Morgunblaðið - 03.11.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANMA
KNATTSPYRNA
BLAD
Reuter
1995 ■ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER
■ Úrslit / C2
■ Nðnast / C4
SLAKT gengi bresku liðanna á
Evrópumótunum hélt áfram í
gærkvöldi er Glasgow Celtic og
Everton voru slegin út úr Evr-
ópukeppni bikarhafa. Celtic
steinlá heima, 0:3, gegn París
Saint Germain og Everton — sem
lagði KR að velli í síðustu umferð
— tapaði 0:1 gegn Feyenoord í
Rotterdam. Everton fagnaði
sigri í úrslitaleik Evrópukeppni
bikarhafa gegn Rapid frá Vín á
Quip-vellinum í Rotterdam fyrir
tíu árum en gekk ekki eins vel
á sama stað í gær. Fyrri leikur-
inn var markalaus á Goodison
Park í Liverpool en fyrirliði Fey-
enoord, Regi Blinker, gerði eina
mark leiksins á 39. mín í gær-
kvöldi og það dugði. Blinker
fagnar marki sínu hér til hliðar
ásamt Peter Boz, en þess má
geta að útsendarar enska meist-
araliðsins Blackburn Rovers
voru sagðir á vellinum í Rotterd-
am til að fylgjast með Blinker
með hugsanleg kaup í huga.
Varnarmaðurinn Craig Short
hjá Everton var rekinn af velli á
síðustu mínútunni í gærkvöldi
fyrir að slá gömlu kempuna Ron-
ald Koeman í höfuðið, eftir að
Hollendingurinn hafði tæklað
hann heldur hressilega.
Feyenoord
sló KR-
banana út
Arnór áfram
hjá Örebro
Arnór Guðjohnsen, landsliðsmaður í knattspymu,
verður áfram í herbúðum Örebro í Svíþjóð. „Ég
hef rætt við forráðamenn liðsins og það er aðeins
eftir að ganga frá smáatriðu í nýjum samningi —
það verður gert á morgun,“ sagði Amór í viðtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Valur fær
bandarískan
leikmann
VALSMENN hafa ákveðið að fá bandarískan leik-
mann til liðs við sig í körfunni í vetur. Sá sem
varð fyrir valinu þjá Val er Ronald Clifton Bay-
less, 24 ára gamall leikstjórnandi, og kemur hann
til landsins á sunnudagsmorgun og mun væntan-
lega leika með Val að Hlíðarenda gegn Haukum
á sunnudagskvöldið. Að sögn Erlends Eysteins-
sonar, formanns körfuknattleiksdeildar Vals, eru
allar tölulegar upplýsingar um Bayless mjög
áhugaverðar. Hann lék með Indiana háskólanum
og var valinn besti varnarmaður liðsins en auk
þess er hann góður leiksljómandi og gefur sem
slíkur mikið af stoðsendingum og hann er einnig
ágætis skytta og mjög öraggur á vitalínunni.
Valsmenn hafa einnig fengið meiri liðsstyrk þvi
Bryiyar Karl Sigurðsson hefur gengið til liðs við
félagið á nýjan Ieik, frá Akranesi.
Ajax setti
nýtt met
MEÐ jafntefli gegn Grasshoppers í fyrrakvöld í
Meistaradeild Evrópu skráði hollenska knatt-
spyrnufélagið Ajax sig enn einu sinni á spjöld
knattspyrnusögunnar. Liðið hefur nú leikið
fimmtán leiki i keppninni í röð án taps og bætti
þar með fyrra metið sem félagið átti sjálft ásamt
Liverpool en það voru fjórtán leikir í röð án taps.
Síðast tapaði Ajax í Evrópukeppni í mars 1994
fyrir Parma 2:0. Gamla metið setti Ajax á vel-
gengnisárum sínum á fyrri hluta áttunda áratug-
arins þegar liðið varð þijú ár í röð sigurvegari
1 Evrópukeppni meistaraliða með Johan Cruyff
í broddi fylkingar, en Liverpool jafnaði síðan
metið á miðjum níunda áratugnum.
Ekki nóg með það þá hefur Ajax líka sett met
i hoUensku deUdarkeppninni en félagið hefur nú
leikið fjörutíu og sex leiki þar í röð án taps, eða
allt frá því að það tapaði 2:1 fyidr WiUem H 8.
maí 1994. AC Milan á hins vegar met í flestum
sigurleikjum í röð ef horft er til Evrópukeppninn-
ar í heild — meistarakeppnin, bikarhafakeppnin
og UEFA-keppnin — en leikmenn AC, á miðjum
áttunda áratugnum, léku sautján leiki í röð án
taps.
HANDKNATTLEIKUR
Ein breyting á landsliðinu fyrirsíðari leikinn gegn Rússum
Einar Gunnar í hópinn
Jason með
þrettán mörk
JASON Ólafsson skoraði þrettán
mörk, þar af tvö úr vítaköstum,
þegar SSV Brixen vann ná-
grannaslaginn gegn Meran í Suð-
ur-Týról, 26:24. Jason er annar
markahæsti leikmaðurinn í 1.
deildarkeppninni á ítalfu — hefur
skorað 38 mörk í fimm leikjum.
Rússinn Valeri Gopin, sem leikur
með Meran og skoraði 7/2 mörk,
er markahæstur með 41 mark.
Brixen, sem hefur unnið þijá
leiki og gert tvö jafntefli, er efst
ásamt Teramo með átta stig.
Rubiere með með sjö stig og
Meran er með fimm stig.
-w
JASON Ólafsson
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, varð að
gera eina breytingu á landsliðs-
hópnum sem fer til Rússlands í dag
frá leiknum í Kaplalrika í fyrra-
kvöld. Selfyssingurinn Einar
Gunnar Sigurðsson kom inn í tólf
manna hópinn í stað Jóns Kristj-
ánssonar, Val, sem ekki átti heim-
angengt að þessu sinni.
lslenska landsliðið millilendir í
Stokkhólmi á leið sinni til Moskvu.
Á tímabili í gær var óttast að
tveggja sólarhringa verkfall flug-
freyja og flugþjóna hjá SAS gæti
sett strik í reikning landsliðsins,
en nú er ljóst að svo verður ekki
þar sem verkfallið nær einvörð-
ungu til innanlandsflugs í Skandi-
navíu.
Rúmenar unnu Pólverja
Rúmenar sigruðu Pólveija,
29:27, í Evrópukeppninni í hand-
knattleik í gærkvöldi en leikið var
í Poznan í Póllandi. Rúmenar höfðu
undirtökin nær allan leikinn og
leiddu með tveimur til fjórum
mörkum allan síðari hálfleikinn.
íslendingar eru með þessum
þjóðum í riðli ásamt Rússum og
eftir leikinn í gær er staðan þann-
ig að Rúmenar, íslendingar og
Rússar eru jafnir að stigum, hafa
fengið 4 stig, en Pólverjar sitja á
botninum með ekkert stig. Rúmen-
ar eru í efsta sæti, hafa þijú mörk
í plús, 73:70, ísland er í öðru sæti
með eitt mark í plús og Rússar í
því þriðja með 16 mörk í plús en
þeir töpuðu fyrir íslandi og hafa
ekki leikið við Rúmena.
FYRSTI MEISTARATmLL ATVINNUMANNALIÐS FRÁ ATLANTA /C4