Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 B 7
FERÐALÖG
lítið skylt með fólkinu, sem fylgdi
honum þessa leið, en hermennirnir
eru enn á sínum stað. Nútímaher-
maðurinn, grænklæddur, í skotheldu
vesti, með vélbyssu um öxlina,
táragasbyssu hangandi aftan á bak-
inu, hjálm dinglandi í beltinu og
gyðingahúfuna á kollinum, er sífelit
á verði og fylgist grannt með gestum
og gangandi.
Kjólar og kjötskrokkar
Líklega er á fáum stöðum á jarð-
kringlunni hægt að upplifa mannlíf-
ið í skrautlegri mynd en innan
veggja þessarar gömlu borgar.
Kristnir ferðalangar ganga upp Via
Dolorosa með leigðan kross á bak-
inu til þess að upplifa á sjálfum sér
píslargönguna. Gangan fer fram
meðfram sölubúðunum við undirleik
hrópa og kalla sölumannanna og
háværra bænagjörða múslimanna,
sem hljóma úr hátölurum mo-
skanna.
Meðfram þröngum götunum
standa sölubásar og varningnum er
stillt upp í furðulegan hrærigraut.
Hlið við hlið hanga kjólar og kjöt-
skrokkar, þar sem öll flugnaflóran
lifir góðu lífi. Þeir veita okkur mikla
-athygli, arabísku sölumennirnir, þau
'eru ófá bónorðin sem berast okkur
með háværum köllum niður göturn-
ar. Við gerum okkur grein fyrir því
að þetta hafi ekkert með sanna ást
að gera, heldur sjái þeir í okkur
hugsanlega búsetu í öðru landi.
Af öllum frægum stöðum gömlu
borgarinnar er grátmúrinn líklega
þeirra frægastur. Það er ógleyman-
leg upplifun að vera í gömlu borg-
inni á laugardegi þegar sabbat er
að ljúka og gyðingar safnast saman
til bænagjörða. Það ber mest á gyð-
ingum, í svörtum frökkum með
svarta hatta á höfði og síða vanga-
lokka. Þeir eru einhvern veginn ógn-
vekjandi í þeirri einangruðu og skil-
yrðislausu trú, sem þeir túlka upp
við múrinn. Þeir eru líkt og í eigin
heimi, sem enginn utanaðkomandi
hefur aðgang að. Innan um svart-
klæddu gyðingana má sjá græn-
klædda hermenn, sem leggja frá sér
vopnin rétt á meðan þeir biðjast fyr-
ir. Öll þessi bænagjörð fer fram
undir vökulum augum hermanna,
sem stilla sér upp í gluggum hús-
anna í kring, með byssuhlaupin til-
búin í hvað sem er.
Snúa baki við myndavélinni
Við yfirgefum gömlu borgina um
leið og gyðingarnir. Það fer lítið
fyrir eiginkonum þeirra, sem hafa
afmarkað rými við grátmúrinn, öllu
krossa til að ganga með á
bakinu upp Via Dolorosa og
upplifa píslargönguna.
KJÓLAR og lqötskrokkar
hanga hlið við hlið í furðuleg-
um hrærigraut í sölubásunum.
minna en körlunum er ætlað. Við
erum hálfhræddar þar sem við
stöndum skyndilega einar kvenna í
hópi þessara karla. Hún verður ein-
hvern veginn áþreifanieg sú skoðun
þeirra að þeir séu öðruvísi og betri
en aðrir dauðlegir menn. Okkur
langar til að taka mynd af hópnum,
en þeir snúa við okkur baki þegar
við mundum myndavélina.
Eftir þessa reynslu er gott að
koma við í garðinum hjá American
Colony hótelinu. Af öllum stöðum í
heiminum hlýtur þessi að vera með
þeim friðsælli og fegurri. Hótelið er
í byggingu þar sem eitt sinn bjó
stöndugur sóldán. Hans skoðun á
konum mun hafa verið ólík þeirri
sem við upplifðum við grátmúrinn
því hann átti fjórar konur, sem hann
elskaði undurmikið og ofurheitt.
Hann reisti þeim öllum hús og hand-
an þessara fjögurra húsa er garður-
inn, þar sem maður býst ósjálfrátt
við að sjá þau Adam og Evu koma
gangandi ljóslifandi og. skála við
okkur afkomendur sína. Sífelldar
hringingar úr símunum í vösum
gestanna kippa manni inn í raun-
veruleika breyttra tíma.
Friösælt í myrkrinu
Það er gott fyrir sálina að enda
daginn með því að aka upp á hæðina
fyrir ofan borgina og horfa á ljósin
sem breiða úr sér óendanleg í allar
áttir. í myrkrinu sýnist allt svo frið-
sælt, borgarmörk og ófriður víðsfj-
arri. Arabinn, sem hefur bækistöð
sína hér á daginn, er búinn að pakka
saman. Óhreinn og ágengur býður
hann til sölu hass og póstkort. Eða
að taka mynd af þér á baki úlfalda.
Hann á tvo slíka, mögur og illa hald-
in dýr, sem á einhvern hátt líkjast
eiganda sínum. Eftir kyrrðarstund
á hæðinni er haldið heim á leið. Það
er létt yfir hermönnunum í varðskýl-
inu þegar við höldum inn í austur-
hlutann. í þetta sinn gefa þeir okkur
merki um að stansa. Við búum okk-
ur undir langa yfirheyrslu, en þeir
vilja bara spjalla.
Þeir sitja fyrir utan húsið á horn-
inu, arabawiir, nágrannar okkar. Þar
eyða þeir kvöldunum hver í félags-
skap annars. Við og við skjótast eig-
inkonur þeirra út úr húsunum og
færa þeim te. Að öðru leyti ber lítið
á þessum fallegu konum, sem ekk-
ert sést í nema andlitið. Allt annað
er hulið öllum þessum klæðum og
maður hefur það á tilfinningunni að
umheimurinn sé á sama hátt hulinn
þeim.
Við sitjum úti í heitri nóttinni og
bíðum eftir næstu bænastund músli-
manna. Þá kemur hann út með
bænamottuna sína, maðurinn í hús-
inu á móti, og tekur undir bæna-
gjörðina, sem hljómar í næturkyrrð-
inni um alla borgina. Asninn og
haninn í bakgarðinum taka undir.
Það er venjulega haninn sem á síð-
asta orðið, sem hægt væri að túlka
sem amen, alveg eins og hvað ann-
að. En ef til vili er hann að segja
shalom, friður, sem í þessu landi er
hugtak, en ekki raunveruleiki. ■
Þórunn Stefánsdðttir
Komur erlendra
ferðamanna til
landsins frá 1985
Erlendir ferðamenn í janúar-september
1995 FJöldi % Breyt. fra fyrra ári
I.Þýskaland 33.001 20,4 5,5%
2. Bandaríkin 23.001 14,2 10,5%
3.Danmörk 18.725 11,6 10,4%
4. Svíþjóð 16.002 9,9 ■4,6%
5. Bretland 13.435 8,3 ■9.9%
6.Noregur ..12,104 “Tö ■7,4%
7,Frakkland 8.736 5,4 0,2%
8. Sviss 7.075 4,4 55,4
9. Holland 5.308 3,3 ■13,1%
10. Finnland 3.629 2,2 9,7%
Önnur 20.785 12,8 m?,2%
Samtals 161.801 100,0 4,0%
NÆSTUM jafn margir útlendingar og íslendingar komu til íslands
í síðasta mánuði. Heildarfjöldi farþega sem þá kom til landsins
með skipum og flugvélum var rétt rúmlega 31 þúsund. Þar af voru
tæplega 15.700 íslendingar og rúmlega 15.400 útlendingar.
Það sem af er árinu hafa samtals komið til landsins 278.388
farþegar. Þar af eru útlendingar í meirihluta, eða um 162 þúsund.
Eins og sjá má á töflunni hér að ofan, er hér um nokkra aukningu
að ræða frá síðasta ári. Fyrstu níu mánuðina 1994 komu um 260
þúsund farþegar og fjölgaði þeim milli áranna 1994 og 1995 um
7%. Útlendingum í hópnum fjölgaði um 4% eða úrtæpum i 56
þúsundum.
Komum skemmtiferðaskipa til íslands og farþegum með þeim
hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin sumur. Síðasta sumar komu
til landsins með skemmtiferðaskipum 21.348 farþegar í 50
ferðum. Langflestir farþeganna eða 11.441 voru frá Þýskalandi.
Bretar voru rétt rúmiega þrjú þúsund talsins og Bandaríkjamenn
tæplega þrjú þúsund. Tæplega 2.000 Frakkar komu til íslands í
sumar með skemmtiferðaskipum, tæplega 500 ítalir og 350
Austurríkismenn. Aðrar þjóðir vógu mun minna í heildarfjöldanum.
Fjöldi farþega sem
komu með skemmti- []
ferðaskipum til
landsins frá 1982 i
15 þús.
Fjöldi skemmti-
ferðaskipa tii 50
landsins frá 1982
40
Dýrkeypt
reynsla í Prag
Það getur orðið ferðalöngum dýrkeypt
reynsla og óskemmtileg að ferðast með
leigubíl í Prag. Leigubílstjórar í borginni
hafa margir hverjir gerst svo djarfir að
krefjast okurverðs fyrir farið, oft með
„tilheyrandi“ móðgunum og jafnvel stimp-
ingum. Fréttir hafa verið sagðar af ferða-
mönnuni sem hafa þurft að borga tífalt
hærra gjald en eðlilegt getur talist fyrir
far með leigubíl frá flugvellinum og inn
í borgina.
Engar fréttir hafa hins vegar borist af
því að bílstjórar hafi gefið farþegum sínum
rafstuð til að neyða þá til að greiða upp-
sett okurverð, en í frétt í tékkneska dag-
blaðinu Mlada Fronta Dnes segir að leigu-
bílstjórar hafi hótað að setja búnað til
slíkra verka í farþegásætin.
En það eru líka til heiðarlegir leigubíl-
stjórar í Prag og þeir fylgja settum reglum
um fargjöld. Samkvæmt reglunum kostar
hver kílómetri 12 tékkneskar krónur, sem
jafngildir tæpum 30 íslenskum krónum.
Fjórar stillingar eru á gjaldmælunum og
eiga þeir að vera stilltir á einn í innan-
borgarakstri. Ekki er þó alltaf allt sem
sýnist, því sumir bílsjórarnir blekkja far-
þega sína og breyta mælunum. Margir
farþegar hafa því gripið til þess ráðs að
semja um fargjaldið við bílstjórann áður
en lagt er af stað.
VIÐ Karlsbrú.
Þeim sem dvelja á hóteli er ráðlagt að
biðja starfsmenn hótelsins að hringja á
Ieigubíl. Margar áreiðanlegar leigubíla-
stöðvar eru í Pagr, svo sem Profitaxi (6104-
5555) og AAA (3399). Enska er töluð á
báðum stöðvunum. Varist hins vegar leign-
bílana á Mala Strana, Wences/as-torgi og
Karlsbrú. ■
Þýtt og endursagt úr New York Times.
HVERNIG VflR FLUGIÐ?
Ketlavík - Amsterdam - Kaíió
ÁLNARLANGAR biðraðir við inn-
skriftarborð í Leifsstöð og ég hundsá
eftir að hafa ekki farið að ráði heims-
vanrar konu og „tjekkað" mig inn sím-
leiðis daginn áður. Saga-klass borð vildi
ekkert fyrir mig gera. „Við eigum von
á hópi.“ Sá hópur var ekki mættur þeg-
ar ég fór í gegnum fyrirhafnarlausa
vegabréfsskoðun 45 mínútum
síðar.
Stundvíslega var lagt af
stað eftir að hafa haft 10
mínútur í fríhöfn, vélin var
nær full en ég sá sæti aftast
tómt (-4-ein stúlka) og færði mig þangað
eftir flugtak. Stúlkan sú stundi og grét
stöðugt og þegar ég hafði borðað kalda
omelettu og heitt brauð flúði ég í mitt
fyrra sæti. Flugfreyjur sögðu mér að
hún væri bakveik og hefði beðið um
þijú sæti. Það var ekki á henni að sjá
þegar á Skiphól kom og hún vippaði
töskum sínum af bandinu eins og að
drekka vatn, þá var hún líka snarhætt
að skæla.
Síðan tók við 5 klst. bið á Skiphól og
kallað útí KLM-vél á réttum tíma. Um
sama leyti ákváðu hleðslumenn að fara
í skyndiverkfall. Flugstjóri tilkynnti 2
klst. töf. Leyft var að reykja, drykkir
bornir fram í massavís og flugfreyjur
sýndu vinsemd og kátínu svo farþegar
héldust allir í sólskinsskapi þrátt fyrir
töfina, síðan ákváðu verkfallsmenn að
nú væri nóg komið og lagt af stað um
kl. 9 í stað 7.
Ferðin gekk snurðulaust fyrir sig. I
Fiskur með hrísgijónum, pera í eftirmat
í góðu lagi. Kvikmyndin fór *
fyrir ofan garð og neðan en ég
hafði rænu á að kaupa mér „tí-
sjört“ milli þess sem ég rabbaði
við málglaðan sessunaut sem
kvaðst vera kopti og hafði verið
í heimsókn hjá þremur systrum sínum í
Bandaríkjunum og Hollandi.
Þegar hann kom að því í frásögn sinni
að hann væri í smávandræðum, því
bandarísk vinkona hans ætti von á barni
og konan hans í Kaíró mundi verða ansi
leið ef hún vissi það, pantaði ég tvöfald-
an koníak og sagðist verða að leggja
mig.
Það gekk greiðlega að komast í gegn i
í Kaíró, klukkan var að ganga þijú um
nótt og von bráðar brunaði ég áleiðis i
til míns frumstæða hótels í Garden City j
og vetrardvalar í Kaíró. ■
• •••
KLM
Jóhanna Kristjónsdóttir