Morgunblaðið - 19.10.1995, Side 2
2 D FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Stjarnan - UMFA 27:31
íþróttahúsið í Garðabæ, íslandsmótið i
handknattleik, 4. umferð, miðvikudaginn
18. október 1995.
Gangu rleiksins: 0:1, 1:1, 3:3, 8:8, 8:11,
12:11, 12:12, 13:13, 15:15, 15:19, 17:20,
19:21, 19:24, 22:27, 24:27, 27:30, 27:31.
Mörk Stjörnunnar: Dimitri Filippov 10/5,
Konráð Olavson 6, Gylfi Birgisson 4, Magn-
ús A. Magnússon 2, Magnús S. Sigurðsson
2, Óskar B. Óskarsson 1, Jón Þórðarson
1, Sigurður Bjamason 1.
Varin skot: Axel Stefánsson 12 (þar af
fjögur til mótheija), Ingvar H. Ragnarsson
2 (annað til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur og rautt spjald
að auki.
Mörk Aftureldingar: Bjarki Sigurðsson
9, Róbert Sighvatsson 6, Jóhann Samúels-
son 5, Gunnar Andrésson 5, Páll Þórólfsson
4, Ingimundur Helgason 1, Bergsveinn
Bergsveinsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
13/1 (þar af sex til mótheija).
Utan vallar: 16 mínútur og rautt spjald
að auki.
Dómarar: Einar Sveinsson og Þorlákur
Kjartansson dæmdu ágætlega en misstu
tökin í lokin, þegar úrslitin voru ráðin.
Áhorfendur: Um 350.
KR - Selfoss 28:35
Laugardalshöll:
Gangur leiksins: 1:3, 2:7, 6:8, 7:12 11:15,
13:15, 13:16, 16:19, 17:23, 21:24, 24:31,
26:35, 28:35.
Mörk KR: Hilmar Þórlindsson 11/3, Einar
B. Ámason 4, Ágúst Jóhannsson 4/1, Jó-
hann Kárason 3, Ingvar Valsson 2, Gylfi
Gylfason 2, Óli B. Jónsson 2.
Varin skot: Ásmundur Einarsson 6 (þar
af 2 til mótheija). Siguijón Þráinsson 5
(þar af 1 til mótheija).
Utan vallar: 6 mín.
Mörk Selfoss: Valdimar Gn'msson 16/6,
Einar Guðmundsson 4, Einar Gunnar Sig-
urðsson 3, Grímur Hergeirsson 3, Sigurður
Þórðarson 3, Björgvin Rúnarsson 2, Atli
Marel 1, Finnur Jóhannsson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson 11 (þar
af 2 til mótheija).
Utan vallar: 6 mín.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán
Amaldsson. Dæmdu vel.
Áhorfendur: 100.
ÍBV-Valur 20:23
íþróttamiðstöðin í Eyjum:
Gangur leiksins: 1:2, 3:3, 7:4, 10:13,
12:14. 13:16, 15:17, 17:19, 17:20, 19:22,
20:23.
Mörk ÍBV: Arnar Pétursson 9/1, Gunnar
Viktorsson 7, Svavar Vignisson 3, Arnar
Richardsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur óskarsson 14/1
(Þar af tvö skot sem knötturinn fór aftur
til mótheija).
Utan vallar: 8 mín.
Mörk Vals: Ólafur Stefánsson 5, Sigfús
Sigurðsson 5, Jón Kristjánsson 3, Ingi Rafn
Jónsson 3, Valgarð Thorodsen 3, Davíð
Ólafsson 1, Sveinn Sigurfmnsson 1, Dagur
Sigurðsson 1, Júlíus Gunnarsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 14/1
(Þar af 2/1 sem fóm aftur til mótheija).
Utan vallar: 12 mín.
Dómarar: Egill Már Markússon og Örn
Magnússon, sem dæmdu vel framan af, en
misstu nokkur tök á seinni hluta síðari
háfleiks, án þess að það kæmí niður á öðru
liðinu fremur en hinu.
Áhorfendur: Um 250.
KA-Haukar 27:26
KA-heimilið:
Gangur leiksins: 1:0, 2:3, 5:5, 7:8, 9:9,
12:12, 15:15, 15:19, 20:18, 24:21, 26:25,
27:27
Mörk KA: Björgvin Björgvinsson 7, Julian
Duranona 7, Leó Örn Þorleifsson 4, Patrek-
ur Jóhannesson 4 (2), Erlingur Kristjánsson
2 og Jóhann Jóhannsson 2.
Varin skot: Guðmundur Arnar Jónsson 13
(þar af 3 til mótheija) og Björn Bjömsson
1/1.
Utan vallar: 14 mínútur.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 6 (2),
Petr Baumruk 6, Gunnar Gunnarsson 4
(1), Þorkell Magnússon 3, Aron Kristjáns-
son 3, Sveinberg Gíslason 2, Viktor Pálsson
1 og Björgvin Þorgeirsson 1
Varin skot: Bjarni Frostason 17/3 (þar af
5 til mótheija).
Utan vallar: 4 mínútur
Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson og voru þeir afar slakir.
Áhorfendur: 540.
FH - ÍR 22:22
Kaplakriki:
Gangur leiksins: 0:1, 3:3, 6:5, 9:7, 11:9,
14:10, 19:15, 21:16, 21:21 22:22.
Mörk FH: Siguijón Sigurðsson 5/2, Gunn-
ar Beinteinsson 4, Sigurður Sveinsson 4/2,
Guðjón Árnason 3, Hans Guðmundsson 3,
Sturla Egilsson 2, Hálfdán Þórðarson 1.
Varin skot: Magnús Árnason 12/2 (þaraf
7/2 til mótherja).
Utan vallar: 8 minútur.
Mörk ÍR: Daði Hafþórsson 6/1, Magnús
'Þórðarson 4, Njörður Árnason 4, Einar Ein-
arsson 3, Jóhann Ásgeirsson 2, Frosti Guð-
laugsson _ 1, Guðfinnur Kristmannsson 1,
Ragnar Óskarsson 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 14/1
(þaraf 3/1 til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Valgeir Ómarsson og Sigurður
Ólafsson, voru ekki sjálfum sér sannkvæm-
ir.
Áhorfendur: Um 200.
1.DEILD KARLA
Fj. leikja U i T Mörk Stig
KA 4 4 0 0 124: 107 8
STJARNAN 4 3 0 1 102: 94 6
FH 4 2 1 1 109: 95 5
VALUR 4 2 1 1 86: 83 5
HAUKAR 4 2 1 1 90: 89 5
ÍR 4 2 1 1 80: 82 5
SELFOSS 4 2 0 2 102: 97 4
VI'KINGUR 3 1 0 2 69: 69 2
GRÓTTA 3 1 0 2 64: 65 2
IBV 4 1 0 3 89: 93 2
UMFA 4 1 0 3 98: 108 2
KR 4 0 0 4 92: 123 0
KR-ÍR 81:80
íþróttahúsið Seltjarnarnesi, úrvalsdeildin í
körfuknattleik — 7. umferð — miðvikudag-
inn 18. október 1995.
Gangur leiksins: 0:7, 5:11, 13:11, 17:16,
23:26, 25:32, 27:39, 38:46, 38:49, 57:52,
69:74, 74:74, 74:77, 76:78, 78:80, 81:80.
Stig KR: Jonathan Bow 33, Hermann
Hauksson 13, Láras Árnason 11, Óskar
Kristjánsson 7, Atli Einarsson 6, Ingvar
Ormarsson 4, Finnur Vilhjálmsson 4, Arnar
Sigurðsson 3.
Fráköst: 13 í sókn - 28 í vöm.
Stig ÍR: Herbert Amarson 26, John Rho-
des 11, Márus Amarson 11, Eiríkur Önund-
arson 10, Jón Öm Guðmundsson 10, Broddi
Sigurðsson 6, Guðni Einarsson 4, Eggert
Garðarsson 2.
Fráköst: 7 í sókn - 20 í vörn.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Björgvin’
Rúnarsson. Komust ágætlega frá frekar
erfiðum og hröðum leik.
yillur: KR 18 - ÍR 16.
Áhorfendur: Tæplega 200.
Knattspyrna
Meistaradeiid Evrópu
A-RIÐILL:
Nantes, Frakklandi:
Nantes - Álaborg.................3:1
Nicolas Ouedec (5.), Reynald Pedros (56.),
Roman Kosecki (75.) — Jan Pedersen (46.).
30.000.
Oporto, Portúgal:
Porto - Panathinaikos............0:1
- Dimitri Markos (40.). 25.000.
Staðan:
Panathinaikos .......2 2 0 0 4: 1 6
FCPorto...............3 111 2: 1 4
Nantes................3 111 4: 4 4
Álaborg...............2 0 0 2 1: 5 0
B-RIÐILL:
Varsjá, Póllandi:
Legia - Blackburn..................1:0
Jerzy Podbrozny (25,). 15.000.
Þrándheimur, Noregi:
Rosenborg - Spartak Moskva.........2:4
Karl-Petter Loeken (2.), Harald Brattbakk
(45.) — Dmitri Alenitchev (59.), Yuri Niki-
forov (66.), Valeri Kechinov 2 (75., 82.).
12.000.
Staðan:
Spartak Moskva .......3 3 0 0 7: 3 9
LegiaVarsjáv...........3 2 0 1 5: 3 6
Rosenborg..............3 1 0 2 5: 8 3
Blackburn..............3 0 0 3 1: 4 0
C-RIÐILL:
Tórínó, Ítalíu:
Juventus - Glasgow Rangers.........4:0
Fabrizio Ravanelli 2 (15., 75.), Antonio
Conte (17.), Alessandro Dei Þiero (23.) —
Richard Gough (78.). 50.000.
Dortmund, Þýskalandi:
Dortmund - Steaua Búkarest.........1:0
Lars Ricken (58.). 35.000.
Staðan:
Juventus...............3 3 0 0 10: 2 9
Dortmund...............3 111 4: 5 4
Steaua Búkarest........3 10 2 1: 4 3
Glasgow Rangers ......3 0 1 2 3: 7 1
D-RIÐILL:
Amsterdam, Hollandi:
Ajax - Grasshopper............... 3:0
Patrick Kluivert 2 (10., 68.), Finidi George
(87.). 42.000.
Madrid, Spáni:
Real Madrid - Ferencvaros..........6:1
Raul Gonzalez 3 (23., 25., 83.), Ivan Zamor-
ano 2 (34., 46.), Fernando Hierro (55.) —
Goran Kopunovic (62.). 50.000.
Staðan:
Ajax .................3 3 0 0 9: 1 9
Real Madrid............3 2 0 1 8: 2 6
Ferencvaros............3 1 0 2 5:11 3
Grasshopper..........3 0 0 3 0: 8 0
UEFA-keppnin
Fyrri leikur, þriðja umferð:
Kaiserslautem, Þýskalandi:
Kaiserslautern - Real Betis........1:3
Harry Koch (46.) — Álfonso Perez 2 (45.,
73.), Alexis Trujillo (54.). 18.000.
í kvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild:
Akranes: í A - Keflavík ,.kl. 20
Borgarn.: Skallagr.-Tindast.. ..kl. 20
Grindavík: UMFG - Haukar... ,.kl. 20
Akureyri: Þór-UMFN ..kl. 20
Hlíðarendi: Valur - Breiðabl.. ,.kl. 20
1. deild karla:
Kennarahásk.: IS - ÞórÞorl... ,.kl. 20
Handknattleikur
1. deild karla:
Seltj.nes: Grótta-Víkingur... ..kl. 20
Klaufskir
FH-ingar
„HJÁ okkur rfkti andleysi, bar-
áttuleysi og kæruleysi á loka-
kaflanum. Við hleyptum þeim
inn í leikinn með þvi' að leika
ekki agað,“ sagði Gunnar Bein-
teinsson, leikmaður FH, að
leikslokum í Kaplakrika í gær-
kvöldi. Orð Gunnars lýsa vel
leik FH-inga á lokakaflanum en
þegar tíu mfnútur voru eftir
höfðu þeirfimm marka forystu.
ÍR-ingar létu ekki happ úr hendi
sleppa og kræktu í annað stig-
ið og hefðu með yfirvegun get-
að hirt bæði stigin. Lokatölur
22:22.
Það var oft á tíðum leikinn frem-
ur stórkarlalegur handbolti í
Firðinum í gærkvöldi. Bæði lið
gerðu sig sek um
aragrúa mistaka,
s.s. rangar sending-
ar, sóknarbrot auk
þess sem leikmenn
mörg færi einir gegn
Ivar
Benediktsson
skrifar
misnotuðu
markverði í hraðaupphlaupum.
Þannig fór leikurinn af stað og
þannig endaði hann einnig.
Eftir að mesti hrollurinn var far-
inn úr leikmönnum upp úr miðjum
fyrri hálfleik tóku FH-ingar af skar-
ið og komust yfir. Sóknarleikur
þeirra var þó fremur slakur og lítt
ógnandi, einkum á vinstri vængn-
um, en þeir börðust vel í vörninni
gegn þunglamalegum sóknarað-
gerðum leikmanna IR. FH hafði tvö
mörk yfir í leikhléi, 11:9.
Leikmenn FH sýndu örlítið lífs-
mark á fyrsta stundarfjórðungi síð-
ari hálfleiks og náðu öruggri for-
ystu og ekkert benti til annars en
IR-ingar yrðu að hverfa tómhentir
til síns heima. FH náði Ijögurra og
fimm marka forystu og leikmenn
ÍR virtust ekki hafa nein svör í sín-
um ráðleysislega sóknarleik sem oft
jaðraði við leiktöf.
Mikið óðagot hljóp í leik FH á
síðustu tíu mínútunum eftir að
Frosti Guðlaugsson kom út á móti
Guðjóni Árnasyni. FH-ingar fóru
að skjóta mjög fljótt og ÍR nýtti
sér það og tókst að gera fimm
mörk á rúmlega fimm mínútna
kafia og jafna leikinn, 21:21. Guð-
fínnur Kristmannsson ÍR—ingur
skaut síðan framhjá eftir einnar
mínútu sókn þegar fjörutíu sekúnd-
ur voru eftir og FH-ingar náðu
ekki að jafna í lokin þrátt fyrir að
vera einum leikmanni fleiri.
Þrátt fyrir að hafa leikið lengst
af þokkalega vörn gekk FH-ingum
illa að hirða fráköst eftir að Magn-
ús markvörður þeirra Árnason
hafði varið og á lokakaflanum varði
hann m.a. tvö vítaköst og tvö hrað-
aupphlaup og í öll skiptin náðu
ÍR-ingar knettinum til baka og
skoruðu. Þá var eftirtektarvert
hvað Hálfdán Þórðarson, hinn
sterki línumaður FH, fékk úr litlu
að moða. Vörn ÍR var allgóð með
Guðmund Þórðarson fremstar, í
flokki. Þá lék Magnús Sigmunds-
son vel í markinu.
Afturelding sótti fyrstu stig tímafc
Frábær
BJARKI Sigurðsson var frábær í gærkvöldi og réðu lelkmenn Stjörnunnar
Han gerði níu glæsileg mörk og hér er eltt þeirra í up
KA-menn <
taplausi
„ÞETTA var mjög erfiður leikur,“ sagði Erlingur Kristjánsson, fyrir-
liði KA, eftir að lið hans hafði lagt Hauka að vell á Akureyri í gær-
kveldi 27:26. „Við spiluðum ekki vel í leiknum en náðum að komst
niður á jörðina eftir Evrópuleikinn án þess að lenda harkalega. Ég
er mjög sáttur við baráttu okkar og stigin eru góð, en það eru jú
þau sem telja.“ Það var mikil spenna í leiknum á lokamínútunum
en KA-menn léku vel á síðustu mínútu leiksins, voru eitt mark yfir
og náðu að halda knettinum þar til rétt fyrir lok leiksins og Haukum
vannst ekki tími til þess að hefja sókn.
Fyrri hálfleikur var ekki til að hrópa
húrra fyrir en bæði liðin gerðu
mikið af mistökum og vilja vafalaust
■■■■■■ gleyma þessum hálfleik
ReynirB. sem fyrst. Haukar höfðu
Eiríksson betur framan af en KA
skrifarfrá tókst ag jafna metin rétt
fyrir lok hálfleiksins og
þegar gengið var til hálfleiks hafði hvort
lið um sig gert 12 mörk.
Jafnt var á með liðunum í upphafi
síðari hálfleiks en þegar staðan var
15:15 kom Alfreð Gíslason inn á í vörn
KA og við það breyttist varnarleikur
liðsins og var vörn KA þá sem þrítugur
hamarinn fyrir Hauka. Á næstu mínút-
um gerðu KA-menn fjögur mörk án
þess að Haukum tækist að svara og
breyttu stöðunni í 19:15. Þessi góði
kafli lagði grunninn að sigri heima-
manna. Haukar náðu þó að klóra í bakk-
ann og var mikil spenna á síðustu mín-
Valdimar skoraði sextán
Valdimar Grímsson, þjálfari Sel-
fyssinga, fór fyrir sínum mönnum
og gerði 16 mörk í auðveldum
sigri á KR-ingum, 28:35, í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi.
ValurB Valdimar lék þó ekki
Jónatansson • allan leikinn því hann
skrifar var tekinn út af þegar
sjö mínútur voru til leiksloka og kom
ekki inn á aftur. „Ég hef nokkrum
sinnum áður gert sextán mörk og er
það metið hjá mér og stendur því
enn. Það hefði verið gaman að bæta
það en Gísli Óskarsson, liðsstjóri,
ákvað að taka mig út af og ég er
ekkert að erfa það við hann,“ sagði
Valdimar. Leikurinn var ekki góður
og mikið um mistök, sérstaklega hjá
KR-ingum. Selfoss komst í 2:7 eftir
tíu mínútur og það var of stórt bil
fyrir KR að brúa. Vesturbæingar náðu
þó að minnka muninn í þrjú mörk
þegar síðari hálfleikur var hálfnaður
en síðan seig á ógæfuhliðana. Besti
maður þeirra, Hilmar Þórlindsson, fór
út af meiddur á hné í stöðunni 23:27
og þá var allur broddur úr sóknarleikn-
um og eftirleikurinn því auðveldur
fyrir gestina.
Mesti munurinn á liðinum voru
hraðaupphlaupin og þar höfðu Selfyss-
ingar vinninginn — gerðu sex mörk á
móti einu hjá KR. Valdimar var yfir-
burðarmaður á vellinum og gerði mörk
í öllum regnbogans litum. Hjá KR var
Hilmar í sérflokki og skotnýting hans
með því besta sem gerist — 11 mörk
úr 12 skotum. Ungu strákarnir í KR-
liðinu, Gylfi Gylfason og Ágúst Jó-
hannsson sýndu skemmtilega takta.
„Eg er nokkuð ánægður með leikinn
og við erum greinilega á réttri leið.
Þetta er fyrsti leikurinn sem við kom-
umst yfir fimmtíu prósent sóknamýt-
ingu. Ég hef reynt að koma með ýms-
ar nýjungar inn í liðið og það tekur
sinn tíma,“ sagði Valdimar Grímisson.