Morgunblaðið - 01.11.1995, Blaðsíða 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995
ÚRSLIT
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
IR-UMFG 82:80
fþróttahús Seljaskóla, úrvalsdeildin í körfu-
knattleik, 8, umferð, þriðjudaginn 31. októ-
ber 1995.
Gangur leiksins: 2:0, 2:5, 15:14, 19:21,
23:23, 23:29, 31:37, 42:37, 44:42, 44:45,
50:45, 52:51, 61:51, 68:55, 71:68, 73:74,
79:76, 79:78, 82:78, 82:80.
Stig ÍR: Herbert Amarson 25, Eiríkur
Önundarson 16, Jón Örn Guðmundsson 16,
John K. Rhodes 15, Guðni Einarsson 8,
Márus Arnarson 2.
Fráköst: 14 í sókn — 31 í vöm.
Stig UMFG: Herman Myers 28, Guðmund-
ur Bragason 15, Helgi Jónas Guðfmnsson
13, Unndór Sigurðsson 12, Hjörtur Harðar-
son 7, Marel Guðlaugsson 5.
Fráköst.: 13 í sókn — 23 í vörn.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Eggert
Aðalsteinsson. Létu skemmtilegan leik
ganga og dæmdu mjög vel.
yillur: IR 16 -- Grindavík 15.
Ahorfendur: 118 greiddu aðgangseyri en
um 200 manns vom í húsinu og mikið lj'ör.
Breiðablik — KR 81:90
Smárinn:
Gangur leiksins:0:6, 4:14, 13:19: 13:30,
24:34, 36:36, 41:42, 41:47, 49:51, 54:63,
65:69, 71:82, 81:65, 81:85, 81:90.
Stig Breiðablik: Michael Thoele 21, Hall-
dór Kristmannsson 20, Erlingur Snær Erl-
ingsson 15, Birgir Mikaelsson 14, Agnar
Olsen 7, Daði Sigurþórsson 2, Atli Sigur-
þórsson 2.
Fráköst: 9 í sókn — 22 í vörn.
Stig KR: Hermann Hauksson 27, Ingvar
Ormarrsson 22, Ósvaldur Knudsen 11, Jon-
athan Bow 10, Láms Árnason 8, Arnar
Sigurðsson 6, Atli Einarsson 3, Óskar Krist-
jánsson 3.
Fráköst: 5 í sókn — 19 í vörn.
Dómarar: Kristján Möller og Bergur Stein-
grímsson vom mistækir f hröðum leik.
Villur: Breiðablik 17 - KR 23.
Ahorfendur: Um 105.
Haukar-ÍA 91:68
Iþróttahúsið við Strandgötu:
Gangur leiksins: 2:0, 13:2, 20:6, 40:19,
45:32, 68:54, 79:62, 87:67, 91:68.
Stig Hauka: Ivar Ásgrímsson 19, Sigfús
Gizurarson 18, Jón Amar Ingvarsson 15,
Bergur Eðvarðsson 10, Jason Williford 10,
Pálmar Sigurðsson 7, Pétur Ingvarsson 6,
Björgvin Jónsson 4, Sigurður Jónsson 2.
Fráköst: 7 í sókn - 24 í vöm.
Stig ÍA: Milton Bell 31, Haraldur Leifsson
14, Guðmundur Siguijónsson 6, Sigurður
Elvar Þórólfsson 6, Dagur Þórisson 4,
Brynjar Sigurðsson 3, Bjami Magnússon
3, Brynjar Karl Sigurðsson 1.
Fráköst: 12 í sókn - 14 í vöm.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Rögnvald-
ur Hreiðarsson.
Villur: Haukar 20 - ÍA 15.
Áhorfendur: 150 greiddu aðgangseyri.
Tindastóll - Þór 98:66
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 5:4, 12:11, 25:21, 39:25,
46:31, 54:35, 66:53, 77:57, 86:63, 98:66.
Stig Tindastóls: Láms Dagur Pálsson 22,
Amar Kárason 20, Torry John 18, Hinrik
Gunnarsson 11, Atli Björn Þorbjörnsson 11,
Ómar Sigmarsson 9, Pétur Guðmundsson
5, Halldór Haildórsson 2.
Fráköst: 13 í sókn — 18 f vöm.
Stig Þórs: Kristinn Friðriksson 24, Konráð
Óskarsson 16, Fred Williams 15, Birgir Öm
Birgisson 4, Björn Sveinsson 2, Davfð Hreið-
arsson 2, Hafsteinn Lúðvfksson 2, Kristján
Guðlaugsson 2.
Fráköst: 9 í sókn — 19 í vörn.
Villur: Tindastóll 17 — Þór 21.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Georg
Þorsteinsson. Leifur ágætur en Georg átti
köflóttan dag.
Áhorfendur: 600.
Keflavík - Skallagr. 99:74
Iþróttahúsið í Keflavík.
Gangur leiksins: 5:0, 5:2, 15:15, 33:25,
39:35, 42:39, 50:45, 54:49, 64:49, 73:55,
80:64, 90:66, 99:74.
Stig Keflavíkur: Albert Óskarsson 19,
Lenear Burns 18, Guðjón Skúlason 17,
Falur Harðarson 13, Davíð Grissom 13,
Sigurður Ingimundarson 9, Guðjón Gylfa-
son 5, Gunnar Einarsson 4, Halldór Karls-
son 1.
Fráköst: 7 í sókn - 25 í vörn.
Stig Skallagríms: Alexander Ermolinskij
24, Bragi Magnússon 14, Gunnar Þorsteins-
son 11, Grétar Guðlaugsson 8, Ari Gunnars-
son 7, Tómas Holton 6, Sigmar Egilsson
2, Sveinbjöm Sigurðsson 2.
Fráköst: 14 i sókn - 26 í vörn.
Dómarar: Einar Einarsson og Björgvin
Rúnarsson sem komust nokkuð vel frá leikn-
um sem var ekki auðdæmdur.
Villur: Keflavík 20 - Skallagrímur 21.
Ahorfendur: Um 200.
Njarðvík - Valur 90:72
Iþróttahúsið í Njarðvík,
Gangur leiksins: 3:0, 3:2, 15:10, 25:20,
34:36, 38:31, 47:36, 61:41, 70:41, 77:47,
80:56, 86:64, 90:72.
Stig Njarðvíkur: Teitur Örlygsson 30,
Rondey Robinson 15, Friðrik Ragnarsson
15, Páll Kristinsson 14, Jóhannes Krist-
bjömsson 4, Jón Júlíus Amason 4, Kristinn
Einarsson 4, Sverrir Þór Sverrisson 2,
Ragnar Ragnarsson 2.
Fráköst: 9 í sókn - 24 í vöm.
Stig Vals: Bergur Emilsson 21, Bjarki
Guðmundsson 17, ívar Webster 15, Bjarki
Gústafsson 6, Pétur Már Sigurðsson 5,
Guðni Hafsteinsson 4, Svein Zoega 2,
Magnús Guðmundsson 2.
Fráköst: 20 í sókn - 15 í vöm.
Dómarar: Helgi Bragson og Þorgeir Jón
Júlíusson sem dæmdu vel.
Villur: Njarðvík 11 - Valur 17.
Ahorfendur: Um 100.
A-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
HAUKAR 9 7 2 767: 640 14
UMFN 9 7 2 803: 701 14
KEFLAVlK 9 7 2 849: 751 14
TINDASTÓLL 9 7 2 726: 667 14
ÍR 9 5 4 749: 728 10
BREIÐABLIK 9 1 8 716: 874 2
B-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
KR 9 6 3 802: 783 12
UMFG 9 5 4 858: 738 10
SKALLAGR. 9 4 5 683: 715 8
ÞÓR 9 3 6 765: 751 6
ÍA 9 2 7 710: 797 4
VALUR 9 0 9 589: 872 0
FELAGSLIF
Herrakvöld Gréttu
HERRAKVÖLD Gróttu verður haldið
í Sjálfstæðishúsinu á Seltjarnarnesi á
föstudagskvöldið, 3. nóvember. Húsið
verður opnað kl. 19.30 en borðhald
hefst kl. 20. Ræðumaður kvöldsins
verður Ingimar Sig-urðsson. Aðgangs-
eyrir er 2.800 kr. og eru miðar m.a.
seldir í Litabæ.
Handknattleikur
1. deild kvenna
Stjarnan - Haukar...............20:13
Guðný Gunnsteinsdóttir 5, Herdís Sigur-
bergsdóttir 5, Ragnheiður Stephensen 5,
Sigrún Másdóttir 2, Inga Fríða Tryggva-
dóttir 1, Nína Björnsdóttir 2 - Hulda Bjama-
dóttir 4, Judit Estergal 3, Auður Hermanns-
dóttir 3, Thelma Árnadóttir 2, Harpa
Melsted 1, Heiðrún Karlsdóttir 1.
■Fyrri hálfleikur var jafn og staðan í háif-
leik var 8:7 fyrir Stjörnuna. I síðari hálfleik
tóku Stjömustúlkur sig saman í vörninni
og Fanney Rúnarsdóttir, markvörður, varði
yfir 20 skot i leiknum.
KR-Valur........................24:22
Knattspyrna
UEFA-keppnin
2. umferð, seinni leikir:
Kerkrade, Hollandi:
Roda - Benfica....................2:2
Danny Hesp (60.), Rene Trost (72.) —
Hassan Nader 2 (85., 90.). 20.000.
•Benfica vann samanlagt 3:2.
Minsk, H-Rússlandi:
Dynamo Minsk - Werder Bremen......2:1
Alexander Khatskevich (76.), Yuri Shuk-
anov (90.) — Marco Bode (26.). 14.000.
•Werder Bremen vann samanlagt 6:2.
Chisinau, Moldaviu:
Zimbru Chisinau - Sparta Prag.....0:2
-Jan Koller (45.), Roman Vonasek (64.).
21.000.
•Sparta Prag vann samanlagt 6:3.
Volgugrad, Rússlandi:
Rotor Volgugrad - Bordeaux........0:1
Anthony Bancarel (82.). 20.000.
•Bordeaux vann samanlagt 3:1.
Prag, Tékklandi:
Slavia Prag - Lugano..............1:0
Vladimir Smicer (62.). 8.821.
•Slavia vann samanlagt 3:1.
Múnchen, Þýskalandi:
Bayern Miinchen - Raith Rovers....2:1
Júrgen Klinsmann (52.), Markus Babbel
(64.) - Andreas Herzog (43. sjálfsm.).
15.000.
•Bayem vann 4:1 samanlagt.
Eindhoven, Hollandi:
PSV Eindhoven - Leeds.............3:0
Philip Cocu 2 (11., 74.), John Pemberton
(43 - sjálfsm.). 28.500.
•PSV vann samanlagt 8:3.
Aþena, Grikklandi:
Olympiakos - Seville..............2:1
Ilias Sapanis (72.), Andrei Juskoviak (92.
- vítasp.) — Davor Suker (110.). 35.000.
•Jafnt 2:2. Seville vann á marki skomðu
á útivelli.
Nottingham, Englandi:
Nott. Forest - Auxerre............0:0
28.063.
•Nott. For. vann samanlagt 1:0.
Liverpool, Englandi: *
Liverpool - Bröndby...............0:1
Dan Eggen (78.). .35.878.
•Bröndby vann samanlagt 1:0.
Brússel, Belgíu:
Aalst - Roma......................0:0
11.000.
•Roma vann samanlagt 4:0.
Rðm, Ítalíu:
Lazíó - Lyon......................0:2
- Maurice (21.), Assadourian (57.)v50.000.
•Lyon vann samanlagt 4:1.
Guimaraes, Portúgal:
Guimaraes - Barcelona.............0:4
- Meho Kodro (18.), Oscar Garcia (61.),
Albert Celades (66.), Sergi Barjuan (76-)-
10.000.
' •Barcelona vann samanlagt 7:0.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Altmark Stendal - Bayer Leverkusen.0:0
I^everkusen vann í vítaspymukeppni 5:4.
KORFUKNATTLEIKUR
Hraði og spenna
í Seljaskóla
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
HRAÐI, spenna, fjör og mikil
mistök einkenndu leik ÍR og
Grindavíkur í Seljaskólanum í
gærkvöldi. Áhorfendur
skemmtu sér konunglega,
bæði lið léku mjög hratt, mis-
tökin voru fjölmörg, en um-
fram allt var leikurinn spenn-
andi allt fram á síðustu sek-
úndu, en ÍR hafði betur, 82:80.
Lokamínúturnar voru mjög
spennandi. Grindvíkingar
virtust vera að ná undirtökunum
og komust í 75:76 þegar 2,30
mín. voru eftir en
Herbert Arnarson
setti niður þriggja
stiga skot og Eirík-
ur Önundarson skoraði úr einu
víti en Guðmundur Bragason mis-
notaði tvö vítaskot í millitíðinni.
Staðan því 79:76 þegar 1,10 mín.
voru eftir. Herman Myers lagaði
stöðuna í 79:78 áður en Herbert
keyrði glæsilega inn í vörn gest-
anna og setti boltann í körfuna
auk þess sem hann fékk eitt víta-
skot sem hann nýtti. Guðmundur
minnkaði muninn í 82:80 þegar
28 sekúndur voru eftir og Grind-
víkingar náðu að vinna boltann
þegar 15 sekúndur voru til leiks-
loka, en skot Hjartar Harðarsonar
mistókst á lokasekúndunni og
heimamenn fögnuðu innilega.
Lætin byijuðu strax í upphafi
og fyrstu mínútu leiksins átti hvort
lið einar fimm sóknir án þess að
mönnum tækist að skora. Eftir það
var leikurinn í járnum, liðin skipt-
ust á um að leiða og munurinn
varð aldrei mikill. Síðari hálfleikur
var engu síðri hvað varðar spennu
og skemmtun. Leikmenn héldu
áfram að gera helling af mistökum
og einnig sáust stórskemmtileg
tilþrif.
IR-ingar virðast vera að ná upp
sömu stemmningu í lið sitt og í
fyrra. Rhodes byijaði vel en eftir
að Guðmundur fór að gæta hans
átti hann erfitt uppdráttar, hann
tók þó 23 fráköst sem er mjög
gott. Herbert var ekki með sjálfum
sér í fyrri hálfleik en sýndi sitt
rétta andlit í þeim síðari þegar
hann fór hreinlega á kostum. Bak-
verðirnir Jón Órn Guðmundsson
og Eiríkur Önundarson voru báðir
lengi í gang og þá sérstaklega sá
síðarnefndi sem virtist óöruggur í
upphafi. Eftir að þeir hrukku í
gang léku þeir vel. Besti maður
IR var þó hinn 21 árs gamli Guðni
Einarsson sem fékk það erfiða
hlutverk að gæta Guðmundur
Bragasonar. Hann gerði það með
glæsibrag og það eru ekki margir
íslenskir leikmenn sem geta haldið
Guðmundi eins á mottunni og
Guðni gerði að þessu sinni. Frábær
varnarmaður. ÍR lék maður á
mann vörn allan leikinn og gekk
það þokkalega þar til Rhodes fékk
sína fjórðu villu er 7 mín. voru
eftir. Þá fékk Myers að leika laus-
um hala í teignum og spurning
hvort .ekki hefði mátt láta Guðna
reyna sig gegn honum. Grindvík-
ingar léku einnig maður á mann
vörn en breyttu fjórum sinnum í
1-2-2 pressuvörn með góðum ár-
angri og náðu tvívegis knettinum
með þeim hætti. Hjá gestum var
Myers illviðráðanlegur og virðist
vera mjög traustur leikmaður sem
gerir Iítið af mistökum. Hann réð
þó illa við Rhodes í upphafi og
skipti því við Guðmund. Guðmund-
ur hefur oft leikið betur í sókninni
en hann var með gríðarlega sterk-
an varnarmann á sér. Unndór var
Blöndal
skrifar frá
Keftavik
sprækur og Helgi Jónas átti góðar
rispur en Marel náði sér ekki vei
á strik enda gætti Herbert hans
vel.
Sannfærandi hjá
Keflvíkingum
Við lékum illa í fyrri hálfleik
bæði í vörn og sókn en í þeim
síðari bættum við leik okkar og
þá fór þetta að ganga og ég get
■■■■■■ varla verið annað
Björn en ánægður með
þessi úrslit,“ sagði
Jón Kr. Gíslason,
þjálfari og leikmað-
pr Keflvíkinga, eftir að lið hans
hafði unnið sannfærandi sigur á
Skallagrími frá Borgarnesi, 99:74,
í Keflavík í gærkvöldi. í hálfleik
var staðan 42:39 fyrir heimamenn.
Leikurinn var frekar jafn fram-
anaf og munaði þar mestu um að
sú leikaðferð Borgnesinga að
halda hraða leiksins niðri gekk
fullkomiega upp. í upphafi síðari
hálfleiks náðu Keflvíkingar fljót-
lega afgerandi forskoti sem virtist
setja Borgnesinga algerlega út af
laginu því þeir náðu aldrei að ógna
sigri heimamanna eftir það. Tals-
verð harka var í leiknum og í þrí-
gang fengu leikmenn tæknivillu
fyrir kjaftbrúk og setur slík fram-
koma ljótan blett á íþróttina.
Albert Óskarsson lék mjög vel
í fyrri hálfleik hjá Keflvíkingum
og Guðjón Skúlason skoraði
grimmt í þeim síðari. Falur Harð-
arson, Davíð Grissom og Lenear
Burns léku einnig vel. Alexander
Ermolinskij var besti maður Borg-
nesinga ásamt Gunnari Þorsteins-
syni.
Létt hjá slökum Haukum
Haukar voru langt frá sínum
besta leik þegar þeir mættu
Skagamönnum í íþróttahúsinu við
Strandgötu í gær-
jvar kvöldi. En til láns-
Benediktsson ins fyrir Hafnfirð-
skrifar jnga var aldrei
glæta í leik gest-
anna frá upphafi til enda svo slak-
ir leikmenn Hauka innbyrtu auð-
veldan sigur, 91:68.
Haukar náðu strax öruggri for-
ystu og eftir tíu mínútur höfðu
þeir gert tuttugu stig en gestirnir
aðeins sex og hafði Milton Bell
þá gert öll stig ÍA. Örlítið hresst-
ist yfír döprum sóknarleik Skaga-
manna þegar á hálfleikinn leið og
þegar farið var til búningsher-
bergja í hálfleik, höfðu þeir gert
32 stig, heimamenn 45.
Seinni hálfleikur byrjaði fjör-
lega en það stóð stutt yfir, en það
tók fljótt undan og það sótti í sama
farið og áður. Varnarleikur beggja
liða var tilkomulítill og sóknarleik-
urinn mistækur og einhæfur, eink-
um hjá Skagamönnum. Hann gekk
aðallega út á að stilla upp í þriggja
stiga skot fyrir Milton Beli. Það
gekk þokkalega um tíma, en síðan
hætti hann að hitta og þá datt
allur botn úr sóknaraðgerðum ÍA
og Haukar bættu í seglin á lo-
kakaflanum og sigruðu örugglega.
Jón Arnar Ingvarsson var besti
maður Hauka í leiknum og sá eini
sem á hrós skilið ásamt Ivari As-
grímssyni sem var drjúgur í síðari
hálfleik. Skagaliðið var ein flatn-
eskja og leikmenn þar á bæ verða
að gera betur í framhaldinu ætli
þeir sér ekki að lenda í basli þeg-
ar á líður.
Björn
Björnsson
skrifar frá
Sauöárkróki
Góð hittni Tindastóls
Tindastólsmenn unnu sjöunda
leikinn á tímabilinu er þeir
sigruðu Þór 98:66 á Sauðárkróki.
Ekkert var skorað
fyrstu eina og hálfa
mínútuna, en þá
tókú heimamenn
við sér en Þórsarar
náðu að fiska aðra
villuna á Torrey strax á 4. mín-
útu. Þá lét Páll Kolbeinsson þjálf-
ari Hinrik dekka Fred Williams
og náði hann að halda honum niðri
allan leikinn. Heimamenn, sem
léku góða vörn dyggilega studdir
af 600 áhorfendum, náðu að auka
forskotið úr fjórum stigum í 20
um miðjan fyrri hálfleik.
Þegar þijár mínútur voru liðnar
af síðari hálfleik fékk Torrey sína
fjórðu villu og gat lítið beitt sér
eftir það. Þórsarar náðu tvívegis
að minnka muninn niður í tíu stig
en um miðjan háifleikinn voru
Fred Williams og Konráð Óskars-
son komnir með fjórar villur og
róðurinn orðinn þungur. Tinda-
stóismenn gengu á lagið og juku
muninn og þegar íjórar mínútur
voru eftir fór Williams útaf með
fimm villur og þá var eftirleikurinn
auðveldur.
Sigur Tindastóls byggðist á
þrennu; sterkri vörn, góðri hittni
úr þriggja stiga skotum og góðum
stuðningi áhorfenda. „Við hittum
vel og vorum tilbúnir í slaginn og
staðráðnir í að sigra á heimavelli.
Vörnin small saman og hittnin var
góð og við erum í toppbarátt-
unni,“ sagði Páll Kolbeinsson,
þjálfari Tindastóls.
„Við vinnum ekki leik ef við
komum hræddir í húsið,“ sagði Jón
Guðmundsson, þjálfari Þórs. „Við
höfðum ekki trú á því sem við
vorum að gera og spilið var eftir
því. Hinrik dekkaði Fred vel og
við náðum ekki að nýta hann eins
og við ætluðum."
Að leik loknum fékk Fred brott-
rekstrarvíti eftir orðaskipti við
Leif dómara og á því yfír höfði sér
leikbann.
HESTAR
KORFUKNATTLEIKUR
Enn eitl frákastid
Morgunblaöiö/bvernr
JOHN Rhodes, þjálfari og leikmaður ÍR, tók 23 fráköst gegn Grindvíking-
um í gær og hér er hann að taka eitt slíkt án þess að Hjörtur Harðar-
son geti komið í veg fyrir það.
KR-ingar
íerfið-
leikum
KR-INGAR þurftu á öllu sínu að
halda til að vinna Blika í gær-
kvöldi í Smáranum en klaufa-
skapur Blika á lokamínútum
hvors hálfleiks varð þeim dýr-
keyptur og KR vann 81:90.
„Okkur hrjáir ákveðið reynslu-
leysi en þetta er allt á réttri
ieið,“ sagði Birgir Guðbjörns-
son, þjálfari Breiðabliks, eftir
leikinn.
Vesturbæingar byrjuðu sprækir
og höfðu um miðjan hálfleik
13:30 forskot. En þá var eins og lið-
ið ætlaði að láta það
duga því baráttan
datt niður. Blikum
tókst með góðri bar-
áttu að jafna 36:36
þegar tvær mínútur voru eftir og
hefðu haft forystu í leikhléi ef þeir
hefðu ekki klúðrað niður sóknum í
lokin og fært KR-ingum stig á silfur-
fati. Síðari hálfleikur var kaflaskipt-
ur, svipað og sá fyrri, og lokasprett-
inn átti KR. Ef miðað er við þennan
leik er stutt í næstu tvö stig Blika,
liðið átti marga góða kafla en tapaði
á nokkrum slæmum. Michael Thoele
var bestur og tók 18 fráköst en með
slaka nýtingu á skotum eins og raun-
ar allt liðið. Halldór Kristmannsson
og Erlingur Snær Erlingsson tóku
sérlega góðar rispur.
„Við spilum vel í nokkrar mínútur
en dettum svo niður. Við leikum of
óagað, eigum í vandræðum með að
ná fráköstum og spilum oft of stutt-
ar sóknir,“ sagði Hermann Hauks-
son, besti leikmaður KR, sem nýtti
m.a. 12 af 13 skotum inní teig. Jonat-
han Bow tók 8 fráköst, Ingvar Orm-
arrsson hitti vel eftir hlé og Lárus
Árnason var góður.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Valsmenn enn án stiga
Njarðvíkingar unnu frekar auðveldan
sigur gegn Vaismönnum eins og
við var búist þegar liðin mættust í Ljóna-
■■■■■ gryfjunni í Njarðvík í
Qíslj gærkvöldi. Lokatölur
Blöndal urðu 90:72 eftir að stað-
skrifarfrá an í hálfleik hafði verið
Njarðvík 38:31. Þar með eru Vals-
menn enn eina liðið í úrvalsdeildinni án
stiga. Fyrri hálfleikur var frekar tíðinda-
lítill að undanskildu því að fyrstu 15 stig
Njarðvíkinga komu öll eftir 3ja stiga
skot frá Teiti Örlygssyni og Friðriki
Ragnarssyni. Leikaðferð Valsmanna var
að halda leiknum niðri og það tókst þeim
með góðum árangri í fyrri hálfleik.
Njarðvíkingar mættu grimmir til síðari
hálfleiks og náðu strax að keyra upp
hraðann. Þetta setti Valsmenn út af lag-
inu og leikur þeirra fór að riðlast og fljót-
lega varð ljóst að þeir urðu að sætta sig
enn eina ferðina að vera í hlutverki
músarinnar.
Hjá Njarðvíkingum voru þeir Teitur
Örlygsson, Friðrik Ragnarsson, Páll
Kristinsson og Rondey Robinson bestu
menn.
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 B 3
KNATTSPYRNA
Nokkur óvænt úrslit í UEFA-keppninni
Lazio tapaði
á heimavelli
NOKKUR óvænt úrslit urðu í 2. umferð Evrópukeppni félagsliða
í gærkvöldi en þá fóru seinni leikirnir f ram. T ap Liverpool gegn
Bröndby vakti mesta athygli en Lazio stóð heldur ekki undir
væntingum.
Lazio vann Juventus 4:0 í ítölsku
deildinni sl. sunnudag og ótt-
aðist Guy Stephane, þjálfari Lyon,
að ítalska liðið héldi áfram á sömu
braut í Róm í gærkvöldi en annað
kom á daginn. Lyon vann fyrri
leikinn 2:1 og gerði betur á úti-
velli, vann 2:0. Florian Maurice
skoraði á 21. mínútu en tveimur
mínútum síðar fékk Giuseppe Sig-
nori tækifæri til að jafna úr víta-
spyrnu. Honum tókst það ekki,
skaut.í slá, og eftir það var sem
allur kraftur væri úr heimamönn-
um sem léku án markvarðarins
Lucas Marchegianis, varnar-
mannsins Joses Chamots frá Arg-
entínu og miðjumannsins Diegos
Fusers. Eftir að Eric Assadourian
hafði bætt öðru marki við á 57.
mínútu drógu gestirnir sig aftur í
vörn og héldu fengnum hlut.
Raith stóð í Bayern
Leikur Bayern Múnchen og
Raith Rovers, sem sló Akranes út
úr keppninni, var ekki vel leikinn.
Bayern vann 2:0 í Skotlandi og
þýska liðið var betra í fyrri hálf-
leik en Frakkinn Jean-Pierre Papin
misnotaði vítaspyrnu um miðjan
hálfleikinn og skömmu fyrir leik-
hlé gerði Andreas Herzog sjálfs-
mark. Fljótlega í seinni hálfleik
munaði litlu að Raith kæmist í 2:0
en Tony Rougier missti marks.
Júrgen Klinsmann, sem gerði bæði
mörk Bayem í fyrri leiknum, jafn-
aði á 52. mínútu eftir sendingu
frá Alexander Zickler og Markus
Babbel tryggði þýska liðinu 2:1
sigur og 4:1 samanlagt með marki
um miðjan hálfleikinn.
Otto Rehhagel, þjálfari Bayern,
er ekki vanur að vera með afs-
akanir en hann sagði að erfitt
væri að leika gegn liði eins og
Raith sem byggði á að senda bolt-
ann sem lengst og hlaupum auk
þéss sem sumir leikmenn sínir
hefðu talið seinni leikinn formsatr-
Tími breytinga og þróunargenginn í garð hjá Landsambandi hestamannafélaga
Landsmót verða haldin annað hvert ár
Valdimar
Kristinsson
skrifar
Heldur þótti kveða við nýjan tón á
46. ársþingi Landsambands
hestamannafélaga sem haldið var í
Garðabæ á föstudag
og laugardag. Ákveðið
var að landsmót
skyldu haldin annað
hvert ár, sameiningar-
málin þóttu fá nýjan og betri byr í
seglin og mjög róttækar breytingar
voru gerðar á gæðingakeppninni.
Þótti afgreiðsla þingsins á þessum
og ýmsum öðrum málum framsækn-
ari en almennt hafði verið búist við
enda þingin verið gagnrýnd fyrir
þunglamalega og íhaldsama af-
greiðslu á mörgum málum. Töldu
margir sem með fylgdust að aldrei
hafi verið teknar jafn margar afdrifa-
ríkar ákvarðanir á einu þingi samtak-
anna.
Skriður á sameiningu
Samþykkt var að tillögu stjórnar
að skipa þijá menn í sameiginlega
nefnd með Hestaíþróttasambandi Is-
lands sem skuli finna leiðir til að
mynda ein samtök hestamanna í land-
inu sem háfi þau markmið og tilgang
að sinna öllum þáttum hestamenns-
kunnar. Skal nefndin ljúka störfum
eigi síðar en 1. maí 1996 og verði
niðurstaðan send til kynningar aðild-
arfélögum L.H. Þykir málið bera að
með þeim hætti nú að full alvara sé
á ferðum. L.H. skipaði nefnd ásamt
H.l.S. fyrir tveimur árum til að fjalla
um sameiningu en sú nefnd þótti skila
litlum árangri þrátt fyrir greinagóð
fyrirmæli þings. Fyrir hönd L.H. í
nefndina nú voru kosnir þeir Svein-
björn Sveinbjörnsson Gusti, Sigfús
Helgason Létti og Haraldur Þórarins-
son Sleipni. Allir eru þessir menn já-
kvæðir fyrir sameiningu svo framar-
lega sem ekki komi upp alvarlegir
þröskuldar. Voru þingfulltrúar sem
rætt var við almennt bjartsýnni nú
en áður að góður skriður kæmist á
sameiningarmálin.
Fjörleg forkeppni
Margháttaðar breytingar voru
gerðar á reglum um gæðingakeppni
L.H. og ber þar hæst breytt útfærsla
á forkeppni. Samkvæmt samþykkt
þingsins skal nú á fjórðungs- og lands-
mótum vera með þrjá til fimm hesta
á vellinum í senn og þeir sýni aðeins
tölt og brokk í B-flokki en auk þess
skeið í A-flokki. Gefnar verða ein-
kunnir og fer að lágmarki tvöfaldur
sá fjöldi sem verða í úrslitum áfram
í kepppni úrvals gæðinga. Þar er
keppt samkvæmt eldri reglum L.H.
þar sem einn hestur er á vellinum í
senn og dæmdar eru allar gangteg-
undir. Þessi breyting er talin hvort-
tveggja í senn, spara tíma og gera
forkeppnina meira aðlaðandi fyrir
áhorfendur. Þá kom fram í máli
manna að þetta form gæti virkað
livetjandi til aukinnar þátttöku. Einn-
ig var gerð breyting á úrslitakeppni
B-flokks á þann veg að hraðabreyt-
ingar á tölti voru felldar út en þess
í stað farnir allt að tveir hringir á
hægu tölti á hvora hönd.
Þriðja stórmál og kannski ekki það
veigaminnsta er fjölgun landsmóta.
Eftir landsmótið 1998 verða lands-
mótin haldin annað hvert ár sam-
kvæmt samþykkt þingsins sem leiða
mun af sér margháttaðar breytingar
á stórmótafýrirkomulagi sem ekki eru
fyrirséðar. All nokkur umræða var
um landsmótin og komu meðal ann-
ars fram hugmyndir um að þau yrðu
rekin með auknum hagnaðarsjónarm-
iðum. Enfremur var samþykkt að
endurskoða rekstrarform, innihald og
fjármál landsmóta. Ennfremur
rammasamning við Bændasamtök ís-
lands, eftirgjald til samtakanna,
ákvörðun um landsmótsstað með
þriggja ára fyrirvara og skilgreiningu
á aðstöðu mótssvæða sem þarf til
landsmótshalds. Af þessu má sjá að
vænta má breytinga á næstu árum á
mótahaldi almennt.
En það verða víðar breytinga að
vænta því fram kom í máli Kristins
Hugasonar hrossaræktarráðunauts að
fyrirkomulag leiðbeiningarþjón-
ustunnar stæði allt opið fyrir breyt-
ingum og taldi hann ekki ólíklegt að
búið yrði að einkavæða hana innan
tíu ára auk annarra breytinga" sem
hugsanlega verða á fyrirkomulagi.
Mjög snarpar umræður urðu uni
fjárhagsáætlun en þar komu fram
tvær tillögur. Fjárhagsnefnd þingsins
klofnaði í afstöðu sinni og var skilað
tveimur tillögum til þingsins. í tillögu
minnhlutans var lagt til að skrifstofa
samtakanna yrði aðeins opin hálfan
daginn og með því yrðu sparaðar ein
og hálf milljón króna. Jafnframt var
lagt til að árgjöld hestamannafélag-
anna til L.H. yrðu lækkuð sem því
næmi. Urðu viðbrögð við þessari til-
lögu all hörð og taldi formaðurinn
Guðmundur Jónsson að hér væri nán-
ast um niðurrifsstarfsemi að ræða.
Þær breytingar urðu á stjórn sam-
takanna að Sigurgeir Bárðarson
Geysi, kom inn í stað Sigfúsar Guð-
mundssonar Smára, sem ekki gaf
kost á sér til endurkjörs. í varastjórn
voru kjörin Haraldur Þórarinsson
Sleipni, Guðlaug Hermannsdóttir
Létti, Agúst Oddsson Sörla, Birgir
Rafn Gunnarsson Páki, og Marteinn
Valdimarsson Glað. Aðrir í stjórn eru
Guðmundur Jónsson formaður, Guð-
brandur Kjartansson Fáki, Sigbjörn
Björnsson Faxa en báðir voru nú end-
urkjörnir, Jón Bergsson Freyfaxa,
Halldór Gunnarsson Feyki og Krist-
mundur Halldórsson Gusti.
iði. „Fyrir leikinn varaði ég menn
við og sagði að Raith væri betra
en talið væri í Þýskalandi."
Leeds hindraði ekki PSV
PSV átti ekki í erfiðleikum með
Leeds og vann 3:0 í Eindhoven en
hollenska liðið vann 5:3 í Leeds.
Leikurinn var opinn til að byija
með; Leikmenn Leeds reyndu að
senda boltann langt inn á Carlton
Palmer en PSV svaraði með
snöggum sóknum með Luc Nilis í
fararbroddi. Á 11. mínútu fann
Nilis Philip Cocu og hann braut
ísinn. Eftir þetta fékk Leeds nokk-
ur færi en leikmenn liðsins fóru
illa að ráði sínu og tveimur mínút-
um fyrir hlé truflaði Nilis John
Pemberton og varnarmaðurinn
gerði sjálfsmark. Cocu átti síðan
síðasta orðið stundarfjórðungi fyr-
ir leikslok. Dick Advocaat, þjálfari
PSV, skipti þá þremur lykilmönn-
um út af enda úrslitin ráðin.
Roda sofnaði á verðinum
Leikmenn Roda sofnuðu heldur
betur á verðinum gegn Benfíca
þegar 18 mínútur voru til leiks-
loka. þeir voru 2:0 yfir og staðan
2:1 samanlagt en þá bökkuðu þeir
til að halda fengnum hlut. Er fímm
mínútur voru eftir ætlaði miðherj-
inn Wdwin Vurens að senda knött-
inn aftur til varnarmanna en Ma-
rokkómaðurinn Hassan Nader
náði knettinum og skoraði. Við það
þurftu leikmenn Roda að koma
úr varnarskelinni til að freista
þess að bæta við marki en við það
opnaðist vörnin og Neder náði að
skora öðru sinni og jafna á síðustu
mínútu. Benfica fagnaði því 3:2
sigri samanlagt en Roda sat eftir
með sárt ennið.
Forest áfram
Nottingham Forest hélt uppi.
heiðri bresku liðanna en tæpt var
það — liðið fór áfram á útimarki
Steves Stones fyrir hálfum mán-
uði. í gærkvöldi tók Forest á móti
Auxerre og átti ekki skot að marki
mótheijanna þegar liðin gerðu
markalaust jafntefli í hörðum leik.
Corentin Martins var stöðugt
skapandi hjá Frökkunum en vörn
heimamanna var sterk og sérstak-
lega Colin Cooper og Steve Shettle
auk þess sem Mark Crossley varði
vel.
Seinni leikur Werder Bremen
og Dynamo Minsk var formsatriði
þar sem þýska liðið vann heima-
leikinn 5:0. Þjóðveijarnir komust
í 1:0 með marki Marcos Bodes um
miðjan fyrri hálfieik og tóku lífinu
með ró eftir það. Alexander
Khatskevich jafnaði stundarfjórð-
ungi fyrir leikslok og Yuri Shuk-
anov gerði sigurmarkið úr víta-
spyrnu á síðustu mínútu.
Bordeaux varðist vel
Anthony Bancarel tryggði
Bordeaux 1:0 sigur gegn Rotor í
Volgograd en hann skoraði með
góðu skoti átta mínútum fyrir
leikslok. Bancarel átti skot í stá
snemma í leiknum og var nálægt
því að skora skömmu fyrir hlé en
lánið lék ekki við hann fyrr en
undir lokin. Rotor, sem hafði betur
gegn Manchester United í fyrstu
umferð, sótti stíft í seinni hálfleik
en komst lítt áleiðis gegn sterki
vörn Bordeaux sem vann fyrri leik-
inn 2:0.