Morgunblaðið - 17.11.1995, Side 3
2 C FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995 C 3
URSLIT
KORFUKNATTLEIKUR
KORFUKNATTLEIKUR
Breiðablik - UMFT 90:75
Smárinn, úrvalsdeildin í körfuknattleik -
14. umferð, fimmtud. 16. nóvember 1995.
Gangur leiksins: 2:0, 10:6, 22:10, 29:18,
34:27, 38:33, 38:35, 44:39, 52:46, 63:48,
70:57, 74:65, 84:67, 90:75.
Stig Breiðabliks: Michael Thoele 35, Agn-
ar Ólsen 12, Daði Sigurþórsson 11, Atli
Sigurþórsson 9, Birgir Mikaels. 9, Halldór
Kristmanns 8, Erlingur Snær Erlingsson 6.
Fráköst: 10 í sókn - 26 í vöm.
Stig Tindastóls: Torrey John 41, Ómar
Sigmarsson 12, Hinrik Gunnarsson 10,
Lárus Dagur Pálsson 6, Pétur Guðmunds-
son 4, Arnar Kárason 2.
Fráköst: 10 í sókn - 20 i vöm.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Einar
Skarphéðinsson, ágætir.
yillur: Breiðablik 23 - Tindastóll 22.
Áhorfendur: 150.
ÍR-Haukar 84:82
íþróttahús Seljaskóla:
Gangur Ieiksins: 4:0, 9:2, 13:4, 20:10,
28:20, 31:26, 37:26, 41:28, 45:31,48:39,
57:47, 64:54, 64:63, 73:64, 73:74, 75:78,
80:80, 82:80, 82:82, 84:82.
Stig IR: Herbert Arnarson 36, John Rho-
des 14, Eiríkur Önundarson 11, Eggert
Garðarsson 10, Jón Öm Guðmundsson 8,
Guðni Einarsson 3, Máms Amarson 2.
Fráköst: 13 í sókn — 22 í vöm.
Stig Hauka: Jason Williford 17, Jón Arnar
Ingvarsson 17, Sigfús Gizurarson 17, Björg-
vin Jónsson 9, ívar Ásgrímsson 8, Bergur
Eðvarðsson 6, Pétur Ingvarsson 6, Baldvin
Johnsen 2.
Fráköst: 22 í sókn — 27 í vöm.
Dómarar: Kristján Möller og Björgvin Rún-
arsson. Gerðu mörg mistök, rétt eins og
leikmenn.
yillur: ÍR 24 - Haukar 20.
Áhorfendur:127 greiddu aðgangseyri og
fengu mikið fyrir peninginn eins og þeir
tæplega 100 sem ekki þurftu að greiða
aðgangseyri.
Þór-KR 74:83
íþróttahöllin á Akureyri:
Gangur leiksins: 0:7, 7:13, 16:16, 31:35,
40:49 , 44:65, 56:70, 64:74, 68:78, 74:83.
Stig Þórs: Kristinn Friðriksson 21, Fred
Williams 19, Böðvar Kristjánsson 13, Kon-
ráð Óskarsson 10, Hafsteinn Lúðvíksson
4, Kristján Guðlaugsson 3, Birgir Birgisson
2 og Einar Valbergsson 2.
Fráköst: 2 í sókn — 19 í vöm.
Stig KR: Ingvar Ormarsson 24, Jonathan
Bow 21, Óskar Kristjánsson 13, Hermann
Hauksson 12, Ósvaldur Knúdsen 8, Láms
Ásgeirsson 5.
Fráköst: 5 í sókn — 13 i vörn.
Dómarar: Þorgeir Jón Júlíusson og Einar
Einarsson.
yillur: Þór 19 - KR 17
Áhorfendur: Ekki gefið upp.
ÍA-UMFG 109:112
íþróttahúsið á Akranesi:
Gangur leiksins: 0:2, 6:11, 14:24, 24:26,
38:42, 49:49, 60:60, 66:70, 78:76, 86:81,
94:95; 106:106, 109:112.
Stig IA: Haraldur Leifsson 31, Milton Bell
23, Bjami Magnússon 23, Dagur Þórisson
11, Brynjar Sigurðsson 7, Elvar Þórólfsson
6, Jón Þór Þórisson 6.
Fráköst: 6 í sókn - 12 í vöm.
Stig UMFG: Herman Mayers 40, Hjörtur
Harðarson 18, Unndór Sigurðsson 15, Mar-
el Guðlaugsson 14, Guðmundur Bragason
12, Helgi Jónas Guðfinnsson 11, Páll Vil-
bergsson 2.
Fráköst: 11 i sókn - 17 í vörn.
Dómarar: Georg Andersen og Eggert Aðal-
steinsson, stóðu sig vel lengst af en misstu
tökin í blálokin.
yillur: ÍA 15 - UMFG 18.
Áhorfendur: 230.
UMFN - Keflavík 93:76
Iþróttahúsið í Njarðvík:
Gangur leiksins: 3:0, 3:2, 13:9, 26:9,
35:20, 45:26, 50:36, 56:40, 64:55, 67:60,
72:65, 80:70, 80:76, 93:76.
Stig Njarðvíkur: Rondey Robinson 23,
Teitur Orlygsson 20, Friðrik Ragnarsson
13, Jóhannes Kristbjörnsson 12, Kristinn
Einarsson 10, Sverrir Þór Sverrisson 8,
Páll Kristinsson 5, Gunnar Örlygsson 2.
Fráköst: 14 í sókn - 25 í vöm.
Stig Keflavíkur: Falur Harðarson 18, Guð-
jón Skúlason 14, Davíð Grissom 12, Albert
Óskarsson 12, Lenear Burns 11, Sigurður
Ingimundarson 9.
Fráköst: 13 í sókn - 19 í vörn.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Jón Bend-
er sem í heild komust vel frá leiknum þó
alltaf orki eitthvað tvímælis.
Villur: UMFN 23 - Keflavík 17.
Áhorfendur: Um 500.
Skallagrímur - Valur
95:83
Iþróttahúsið í Borgamesi:
Gangur leiksins: 0:1, 4:1, 13:3, 18:10,
28:18, 34:25, 38:34, 43:38 48:38, 62:44,
69:51, 76:56, 82:64, 91:72, 95:83.
Stig Skallagríms: Alexander Ermolinskíj
28, Grétar Guðlaugsson 16, Ari Gunnarsson
15, Tómas Holton 13, Bragi Magnússon
9, Sveinbjöm Sigurðsson 6, Gunnar Þor-
steinsson 4, Guðjón Karl Þórisson 2, Hlynur
Lind 2.
Fráköst: 4 í sók - 19 í vörn.
Stig Vals Ronald Bayless 40, Ivar Webster
13, Pétur M Sigurðsson 12, Bjarki Guð-
mundsson 6, Hjalti J Pálsson 5, Guðni
Hafsteinsson 3, Bjarki Gústafsson 2, Sveinn
Zoega 2.
Fráköst: 14 í sókn - 16 í vöm.
Dómarar: Helgi Braga og Kristinn Alberts-
son voru góðir.
Villur: Skallagrímur 17 - Valur 21.
Ahorfendur 346
A-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
HAUKAR 14 11 3 1220: 1024 22
UMFN 14 11 3 1263: 1096 22
KEFLAVÍK 14 10 4 1299: 1151 20
ÍR 14 8 6 1173: 1146 16
TINDASTÓLL 14 8 6 1072: 1084 16
BREIÐABLIK 14 3 11 1115: 1321 6
B-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
UMFG 14 10 4 1345: 1140 20
KR 14 8 6 1210: 1198 16
SKALLAGR. 14 6 8 1075: 1134 12
PÓR 14 5 9 1147: 1130 10
ÍA 14 3 11 1168: 1297 6
VALUR 14 1 13 971: 1337 2
NBA-deildin
Leikir miðvikudagsins:
Toronto - Houston.................93:96
■Robert Horry tryggði Rockets sigur með
þriggja stiga körfu og var þetta eina karfa
hans í leiknum.
Boston - Utah.................. 90:102
■Karl Malone gerði 34 stig fyrir Jazz.
Boston komst í 81:78 en þá gerði Malona
11 stig í röð fyrir gestina.
Detroit - Seattle.................94:87
■Þriðji sigur Detroit í röð og Otis Thorpe
gerði 27 stig.
Miami - Indiana..................97:103
■Reggie Miller gerði 24 stig fyrir Pacers.
New Jersey - Charlotte............90:79
■Kevin Edwards gerði 21 stig fyrir Nets
og þar af 14 í þriðja ieikhluta þegar heima-
menn gerðu 20 stig í röð.
Washington - Philadelphia........127:95
■Auðveldur sigur hjá Bullets og sex leik-
menn gerðu meira en 10 stig, Robert Pack
var með 26 og tiu fráköst.
Minnesotsa - San Antonio.........96:105
■David Robinson gerði 30 stig og tók 11
fráköst.
Chicago - Cleveland...............13:94
■Chicago er eina taplausa liðið í deildinni.
Pippen gerði 27 stig og Jordan 20.
LA Lakers - Dallas............. 114:97
■Cedric Ceballos gerði 31 stig en heima-
menn náðu forystu í fyrsta leikhluta með
því að gera 24 stig gegn 4 stigum gestanna
á stuttum kafla. Mashburn gerði 32 stig
fyrir Dallas.
Phoenix - Denver................127:137
■Það þurfti að framlengja þvívegis þegar
Denver vann sinn fyrsta leik í vetur, en lið-
ið hafði tapað sex leikjum í röð.
Ikvöld
HANDKNATTLEIKUR 2. deild karla: 20
blak" 1. deild karla: KA-hús: KA - ÍS 20.30
1. deild kvenna: Víkin: Víkingur - Þróttur N KÖRFUKNATTLEIKUR 20.30
1. deild karla: Þorlákshöfn: Þór - Snæfell 20
Handknattleikur
2. deild karla:
41:20
Breiðablik,- Ármann 31:21
FELAGSLIF
Árshátíð Hauka
Árshátíð Knattspymufélagsins Hauka
verður haldin í kvöld í Gullhömrum,
veislusölunum í Húsi iðnaðarins við
Hallveigarstíg í Reykjavík. Húsið opnar
kl. 19.30 og borðhald hefst kl. 20.
Veislustjóri verður Elías Jónasson en
heiðursgestur Garðar Halldórsson, fyrr-
verandi formaður Hauka. Sniglabandið
leikur. Verð aðgöngumiða er kr. 2.500
og innifalin er þríréttuð máltíð. Miða-
sala er í Haukahúsinu við Flatahraun,
Filmum og framköllun í Miðbæ og Alfa-
felli við Strandgötu.
GOLF
Heimsmeistara-
mótið hjá RÚV
í íþróttaþætti Ríkissjónvarpsins á morg-
un verður sýnt frá heimsmeistaramótinu
í tvímenningi sem fram fór í Kína um
síðustu helgi. Golfið hefst kl. 17 en þar
má sjá marga fremstu kylfingar heims-
ins, en áður en mótið fór fram í Kína
höfðu Bandaríkjamennirnir Fred Coup\
les og David Love III sigrað þrjú ár í röð.
„Yndisleg-
ur sigur“
Ivar
Tindastólsmenn sóttu ekki gull í
greipar nýliða Breiðabliks er
félögin áttust við í Smáranum í
gærkvöldi, öðru
nær, heimamenn
Benediktsson tóku öll völd á vellin-
skrifar um strax í upphafi
og Sauðkrækingar
náðu sér aldrei á strik. Blikar fögn-
uðu ákaft sanngjörnum fimmtán
stiga sigri í leikslok, 90:75, og ei-u
því komnir með sex stig í A-riðli.
„Þetta var yndislegur sigur. Við
hófum leikinn af miklum krafti og
náðum góðri forystu, misstum síðan
dampinn um stund en náðum okkur
á strik á ný þegar líða tók á síðari
hálfleik. Fyrstu skrefin í úrvals-
deildinni hafa verið okkur erfið og
þess vegna eru þessi stig okkur
sérlega kærkomin,“ sagði Birgir
Mikaelsson, Bliki, brosandi út að
eyrum í leikslok.
Sigurviljinn og leikgleðinn var
Blikamegin frá fyrstu mínútu. Þeir
börðust vel í vörninni og lékum
hraðan og vel skipulagðan sóknar-
leik og Tindastólsmenn vissu ekki
hvaðan á sig stóð veðrið til að byija
með. Eftir tíu mínútur var staðan
27:12, en norðanmenn náðu að
bæta varnarleik sinn um stund og
minnka forskot Blika niður í fimm
stig fyrir leikhlé, en þá stóð 38:33.
A upphafsmínútum síðari hálf-
leiks virtist um stund sem leikmenn
Tindastóls væru að komast inn í
leikinn, þeir náðu að saxa forskot
Blika niður í þijú stig, 47:41, og
fengu sókn og möguleika til að
jafna. Það tækifæri fór út um þúfur
og um leið síðasti möguleiki þeirra
til að jafna leikinn vegna þess að
á næstu mínútum hittu Breiðabliks-
menn úr hveiju þriggja stiga skot-
inu á fætur öðru og stungu af. Upp
úr miðjum hálfieik var staðan
63:48, Blikum í vil, og þeir gáfu
ekkert eftir á lokamínútunum.
„Þetta var ijórði leikurinn í röð
þar sem við leikum eins og byijend-
ur og það er ljóst að ef draumur
okkar um að komast í úrslita-
keppnina á að rætast þá verðum
við að taka okkur virkilega saman
í andlitinu. Það er ekki nóg að ná
sextán stigum í byrjun rrióts og
leika svo eins og byrjendur í fram-
haldinu, ég er mjög svekktur,"
sagði Páll Kolbeinsson, þjálfari
Tindastóls, er hann gekk af velli
að leik loknum.
,Agætís flenging
Gunnlaugur
Jónsson
skrifar
frá Akranesi
Við áttum á brattann að sækja í
leiknum því við höfum verið
að vinna leiki með mikium mun
þannig að það var
erfitt að halda ein-
beitingu í þessum
leik, þetta var ágæt-
is flenging,“ sagði
Friðrik Rúnarsson, kampkátur eftir
að iærisveinar hans í Grindavíkurl-
iðinu sigruðu Skagamenn með svo-
kallaðri „flautukörfu" á síðasta and-
artaki leiksins, lokatölur 112:109.
Það leit út fyrir að Grindvíkingar
væru að valta yfír Skagamamenn á
fyrstu mínútunum því þeir náðu
fljótlega tíu stiga forskoti en heima-
menn með Harald Leifsson í bana-
stuðu náðu að komast inn í leikinn.
Undir lok fyrri hálfleiks náðu
Skagamenn fimm stiga fgrskoti,
47:42, en gestirnir náðu að jafna
fyrir hálfleik, 49:49.
í síðari hálfleik var geysileg
spenna í leiknum og nánast jafnt á
öllum tölum. Liðin lékum ákafan
sóknarbolta og þriggja stiga skyttur
liðanna voru í stuði og lokamínútan
var spennuþrunginn.
Staðan var 104:103 fyrir heima-
menn þegar ein mínúta var eftir og
þeir áttu möguleika á að leika langa
sókn og skora örugga körfu, en
þess -í stað misstu þeir boltann og
Hjörtur Harðarson kom Grindvík-
ingum yfír 106:104. Milton Bell
jafnaði að bragði þegpr fjörtíu og
sex sekúndur voru eftir en Hjörtur
svaraði um hæl með annari þriggja
stiga körfu 109:106. Þegar sautján
sekúndur voru eftir jafnaði Haraldur
Leifsson leikinn 109:109, einnig
með þriggja stiga körfu. Grindvík-
ingar brunuðu fram og brotið var á
leikmanni þeirra þegar þrjár sek-
úndur voru eftir. Boltinn barst til
Unndórs SigurðSsonar sem skoraði
þriggja stiga körfu í þann mund sem
leiktíminn var flautaður af og var
fögnuður Grindvíkinga mikill, en á
móti gátu heimamenn vart leynt
vonbrigðum sínum.
„Þetta var afskaplega svekkj-
andi, alveg hræðilegt, en lukkan var
þeirra megin í kvöld. Ég er eigi að
síður mjög ánægður með mína
menn, þeir stóðu sig eins og hetj-
ur,“ sagði Hreinn Þorkelsson, þjálf-
ari ÍA eftir leikinn. Lærisveinar
Hreins léku frábærlega í þessum
Reynir B.
Eiríksson
skrifar frá
Akureyri
leik og enginn betur en Haraldur
Leifsson sem lék sinn besta leik í
langan tíma. í síðari hálfleik hefðu
þeir mátt nota meiri tíma í sókninni
en oft á tíðum voru þeir ekki búnir
að stilla upp þegar skot reið af.
Hermann Meyers var frábær í liði
gestanna, gerði 40 stig og tók 19
fráköst. Hjörtur var góður i lokin
og eins bjargvætturinn Unndór Sig-
urðsson sem gerði 15 stig, öll úr
þriggja stiga skotum.
KR-sigur á Akureyri
KR-ingar hirtu stigin sem voru
í boði þegar liðið mætti Þór á
Akureyri í gærkveldi og sigraði
74:83. Sigur þeirra
var sanngjarn, en
leikurinn verður ekki
í minnum hafður
fyrir góðan og
skemmtilegan körfubolta. Leikmenn
KR mættu ákveðnir til leiks og
gerðu sjö fyrstu stigin í leiknum.
Eftir þetta vöknuðu Þórsarar til lífs-
ins -og söxuðu á forskot gestanna
og um miðjan háifleikinn var staðan
orðin jöfn, 16:16. Það voru þó KR-
ingar sem höfðu yfirhöndina seinni-
hluta hálfleiksins og þegar flautað
var til leikhlés höfðu þeir gert 49
stig gegn 40 stigum heimamanna.
I upphafi síðari háleiks lögðu
KR-ingar grunninn að sigri sínum
en þeir gerðu þá hverja körfuna á
fætur annarri án þess að Þór tækist
að svara og náðu fljótlega 21 stig
forystu, 65:44. Þórsarar voru þó
ekki á þeim buxunum að gefast upp
og minnkuðu jafnt og þétt forskotið
þar til fjórar mínútur lifðu af leikn-
um, er staðan var orðin 74:68.
Bjuggust menn við að í hönd færu
spennandi lokamínútur en því var
öðru nær því KR-ingar gerðu næstu
fjögur stigin og eftir það var.sigur
þeirra aldrei í hættu.
Þórsara voru slakir mestan hluta
leiksins og virtist vanta kraft í ieik
liðsins. Fred Williams lenti snemma
í villuvandræðum; var kominn með
fjórar villur undir lok fyrri hálfleiks,
en lék þó þokkalega í síðari hálfleik
og var inná allan leikinn. Að venju
var Kristinn drjúgur. Hjá KR bar
mest á Ingvari Ormarssyni og einn-
ig stóð Jonathan Bow fyrir sínu.
Morgunblaðið/Kristinn
SVERRIR Þór Sverrisson sækir að vörn Kef Ivíkinga, þar sem Sigurður Ingimundarson og Aibert Óskarsson eru til varnar.
Njarðvíkingar höfðu betur
í nágrannaslagnum
„ÞETTA var nátturlega ákaflega þýðingarmikill sigur fyrir okkur og
ég get ekki annað en verið ánægður með ieik okkar í kvöld. Okkur
tókst það sem við ætluðum okkur sem var að koma þeim á óvart
með breyttum varnarleik í upphafi leiksins og það forskot sem við
náðum ífyrri hálfleik réði baggamuninn," sagði Hrannar Hólm þjálf-
ari íslandsmeistara Njarðvíkinga eftir að lið hans hafði farið með
sigur af hólmi í nágrannaslagnum við Keflvíkinga í Njarðvík í gær-
kvöldi. Lokatölur urðu 93:76 eftir að staðan í hálfleik hafði verið
50:36 fyrir Njarðvík. Þar með hafa Njarðvíkingar jafnmörg stig og
Haukar í riðlinum en þeir töpuðu fyrir ÍR á sama tfma.
Keflvíkingar hafa verið þekktir
fyrir að byija vel í leikjum sínum
og leiftursóknir þeirra hafa oftar en
eklji slegið andstæðingana út af lag-
inu. En í gærkvöldi voru þeir í gagn-
stæðu hlutverki. Njarðvíkingar léku
á als oddi og það voru þeir sem nú
slógu Keflvíkinga út af laginu í fyrri
háifleik með frábær-
um leik. Eftir 9 mín-
útna leik var staðan
orðin 26:9 og skömmu
síðar 39:24 eða 19
stiga munur. Verði Njarðvíkingar í
slíkum ham verður meistaratitillinn
ekki tekinn af þeim.
Björn
Blöndal
skrifar frá
Njarðvík
Síðari háfleikur var ekki eins
skemmtilegur né vel leikinn. Njarð-
víkingar hægðu ferðina af skiljanleg-
um ástæðum og við það riðlaðist leik-
ur þeirra og áður en varði voru Kefl-
víkingar komnir inn í leikinn að nýju.
Þeim tókst að minnka muninn niður
í 7 stig og síðan í 4 stig - 80:76
þegar rúmar þrjár mínútur voru til
leiksloka, en þá hrundi leikur þeirra
og Njarðvíkingar settu 13 síðustu
stigin í sanngjömum sigri.
„Það sýndi sig að við vorum ekki
tilbúnir í þennan leik, við erum að
tapa leikjum á útivelli og það er
greinilega vandamál hjá okkur sem
við verðum að skoða og taka á,“ sagði
Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmað-
ur Keflvíkinga eftir leikinn. En hann
var veikur og gat af þeim sökum lít-
ið leikið sem glöggt sást á leik liðs-
ins. „Það var afar slæmt byrja svona
illa og ég held að það hafi gert útslag-
ið, því það kostaði of mikla orku að
vinna muninn upp þó litlu hafi munað
að þessu sinni,“ sagði Jón Kr. Gísla-
son ennfremur.
Bestu menn Njarðvíkinga voru
Rondey Robinson og Teitur Órlygsson
sem hefur verið í banastuði að undan-
förnu. Priðrik Ragnarsson og Jóhann-
es Kristbjörnsson léku einnig vel. Hjá
Keflvíkingum var Albert Oskarsson
sá eini sem sýndi virkilega baráttu
allan leikinn. Falur Harðarson, Davíð
Grissom og Lenear Burns voru þó
góðir í síðari hálfleik.
Dramatík
aðhætti
ÍR-inga
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
EIRÍKUR Önundarson var
hetja ÍR-inga í gærkvöldi þeg-
ar liðið sigraði Hauka 84:82 í
æsispennandi og fjörugum
leik. Eiríkur skoraði sigurkörf-
una á síðasta sekúndubroti
leiksins og fögnuður ÍR-inga
var mikill.
Það má með sanni segja að
ævintýrin gerist enn í Selja-
skólanum, en í fyrra voru flest
allir leikir ÍR jafnir
og skemmtilegir og
leikurinn í gær-
kvöldi var svo sann-
arlega dramatískur
að hætti ÍR. Spenna, hraði, glæsi-
leg tilþrif og mikið um mistök
urðu til þess að áhorfendur
skemmtu sér hið besta og hafi
bæði lið þökk fyrir.
„Við ætluðum að setja upp
ákveðið kerfi en svo fékk ég bolt-
ann vegna þess að ég var frír. Ég
ætlaði að koma honum á Hebba
[Herbert Arnarson] en hann var
umkringdur mönnum þannig að
ég tók bara á rás. Ég hugsaði um
það eitt að komast sem næst körf-
unni en var ansi hræddur um að
ég hefði eytt of miklum tíma, en
ég varð að komast framhjá Willi-
ford áður en ég náði skotinu. Þetta
var náttúrlega bölvaður grís,“
sagði Eiríkur eftir að hann gerði
sigurkörfuna.
Haukar unnu ÍR stórt í 3. um-
ferð og höfðu sigrað í níu leikjum
í röð þegar þeir mættu fullir sjálfs-
trausts í Seljaskólann. Byijunin
var ekki góð hjá Haukum sem
áttu í miklum vandræðum gegn
mjög ákveðnum og grimmum
heimamönnum þar sem Eggert
Garðarsson gaf rétta tóninn með
mikilli baráttu, bæði í vörn, þar
sem hann gætti Willifords af kost-
gæfni, og í sókninni. Heimamenn
leiddu með 14 stigum í leikhléi.
Haukar tóku sér tak í síðari
Bayless einn á
móti öllum
Það tók okkur heilan hálfleik að trúa
því hvað Ronald Bayless vseri
góður og bregðast rétt við honum,“
sagði Tómas Holton, þjálfari og leik-
maður Skallagríms, eftir sigur heima-
manna 95:83 á Valsmönnum í Borgar-
nesi. „En þetta eru kærkomin stig, við
erum búnir að vera í vandræðum og
mjög gott að fá sigur. Við verðum síð-
an að gíra okkur upp aftur því við
mætum Val aftur í bikarkeppninni eft-
ir viku og við ætlum okkur ekki að
detta strax út eins og í fyrra.
Torfi Magnússon þjálfari Valsmanna
var aldeilis undrandi á sínum mönnum:
„Ég hef bara aldrei séð svona fýrr,
heilt lið bara starir og horfir á einn
mann skora öll stigin í einum hálfleik,
mér finnst þetta alveg makalaust fyrir-
brigði og þetta kann ekki góðri lukku
að stýra,“ sagði Torfi.
Það er óhætt að segja að Ronald
Bayless hafi verið allt í öllu hjá Valslið-
inu í fyrri hálfleiknum, því hann skor-
aði alls 38 stig en félagar hans skoruðu
hins vegar ekkert stig og virtust hálf-
staðir. Þó heimamenn hefðu yfirhönd-
ina þá gekk þeim ekkert að stöðva
Ronald Bayless sem var kattliðugur og
„sjóðheitur" og munurinn í leikhléi var
ekki nema 5 stig, 43:38.
Borgnesingarnir breyttu síðan vörn-
inni eftir Ieikhlé og náðu að halda Ron-
ald alveg niðri, sem sást best á því að
hann skoraði ekki nema 2 stig í seinni
hálfleiknum. En öðrum Valsmönnum
var hins vegar leyft að skjóta að vild.
Eftir að Ronald hafði verið „klipptur"
út voru aðrir Valsmenn lítil fyrirstaða
fyrir heimamenfl sem komust fljótlega
í 20 stiga forskot. Borgnesingar skiptu
síðan öruggir varamönnum sínum inn
á þegar.6 mínútur voru eftir af leiknum
og sigruðu af öryggi 95:83.
Ronald Bayless var yfirburðamaður
hjá Val, ívar Webster og Pétur M. Sig-
urðsson tóku við sér í seinni hálfleik
og byijuðu að skora en það var of seint.
Hjá heimamönnum var Alexander
mjög sterkur og öruggur en einnig áttu
þeir Grétar Guðlaugsson og Ari Gunn-
arsson góðan leik.
Morgunblaðið/Bjarni
hálfleiknum og gerðu þá 51 stig
á móti 31 í fyrri hálfleiknum. Þeg-
ar tæpar fimm mínútur voru eftir
komust þeir yfír í fyrsta sinn,
73:73, og ÍR-ingar Voru komnir í
villuvandræði, Eggert farinn út
af með 5 villur og Rhodes og Eirík-
ur báðir með 4 villur. Hinum meg-
in hafði Sigfús fengið 4. villu sína
og verið á bekknum um tíma.
Hann kom Haukum í 75:78 með
þriggja stiga körfu og fékk síðan
fimmtu villuna.
Síðustu tvær mínúturnar voru
rosalega spennandi. Haukar voru
yfir, 77:80, en Herbert jafnaði með
þriggja stiga körfu er 1,26 míri.
voru eftir og Jón Örn náði boltan-
um af Haukunum og Herbert kom
ÍR í 82:80 er 35 sekúndur voru
eftir. Þegar 13 sekúndur voru eft-
ir varði Rhodes skot frá Williford
og þegar 3,44 sekúndur voru til
leiksloka mistókst þriggja stiga
skot hjá Jóni Arnari. IR-ingar
brutu á Williford um leið og innk-
astið var tekið og hann jafnaði af
vítalínunni, en þar voru Haukum
mislagðar hendur í gærkvöldi.
Lokakörfu Eiríks var lýst hér að
framan.
Það fór ekki mikið fyrir Herbert
í fyrri hálfleik, en samt gerði hann
19 stig! Hann lék mjög vel í síðari
hálfleiknum og þá ekki síður í
vörn en sókn. Rhodes var gríðar-
lega sterkur að þessu sinni og var
þetta með betri leikjum hans í
vetur. Hann varði nokkur skot og
var alltaf undir körfunni til hjálpar
ef einhver missti mótheija framhjá
sér. Þáttur Eggerts var mikill eins
og áður segir.
Jón Arnar var góður hjá Hauk-
um og Sigfús einnig. Williford
náði sér ekki verulega á strik,
enda í strangri gæslu allan tímann
bæði hjá Eggerti og Herbert.
Björgvin Jónsson var einnig sterk-
ur í liði Hauka.
KNATTSPYRNA
Ungverjar
mæta Skotum
Búið er að draga í 8-liða úrslit í
keppni ungmennaliða í Evrópu,
liða skipuð leikmönnum undir 21
árs aldri, semjafnframt er undan-
keppni fyrir OL í Atlanta 1996.
Ungverjar, sem lögðu Islendinga
að velli á dögunum í Bútapest,
leika gegn Skotum, Portúgal - ítal-
ía, Þýskaland - Frakkland og
Spánn - Tékkland.
Ungverjar eða Skotar leika
gegn Spánverjum eða Tékkum í
undanúrslitum.
1 ég ad skjóta?
SIGFUS Gizurarson gjóar hér augunum í átt að körfu IR-inga og er ekkl alveg klár á hvort
hann eigi að leggja í að skjóta. Sigfús átti góðan leik í gær en það dugði ekkl tll í dramatísk-
um leik þar sem ÍR hafði betur, en Haukar höfðu sigrað í 9 leikjum í röð.
Aðalfundur
knattspyrnudeildar ÍR
verður haldinn fimmtudaginn
23. nóvember 1995 kl. 20.30
í ÍR-heimilinu við Skógarsel.
Mætum öll.
Stjórn knattspyrnudeildar ÍR.