir heitu baði eða sturtu til að fá basíska og orkugefandi verkun. Prófið það! Verið vak- andi og lifandi. Áhyggjur, ótti, reiði, slúður, fjandskapur, öfund, eigingirni og græðgi eru súr. Reynið að losa líkama ykkar við þessa Morgunblaðið/María Hrönn FETAÐ í fótspor hundraða kynslóða, niður Almannagjá, í „gulum, rauðum, grænum, bláum regnkápum, eins og regnbogi meistarans ...“ í Almannagjá „MÁ EG prófa?“ spyr sonurinn, tæplega tveggja ára gamall, hæverskur. Hann langar að stappa í polli sem hann hefur komið auga á. „Já, auðvitað máttu prófa,“ segir mamma en hugsar um leið að hún hefði átt að klæða hann i stígvél. En hvað með það, stígvélin eru í „stóra bílnurn", nýju Marcopolo rútunni frá Teiti Jónassyni, og þar eru líka þurrir sokkar. Og þau eru nú einu sinni í landkönnunarleið- angri, á einum helgasta stað þjóðarinnar, Almanna- S'á. Lægðinnf lá á Laufásborgarbörn, starfsfólk, foreldrar, ömmur og afar, fóru nefnilega í haustferð til Þingvalla á dögunum. Ætlunin var að fara milli lægða en á íslandi er allra veðra von. Lægðinni lá á og kom þess vegna yfir landið degi á undan áætlun. En það LAUFÁSBORGARBÖRNIN, Margrét, Ríkey, Smári og Anna Lind, gæða sér á pylsum og drekka Frissa fríska með. er allt í lagi, öll börn eiga polla- galla og góða peysu og engin ástæða til að hika. Minnstu börnin ganga niður Almannagjá en þau stóru fara lengra og skoða Oxará og Drekk- ingarhyl. Þau kunna líka að syngja „Öxar við ána, árdags í ljóma ...“ Blómunum er kalt „Nei sko, sjáðu hér eru ber,“ segir mamma og stígur út af göngustígnum sem liggur að Hótel Valhöll. „Eigum við að smakka?"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.