Morgunblaðið - 15.11.1995, Blaðsíða 4
Nýliðarnir
eiga erfitt
uppdrátt-
aríNBA
NÝLIÐARNIR í NBA-deildinni,
Toronto og Vancouver, hafa átt
erfitt uppdráttar það sem af er
keppni. Liðin töpuðu bæði leikj-
um sinum í fyrrinótt. Toronto
hefur því tapað sex af fyrstu
sjö og Vancouver fimm.
John Stockton gerði 29 stig
fyrir Utah Jazz er liðið vann
Toronto á útivelli, 103:100, í
fyrrinótt. Staðan var jöfn,
99:99, þegar Stoekton setti nið-
ur tvö stig af vítalínunni og kom
liðinu í 101:99 þegar ein og
hálf mínúta var eftir. Alvin
Robertson minnkaði muninn í
eitt stig er hann skoraði úr víti,
101:100. Það var síðan Adam
Keefe sem gerði sigurkörfuna
og tryggði sigur Utah þegar 5
sekúndur voru eftir. Tracy
Murray reyndi þriggja stiga
körfu á lokasekúndunni en hitti
ekki og þar með var sjötta tap
Toronto í röð staðreynd. Ro-
bertson og Willie Anderson
gerðu 22 stig hvor fyrir Tor-
onto.
Dallas Mavericks gerði góða
ferð til Vancouver og sigraði
94:89. Scott Brokks gerði fimm
af sjö stigum sinum í fjórða leik-
hluta fyrir Mavericks og Jason
Kidd gerði 26. Hittni Dallas-
manna var ekki góð, eða 27,7
prósent en kom ekki að sök að
þessu sinni. Greg Anthony gerði
19 stig og Byron Scott 17 fyrir
Vancouver, sem hefur tapað
fimm leikjum í röð eftir að hafa
byrjað deildarkeppnina á tveim-
ur sigrum.
Morgunblaðið/Kristinn
SIGURÐUR Ingimundarson var í gær ráðinn landsliðsþjálfari kvenna í körfuknattleik. Hann er
annar Kefivíkingurinn sem ráðinn er landsliðsþjálfari í körfunni á stuttum tíma því Jón Kr.
Gíslason var nýlega ráðinn þjálfari karlallðsins og er þetta í fyrsta sinn sem Kefivikingar eru
landslíðsþjáifarar I körfuknattleik. Hér er Sigurður með formanni KKÍ, Kolbeini Pálssyni.
Sigurður
Ingimund-
arson
þjálfari
Sigurður Ingimundarson úr Kefla-
vík var í gær ráðinn landsliðs-
þálfari kvenna í körfuknattleik og
gildir samningurinn fram yfír Smá-
þjóðaleikana hér á landi árið 1997.
Sigurður er vanur þjálfari en hann
hefur meðal annars verið þjálfari hins
sigursæla kvennaliðs Keflavíkur síð-
ustu flögur árin og hefur leitt lið sitt
til þriggja Íslandsmeistaratitla og þrí-
vegis hafa stúlkumar hans orðið bik-
armeistarar auk þess sem hann hefur
tvö undanfarin ár verið valinn besti
þjálfarinn í kvennadeildinni. Sigurður
leikur með meistaraflokki Keflavíkur,
þjálfar kvennalið félagsins og er nú
orðinn landsliðsþjálfari kvenna. Verð-
ur þetta ekki of mikið fyrir hann?
„Nei, nei, það held ég ekki. Það
verður sjálfsagt nóg að gera en ég
held að þetta verði ekkert vandamál,"
sagði Sigurður í gær þegar tilkynnt
var um ráðningu hans. Hann sagði
jafnframt að hann byggist ekki við
miklum breytingum á landsliðshópn-
um. „Ég ætla að vera með stóran hóp
til að velja úr en ég á ekki von á
stórvægilegum breytingum á landslið-
inu því þar em ungar og efnilegar
stúlkur í meirihluta og í raun fáar
eldri stelpur."
í máli Kolbeins Pálssonar, for-
manns Körfuknattleikssambandsins,
kom fram að fyrirhugaðir væru 10-15
landsleikir hjá stúlkunum á ári en
undanfarin ár hefðu landsleikir verið
0-8 á ári. Hápunktinum á að ná á
Smáþjóðaleikunum en þar er stefnan
sett á sigur og ekkert annað. Fyrsta
verkefnið verður á milli hátíðanna því
þá kemur væntanlega hingað til lands
úrvalslið frá Úkraínu og leikur tvo
til þrjá leiki. í byijun maí verður
Norðurlandamótið í Svíþjóð og úr-
tökumót fyrir EM verður á Möltu í
júní. Jólafrí í 1. deild kvenna hefst
11. desember og þá hefst undirbún-
ingstímabil landsliðsins, en kvenna-
landsliðið okkar hefur tekið miklum
framförum undanfarin ár og góður
árangur yngri landsliða lofar góðu
um framhaldið.
KORFUKNATTLEIKUR / KVENNALANDSLIÐIÐ
FELAGSSTARF
Samningaviðræður um sameiningu Týs og Þórs í Vestmannaeyjum sigldu í strand
Þórarar sögdu nei
SAMNINGAVIÐRÆÐUR forráðamanna Týs, Þórs og bæjar-
stjórnar Vestmannaeyja, um sameiningu íþróttafélaganna
sigldu í strand f gær og því er Ijóst að ekkert verður af
sameiningu á næstunni. Knattspyrnumenn i Eyjum hafa
miklar áhyggjur vegna þessa og segjast ekki trúa öðru en
bæjarstjórnin taki af skarið og sameini félögin.
Það hefur staðið til í nokkum
tíma að sameina íþróttafé-
lögin tvö í Vestamannaeyjum, Týr
og Þór, en gengið erfiðlega. I vor
komust félögin að samkomulagi
um að skipta íþróttagreinunum á
milli sín og var það strax gert
með handboltann og síðan knatt-
spymuna og er nú svo komið að
aldursflokkum er skipt milli félag-
anna en þó er meistaraflokkur
karla í knattspymu rekinn sjálf-
stætt af knattspyrnuráði og tveir
yngstu flokkamir eru einnig innan
félaganna en ekki ÍBV. Samning-
ur félaganna, sem hafði langa
meðgöngu, gildir til aldamóta.
í gær var síðan fundur með
forráðamönnum félaganna og
tveimur fulltrúum bæjarins, Guð-
jóni Hjörleifssyni bæjarstjóra og
Guðmundi Þ.B. Ólafssyni tóm-
stunda- og íþróttafulltrúa. Sam-
kvæmt því sem forráðamenn fé-
laganna segja höfðu fulltrúar
bæjarins heimild til að semja á
þann veg að bærinn tæki við
skuldum íþróttahreyfíngarinnar
að því tilskildu að Týr og Þór yrðu
lögð niður og allt færðist undir
ÍBV. Þessu neituðu Þórarar.
„Þetta stendur talsvert í okkur
Þórurum og okkur finnst heldur
illa að okkar 82 ára gamla félagi
vegið," sagði Bjöm Þorgrímsson
framkvæmdastjóri Þórs í samtali
við Morgunblaðið í gær og sagði
hann að Þórarar vildu halda sam-
starfssamningnum við Tý til alda-
móta. Samkvæmt síðasta árs-
reikningi Þórs skuldar félagið 1,8
milljónir króna og þykir það mjög
lítið enda ekki langt síðan félagið
byggði félagsheimili og fínnst Þór-
urum sem með sameiningartillög-
um bæjarins ætli bærinn að eign-
ast félagsheimiii félaganna með
því að yfirtaka skuldir Týs, sem
munu samkvæmt heimildum
blaðsins vera talsvert meiri en
Þórs, eða um 40 milljónir.
Helgi Sigurlássön er formaður
Týs. „Við ákváðum eftir mikla
umhugsun að taka tilboði bæjarins
um sameiningu enda keppa
íþróttamenn hér undir nafni IBV
en ekki félagsnöfnunum. Eg held
líka að það séu örugglega um 90%
bæjarbúa sem vilja sameiningu
enda ýrði allur rekstur miklu hag-
kvæmari og auðveldari við það.
Eins og þetta er núná lifa félögin
að mestu á að halda Þjóðhátíð
annað hvert ár og ég veit ekki
hvemig færi ef það klikkaði. En
eins og staðan er núna hafa Þórar-
ar klippt á samningaviðræðumar
og það er því allt komið í strand
og stór spuming hvað tekur við,“
sagði Helgi.
Hann bætti því við að sér sýnd-
ist ekki spuming að félögin yrðu
sameinuð einhvem tíma, það væri
aðeins spurning hvenær. Undir
þetta tók Jóhannes Ólafsson for-
maður knattspymuráðs ÍBV. „Það
hefur verið draumur okkar sem
störfum fyrir ÍBV að félögin yrðu
sameinuð og það verður gert ein-
hvem tíma, en því miður hafa
örfáir menn stöðvað sameininguna
í bili,“ sagði Jóhannes.
Meistaraflokkur ÍBV hefur
komið sér upp góðri aðstöðu í kjall-
ara Týsheimilisins en samkvæmt
samningi félaganna eiga meist-
araflokksmenn að vera með að-
stöðu í Týsheimilinu á sumrin en
í Þórsheimilinu á vetuma. Knatt-
spymumenn eru ánægðir með að-
stöðuna í Týsheimilinu og vilja
ekki fara yfír í Þórsheimilið þar
sem aðstaðan er mun lakari fyrir
þá. „Ég veit ekki nákvæmlega
hvað þessar lyktir mála hafa í för
með sér fyrir okkur, en það er
fuli samstaða í knattspyrnuráði.
Við segjum hingað og ekki lengra
og ætlum að vera í Týsheimilinu
í vetur. Við emm orðnir leiðir á
að vera stöðugt bitbein þama á
milli og þetta stendur þróuninni í
knattspymunni fyrir þrifum,“ seg-
ir Jóhannes.
„Bæjarstjómin hefur sagt að
ef félögin kæmust ekki að sam-
komulagi þá myndi bærinn taka
af skarið þó svo það yrði ekki í
samræmi við vilja örfárra manna.
Ég vona og trúi að bæjarfulltrúar
standi við þessi orð og veit að
þeir verða meiri menn fyrir vikið.
Okkur langar að fá Evrópuleik
hingað til Eyja næsta sumar og
til þess að svo megi verða þarf
að gera búningsaðstöðu við völlinn
og ég held að menn vilji gera það
þannig að við getum átt raunvem-
legan heimaleik í Evrppukeppn-
inni,“ sagði Jóhannes.
Ekki tókst að ná í Guðjón Hjör-
leifyson bæjarstjóra í gær en hinn
fulltrúi bæjarins í samninganefnd-
inni var tómstunda- og íþróttafull-
trúinn Guðmundur Þ.B. Ólafsson
og þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við hann í gær sagði hann:
„Þú færð ekkert út úr mér, ég hef
ekkert um þetta mál að segja.“