Morgunblaðið - 02.11.1995, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
FIMMTUUAGUR 2. NÓVEMBER 1995 D 5
Morgunblaðið/Sverrir
bjöminn" lagðuraðvelli íKaplakrika
ir sigur, en súr
0:18, yfir Rússum íEvrópukeppni
n sigurinn var súrsætur, því að stór-
á Lúxemborg, Jos Nigra og Jean-M.
rar sem undirritaður hefur séð hér
oninni um að komast í lokakeppnina
knöttinn á óskiljanlegan hátt, en
færðu íslendingum vítaköst á silfur-
fati. Besta dæmið um fumið og fátið
var, að ekki var skorað mark á sjö
síðustu mínútum hálfleiksins.
Rússarnir skoruðu fyrstu tvö mörk-
in í seinni hálfleik, 8:11, og leit allt
út fyrir öruggan sigur þeirra í kjölfar-
ið, en svo varð ekki. Leikmenn ís-
lenska liðsins fóru að bíta verulega
frá sér og náðu að hefta 4-2 sóknar-
leikaðferð Rússa, sem skoruðu ekki
nema tvö mörk á fimmtán mín. leikk-
afla og náðu íslendingar að nýta sér
það og snúa leiknum sér í hag -
breyttu stöðunni á átta mín. kafla úr
11:13 í 16:13. Varnarleikurinn var
mjög hreyfanlegur og það voru „Vals-
mennirnir“ - Valdimar Grímsson,
Geir Sveinsson, Ólafur Stefánsson,
Júlíus Jónasson og Dagur Sigurðsson
- ásamt FH-ingnum Gunnari Bein-
teinssyni, sem lék fremst á vellinum,
sem fóru á kostum, bæði í vörn og
sókn. Þegar á reyndi, varði Guðmund-
ur Hrafnkelsson, sem hafði lítið látið
að sér kveða, þijú skot og undir lok-
in, varði hann vítakast frá Vasili
Kudinov í stöðunni, 19:17, og undir
lokin kórónaði hann leik íslenska liðs-
ins, með því að veija langskot.
Tveggja marka sigur, 20:18, var í
höfn.
Eins og fyrr segir var sigurinn
gegn Rússum sætur og ekki á hveijum
degi sem þeir eru lagðir að velli, en
það hefði óneitanlega verið skemmti-
legra að fagna sigrinum án „þátttöku“
dómaranna frá Lúxemborg. Það er
þó ekki hægt að taka það frá leik-
mönnum íslands að þeir börðust
hetjulega og stóðu sig sem hetjur
þegar mest á reyndi, náðu að snúa
leiknum sér í hag í seinni hálfleik -
læstu klónum í „rússneska björninn"
og slepptu ekki takinu.
Rússar néðu sér aldrei á strik í
leiknum, sem sést á því að þeir skor-
uðu ekki nema átján mörk og var
sóknarnýting þeirra aðeins 37% -
sjaldgæf tala í þeirra herbúðum. Nýt-
ing Islendingar var aðeins betri, eða
41%.
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari:
Égsagðiað
við myndum
vinna Rússa
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðs-
þjálfari, var að vonum ánægður
með sigurinn gegn Rússum.
„Þetta tókst. Það er allt hægt
ef viljinn er fyrir hendi. Það
voru margir á þvf fyrir leikinn
að ég hafi verið of bjartsýnn
er ég sagði að við myndum
vinna Rússa. Ég er bjartsýnis-
maður að eðlisfari og ég hef
alltaf unnið þannig. Eg er mjög
ánægður með varnarleikinn og
markvörsluna og þessi leikur
vannst fyrst og fremst á þessu
tvennu,“ sagði Þorbjörn.
Hann sagði að sóknarleikur ís-
lenska liðsins hafi ekki verið
góður að undanförnu og því hafi
hann lagt höfuðáherslu á varnar-
leikinn. „Ég vissi það að ef við
gætum haldið Rússunum undir 20
mörkum ættum við möguleika.
Við vorum mjög hreyfanlegir í
vörninni og gáfum þeim aldrei frið
— vorum alltaf mættir til að trufla
þá og bijóta á þeim og stöðvuðum
því flestar sóknir þeirra,“ sagði
þjálfarinn. „Ég veit að sóknarleik-
urinn er veikleiki okkar og við eig-
um eftir að fínpússa hann er fram
líða stundir.
Ég var ekki alveg sáttur við
fyrri hálfleikinn því þá vorum við
að gera of mikið af mistökum í
SÓKNAR-
NÝTING
Evrópukeppni landsliða
ÍSLAND
M8fk Sðknir %
RUSSLAND
Mörk Séknir %
8 23 35 F.h 9 24 37
12 25 48 S.h 9 24 37
20 48 41 Alls 18 48 37
3 Langskot 3
2 Gegnumbrot 3
3 Hraðaupphlaup 3
1 Hom 2
6 Lína 1
5 Víti 6
sóknarleiknum. Með smáheppni v
hefðum við alveg eins getað verið
tveimur mörkum yfir í hálfleik því
við vorum að klúðra dauðafærum.
Síðari hálfleikur var mun betri hjá
okkur og baráttan í liðinu var ein-
stök.“'
Þorbjörn sagði að það væri
tvennt jákvætt við sigurinn. „í
fyrsta lagi erum við enn með í
keppninni og í öðru lagi setur þessi
sigur okkar pressu á Rússana. Nú
þurfa þeir helst að vinna Rúmena
í báðum leikjum sínum, þeir mega
ekki við því að tapa stigi gegn
þeim. Ef við hefðum tapað hefðu
Rússar getað sent varalið sitt gegn
Rúmenum og tekið þá þannig með -
sér í úrslitakeppnina á Spáni.“
Um dómgæsluna sagði Þor-
björn: „Það var markt einkennilegt
í dómum þeirra í kvöld og kannski
voru þeir hliðhollari okkur. En það
var samt ákveðin lína í þessum
hjá þeim því ef menn settu öxlina
á undan sér í gegnumbroti var
dæmdur ruðningur, svo einfalt var
það. Ég verð að segja að ég hef
oft upplifað verri dómgæslu á úti-
velli þar sem við erum hreinlega
afgreiddir á fyrstu fimm mínútun- *
um. Þetta er nú einu sinni svona
í þessari íþrótt og við verðum bara
að lifa við það.“
Um seinni leikinn í Moskvu á
sunnudag sagði Þorbjörn: „Ég
hræðist hann ekki. Við erum stað-
ráðnir í því að gefa þeim ekkert
í þessari keppni. Við förum út til
að beijast og gera okkar besta.
Þessi leikur gefur okkur aukið
sjálfstraust og setur líklega ein-
hveija pressu á Rússa. Það verða
tékkneskir dómarar í Moskvu og
ég er mjög ánægður með það því
þeir leyfa yfirleitt meiri hörku,“
sagði Þorbjörn.
I.-::! þfriunrr*/\\\
Morgunblaðið/Sverrir
-M. Spartz frá Lúxemborg voru ekkl vlnsælir hjá Rússum. Hér gefur Andrel Lavrov, sem fékk að flnna fyrlr þeim, þeim heldur betur orA í eyra.
■ SÉRA Vigfús Þór Árnason,
sóknarprestur í Grafarvogi, flutti
stutta hugvekju í Kaplakrika fyrir
leik til minningar um þá sem fórust
í snjóflóðinu á Flateyri í liðinni
viku. Síðan var einnar mínútu þögn.
■ ÞRIR leikmenn, sem voru í is-
lenska landsliðshópnum fyrir leik- _
inn, urðu að sætta sig við að vera ’
ekki á leikskýrslu. Það voru Einar
Gunnar Sigurðsson, Róbert Sig-
hvatsson og Sigurður Sveinsson.
■ VALDIMAR Grímsson gerði
fyrsta mark íslands gegn Rússum
í gær - úr vítakasti sem Bjarki
Sigurðsson fiskaði er 4,57 mínútur
voru liðnar af leiknum. Þá höfðu
Rússar gert tvö mörk. Fjögur af
fyrstu fimm mörkum Islands gerði
Valdimar úr vítaköstum.
■ / LOK fyrri hálfleiks fengu
Rússar aukakast en áður en það
var tekið rann tíminn út. Vasiliv
Kudinov skaut i stöng, Islending-
ar hrósuðu happi og gengu út af
vellinum áleiðis til búningsher-
bergja. Rússar sögðu eitthvað við
dómarana og svo fór að þeir létu
endurtaka aukakastið - en áður
urðu þeir að kalla íslenska liðið
aftur inn á völlinn.