Morgunblaðið - 22.11.1995, Blaðsíða 1
| ÞRAUTlR~j
Heimilisfang:
MYIMDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 22. NOVEMBER 1995
D
BLAÐ
Verðlaunauppskriftir
EINS og stóð í síðustu Mynda-
sögum birtum við uppskriftir
aðalvinningshafa í Kjörís/
LEGO leiknum í blaðinu í dag.
Fyrstu verðlaun hlutu, eins og
kom fram í síðustu Myndasög-
um, systkinin Karl Sölvi og
Valgerður Sigurðarbörn, Flúð-
aseli 65,109 Reykjavík. Þeirra
uppskrift er svona:
Mamma okkar sagði okkur
frá Ríkharði ljónshjarta sem
sneri aftur til Englands árið
1194 eftir að hafa verið haldið
föngnum í Austurríki, að ekki
sé minnst á aðra hrakninga
krossfarans. Við erum viss um
að hann hefði viljað að sér
yrði haldin svona veisla í ein-
hverjum glæsikastala:
Á stóru fati í miðjum veis-
lusalnum eru mörg stykki af
vanillu- og jarðarberja-Sparís,
sem búið er að losa úr lítrafor-
munum. Þeim er staflað í pýr-
amída, en stærð hans fer eftir
því hversu margir veislugest-
imir eru. Marengskökur hafa
verið lagðar ofan á flesta slétta
fleti, bananasneiðar festar ut-
an á hér og þar, súkkulaðisósu
hellt yfir allt saman og kókos-
mjöli látið snjóa yfir hana.
Þetta er sjón sem lætur alla
gesti fá vatn í munninn en~
gleður augu þeirra enn meira
ef kveikt er á stjörnuljósum á
pýramídanum um leið og sagt
er: Gjörið þið svo vel!
Ríkharður hefði ekki þurft
að hafa neinn snilldarkokk til
að útbúa þessa ísveislu, það
getur hver sem er.
Svo hefst veislugleðin fyrir
alvöru.
Og þegar allir hafa skemmt
sér vel og lengi finnst krökk-
unum í kastalanum gott að fá
sér fagurgræna Hlunka en
fullorðna fólkið fær sjóðheitt
og ilmandi kaffi frá Austur-
löndum og frískandi Pipp-ís
með...
... En Ríkharður Ijónshjarta
fékk enga svona veislu enda
dó hann skömmu siðar og
eyddi reyndar því litla sem
eftir var ævinnar í Frakklandi.
Róbert Oddsson, Lækjar-
túni 13a, 270 Mosfellsbær,
hreppti önnur verðlaun. Hans
uppskrift er svona:
Veislurétturinn heitir
Skjöldur og sverð (Ríkharðs
ljónshjarta):
1 lítri vanillumjúkís frá Kjörís
1 lítri súkkulaðimjúkís frá
Kjörís
6 Hlunkar (6 í kassa)
1 flaska Ice Magic (sósan sem
harðnar) eða önnur súkkulaði-
sósa
Vanillumjúkísnum og súkk-
ulaðimjúkísnum er hvolft á
fat, hlið við hlið, og mótað í
skjöld. Látið aftur í frystinn í
um það bil (u.þ.b.) 30 mínút-
ur. Sprautið sósunni á hálfan
skjöldinn, raðið síðan Hlunk-
unum í sverð fjórum í röð og
tveimur þvert á.
Meðfylgjandi teikning skýr-
ir uppskriftina.
Tryggvi Páll Kristjánsson,
Bárugötu 34, 101 Reykjavík,
fékk þriðju verðlaun:
Kastali Ríkharðs ljóns-
hjarta!
Skerið niður vanillu- og
súkkulaðimjúkís frá Kjörís í
bita og frystið aftur, helst yfir
nótt. Síðan er bitunum raðað
upp í óreglulegri röð, hvað
varðar liti, og búinn til kast-
ali. Síðan er hann skreyttur
með LEGO-körlum. í þennan
ísrétt þarf mikinn ís frá Kjörís.
Til dæmis er hægt að frysta
ískastalann á LEGO-plötu,
grænni, þá er auðveldara að
festa hlutina á og heildar-
myndin verður skemmtilegri á
að líta.
Verði ykkur að góðu!
Mörg ykkar senduð myndir
með tillögunum að ísveislunni.
Ákveðið var að veita viður-
kenningu, svona auka - ávísun
á 5 Hlunka - fyrir nokkrar
þeirra. Við birtum þær hér
með ísveislunum. Kjörís,
LEGO og Myndasögur Mogg-
ans þakka ykkur öllum sem
tókuð þátt í leiknum fyrir þátt-
tökuna og óska vinnings-
höfunum til hamingju.
Kjörís og LEGO munu á
næstu dögum senda verð-
launahöfunum vinningana.
ÞÓRODDUR Björnsson, Urðarbakka 16, 109 Reykjavík, gerði
þessa flottu mynd.
MARÍA Björg Magnúsdóttir, Lækjarhvammi 16, 220 Hafnar-
fjörður, er höfundur þessarar skemmtilegu myndar.
HANNES Þ. Þorvaldsson teiknaði og litaði fína mynd.
JÓN Helgi Hólmgeirsson, Hvassaleiti 157, 103 Reykjavík, er listamaðurinn sem
gerði þessa glæsilegu kastalamynd.
| J