Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 B 3 DAGLEGT LÍF BREYTINGASKEIÐIÐ ER... einstaklingsbundin reynsla. þegar tíðablæðingum lýkur. ferill sem tekur mörgár. tilfinningalegt, andlegt, líkamlegt. fagnaðarefni. tími nýrra hugmynda. tækifæri til að breyta til. tækifæri til að Ijúka verkefnum. tækifæri til að hætta að bæla sársauka og ótta. tækifæri til að fara ofan saumana á sínu innsta eðli. tækifæri til að leita, finna, fljúga - stefna hátt. tækifæri fyrir konur til að vera þær sjálfar. tækifæri til að vera hreinskilin. rétti tíminn til áð hlúa að andlegum þroska. BREYTINGASKEIÐIÐ ER EKKI... langvarandi sjúkdómur. eingöngu í kollinum á konum. feimnismál. eitthvað til að vera hrædd við. eitthvað sem á að hunsa eða afneita. BREYTINGASKEIÐIÐ... gerir konur ekki að síðri kynverum. gerir konur ekki gamlar. gerir konur ekki einskis nýtar. Heimild: Faride Sharon „Creative Menopause" Námskeiðið sem Farida hélt hér á landi var um breytingaskeið kvenna enda er hún sérfræðingur í málefnum er snerta heilsu þeirra. Hún fjallaði m.a. um nauðsyn þess að skilja hvernig vandamál eru jafnan tilfinningalegs eðlis áður en þau verða að líkamlegum vanda og að þess vegna sé mjög nauðsyn- legt að fólk hreinsi út slæmar til- finningar. Ýmsar aðferðir megi nota til þess t.d. hugleiðslu, rétt mataræði, jurtir og blómadropa. Drekka vatn og jurtaseyði Með lithimnugreiningu má á auðveldan hátt, að sögn Faridu, sjá hvað helst hijái manneskju og segir hún að oft létti fólki mjög þegar það fær loksins einfaldar skýringar á vanlíðan sinni. „Kaffi- drykkja skaðar t.d. nýmahettum- ar og hindrar þannig eðlilega myndun hormóna. Þetta skiptir miklu máli vegna þess að eftir breytingaskeiðið er megin mynd- unarstaður kynhormóna þar,“ seg- ir Farida og leggur áherslu á að fólk drekki sem minnst af kaffi og kóladrykkjum en drekki hreint vatn þess í stað. Einnig sé mikið til af góðum jurtaseyðum og bend- ir hún m.a. á að seyði úr brenni- netlu og baldursbrá séu holl, sér- staklega fyrir konur sem eru á breytingaskeiðinu því jurtirnar innihaldi náttúrulega hormóna. Seyði úr elftingu, túnfífl og vall- humli og fjallagrasamjólk séu einnig góð heilsunni. Farida segir að vegna þess að konur upplifa breytingaskeiðið á mjög mismunandi hátt sé ekki hægt að ætlast til að ein tafla af hormónum á dag henti öllum kon- um. Þar á ofan sé breytingaskeið- ið ekki eingöngu vegna eðlilegra breytinga á líkamsstarfseminni. Konur hafi svo mikið á sinni könnu að þær stundi ekki nauðsynlega sjálfsrækt fyrir utan það að sinna útliti, klæðnaði og líkamsrækt og afleiðingarnar séu að koma í ljós. Hún segir að á þessu æviskeiði fái konur tækifæri til að staldra við og fara að huga að eigin heilsu og að í rauninni sé lífið rétt að byija þegar breytingaskeiðið heíj- ist. ■ mhg Og svo tínir mamma margar lúkur fullar af stórum, safaríkum krækibeijum og gefur stráknum sínum. „Meira, mamma. Hérna, hérna,“ segir hann og mamma hefur ekki við. Síðan er haldið af stað að nýju, varirnar á stráknum svolítið bláar og fingumir á mömmu líka. Svo hellir Guð úr nokkrum föt- um yfir Þingvelli. Allir verða renn- andi blautir. Strákinn langar allt í einu í snuddu sína en mamma segir: „Ekki núna, hún er í stóra bílnum." „Nei, í vasanum," segir snáðinn og vill ekki láta plata sig. Mamma þráast við en sonurinn á ráð undir rifi hveiju. „Mamma, hlaupa! Hlaupa hratt!“ Svo gleym- ir hann snuddunni og fer að hugsa um aumingja blómin. „Blómin kalt.“ Orkugefandl hœnublundur Nú er kominn tími til að fá sér pylsu og Frissa fríska. í Valhöll er allt lokað og læst þó von hefði verið á öðru. Sárasta hungrið er því satt með kexi og safa og svo er brunað af stað til Hveragerðis. Og þá er aldeilis ágætt að nota tímann vel fá sér svolitla orkuhænu. Rigningin bylur á rúð- unum - nei hættu nú - hliðarrúðan við bílstjórasætið fýkur úr falsinu. Þá eru góð ráð dýr og Jóhanna leikskólastjóri leggst á rúðuna svo hún haldist á sínum stað. Vömbln kýld í Hveragerði er vömbin kýld með grilluðum pylsum og pylsu- brauði. Þegar allir eru orðnir sadd- ir er haldið heim á leið, í úrhelli og þoku. Lagið er tekið og allir syngja svo undir tekur: „Við skýin felum ekki sólina af illgirni. Við skýin erum bara að kíkja á leiki mannanna . . .“ Landkönnuðirnir litlu eru þreyttir en ánægðir eftir skemmti- lega ævintýraferð og í hugskóti þeirra leynist nú mynd af Þingvöll- um í fallegum haustskrúða. ■ mhg Svo hellir Guð úr nokkrum fötum yfir Þingvelli. Áhyggjur í tíma og ótíma ÁHYGGJUR, kvíði og ótti eru tilfinningar sem flestir þekkja, en reynist misjafniega auðvelt að lifa með, bægja í burtu eða skilgreina fyrir sjálfum sér. Ástæð- urnar geta verið af ýmsum toga. Stundum er ástandið viðvarandi, stundum tímabundið. Langvarandi áhyggj- ur geta haft slæm áhrif á andlega og líkamlega heilsu og þá kann að vera ástæða til að grípa í taumanna og leita sér hjálpar. Að hafa áhyggjur af því að hafa áhyggjur hljóm- ar öfugsnúið og síst til þess fallið að létta lund. Ekki ætti þó að saka að kanna hug sinn og reyna að komast að því hvort ekki mætti láta sér sitthvað í léttu rúmi liggja, sem ef til vill hefur valdið óþarfa taugaspennu um langa hríð. En hvenær er hægt að meta hvenær ástæða er til að hafa áhyggjur, hvenær ekki og að hve miklu leyti er hægt hafa stjórn á slíkum tilfinningum? Hér á síðunni er smávegis spurn ingapróf, sem breska tímaritið Woman’s Jo- urnal fékk Dr. Raj Persaud, geðlækni, til að útbúa, og er ætlað að auðvelda slíkt mat. Sé spurningunum heiðarlega svarað ættu niðurstöð- urnar að varpa örlitlu ljósi á stöðu mála og vekja fólk til umhugsunar. ÁHYGGJUFULL/UR - ÁHYGGJULAUS? HÉR fara á eftir tuttugu staðhæfingar, sem einungis má svara með „sammála“ eða „ósammála". Lestu hveija staðhæfíngu vandlega og ákveddu hvaða við- brögð lýsi tilfínningu þinni best. Ekki freistast til að líta á niðurstöðurnar neðst í rammanum. Svaraðu öllum spumingunum samviskusamlega og ef þú ert ekki viss um viðbrögð þín veldu þá svarið sem þér finnst fremur við hæfi. 1. Vináttubönd mín rofna aldrei. Sammála A □ Ósammála B □ 2. Mörgum af gagnstæða kyninu fínnst ég óaðlaðandi. Sammála B □ Ósammála A □ 3. Ég kem aldrei heimskulega fyrir sjónir. Sammála A □ Ósammála B □ 4. Framtíðarhorfur mínar í vinnunni eru ótryggar. Sammála B □ Ósammála A □ 5. Ég fylgist vel með nýjungum, sem tengjast starfi mínu. Sammála A □ Ósammála B □ 6. Þjóðfélagið á við alvarlega erfíðleika að etja. Sammála B □ Ósammála A □ 7. Ég tek strax upp gluggapóstinn. Sammála A □ Ósammála B □ 8. Hugsanlega er ég mun verri til heilsunnar en ég geri mér grein fyrir._ Sammála B □ Ósammála A □ 9. Framtíðin verður betri en fortíðin. Sammála A □ Ósammála B □ 10. Eitthvað hræðílegt gæti verið í þann mund að bresta á. Sammála B □ Ósammála A □ 11. Ég er jafn fljót/ur að hafa mig til og hver annar. Sammála A □ Ósammála B □ 12. Mér er illa við að snerta sjúkt fólk. Sammála B □ Ósammála A □ 13. Ég er fljót/ur að gleyma mistökum mínum í vinn- unni. Sammála A □ Ósammála B □ 14. Ég hef óbeit á sjúkrahúsheimsóknum. Sammála B □ Ósammála A □ 15. Ég aðgæti aldrei hvort ég hafí örugglega læst dyrunum á eftir mér. Sammála A □ Ósammála b □ 16. Þegar ég er í fríi hef ég miklar áhyggjur af hvem- ig gangi heima. Sammála B □ Ósammála A □ 17. Ég á auðvelt með að fyrirgefa mannlegan breysk- leika. Sammála A □ Ósammála B □ 18. Það sem ég vil að vel sé gert geri ég sjálf/ur. Sammála B □ Ósammála A □ 19. Ég vil frekar fara út að borða heldur en borða heima. Sammála A □ Ósammála B □ 20. Ég forðast að nota almenningssalemi nema í allra brýnustu neyð. Sammála B □ Ósammála A □ Legðu saman A-ln og B-ln. 16 eða fleiri B: Mjög áhyggjufull/ur Þú hefur áhyggjur af því sama og flestir, en munurinn er sá að þú hefur áhyggjur í mun lengri tíma. Þú er sannfærð/ur um að þér takist ekki að breyta hlut- skipti þínu og óttast þau örlög, sem þér eru ásköpuð. Ein leið til að ráða bug á kvíðanum er að fara djúpt í saumana á möguleikum þínum til að leysa vandann. Mundu að viðvarandi áhyggjur geta verið verri örlögv en að taka á vandanum af æðruleysi þegar og ef hann brestur á. 10-15 B: Áhyggjufull/ur Þú ert ekki næstum eins áhyggjufull/ur og þeir sem fengu 16 stig eða fleiri. Samt veldur tilhneigingin til að dæma sjálfa/n þig óvægilega, áhyggjur af tímasetn- ingum og fullkomnunarárátta því að þú lifír fremur óafslöppuðu lífí. Frammistaða þín í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur myndi batna til muna ef þú hefðir minni áhyggjur. Hins vegar ertu haldin/n þeirri mein- loku að ef þú hættir að hafa áhyggjur standir þú þig ekki eins vel. Ef áhyggjurnar eru raunhæfar gætir þú hugsanlega komist hjá ýmsum vandræðum, en hví að eyða dýrmætum tíma í óþarfa? Fjölskylda eða vinir verða líka hundleiðir á að hlusta á áhyggjurausið í þér. 6-10 B: Áhyggjulftil/I Þú ert næstum laus við áhyggjur og ert fjarri því að vera eins upptekin/n af heilsufarinu eins og þeir sem fengu fleiri B. Þó koma þeir dagar að þú hefur áhyggj- ur af fjárhagnum eða fínnst þú ættir að láta þig varða meira um ýmis málefni eins og stjórnmál og þjóðfélags- ástandið. Þú átt til að forðast eins og heitan eldinn að taka líf þitt föstum tökum og því hefur endrum og sinnum áhyggjur af því hvemig málin þróast. 0-5 B: Áhyggjulaus Þú hefur hvorki áhyggjur af heilsunni, fjármálum, samböndum, starfi né fjölskyldu. Þú lifír því afslöpp- uðu lífí, en sá er hængur á að þú ert afar illa búin/n undir áfóll, gagnstætt þeim áhyggjufullu, sem eru allt- af undir það versta búnir. Þeir sem fengu 0-5 B geta lent í alls konar óvæntum og miður skemmtilegum uppákomum. ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.