Morgunblaðið - 03.11.1995, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1995 C 3
URSLIT
Breiðablik-IA 75:72
Smárinn, úrvalsdeildin í körfuknattleik, 10.
umferð, fimmtudaginn 2. nóvember 1995.
Gangur leiksins: 0:3, 9:3, 12:11, 21:16,
23:25, 29:27, 34:36, 34:45, 42:45, 44:50,
51:50, 60:60, 66:69, 68:72, 75:72.
Stig Breiðabliks: Halldór Kristmannsson
23, Birgir Mikaelsson 17, Michael Thoele
15, Erlingur S. Erlingsson 6, Agnar Olsen
6, Einar Hannesson 4, Daði Sigurþórsson 4.
Fráköst: 8 í sókn — 22 í sókn.
Stig ÍA: Milton Bell 23, Jón Þ. Þórðarson
20, Bjami Magnússon 12, Haraldur Leifs-
son 12, Sigurður Elvar Þórólfsson 5.
Fráköst: 13 í sókn — 33 I vöm.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Bergur
Steingrímsson. Ekki uppá sitt besta.
yillur: Breiðablik 17 — ÍA 21.
Ahorfendur: 95 greiddu aðgangseyri.
Haukar-Þór 86:74
íþróttahúsið við Strandgötu:
Gangur ieiksins: 6:0, 6:5, 11:5, 23:8,
30:10, 35:10, 46:22, 51:28, 51:34, 58:35,
66:44, 75:53, 75:68, 77:70, 84:70, 86:74.
Stig Hauka: Jason Williford 25, Jón Amar
Ingvarsson 22, Bergur Eðvarðsson 12, Sig-
fús Gizurson 11, ívar Ásgrímsson 5, Pétur
Ingvarsson 4, Björgvin Jónsson 4, Pálmar
Sigurðsson 3.
Fráköst: 9 í sókn - 17 í vöm
Stig Þórs: Fred Williams 30, Kristján Guð-
laugsson 11, Hafsteinn Lúðvíksson 9, Kon-
ráð Óskarsson 8, Kristinn Friðriksson 7,
Birgir Örn Birgisson 5, Böðvar Kristjánsson
4.
Fráköst: 11 í sókn - 14 i vöm
Dómarar: Helgi Bragason og Eggert Aðal-
steinsson. Dæmdu illa.
yillur: Haukar 29 - Þór 18.
Áhorfendur: Um 100 manns í húsinu.
Tkidastóll - KR 62:60
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 2:0, 4:5, 10:11, 14:23,
25:29, 27:35, 32:48, 39:53, 45:55, 50:56,
62:60.
Stig Tindastóls: Törrey John 31, Lárus
Dagur Pálsson 10, Hinrik Gunnarsson 9,
Ómar Sigmarsson 7, Pétur Guðmundsson
4, Amar Kárason 1.
Fráköst: 14 í sókn - 18 í vörn.
Stig KR: Jonathan Bow 17, Hermann
Hauksson 14, Ingvar Ormarson 12, Óskar
Kristjánsson 8, Osvaldur Knudsen 7, Atli
Einarsson 2, Lárus Ámason 1.
Fráköst: 5 í sókn - 33 í vöm.
Dómarar: Georg Þorsteinsson og Einar
Einarsson, sjálfsagt oft átt betri dag.
Villur: Tindastóll 17 - KR 18.
Áhorfendur: 550 og áttu stóran þátt í sigr-
inum.
ÍR - Skallagrímur 92:67
Seljaskóli:
Gangur leiksins: 2:7, 11:7, 24:22, 26:32,
31:36, 40:42, 63:47, 69:56, 87:60, 92:67.
Stig ÍR: Herbert Amarson 36, Eiríkur
Önundarson 21, Jón Örn Guðmundsson 11,
Eggert Garðarson 10, John Rhodes 9, Guðni
Einarson 2, Márus Amarson 2, Broddi Sig-
urðsson 1.
Fráköst: 22 sókn - 26 í vöm.
Stig Skallagríms: Bragi Magnússon 18,
Alexander Ermolinski 12, Sveinbjöm Sig-
urðsson 8, Tómas Holton 7, Sigmar Egils-
son 6, Ari Gunnarsson 5, Gunnar Þorsteins-
son 4, Grétar Guðlaugsson 4, Andri Theód-
órsson 3.
Fráköst: 11 sókn - 29 í vöm.
Dómarar: Jón Bender og Þorgeir Jón Júl-
íusson voru góðir í heildina þrátt fyrir
nokkra vafadóma.
yillur: ÍR 20 - Skallagrímur 23.
Áhorfendur: Um 230.
Kef la vík - Valur 98:61
íþróttahúsið I Keflavík:
Gangur leiksins: 3:0, 3:2, 19:14, 38:14,
48:18, 53:20, 61:23, 69:41, 76:43, 89:47,
98:61.
Stig Keflvíkinga: Guðjón Skúlason 21,
Gunnar Einarsson 20, Lenear Bums 14,
Guðjón Helgi Gylfason 11, Falur Harðarson
8, Albert Óskarsson 7, Sigurður Ingimund-
arson 6, Elentínus Guðjón Margeirsson 5,
Halldór Rúnar Karlsson 4, Jón Kr. Gtslason
2.
Fráköst: 23 í sókn - 16 í vörn.
Stig Vals: Bergur Emilsson 15, Guðni
Hafsteinsson 14, Bjarki Guðmundsson 13,
Bjarki Gústafsson 7, Sveinn Zoéga 6, Magn-
ús Guðmundsson 2, ívar Webster 2, Pétur
Már Sigursson 2.
Fráköst: 17 í sókn - 22 í'vörn.
Dómarar: Kristján MöJler og Sigmundur
Herbertsson - dæmdu mjög vel.
Villur: Keflavík 14 - Valur 17.
Áhorfendur: Um 200.
UMFN-UMFG 67:72
íþróttahúsið í Njarðvík:
Gangur leiksins: 4:0, 4:2, 14:14, 20:20,
25:31, 30:41, 34:52, 40:52, 50:59, 54:61,
64:66, 67:72.
Stig UMFN: Teitur Örlygsson 25, Jóhannes
Kristbjörnsson 16, Rondey Robinsón 11,
Páll Kristinsson 6, Sverrir Þór Sverrisson
4, Kristinn Einarsson 3, Rúnar Arnason 2.
Fráköst: 9 í sókn - 21 í vörn.
Stig UMFG: Herman Myers 16, Guðmund-
ur Bragason 16, Hjörtur Harðarson 13,
Helgi Jónas Guðfinnsson 13, Marel Guð-
laugsson 6, Undór Sigurðsson 4, Páll Axel
Viibergsson 2, Ingi Karl Ingólfsson 2.
Fráköst,: 14 í sókn - 21 í vörn.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristinn
Albertsson sem dæmdu vel.
yillur: UMFN 16 - UMFG, 14.
Áhorfendur: Um 200.
Evrópukeppni meistaratiða
A-RIÐILL:
CSKA Moskva - Olympiakos......96:91
Unicaja Malaga - Leverkusen 80:74
B-RIÐILL:
Pau-Orthez (Frakkl.) - Benfica ...76:61
Real Madrid - Maccabi Tel Aviv ..91:74
Barcelona - Panathinaikos...63:57
A-RIÐILL
Fj. leikja U J T Mörk Stig
HAUKAR 10 8 0 2 853: 714 16
KEFLAVÍK 10 8 0 2 947: 812 16
TINDASTÓLL 10 8 0 2 788: 727 16
UMFN 10 7 0 3 870: 773 14
ÍR 10 6 0 4 841: 795 12
BREIÐABLIK 10 2 0 8 791: 946 4
B-RIÐILL
Fj. leikja u J T Mörk Stig
UMFG 10 6 0 4 930: 805 12
KR 10 6 0 4 862: 845 12
SKALLAGR. 10 4 0 6 750: 807 8
ÞÓR 10 3 0 7 839: 837 6
ÍA 10 2 0 8 782: 872 4
VALUR 10 0 0 10 650: 970 0
Knattspyrna
Evrópukeppni bikarhafa
Önnur umferð, seinn leikir:
Hradec Kralove, Tékklandi:
Hradec - Dynamo Moskva...........0:1
Eftir framlengdan ieik.
- Daniel Kaplan (14.). 11.530.
•Jafnt 1:1. Dynamo vann í vítaspymu-
keppni 3:1.
Rotterdam, Hollandi:
Feyenoord - Everton...............1:0
Regi Blinker (39.). 40.000.
•Feyenoord vinnur 1:0 samanlagt.
Briigge, Belgíu:
FC Briigge - Real Zaragoza.......0:1
- Daniel Garcia (90.). 18.000.
•Real Zaragoza vinnur 3:1 samanlagt.
Aþena, Grikklandi:
AEK Aþena - Gladbach..............0:1
- Stefan Effenberg (70.). 25.000.
•Gladbach vinnur samanlagt 5:1.
Parma, ítallu:
Parma - Halmstadt.................4:0
Filippo Inzaghi (1.), Dino Baggio (38.),
Hristo Stoichkov (53.), Tony Andersson
(69. - sjálfsm). 26.000.
•Parma vinnur samanlagt 4:3.
Vín, Austurríki:
Rapid Vín - Sporting Lissbon......4:0
Eftir framlengdan leik — 2:0 eftir venju-
legan leiktíma.
Dietmar Kuehbauer (24.), Trifon Ivanov
(90.), Christian Stumpf (105.), Carsten
Jancker (109.). 24.000.
•Rapid Vín vinpur 4:2 samanlagt.
Glasgow, Skotlandi:
Celtic - Paris St Germain.........0:3
- Patrice Loko 2 (37., 43.), Pascal Nouma
(67.). 34.822.
•París St Germain vinnur 4:0 samanlagt.
La Coruna, Spani:
La Coruna - Trabzonspor...........3:0
Donato (21.), Bebeto 2 (38., 80.). 29.600.
•La Coruna vinnur 4:0 samanlagt.
UEFA-bikarkeppnin
Uílanó, ftalíu:
AC Milan - Strasbourg.............2:1
Roberto Baggio 2 (28., 45.) — Franck
Sauzee (45.). 25.000.
•AC Milan vinnur 3:1 samanlagt.
í kvöld
Körfuknattleikur
1. deild kvenna:
Akranes: í A - Njarðvík 20
Keflavík: Keflavík - KR 20
1. deild karla:
Sandgerði: Reynir - KFÍ 20
Handknattleikur
1. deitd kvenna:
Austurberg: KR - FH 20
2. deild karla:
Fram-hús: Fram - Breiðablik.. ..19.45
Fylkishús: Fylkir - BÍ 20
Strandgata: ÍH - Þór 20
Blak
1. deild karla:
KA-hús: KA -ÞrótturNes „20.30
FÉLAGSLÍF
Hátíð hjá Fylki
Fylkismenn verða með lokafagnað sinn
laugardag 4. nóvember. Kl. 14 verður upp-
skeruhátíð yngri flokka í hátíðarsal Árbæj-
arskóla, kl. 19 um kvöldið verður lokafagn-
aður fyrir 18 ára og eldri í Fáksheimiiinu.
AðaHundur knatt-
spyrnudeildar ÍR
Aðalfundur knattspymudeildar ÍR verður
haldinn á morgun, íaugardag, í félagsheim-
ili ÍR, Skógarseli 12 kl. 15.
Leiðrétting
Nöfn á sundfólki á barna- og unglingasíðu
í gær víxluðust. Nöfnin eru í réttri röð f.v.
Berglind Rut Valgeirsdóttir, Einar Örn
Gylfason og Halla Guðmundsdóttir.
IÞROTTIR
IÞROTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
ATAK
ÞAÐ ERU ekki margir dagar
síðan ég sagði að það væri
komið í óefni hjá íþróttagrein,
sem lét þann subbuskap við-
gangast sem átti sér stað í
Grikkiandi, þar sem
Stjömustúlkur urðu
heldur betur fyrir barð-
inu á ítölskum dómur-
um, sem gerðu allt til
að klekkja á þeim. Þar
hafði aðtúr penna mín-
um þegar ég og aðrir
urðu vitni að þeirri spillingu,
sem hefur viðgengist. Mér og
öðrum hreinlega blöskraði í
Kaplakrika á landsleik íslands
og Rússlands - plágan var kom-
in heim; dómarar frá Lúxem-
borg. Menn stóðu agndofa þegar
einn Rússi var sendur af leik-
velli eftir aðeins 2,18 mín.,
svona aðeins til að dómararnir
létu vita að þeir væru með í
leiknum. Síðan dæmdu þeir tvö
óskiljanleg vítaköst á Rússa með
stuttu millibili og annar dómarr
inn dæmdi vítakast af Rússum.
Þetta er aðeins smásýnishom
af framkomu „heimadómar-
anna“ í upphafi leiksins, en
framkoma þeirra við Rússa átti
siðan eftir að vera vægast sagt
skrautleg.
Islendingar, sem oft hafa
kvartað yfir dómgæslu í gegnum
árin, eru ekki samkvæmir sjálf-
um sér ef þeir eru sáttir við það
sem gerðist í Kaplakrika - að
þeir brosi aðeins í kampinn eftir
að hafa séð lágkúruna í öllum
sínum ömurleika er óeðlilegt.
Ég geri það ekki, enda væri ég
ekki trúverðugur ef ég hefði
lokað augunum fyrir því sem ég
hef bent á og sá í Kaplakrika.
Það þarf að uppræta þessa
spiilingu, sem hefur verið að
naga alþjóðlegan handknattleik
innan frá. Þess vegna kom mér
á óvart, þegar ég heyrði lands-
liðsþjálfarann segja í útvarps-
viðtali, að frásögn min'væri öf-
und. Ég öfunda ekki íþrótta-
grein sem þannig er komið fyr-
ir, heldur er henni vorkunn -
hún er á villigötum.
Það var sláandi að lesa hvað
landsliðsþjálfarinn sagði m.a.
eftir leikinn: „Þetta er nú einu
sinni svona í þessari grein og
við verðum bara að lifa við það.“
Nei, við eigum ekki að lifa
við ódrenglyndi. Við getum lifað
við náttúrulegar aðstæður, þar
sem við ráðum ekki við náttúru-
öflin. Við eigum ekki að lifa við
það að okkur sé boðið upp á
skemmdarverk af manna hönd-
um!
Einn af vinsælustu hand-
knattleiksmönnum íslands
skrifaði um landsleikinn og
sagði m.a.: „En það má segja
að þeir dökkklæddu Jiafí stolið
senunni í gærkvöldi. Áhorfendur
fengu góða innsýn í það hvemig
dómarar dæma oft á heimavelii
annars liðsins. Svona dómgæslu
upplifa félagslið og landslið á
hverju ári. Þessa dómarar á þeg-
ar í stað að friða. Ég er ekki
að segja að þeir hafi bara dæmt
með íslenska liðinu heldur gerðu
þeir þvílíka vitleysu að annað
eins hefur ekki sést. Sóknarleik-
ur var ekki í miklu uppáhaldi
hjá þeim svörtu. Þeir dæmdu ein
þúsund sóknarbrot. Við hérna á
klakanum höfum ekki vanist því
á undanförnum árum og mætti
halda að handboltamenn í Lúx-
emborg hefðu þrjá fætur. Það
má segja að fyrir okkur hafi
þetta verið V.S.O.P. heimadóm-
aranna og ég mæli með þeim.“
Ég segi aftur: Nei, ég mæli
ekki með þannig heimadómur-
um og hef aldrei gert. Það á að
beijast gegn þeim með kjafti og
klóm. Það er hlutverk hand-
knattleiksforustunnar og eftir-
Menn eiga ekki að
lifa viðóréttlæti
um ókomna framtíð
litsmanna að koma þannig dóm-
urum frá - það á að gera átak
til að svo megi verða.
Það fer mikið þrek í að betj-
ast við andstæðingana á vellin-
um, svo að dómarar bætist ekki
við. Það er orðið alvarlegt þegar
þjálfarar eru byijaðir að hafa
meiri áhyggjur af dómurum en
mótheijunum, eins og t.d. Aifreð
Gíslason, þjálfari KA-liðsins, en
hann hefur oft leikið með liðum
- t.d. Essen og Bidasoa - sem
hafa orðið fyrir barðinu á heima-
dómurum. Alfreð, sem stjórnar
liði sínu gegn slóvakíska liðinu
Kosice í næstu viku á Akureyri
og viku síðar úti, sagði í viðtali:
„Við verðum að vinna þá með
tíu marka mun hérna neima svo
við getum farið sæmilega hress-
ir í síðari leikinn. Við vitum að
í útileiknum á fjórða besta dóm-
arapar Póllands að dæma, þá
verður eftirlitsdómarinn frá
Rúmeníu, þannig að það má eiga
von á öllu.“
Þannig ástand er óþolandi.
Það er ekki hægt að ætlast til
að íþróttagrein verði tekin alvar-
lega, ef ekki tekst að uppræta
þau vinnubrögð og spillingu,
sem margir dómarar virðast
hafa stundað óáreittir. Menn
verða að standa vörð um fram-
gang handknattleiksins, ekki
sætta sig við skemmdarverk.
Menn eiga ekki að þurfa að lifa
við óréttlæti um ókomna fram-
tíð.
Ástæðan fyrir því að ég sett-
ist niður í gær og stakk enn
einu sinni niður penna til að
skrifa þennan pistil um dómara-
mál í alþjóðlegum handknatt-
leik, eru viðbrögð forráðamanna
Handknattleikssambands ís-
lands og landsliðsþjálfarans, þar
sem þeir sökuðu mig um að ég
hefði ekki getað glaðst yfír sigr-
inum gegn Rússum — þess
vegna hefði ég skrifað um og
sagt frá hinni sorglegu fram-
göngu dómara leiksins. Ég vísa
þeim ummælum til föðurshús-
anna, um leið og ég bendi þeim
á að það er mitt hlutverk sem
blaðamaður Morgunblaðsins að
segja lesendum blaðsins hlut-
laust frá hvað fyrir augu ber.
Það getur enginn, sem var í
Kaplakrika eða sá landsleikinn
beint í sjónvarpi, neitað því að
hann var ekki vel leikinn og það
voru dómararnir sem voru í
mjög stóru hlutverki, því miður.
Svo einfalt vat- það og frá því
sagði ég. Það er ekki niðurrif
að segja satt og rétt frá. Ég
sagði frá hetjulegri baráttu ís-
lensku leikmannanna, sem stóðu
sig sem hetjur þegar mest á
reyndi — sagði réttilega frá
sætum sigri þeirra, sem því mið-
ur var súr að þessu sinni. Ég
skrifa ekki fyrir hóp fárra
manna, sem vilja hafa hlutina
öðruvísi en þeir eru — ég skrifa
fyrir iesendur Morgunblaðsins
af bestu sannfæringu.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
Blikamir hölðu bet-
ur í botnslagnum
BREIÐABLIK vann í gærkvöldi sinn fyrsta sigur í úrvalsdeiid í
hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi, Smáranum, er Skagamenn
komu í heimsókn. Sigur Blika hékk á bláþræði en með heppni
og ef til vill smá aðstoð dómaranna á lokasekúndunum, tókst
heimamönnum að sigra 75:72. Mikilvægur sigur í botnslagnum.
Eg er ánægður með að ná að
sigra og þetta var mjög áríð-
andi sigur á heimvelli og okkar
■■■^^H fyrsti hér. Þetta var
Skúli Unnar baráttusigur en
Sveinsson körfuknattleikurinn
skrifar var aps ekki áfer5_
arfallegur," sagði
Birgir Guðbjörnsson, þjálfari
Breiðabliks, að leik loknum. Hann
fékk tæknivillu í leikhléi fyrir að
mótmæla full harkalega að dómar-
arnir slepptu greinilegum ruðningi
á Skagamenn á síðustu sekúndu
fyrri hálfleiks.
Skaginn hafði 66:69 yfír þegar
1,41 mín. var eftir og 68:72 þegar
1,20 voru eftir. Halldór Krist-
mannsson setti niður þriggja stiga
skot og munurinn því eitt stig,
71:72 þegar 40 sekúndur voru eft-
ir. Sókn IA misfórst og þegar 8,51
sekúnda var eftir misnotaði Daði
Sigurþórsson tvö vítaskot en setti
niður tvö skömmu síðar og staðan
því 73:72 og 7,25 sekúndur eftir.
Milton Bell tók boltann upp og
ætlaði að keyra inn í vörn Blika en
Björgvin dómari dæmdi sóknarbrot
á hann og var það vægast sagt
strangur dómur. Að minnsta kosti
menn séð það svartara án þess að
nokkuð hafi verið dæmt. Þar með
voru vonir ÍA orðnar að engu.
Bæði lið gerðu sig sek um mikið
af mistökum en leikurinn var allan
tímann jafn og spennandi. Blikar
léku svæðisvöm allan tímann en
gestirnir skiptust á að vera í svæðis-
vörn og maður á mann vörn auk
þess sem þeir beittu 2-2-1 pressu-
vörn nokkrum sinnum með ágætum
árangri. Milton Bell var mjög
grimmur í fráköstunum undir eigin
körfu og gerði síðan mikið af því
að rekja knöttinn sjálfur upp miðj-
una í hraðaupphlaupum og leggja
hann síðan út á bakverðina sem
komu með honum.
Varnarleikur ÍA beindist að því
að halda Michael Thoele sem mest
út úr leiknum og gekk það ágæt-
lega, því hann gerði „aðeins" 15
stig. Halldór var hins vegar vel með
á nótunum í síðari hálfleiknum en
fremur daufur í þeim fyrri. Birgir
Mikaelsson var traustur og Daði
náði að halda boltanum vel þó svo
stif vörn væri leikin gegn honum.
En hann þarf að æfa skot meira
þannig að hann gæti ógnað enn
meira en hann gerir.
Bell var sterkur í gær, vinnur
allan leikinn á fullu en tekur óþarf-
lega oft að sér hlutverk bakvarðar
í hraðaupphlaupunum. Jón Þór var
öflugur og hann gerði nokkrar
skemmtilegar körfur með því að
fara inn í vörn mótheijanna, en
hann er höfðinu styttri en flestir
aðrir leikmenn deildarinnar. Bjarni
átti ágæta kafla en hvarf þess á
milli og Haraldur á að geta betur.
ÍR þreytti Skallagrím
til uppgjafar
m
IR-ingar náðu að snúa við taflinu
eftir siakan fyrri hálfleik gegn
Skallagrími í Breiðholtinu í gær-
kvöldi þegar þeir
keyrðu upp hraðann
og þreyttu Borgnes-
rnga til uppgjafar.
IR vann örugglega
92:67 og er það þriðji sigur þeirra
í röð. Fyrstu 10 sóknir liðanna fóru
í súginn og eftir tæpar 5 mínútur
var staðan 2:7, Skallagrími í- vil.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Varnir gáfu lítinn frið fyrir skot
enda stigaskorið eftir því. ÍR-ingar
náðu þó fleiri skotum en hittu illa
og á þessum tíma tóku gestirnir
flest fráköst og höfðu 5 stiga for-
skot í leikhléi, 31:36.
Sem fyrr sagði keyrðu ÍR-ingar
upp hraðann eftir hlé og Borgnes-
ingar áttu fá svör. Ekki bætti úr
skák þegar þeir fengu á sig nokkra
vafasama dóma og létu mótlætið
slá sig enn frekar útaf laginu á
meðan allt gekk upp hjá ÍR. Her-
bert Arnarson hitti vel og þegar
reynt var að stoppa hann af, læddu
ÍR-ingar boltanum undir körfuna á
lausa menn og úrslitin voru ráðin.
Hjá ÍR átti Herbert góðan leik
og var stigahæstur með 36 stig þó
að hittnin væri ekkert sérstök; 6
af 8 skotum inní teig og 2 af 7
utan, 4 af 12 þriggja stiga en öll
átta vítaskotin. John Rhodes var
dijúgur með 16 fráköst og Eiríkur
Önundarson, Jön Örn Guðmundsson
og varnaijaxlinn Guðni Einarsson
stóðu fyrir sínu.
Borgnesingar voru góðir fyrir hlé
og höfðu ágæt tök á leiknum en
þegar þreytan fór að segja til sín
misstu þeir tökin og liðið tapaði
boltanum í 25 skipti. Alexander
Ermolinski átti góðan leik og Bragi
Magnússon einnig en þeir skiptu á
milli sín 16 fráköstum.
Tindastólsmenn stálu
sigriafKR
Tindastólsmenn mörðu sigur á
KR—ingum á Sauðárkróki í
gærkvöldi, 62:60, í slökum leik þar
sem dómararnir
spiluðu stórt hlut-
verk á lokamínút-
unni. Þurftu heima-
menn ekki að kvarta
yfir þeim að þessu sinni þótt dóm-
gæslan hafi bitnað á báðum liðum.
Þegar á upphafsmínútunum kom
í ljós að bæði lið voru mjög tauga-
strekkt. Hittni var engin og mistök-
in yfirþyrmandi. Tvær og hálf mín-
úta leið af leiknum án þess að skor-
að væri. Pétur Guðmundsson opn-
aði loks stigareikning Tindastóls og
Torry John bætti við og var þar
með staðan 4:0. Ingvar Ormarsson
svaraði að bragði með fallegri
þriggja stiga körfu og Jonathan
Bow kom KR yfir, 5:4, með fal-
legri körfu. Þar með náðu KR—ing-
ar frumkvæðinu og heldu því þar
til'undir lokin.
Þegar átta mínútur voru til leiks-
loka stöðvuðu dómararnir leikinn
vegna einhvers hlutar sem kastað
var inn á leikvöllinn og voru áhorf-
endur reknir úr gaflstæðum og af
svölum vegna þessa. Þetta virtist
gera það að verkum að Tindastóls-
vörnin hrökk saman og sóknir KR—
inga, sem höfðu verið býsna beitt-
ar, brotnuðu nú á vörninni og smátt
og smátt saxaðist á forskotið. Mun-
aði þar mest um Torrey John. Þá
hafði það sín áhrif á KR-liðið að
Jonathan Bow fékk sína 5. villu
þegar 4 mínútur voru eftir og stað-
an,56:45 KR—ingum í vil.
Þegar tæp mínúta var til leiks-
loka og sex stiga munur fiskaði
Lárus Dagur tvisvar sinnum víti úr
þriggja stiga skotum og náði að
skora úr öllum skotunum og jafna
60:60 þegar fjórtan sekúndur voru
til leiksloka. KR—ingar náðu ekki
að nýta sér þetta, misstu boltann
og þegar ein sekúnda var eftir var
Bjöm
Björnsson
skrifar frá
Sauðárkróki
Hörður
Magnússon
skrifar
enn brótið á Lárusi og hann fékk
tvö víti sem hann skoraði úr. Þar
með stal hann sigrinum frá KR sem
hafði verið betri aðilinn nánast allan
leikinn.
Ingvar Ormarsson sagði; „Tinda-
stólsmenn börðust allan tímann og
við klúðruðum leiknum á lokasek-
úndunum. Við stilltum ekki upp í
almennilega sókn í tíu mínútur og
þannig vinnum við ekki leik og
sannarlega hjálpuðu dómararnir
okkur ekki.“
„Við vorum sýnilega ekki búnir
að ná okkur eftir stórgóðan leik
gegn Þór á þriðjudaginn,“ sagði
Páll Kolbeinsson, þjálfari Tinda-
stóls. „Ég gerði allar þær breyting-
ar í fyrri hálfleiks sem ég gat, en
ekkert gekk. Loks undir lokin náð-
um við að spila okkar vörn og þá
gekk betur.“
Haukar á siglingu
Haukar unnu tiltölulega auð-
veldan sigur á Þór í gær-
kvöldi, 86:74. Haukar, sem hafa
verið á mikilli sigl-
ingu undanfarið,
gerðu nánast út um
leikinn strax í byij-
un, komust í 35:10
eftir sjö mínútna leik. Jason Willi-
ford fór þá á kostum í liði Hauka,
setti tvær þriggja stiga körfur og
var allt í öllu ásamt Jóni Arnari
Ingvarssyni. Eftir þessa orrahríð
Hauka jafnaðist leikurinn og Fred
Williams Þórsari tók við og áttu
Haukarnir í mesta basli með hann
það sem eftir lifði leiks. Þórsurum
tókst að minnka muninn niður í
77:70 en lengra komust þeir ekki
og Haukarnir sigu aftur fram úr
og unnu örugglega. Jason Williford
var góður í fyrri hálfleik en lenti í
villuvandræðum í síðari hálfleik og
gat lítið beitt sér eftir það. Jón
Arnar var einnig dijúgur, spilaði
vel allan leikinn og hélt höfði í lok-
in þegar Þórsarar komust óþægi-
lega nálægt. Þá léku Sigfús Gizur-
arson og Bergur Eðvarðsson vel,
furðulegt að Grindvíkingar gátu
ekki notað þann dreng, mikið efni
þar á ferð.
Fred Williams var Þórsliðið, gíf-
urlega sterkur undir körfunni og
réðu Haukarnir ekkert við hann.
Þórsliðið barðist vel í síðari hálfleik,
gafst ekki upp en forskot Haukanna
var einfaldlega of mikið.
Ótrúlega fáir áhorfendur fylgd-
ust með leiknum miðað við stöðu
Hauka í deildinni og er það mikið
umhugsunarefni fyrir íþróttina í
Hafnarfirði. Reyndar virðist þetta
vera orðið landlægt í Hafnarfirði,
döpur aðsókn að kappleikjum þar
er ekkert nýmæli.
skrifar frá
Njarðvík
Morgunblaðið/Ámi sæberg
MILTON Bell skorar hér gegn Halldórí Kristmannssyní og Michael Tho-
ele, en þaö voru þó Bllkar sem höfðu betur.
Njarðvíkingar lagðir
í Ljónagryfjunni
Frábær varnarleikur og góð liðs-
heild færði okkur þennan sig-
ur. Við komum til þessa leiks með
^^■■■1 því hugarfari að
Björn sigra og þegar allir
Blöndal leggjast á eitt er
ýmislegt hægt,“
sagði Friðrik Rún-
arsson, þjálfari Grindvíkinga, eftir
að lið hans liafði sigrað nágranna
sína Njarðvíkinga, 72:67, í Ljóna:
gryfjunni í Njarðvík í gærkvöldi. í
hálfleik var staðan 41:30 fyrir
Grindvíkinga sem þarna unnu ákaf-
lega þýðingarmikinn sigur.
Leikurinn var í jafnvægi framan
af, en um miðjan síðari hálfleik,
þegar staðan var 20:20, datt allur
botn úr leik heimamanna sem settu
aðeins 10 stig á 10 mínútum gegn
21 stigi gestanna. Þessi leikkafli
reyndist Njarðvíkingum þrautin
þyngri og hann gerði útslagið. Þeim
tókst að vísu að minnka muninn í
2 stig á síðustu mínútunum, en þá
var lítið af orku eftir og Grindvík-
ingum varð ekki skotaskuld úr að
innbyrða sigurinn sem bæði var
sanngjam og verðskuldaður miðað
við gang leiksins.
„Ég hef ekki einfalda skýringu
á hvernig fór, en það er ljóst að
við lékum illa í 20 mínútur og það
gekk lítið upp af því sem við reynd-
um,“ sagði Hrannar Hólm, þjálfari
Njarðvíkinga.
Besti maður Njarðvíkinga var
Teitur Örlygsson sem oft fór á kost-
um þótt hans væri afar vel gætt
og án hans væri Njarðvíkurliðið illa
statt. Lið Grindvíkinga var ákaflega
jafnt og þó má nefna þá Guðmund
Bragason, Herman Myers og Hjört
Harðarson.
Valsmenn tapa enn
Valsmenn áttu aldrei möguleika
gegn léttleikandi liði Keflvík-
inga í Keflavík í gærkvöldi. Heima-
■■■■■■ menn gáfu Hlíðar-
Gisli endaliðinu engin
grið og í lokin skildu
37 stig á milli. Loka;
tölur urðu 98:61. í
hálfleik var staðan 53:20. Valsmenn
sitja því enn á botninum í sínum
riðli án þess að hafa lilotið stig.
Jafnræði var þó með liðunum á
fyrstu mínútunum en fljótlega skildi
leiðir og munaði þar einna mest um
frábæra hittni Guðjóns Skúlasonar
sem setti fjórar 3ja stiga körfur
niður í röð en alls setti hann fimm
3ja stiga körfur í fyrri hálfleik.
Keflvíkingar pressuðu allan leikinn
og við þessu áttu Valsmenn ekkert
Blöndal
skrifar frá
Keflavík
svar. Keflvíkingar létu varaliðið taka við í síð-
ari hálfleik og ungu strákarnir reyndust vandan-
um vaxnir því þeir héldu fengnum hlut og gott
betur. Valsmenn sem tefla fram að mestu ung-
um og óreyndum leikmönnum eiga greinilega
nokkuð í land.
Guðjón Skúlason var mest áberandi maðurinn
á vellinum í fyrri hálfleik en í heild var Keflavík-
urliðið jafnt. Besti maður Vals var Bergur
Emilsson.
HANDKNATTLEIKUR
Leikið til styrkt-
ar Flateyring-
um á Akureyri
KA-menn mæta á morgun úrvalsliði leik-
manna úr öðrum liðum og mun ágóðinn
af leiknum renna til þeirra sem eiga um sárt
að binda á Flateyri. Leikurinn fer fram á Akur-
eyri og hefst kl. 17. Markverðir úrvalsliðsins
verða Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV, og
Magnús Árnason, FH, og aðrir leikmenn Guð-
mundur Guðmundsson, Fram, Jurí Sadovski,
Gróttu, Guðjón Árnason, FH, Oleg Titov, Fram,
Aron Kristjánsson, Haukum, Petr Baumruk,
Haukum, Alexej Trúfan, UMFA, Sigurður
Sveinsson, HK, Sigfús Sigurðsson, Val, Jakob
Jónsson, BI, Sigurður Bjarnaosn, Stjörnunni
og Sigurður Sveinsson, FH.
Flugleiðir styrkja leik þennan með þeim
hætti að félagið sér um að koma leikmönnum
til Akureyrar og aftur til baka. Hver miði á
leikinn gildir sem happdrættismiði, en miðaverð
er kr. 700 fyrir fullorðna og 300 fyrir börn.
Fyrir leikinn mun lúðrasveit Akureyrar hita upp
og í leikhléi verður lögreglan á Akureyri með
hraðamæli og mælir skothörku leikmanna. All-
ir sem að þessum leik koma gefa vinnu sína.
Frá Bob
Hennessy
í Englandi
ÍÞRÚmR
FOLK
LOKS er orðið ljóst að brasilíski
landsliðsmaðurinn Juninho getur
leikið með Middlesbrough í ensku
úrvalsdeildinni gegn Leeds á morg-
un. í gær barst stað-
festingu frá brasil-
íska knattspymu-
sambandinu vegna
félagaskipta hans.
JUNINHO lék síðast fyrir mán-
uði síðan, með Sao Paulo, en Bryan
•Robson, framkvæmdastjóri Midd-
lesbrough sagði — eftir æfingaleik
í gær — að Brasilíumaðurinn væri
tilbúinn í slaginn. Löngu er uppselt
á hinn nýja og glæsilega Riverside-
leikvang Boro; 30.000 manns verða
þar saman komnir.
■ FRAMHERJARNIR mark-
sæknu, Ian Rush frá Liverpool og
Mark Hughes frá Chelsea, verða
ekki í byijunarliði landsliðs Wales
gegn Albaníu í Tirana 15. nóvem-
ber í Evrópukeppninni. Bobby Go-
uld, þjálfari liðsins, ákvað að breyta
ekki liðinu sem tapaði 1:2 heima
gegn Þjóðverjum í síðasta mánuði.
■ RUSH er reyndar í leikmanna- -
hópnum en Hughes afþakkaði það,
eftir að ljóst var að hann yrði ekki
í byijunarliðinu. Þeir félagarnir —
sem hafa í mörg ár leikið saman í
framlínu landsliðsins — voru báðir
veikir er leikurinn við Þjóðveija fór
fram.
■ PAUL McGrath, miðvörður As-
ton Villa, mun að öllum iíkindum
setja nýtt landsleikjamet fyrir fra
þegar þeir leika gegn Portúgölum
í Lissabon 15. nóvember í Evrópu-
keppni landsliða. Hann og mark- ■
vörðurinn Pat Bonner hafa leikið
flesta leiki fyrir íra, eða 78.
■ ROY Keane, leikmaður Man.
Utd., sem var rekinn af leikvelli í
leik gegn Blackburn, hefur verið
dæmdur í fjögurra leikja bann —
hann tekur út bannið eftir ieikinn
gegn Arsenal á Highbury á morg-
un.
■ TOTTENHAM hefur ákveðið að
gefa norska landsliðsmarkverð-
inum Erik Thorstvedt frjálsa sölu
eftir þetta keppnistímabil — launa
honum vel unnin störf í sjö ár hjá
liðinu. Thorstvedt, sem er 33 ára
og metinn á eina milljón punda,
hefur misst stöðu sína til Ian Wal-
kers.
■ SVISSNESKI landsliðsmaður-
inn Marc Hottinger, sem leikur
stöðu bakvarðar, hefur óskað eftir
því að vera seldur frá Newcastle.
■ HOTTINGER missti stöðu sína
hjá Newcastle þegar Warren Bar-
ton var keyptur á fjórar millj.
punda, en Hottinger, sem vill vinna
stöðu sína á ný í landsliði Sviss
fyrir EM í Englandi, var keyptur
frá Sion á 600 þús. pund í fyrra.
■ KEVIN Keegan, framkvæmda-
stjóri Newcastle, segir að þetta
opni ákveðnar dyr fyrir honun —
þegar Hottinger fer geti hann
keypt annan útlending.
■ ALAN Ball, framkvæmdastjóri -
Manchester City, hefur mikinn
áhuga að skipta á leikmönnum —
láta Terry Phelan fara til Everton
og fá Gary Ablett í hans stað.
■ MARK McGhee, framkvæmda-
stjóri Leicester, hefur enn á ný
snarað peningabuddunni á borðið —
keypt sænska landsliðsmanninn
Pontus Kámark, 26 ára varnarleik-
mann, frá IFK Gautaborg á 840
þús. pund. Kámark leikur með lið-
inu gegn WBA á sunnudaginn.
■ GEORGE Graham, fyrrum
framkvæmdastjóri Arsenal, hefur
verið Iátinn hætta hjá BBC Radio
Five Sport eftir að hann hefur viður-
kennt að hafa þegið 140.500 pund
„að gjöf“ frá norska umboðsmann-
inum Rune Haugen.
■ LUCA Marchegiani, markvörð-
ur Lazíó, sem meiddist á hné í leikn-
um, 0:4, við Juventus um sl. helgi,
verður frá keppni í þijá mánuði.