Morgunblaðið - 17.11.1995, Qupperneq 4
mam
Keilismenn á förum til Evrópukeppni golfklúbba í Portúgal
„Ágætt til að halda
sveíflunni við“
Morgunblaðið/óskar Sæmundsson
KNATTSPYRNA
Tomas Brolin
tilLeeds
„ÞRÁTT fyrir að það hafi verið
gott veður hefur ekki verið
hægt að æfa mikið úti. Það
'Ker myrkur þegar maður fer i
vinnuna á morgnana og það
er myrkur þegar maður hefur
lokið vinnudeginum," sagði
Sveinn Sigurbergsson, kylf-
ingur í karlasveit Golfklúbbs-
ins Keili úr Hafnarfirði, sem
heldur í dag til Portúgals, þar
sem sveitin tekur þátt í Evr-
ópukeppni golfklúbba, sem
hefst á miðvikudaginn kemur.
Kylfingarnir hafa æft í Golf-
heimi að undanförnu og undir-
búið sig fyrir keppnina. „Við
höfum æft hérna eins og við
getum og það er ágætt til áð
halda sveiflunni við,“ sagði
Sveinn.
Sveitina skipa íslandsmeistarinn
Björgvin Sigurbergsson,
Sveinn Sigurbergsson og Tryggvi
Traustason og hafa þeir æft eins
og kostur er að undanförnu.
Keilir tók síðast þátt í Evrópu-
keppninni árið 1993 og lenti þá í
6. til 7. sæti af rúmlega 20 þjóðum.
„Við ætlum að reyna að gera betur
núna og maður vonast bara til að
við tökum upp þráðinn þar sem frá
i var horfíð í mótinu á Spáni 1993,“
sagði Björgvin, en hann bætti sig
á hverjum hring í því móti og jafn-
aði vallarmetið á síðasta hringum
er hann hann lék á þremur undir
pari vallarins.
Að þessu sinni er keppnisvöllur-
inn lengri og erfiðari en keppt er
á Vilamaura II vellinum og er ætl-
un Keilismanna að ná nokkrum
hringjum í Portúgal áður en mótið
hefst á miðvikudaginn. Meistara-
flokkskylfingamir sáu um fimm
styrktarmót í haust til að standa
straum af kostnaði og var fullt í
öll mótin. Einar Long úr GR og
Keilismaðurinn Ásgeir Guðbjarts-
son urðu jafnir í þessari mótaröð á
‘ 216 höggum, en þrjú bestu mótin
töldu, og léku bráðabana um sigur
og hafði Ásgeir betur og hlaut ut-
anlandsferð að launum. I keppninni
með forgjöf urðu GR-ingarnir Jósep
G. Adessa og Hans Kristjánsson
eftir á 192 höggum og hafði Jósep
betur í 18 holu umspili. Dregið var
úr lukkumiðum og handhafar eftir-
talinna númera eiga vinninga hjá
Keili, 28, 40, 52 og 76.
Björgvin Sigurbergsson meiddist
á fæti fyrir hálfum mánuði en er
allur að koma til og ætlar að láta
sig hafa það að keppa, enda hefur
hann af hörðu stundað æfingarnar
eins og hægt hefur verið. Björgvin
sneri sig illa á hægri ökkla á fót-
boltaæfingu. „Þetta er allt í lagi,
ef ég verð ekki nógu góður spila
BJÖRGVIN Sigurbergsson
og félagar í Keill taka þðtt í
Evrópukeppninni í Portúgal
í vikunni. Hér er Björgvin að
reyna að halda é sér hlta á
landsmótínu i sumar og
sambýliskona hans, Heið-
rún Jóhannsdóttir, fylgist
með.
ég bara á hnjánum," sagði meistar-
inn. Keilissveitin hefur æft í Golf-
heimum eins og áður segir og hef-
ur verið undir handleiðslu Arnars
Más Ólafssonar, en tveir aðrir
kennarar verða með aðstöðu þar í
vetur, þeir Martyn Knipe og Ástr-
áður Sigurðsson.
Hola í höggi
Samfara mótaröðinni var hólma-
keppni, sem fólst í því að menn
gátu keypt bolta og reynt að slá
þá sem næst holu sem sett var í
hólma á æfingasvæði félagsins, 53
metra högg. Síðasta daginn gerði
Helga Gunnarsdóttir sér lítið fyrir
og fór holu í höggi og sigraði því
með glæsibrag. Helga keypti fyrst
tíu bolta og sló þá alla út og suður
en áður en hún hætti ákvað hún
að fá tvo til viðbótar. Fyrra höggið
var passlega langt en dálítð skakkt
en þegar hún sló síðari boltann fór
hann rakleiðis í holuna.
Sænski landsliðsmaðurinn Tom-
as Brolin, sem hefur leikið
með Parma á Ítalíu, er á leiðinni
til Leeds United í Englandi þrátt
fyrir allt. Hann neitaði þessum
fréttum á dögunum en í gær hafði
TT fréttastofan eftir Lars Peterson,
umboðsmanni Brolins, að þeir
myndu skrifa undir samning við
Leeds fyrir helgi. Parma og Leeds
hafa komist að samkomulagi og því
á Brolin aðeins eftir að skrifa und-
ir og sagði TT að hann gæti hafið
æfingar strax í dag og hugsanlega
verið með gegn Chelsea á morgun.
Lars Peterson, umboðsmaður
Brolin, sem fór með honum frá
Norrköping, sagði að samningurinn
við Leeds myndi gera Brolin að
dýrasta knattspyrnumanni í knatt-
spyrnusögu Svíþjóðar.
Sænskt blað sagði frá því að
kaupverð Leeds á Brolin væri um
THOMAS Brolin.
512 millj. ísl. kr.’ og mun Leeds
borga 64 millj. kr. á þessu keppnis-
tímabili en ljúka greiðslum á tveim-
ur og hálfu ári.
Vitað var að Brolin fór fram á
að fá vel yfir 700 þús. kr. í viku-
laun hjá Leeds.
Ajax selur
Ungverjum
ekki miða
EVRÓPUMEISTARARNIR í
Ajax frá Hollandi liafa
ákveðið I samráði við borgar-
stjórann í Amsterdam og lög-
reglustjórann að se(ja stuðn-
ingsmönnum ungverska liðs-
ins Ferencvaros ekki miða á
leik liðanna í Amsterdam 6.
desember, en þá eiga liðin
að mætast í meistaradeild-
inni. Ástæða þessa er að þeg-
ar Ajax lék í Ungverjalandi
svívirtu stuðningsmenn Fer-
encvaros nokkra leikmenn
Ajax vegna litharháttar
þeirra.
Mendoza
hættir hjá
Real Madrid
RAMON Mendoza, stjómar-
formaður Real Madrid, sem
hefur starfað hjá félaginu í
hátt í ellefu ár, hefur sagt
starfi sínu lausu. Ástæðan
fyrir uppsögn hans er slæmt
gengi liðsins á keppnistíma-
bilinu. „Michel“ Gonzalez,
miðvallarspilari liðsins, sem
varð fimm sinnum meistari
með Real á árunum 1986 til
1990, sagði að það væri leitt
að heyra að Mendoza væri
hættur — hann væri maður
sem hefði lagt hart að sér
og hefði viljað fara frá Real
Madrid á annan hátt.
Mancini
fékk fimm
leikja bann
ROBERTO Mancini, fyrirliði
Sampdoría, hefur verið
dæmdur í fimm leikja bami
á Ítalíu. Hann missti stjóm
á skapi sínu og réðst að dóm-
ara í leik liðsins gegn Inter
Mílanó á dögunum og var
rekinn af leikvelli. Þá var
hann dæmdur til að greiða
320 ísl. kr.! sekt. Sampdoría
fékk einnig sekt — 1,2 millj.
kr.
Mattháus
afturá
ferðinni
ÞAÐ getur farið svo að Lot-
liar Matthaus, fyrirliði Bay-
em Miinchen, leiki með lið-
inu gegn Werder Bremen á
Ólympíuleikvanginum í
MUnchen á morgun, aðeins
rúmri viku eftir að hann
byrjaði að æfa á fullum
krafti eftir meiðsli — kapp-
inn hefur ekki leikið með
Bæjurum síðan i janúar.
Andrúmsloftið hjá Bayera
hefur ekki verið gott síðan
liðið tapaði fyrir Dortmund
á dögununi og ekki lagaðist
það þegar liðið varð að sætta
sig við jafntefli, 0:0, gegn
Hansa Rostock um sl. helgi.
Forráðamenu liðsins vonast
til að Matthaus komi raeð
nýtt blóð í leik liðsins og
andrúmsloftið batni við
komu hans.