Morgunblaðið - 14.10.1995, Síða 4
<
*
HANDKNATTLEIKUR
BIRGIR Slgurösson er reyndastl lelkmaöur Víkings og hann
var markahæstur í gærkvöldl með sex mörk.
Víkingar eru
nánast úr leik
Víkingar eru nánast úr leik í
Evrópukeppni félagsliða í
handknattleik eftir sjö marka tap
í heimaleiknum gegn Gumarny
Zubrí. Úrslit urðu 23:16 fyrir tékk-
neska liðið eftir að staðan hafði
verið 11:8 í hálfleik. Leikið var í
Zubrí og verður seinni leikurinn á
morgun á sama stað.
„Þetta var frekar vondur dag-
ur,“ sagði Árni Indriðason, þjálfari
Víkings, við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. „Þeir voru yfírleitt tveimur
til þremur mörkum yfír en þegar
11 mínútur voru eftir var munurinn
aðeins eitt mark, 15:14, eftir að
við höfðum gert þijú mörk í röð.
Þá mistókst víti hjá okkur og Knút-
ur fékk rauða spjaldið en við þetta
tvíefldust Tékkamir og sigldu
framúr."
Árni sagði að Tékkarnir hefðu
leikið af gríðaríegri hörku og kom-
ist upp með það. „Þeir eru með tvo
mjög öfluga rússneska léikmenn
og liðið er sterkt svo þetta lítur illa
út hjá okkur. Austurrísku dómar-
arnir eru reynslulitlir og létu þá
komast upp með tékkneskan leik-
araskap sem allir þekkja og þessa
miklu hörku en við reynum hvað
við getum í seinni leiknum."
Höllin í Zubrí tekur um 1.500
manns og var troðfull. Árni sagði
að stemmningin hefði verið mikil
og ljóst að Víkingar hefðu áhorf-
endur ekki með sér á morgun frek-
ar en í gærkvöldi.
Góður Rússi til Víkings
VÍKINGAR eru að vinna í því
að fá hingað til lands rússn-
eskan handknattleiksmann,
Andrij Agrasim, sem hefur
verið að leika í Portúgal. „Við
þurfum að styrkja liðið, sér-
staklega eftir að Árni Frið-
leifsson meiddist. Þessi Rússi
er tveir metrar á hæð og er
sagður góður varnarmaður og
góð skytta. Við ætlum því að
fá hann hingað til lands til að
skoða hann. Ef okkur líst vel
á hann verður hann með okkur
í vetur,“ sagði Pétur Steinn
Guðmundsson, formaður
handknattleiksdeildar Vík-
ings.
Pétur Steinn sagði að
ástæðan fyrir því að Agrasim
væri laus væri sú að portúg-
alska liðið sem hann er hjá
hefði ekki staðið við samning
sem hann gerði við félagið.
Hann er tilbúinn að koma til
íslands og er verið að vinna í
málinu þessa dagana.
Reiknað er með að hann
komi til Reykjavíkur í næstu
viku.
Tímamót í Evrópukeppni á Akureyri og í Mosfellsbæ
Fyrstu heimaleikir
Aftureldingar og KA
ÚRSLIT
Víkingur - Gumarny Zubrí 16:23
Iþróttahöllin i Zubrí í Tékklandi, fyrri leikur
i 1. umferð Evrópukeppni félagsliða í hand-
knattleik, föstudaginn 14. október 1995.
Mörk Víkings: Birgir Sigurðsson 6, Knútur
Sigurðsson 4/2, Guðmundur Páisson 2,
Hjörtur Amarson 2, Þröstur Helgason 2.
Varin skot: Reynir Reynisson 15.
Áhorfendur: 1.500.,
Körfuknattleikur
1. deild kvenna
ÍA - Tindastóll................51:74
1. deild karla
Reynir-ÍS.....................88:110
Knattspyrna
Frakkland
Lens - Martiques.................1:0
Þýskaland
Hansa Rostock - Stuttgart........8:3
(Weilandt 34., Schneider 45., Berthold 81.,
sjálfsm.) - (Bobic 28., Verlaat 52., Elber
77.). 23.620.
Schalke - Kaiserslautem..........1:1
(Mulder 79.) - (Marschall 39.). 30.200.
Mm
FOLK
■ ANDRÉSI Kristjánssyni, sem
kom Irsta í átta liða úrslit í sænsku
handknattleiksdeildinni í fyrra, hef-
ur ekki gengið eins vel í ár með
liðið. Það er á botninum eftir þrjár
umferðir með ekkert stig og 37
mörk í mínus ogþví var aðstoðar-
þjálfari þess látinn taka við af
Andrési í gær.
■ ROY Hodgson fékk í gær sam-
þykki Knattspyrnusambands Sviss
til að semja við Inter á Ítalíu svo
framarlega sem hann héldi áfram
með svissneska landsliðið fram yfír
Evrópukeppnina í júní á næsta ári.
Hodgson vill fá tvö ár til að gera
Inter að stórveldi á ný.
■ BOLTON, sem Guðni Bergs-
son leikur með í ensku úrvalsdeild-
inni, hefur keypt Sasa Curcic frá
Partisan Belgrad fyrir eina milljón
punda. Hann er miðvallarleikmaður
og landsliðsmaður Júgóslavíu.
Ekki hefur enn verið fengið at-
vinnuleyfí fyrir Curcic, en reiknað
er með að hann geti byijað með
liðinu gegn Arsenal 30. október.
Bikarmeistarar KA leika sinn
fyrsta Evrópuleik hér á landi,
þegar þeir taka á móti Víkingum
frá Stafangri í KA-húsinu á morg-
un kl. 16. Möguleikar KA-manna
eru mjög góðir, þar sem þeir töp-
uðu ekki nema með einu marki í
Stavanger - 23:24. „Við ætlum
okkur áfram og til þess að leggja
Víking að velli verðum við að leika
vel,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari
KA, sem kom inná í stutta stund
í Noregi.
Alfreð sagði að það væri alls
ekki hægt að vanmeta norska liðið,
sem væri skipað ungum, góðum
leikmönnum, en aðalmenn liðsins
væru landsliðsmaðurinn Rune Er-
land og markvörðurinn Steinar
Ege, sem varði mjög vel gegn KA
í fyrri leiknum. Reiknað er með að
fuílt hús verði á þessum fyrsta
Evrópuleik í handknattleik á Ákur-
eyri og stemmningin geysileg.
Þurfum hjálp
Afturelding, sem einnig tekur
þátt í fyrsta skipti í Evrópukeppni,
mætir Povardari Negotino frá
Magedoníu á sunnudagskvöld kl.
20 að Varmá. Möguleikar Aftureld-
ingar eru einnig góðir — liðið tap-
aði fyrri leiknum, 18:22, í Negotino
um sl. helgi.
„Við eigum mikla möguleika, það
er ekki spurning," sagði Einar Þor-
varðarson, þjálfari Aftureldingar, í
gær. „Með eðlilegri dómgæslu hefð-
um við getað sigrað úti en það verð-
ur að segjast eins og er að það sem
af er tímabilsins höfum við átt í
miklum vandræðum. Þetta er ekki
viðunandi ástand og það verður eitt-
hvað að gerast um helgina. Þrír
leikmanna minna hafa legið i flensu
í vikunni og léku veikir gegn Hauk-
um og sá Qórði lagðist í morgun
[í gær]. Ástandið er því ekki gott
en það er allt hægt. Við þurfum
mikla hjálp frá áhorfendum og von-
andi fylla þeir húsið, verða mótheij-
unum erfíðir og veita okkur góðan
stuðning."
Friðleifur meiddist
FRIÐLEIFUR Friðleifsson, fyrirliði Víkings, meiddist í byrjun leiks
gegn Gumarny Zubrí í gær og var talið að hann hefði brákast á
handarbaki. Fyrirliðinn harkaði af sér og hélt áfram að spila en
þegar líða tók á fyrri hálfleik voru kvalirnar of miklar og hann fór
af velli.
Árni Indriðason, þjálfari Víldngs, sagði að liðið mætti illa við
þessum áföllum. Ljóst væri að Árni, bróðir Friðleifs, yrði ekki með
næstu vikurnar vegna meiðsla og útlit væri fyrir að Friðleifur yrði
frá í einhverjar vikur. „Ég vona bara að Rússinn, sem kemur til
okkar eftir helgi, sé það sem við þurfum núna," sagði Árni.
■ CHELSEA keypti í gær rúm-
enska landsiiðsmanninn Dan Pe-
trescu frá Sheffield Wednesday
fyrir 2,3 milljónir punda. Kaupin eru
reyndar háð því að honum verði
veitt áframhaldandi atvinnuleyfí.
■ TREVOR Francis, þáverandi
stjóri Wednesday, keypti Rúmen-
ann frá ítalska félaginu Genúa fyr-
ir 1,3 milljónir punda fyrir síðasta
keppnistímabil.
■ ÞAÐ oili fjaðrafoki í síðasta
mánuði er haft var eftir Petrescu
í ensku blaði að hann hefði áhuga
á að leika við hlið Gullits hjá
Chelsea. Forráðamenn Wednesday
urðu æfír af reiði, sögðu leikmann-
inn samningsbundinn og ekki á för-
um. Nú hefur annað komið á daginn.
■ INGI Björn Albertsson verður
þjálfari 2. deildar liðs FH í knatt-
spymu næsta tímabi! en hann tók
við liðinu undir lok nýliðins tímabils.
■ GARY McAllister, fyrirliði Le-
eds United, meiddist í landsleik
Skota og Svía í vikunni — liðbönd
í hné tognuðu, og reiknað var með
að hann yrði frá í sex vikur. Það
kom því veruleg á óvart er tilkynnt
var í gær að hann væri í leikmanna-
hópi Leeds fyrir leikinn gegn
Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í
dag.
■ HOWARD Wilkinson, stjóri
Leeds, trylltist eftir að McAHister
meiddist. Craig Brown, landsliðs-
þjálfari Skota, hafði lofað Wilkin-
son að leikmaðurinn yrði aðeins með
í fyrri hálfleik, en stóð ekki við það
og McAllister var borinn af velli
meiddur snemma í síðari hálfleik.
■ JOHN Lukic tekur ( dag þátt í
400. leiknum með Leeds. Hann
hefur einnig leikið með Arsenal. •
■ DAVID Rocastle er í leik-
mannahópi Chelsea í dag, í fyrsta
sinn á tímabilinu, eftir að hafa náð
sér af meiðslum. Liðið mætir Aston
Villa á útivelli.
■ NIGEL Spackman byijar í dag
að taka út þriggja leikja bann sem
hann var settur í fyrir að slá einn
leikmanna Arsenal í deildarleik fyr-
ir hálfum mánuði. Leikurinn var
sýndur beintur hjá RÚV og íslensk-
ir áhorfendur urðu því vitni að því
er Spackman sló andstæðinginn í
höfuðið undir lok leiksins.
■ LES Ferdinand mætir sínum
gömlu félögum í QPR í dag í fyrsta
sinn eftir að hann fór til Newcastle
fyrir 6 milljónir punda í sumar.
Peter Beardsley, fyrirliði New-
castle, er einnig í liðinu eftir að
hafa misst af fjórum leikjum vegna
meiðsla.
■ DA VID Ginola kemur einnig inn
í lið Newcastle á ný í dag, en hann
var meiddur og var t.a.m. ekki með
franska iandsliðinu gegn Rúmenum
í vikunni. Sömu sögu er að segja
af varnarmanninum Steve Howey,
sem gat ekki verið með Englend-
ingum gegn Norðmönnum í Osló.
■ KEVIN Keegan hjá Newcastle
var kjörinn framkvæmdastjóri mán-
aðarins í ensku úrvalsdeildinni fyrir
september. Það er annar mánuður-
inn í röð sem honum hlotnast þessi
heiður.
■ ALAIN SUTTER leikmaður
Bayern Miinchen hefur samþykkt
að yfirgefa herbúðir „draumaliðs-
ins“ og ganga til liðs við Freiburg.
Frá þessu skýrði svissneska sjón-
varpið í gær.
■ ULI HOENESS framkvæmda-
stjóri Bayern og Avchim Stocker
forseti Freiburg komu sér saman
um þennan flutning í gær, að því
er fram kom í sömu frétt.
■ SUTTER sem hefur leikið 58
landsleiki fyrir Sviss hefur verið
mjög óánægður með að ná ekki að
tryggja sér fast sæti í „draumalið-
inu“ síðan hann kom í raðir þess
frá Niirnberg í fyrravor.