Morgunblaðið - 05.11.1995, Side 2
2 C SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
T
Nlssan Maxlma QX -
2000 SE/V6 f hnotskurn
Vél: 24 ventla, 6 strokkar,
2000 ccm, 140 hestöfl
Framdrif
Sjálfskiptur, 4ra þrepa, með
þremur stillingum, sport,
normal og snjóstillingu
Bremsur: ABS-hemlalæsi-
vörn, hjálparátak, diskar
framan og aftan
NATS-þjófavörn
Fjöðrun að framan: MacP-
herson gormafjöðrun
Fjöðrun að aftan: Fjölarma-
tengdur þverbiti með gorm-
um, (nýjung frá Nissan)
Dekkjastærð: 195/65 SR15
Lengd: 4,770 m
Breidd: 1,770 m
Hæð: 1,415 m
Hjólhaf: 2,700 m
Beygjuradfus: 5,3 m
Þyngd: 1.385 kg
Hámarkshraði: 181 km/klst.
Hröðun 0-100 km/klst: 14,1
Stærð bensíntanks: 70 I
Uppgefin bensíneyðsla á
jöfnum 90 km/klst: 7,2
1/100 km
Uppgefin innanbæja-
reyðsla: 12,1 1/100 km
Verð: 2.480 þúsund
nokkuð vel á og vökvastýrið er
þægitega létt. Skiptingin skiptir
sér svo mjúklega að maður verð-
ur þess tæplega var.
Ríkulegur staðalbúnaður
Staðalbúnaðar í bílnunum er
ríkulegur, s.s. aflstýri, veltistýri,
rafdrifnar rúður, samlæsingar,
útihitamælir, bílbeltastrekkjari,
ABS-hemlalæsivörn, NATS-
þjófavörn, loftpúðar fyrir öku-
mann og farþega í framsæti og
útvarp með geislaspilara. í betur
búna bílnum er auk þess leður-
innrétting, rafstillanleg fram-
sæti, upphitanleg framsæti, loft-
kæling og álfelgur, en verðmunur
á þessum tveimur týpum er rúm
300 þúsund.
Bestur í sportstillingu
Tveggja Iítra 140 hestafla
V6-vélin skilaði sínu þokkalega,
en má þó ekki vera minni fyrir
svona stóran, sjálfskiptan bíl.
Undirritaðri fannst bíllinn
skemmtilegastur í sportstilling-
unni því þar var hægt að þenja
hann lengur í gírunum og var
því sneggri upp.
Sjálfskiptingin vann eins og
hugur manns og lagaði sig að
mismunandi aðstæðum.
Fjöðrunin og hljóðeinangrunin
eru til fyrirmyndar og fæstir
ættu að þurfa að þreytast mikið
í löngum akstri.
Guðlaug Sigurðardóttir
Traust vek jandi og virðu
legur Nissan Maxima
ÞAÐ ERU óprenthæfar hugsanir
sem renna gegnum hugann þegar
manni er fenginn í hendur dýr
og góður bíll til að prófa og veðr-
ið gerir það nánast ómögulegt
að njóta þess, eða prófa gripinn
yfirleitt.
Það var komin fljúgandi hálka
á götur höfuðborgarinnar þegar
bílinn var afhentur til reynslu-
aksturs, en undirrituð beit bara
á jaxlinn og bölvaði í hljóði. Eini
ávinningurinn var þó sá að gott
færi gafst til að reyna ABS
bremsurnar og snjóstillinguna á
sjálfskiptingunni.
Ný kynslóð
Nissan hefur átt stóran og
dyggan hóp kaupenda gegnum
tíðina og segja má að með þess-
ari íjórðu kynslóð Maxima hafi
þeir ekki brugðist þessum hópi
né öðrum áhugasömum. Bfllinn
hefur verið endurhannaður að
mestu, s.s. vél og útlit. Bílarnir
eru með nýrri 1.995 rúmsenti-
metra, sex strokka vél sem er
að miklum hluta byggð úr áli,
en með því að nota ál í vélina
tókst að hafa hana 50% léttari
en vél úr hefðbundnum smíðaefn-
um. Maxima er einnig með nýrri
gerð fjölliðafjöðrunar að aftan
sem ásamt fyrirferðarminni vél
skapar meira innanrými en í fyrri
gerðum Maxima.
Rúmgóður
Stórvaxið fólk ætti ekki að
þurfa að kvarta undan því að
setjast inn í Maxima. Að innan
er bíllinn mjög rúmgóður og að
sitja í honum er eins og að flat-
maga í stóru sófasetti heima í
stofu. Mælar í mælaborði eru vel
staðsettir og einnig rofar í örm-
um á hurðum. Útsýni er gott,
bæði fyrir ökumann og farlega.
Bílskúrslausum Frónbúum þætti
þó líklega betra en ekki að hafa
vinnukonu á afturrúðunni og
upphitaða framrúðu, því hér er
allra veðra von eins og dæmin
sanna.
Mjúkar og straumlínulagaðar
línúr gefa Nissan Maxima fallegt
og stílhreint yfirbragð og lítur
hann afskaplega virðulega út á
götu.
Sjálfskiptlng sem virkar
Það er mun auðveldara að taka
MJÚKAR og straumlínulagaðar línur gefa Nissan Maxima fallegt og stílhreint yfirbragð og
lítur hann afskaplega virðulega út á götu.
í SMEKKKLEGRI innréttingunni eru m.a. vönduð hljómtæki með geislaspilara og átta hátölur-
um. Mælar eru í nokkuð hefðbundum stíl, og rofum fyrir rúður og hurðir er haganlega komið
fyrir í örmum á hurðunum.
af stað í hálkunni með snjóstill-
inguna á, enda byijar skiptingin
í einhveijum háum gír og upptak-
ið er svona álíka og í gömlum
Skoda sem gengur á þremur. En
þetta er það sem þarf í hálku-
akstri. Skiptingin færist svo í
eðlilegt horf þegar bíllinn er kom-
inn á u.þ.b. 40-50 km hraða, í
það minnsta skiptir hann sér eðli-
lega niður ef gjöfin er.stigin í
botn.
ABS-kerfið er á hinn bóginn
ekkert sérstaklega skemmtilegt
við þessar aðstæður. Það fylgir
töluverður skjálfti og hávaði þeg-
ar það vinnur á svona lítilli ferð
eins og gerist á glæra svelli.
Betra er að stíga bara létt á fe-
tilinn með gömlu aðferðinni.
Væntanlega hentar kerfíð betur
á meiri hraða, t.d. til að varna
uppfloti í mikilli bleytu. Kerfíð
er að því leyti fullkomið að hraða-
skynjarar eru við öll hjól og sjálf-
stæð stilling á bremsuþrýstingi
að hveiju þeirra.
Einstök fjöðrun
Ný gerð fjölliðafjöðrunar að
aftan er ein af mörgum nýjung-
um frá Nissan sem prýðir þennan
bíl. Enda svarar hann vel, er ein-
staklega mjúkur í akstri, vega-
hljóð sáralítið og fjöðrunin mjúk
án þess að vera lin. Hann leggur
íslensk hönnun hjá Vélum og þjónustu hf.
Vörugámur á flutningabfl
með f jölþætt notagildi
VÉLAR og þjónusta hf. afhentu
nýlega sérútbúinn DAF flutninga-
bfl, en það sem er óvenjulegt við
þennan flutningabíl er að vörugám-
urinn á honum er algerlega íslensk
hönnun. Gámurinn er sérstakur að
því leyti að hurðirnar eru knúnar
sjálfvirkum vökvaopnunarbúnaði
og hægt er að hlaða bílinn bæði
að aftan og frá hlið.
Hér er um að ræða bíl af gerð-
inni DAF 75 og er heildarþyngd
bílsins 19 tonn. Bíllinn er mjög
fullkominn að allri gerð, búinn loft-
fjöðrum að framan og aftan og í
bílnun er tölvubúnaður sem fylgist
með ástandi hans. Hér er um að
ræða sérstaka eftirlitstölvu sem
fylgist með ásigkomulagi hinna
ýmsu hluta bílsins, svo sem með
vél, gírkassa, drifi, hefur eftiriit
með eldsneytisnotkun ásamt fjöl-
mörgu öðru. Tölvan gefur merki
um það ef eitthvað bilar eða fer
úrskeiðis og geymir hún allar slíkar
upplýsingar í minni. Þegar bíllinn
kemur til ástandsskoðunar hjá Vél-
um og þjónustu hf. tengist eftir-
litstölvan í bílnum móðurtölvunni á
verkstæðinu og sést þá hvað lag-
færa þarf.
Opnanleg hlið
Vörugámurinn sem er á bílnum
er íslensk hönnun. Gáminn hannaði
Karl Sigurðsson, tæknifræðingur,
markaðsstjóri Véla og þjónustu
hf., en fyrir í landinu er annar bíll
með samskonar búnaði, hönnuðum
af Karli. Eigandi DAF bflsins sem
hér um ræðir átti reyndar hinn bíl-
inn, sem einnig er af gerðinni DAF
og var reynsla hans af þeim bíl
mjög góð. Þegar hann síðan ákvað
að endurnýja, fékk hann sér DAF
af stærri gerð. Vörugámurinn er
óvenjulegur að því leyti að hægt
er að opna aðra hliðina alveg upp
að þaki með því einu að styðja á
hnapp, en hurðirnar eru knúnar
vökvalyftum. Þegar hurðin opnast
ARNBJÖRN Ólafsson, eigandi flutningabílsins, Karl Sigurðsson
hönnuður vörugámsins og Ingi Einar Sigurbjörnsson vélvirki
við hina nýju DAF flutningabifreið.
rennur efri hluti hennar upp á þak,
en hinn neðri niður með hliðinni.
Notagildi vörugáma af þessari gerð
er mikið. Hægt er að hlaða bflinn
frá hlið og auðvelt er að koma inn
löngúm búntum af rörum ogtimbri.
Einnig er vörugámurinn hentugur
fyrir kvikmyndatökur og sem
hljómsveitarpallur og hefur sá
vörugámur sem fyrir er einmitt
nýst sem slíkur.
Á bílnum er Hollandia vörulyfta
frá Vélum og þjónustu hf. Hann
var sprautaður á Selfossi og þak
úr trefjaplasti sett á hann þar.