Morgunblaðið - 27.10.1995, Side 8
8 B FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER1995 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
FLESTIR sem komist hafa í kynni
við markaðsfræði eru sammála um
að skýr munur sé á markaðssetn-
ingu vöru og markaðssetningu
þjónustu. Minni eining ríkir um
hvort gera eigi greinarmun á mark-
aðsfræði almennra þjónustugréina
og markaðsfræði ferðaþjónustu.
Mál þetta bar á góma í samtali
mínu við kunningja um daginn.
Þessi kunningi minn hafði lokið
námi í markaðsfræðum fyrir
nokkru. Hann taldi markaðsstarfs-
semi ferðaþjónustu á engan hátt
frábrugna öðrum þjónustugreinum.
Ég hélt því hins vegar fram að
vegna ýmissa séreinkenna ferða-
þjónustu sem atvinnugreinar og
vegna eðlisþátta ferðamennsku al-
mennt mætti færa rök fyrir því að
í markaðsstarfssemi ferðaþjónustu
yrði að leggja aðra áherslu á ýmsa
þætti en í öðrum þjónustugreinum.
Ég nefndi meðal annars máli mínu
til stuðnings að hvatinn bakvið
ferðalög væri öðruvísi en þegar
annarrar þjónustu væri notið. Til
samanburðar nefndi ég meðal ann-
ars heilbrigðisþjónustu, þjónustu
banka og fjármálastofnanna, við-
gerðarþjónustu, félagslega þjón-
ustu og aðra almenna opinbera
þjónustu.
Hvaö er svona
eftirsóknarvert viA ferðaiög?
Ferðalag einstaklings frá einum
stað til annars er ekki takmarkað
við það atferli eitt að færast frá
stað A til staðar B. Miklu frekar
er ferðamennska hugarástand eða
sálfélagslegt atferli sem í með-
höndlun ferðalangsins verður að
upplifun og lífsreynslu. Það reynir
vissulega á líkamann að ferðast og
í huga sumrá eru ferðalög mesta
basl. Flugferðimar eru erfiðar, það
er þreytándi að bíða lengi á flug-
völitím, bera þungar töskur o.fl.
Þó sækjast flestir eftir því að ferð-
ast og eyða í það miklum fjármun-
um.
En hvað er svona
eftirsóknarvert við
ferðalög? í stuttu máli
er svarið það að val
einstaklings á ferða-
möguleikum er niður-
staða af flókinni
blöndu félagslegra,
menningarlegra, per-
sónulegra og sálfræði-
legra þátta. Til að
skýra þetta betur er
gott að taka dæmi: Jón
Jónsson hefur ákveðið
að fara í sumarfrí með
fjölskyldunni. Hann er
skrifstofumaður á
frekar daufum og leiði-
legum vinnustað þar sem mestur
tími fer í drekka kaffi og spjalla
við vinnufélagana um áhugamálið,
skógrækt og landbúnað. Þegar
einn vinnufélagi hans bendir hon-
um á að ákveðin ferðaskrifstofa í
bænum bjóði nú sumarleyfisferðir
til Skandinavíu til þess að kynnast
landbúnaði rýkur Jón til og bókar
alla fjölskylduna .. í 2ja vikna
„vinnuferð" á skandinavískan
bóndabæ.
Endurnærður á
sál og líkama
Ástæðan fyrir því
að Jón ákveður að
velja þessa tegund
sumarleyfis tengist
ekki einungis áhuga
á landbúnaði. Það
sem vó jafnvel
þyngra var tilhugs-
unin um að komast
úr hinu daglega
amstri og tilbreyt-
ingarleysi. Að fara
til annars lands,
kynnast sveitalífinu
og erfiða líkamlega
við landbúnaðarstörf er í augum
Jóns algjör andstæða við hans
venjubundna líf. Hann er viss um
að koma til baka endurnærður á
sál og líkama.
Ákvörðun Jóns og val á sumar-
leyfi er byggð á sálfræðilegum og
persónulegum þáttum. Jón er um-
hverfissinni og það fellur því vel að
hugmyndafræði hans að læra að
rækta landið. Hann er einnig nýj-
ungagjam (þó að hann hafí ekki
beint notið þess í skrifstofustarf-
inu), val hans á sumarleyfi samein-
ar því hér löngun hans til að heim-
sækja nýjar slóðir og að kynnast
aðferðum í landbúnaði sem hann
þekkti ekki áður. Félagslegar að-
stæður Jóns styðja líka þessa hug-
mynd hans um að fara í sumarfrí
á bóndabæ. Konan hans elskar
garðyrkju og útivist og bömin em
á þeim aldri að þau geta hjálpað
til við útistörfin.
Ferðaþjónusta er almennt skil-
greind sem þjónustugrein en ekki
iðngrein sem framleiðir vömr.
Ferðaþjónusta er hins vegar í raun
sambland af vömm og þjónustu.
Ferðamannaaðstaða og þjónustan
þar, skipulagðar uppákomur og
áfangastaðir, náttúmfyrirbæri,
loftslag og mannlíf á allt þátt í því
að skapa „vörana“ í ferðaþjónustu.
Aðrar þjónustugreinar em einnig
sambland af áþreifanlegum vöram
og óáþreifanlegri þjónustu. Heil-
brigðisþjónusta byggist á því að
það sé aðstaða fýrir lækna og
hjúkmnarfólk til aðgerða og þjón-
ustu við fólk og fjármálaþjónusta
byggist á fjárfestingum og neyslu
einstaklinga og fýrirtækja á vöram
og þjónustu. Það sem skilur hins-
vegar að ferðaþjónustu frá öðmm
þjónustugreinum em þeir þættir
„vörunnar" sem flokkast undir lífs-
reynslu og upplifun.
Hugarástand, upplifun og
lífsreynsla
Hugarástand, upplifun og lífs-
reynsla em þættir sem í raun skapa
hina raunvemlegu ferðaþjónustu
sem ferðamaðurinn nýtur. Markaðs-
starf ferðaþjónustu tekur mið af
þessu. Til samanburðar má hugsa
sér fjármála- eða heilbrigðisþjón-
ustu. Það þykir sjaldnast sérstök
upplifun að fara í banka eða eiga
samskipti við opinberar stofnanir.
Það getur verið lífsreynsla að þurfa
að leggjast inn á spítala, en vænt-
ingamar em allt aðrar en þegar við
fömm í ferðalag.
Söluferlið í ferðaþjónustu er í
flestum tilvikum mjög langt. Það
líður oft langur tími frá því að
ákvörðun er tekin og þar til ferðin
hefst. Á þeim tíma hleðst upp
spenna og eftirvænting hjá ferða-
manninum og væntingamar fara
stighækkandi. Þær tengjast einnig
kostnaðinum sem ferðamaðurinn
ber við ferðina, sem þá aftur hefur
áhrif á það hver upplifunin verður.
Verð, gæði og upplifun em tengd
hugtök í ferðaþjónustu sem endur-
spegla þá hugmyndafræði að mark-
aðsstarf ferðaþjónustu sé annað en
markaðsstarf annarra þjónustu-
greina. ■
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir
Höfundur er ferðamálafræðingur.
Morgunblaðið/RAX
ÞESSIR ferðamenn sem hér ganga Laugaveginn inn í Þórs-
mörk eru væntanlega að upplifa nokkuð sem þeir takast
ekki á við alla jafna.
Markaðssetning á ferða-
þjónustu hefur serstððu
25 ár eru síðan Eldon Square-
verslunarmiðstöðin var opnuð
í Newcastle.
Ferflir til
Newcastle
FERÐASKRIFSTOFAN Alís hef- I
ur skipulagt tvenns konar sérferð- I
ir til Newcastle á Englandi, ann-
ars vegar 10 daga ferð um New-
castle og nágrenni fyrir eldri borg-
ara og hins vegar fótboltaferðir.
Þorsteinn G. Gunnarsson er far-
arstjóri í ferð eldri borgara, sem
hefst 30. október. Meðal annars
verður farið í tveggja daga ferð
til York og dagsferð til Vatna-
svæðisins. Fótboltaferðin hefst 6.
nóvember og verður farið á leik
Newcastle United og Blacburn
Rovers. Komið verður til íslands
9. nóvember og kostar ferðin
25.500 krónur miðað við að tveir
séu saman í herbergi. Eiríkur
Jónsson verður fararstjóri í fót-
boltaferðinni.
Auk þessara sérferða skipu-
leggur Alís helgar- og vikuferðir
til Newcastle alla mánudaga og
fimmtudaga til 27. nóvember
næstkomandi. 4 daga ferð frá
mánudegi til fimmtudags kostar
24.900 kr. en 4 daga helgarferð
kostar 32-37 þúsund krónur.
Vikuferð kostar tæplega 38.500
kr. og 10 daga ferð rúmlega 42
þúsund krónur.
Flogið er í beinu leiguflugi með
Flugleiðum. Millilent verður á
Egilsstöðum á útleið 2. nóvember
og 6. nóvember á heimleið. ■
Morgunblaðið/Hermína
jafnóðum og þátttakendur vita
aldrei hveiju þeir eiga von á næst.
Markmiðið er fjölbreytt og ólíkt
efni, skemmtun, leikur og létt
keppni og stefnt er að því að eng-
ar tvær ferðir verði með sama
hætti.
Kvöldverður á bílaverkstæði
Fyrsti hópurinn sem fór á vegum
Óvissuferða var skipaður fulltrúum
ýmissa starfsmannafélaga víðs veg-
ar af landinu. Óhætt er að segja
að dagskrá helgarinnar hafi verið
fjölbreytt, en m.a. var snæddur
kvöldverður á Bílaverkstæði Dalvík-
ur, farið í fjós á Sökku í Svarfaðard-
al, keppt í rennibrautinni í sundlaug
Dalvíkur, snæddur rækjukokteill í
Múlagöngunum, farið í þolfími, rat-
leik, sjóferð og margt fleira. ■
i
| UM HELGINA |
Utlvlst
Þriðji áfangi
ferðaraðarinnar
Forn frægðarsetur
verður á sunnudag.
Farið verður að
Borg á Mýmm, þar
sem séra Þorbjöm Hlynur Ámason
stiklar á stóm um sögu staðarins.
Að því loknu skoðar hópurinn sig
um í Borgamesi og síðan verður
gengin gömul alfaraleið frá Borg.
Mæting er við Akraborg í Reykjavík-
urhöfn fyrir kl. 12.30. Áætlað er að
koma til Reykjavíkur kl. 18.
Fí
Ferðafélag íslands heilsar vetri á
sunnudag með gönguferð á Selfjall.
Ekið verður að Lækjarbotnum og
gengið á fjallið sem er auðvelt upp-
göngu. Þaðan verður gengið yfir í
Heiðmörk. Brottför er kl. 13 frá
BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6 og
er áætluð heimkoma milli kl. 17 og
18. Fólki er bent á að vera í hlýjum
fatnaði, góðum gönguskóm og með
nesti. ■
Nýjung í ferða-
þjónustu á Dalvík
Ferúir út
í ovissuna
Dalvík
TVEIR framtakssamir Dalvíking-
ar, Bjami Jónsson og Júlíus Júlíus-
son hófu fyrir skemmstu að bjóða
íslendingum upp á óvenjulejgar
helgarferðir sem þeir kalla „Ut í
óvissuna". Ferðirnar eru ætlaðar
hópum af ýmsu tagi s.s. starfs-
mannahópum, saumaklúbbum,
vinahópum eða þeim sem dettur í
hug að taka sig saman og stefna
út í óvissuna eina helgi. Ævintýrið
á sér stað á Norðurlandi og verður
Eyjafjarðarsvæðið leikvöllurinn.
Dagskráln ókunn
Þátttakendur fá ekkert að vita
fyrirfram um dagskrá helgarinnar,
hver dagskrárliður er kynntur