Morgunblaðið - 24.11.1995, Qupperneq 1
1995
FOSTUDAGUR 24. NOVEMBER
BLAÐ
C
KORFUKNATTLEIKUR
íslandsmeistararnir úr leik
Morgunblaðið/Kristinn
HAUKAR héldu sigurgöngu sinni áfram í gærkvöldi er þeir lögðu íslandsmeistara Njarövíkur í 16-liða úrslitum
bikarkeppninnar. Hér er það Rondey Robinson sem tekur frákast en Pétur Ingvarsson virðist eitthvað utan-
gátta. Hann var það þó ekki á lokasekúndunni er hann skoraði sigurkörfuna um lelð og klukkan gall.
Atli Knútsson með
Leiftursmönnum
ATLI Knútsson, mark-
vörður ungmenna-
landsliðsins og var-
markvörður 1. deild-
arliðs KR, hefur
ákveðið að skipta úr
KR og samkvæmt
heimildum Morgun-
blaðsins ætlar hann að
öllu óbreyttu að ganga
til liðs við Leiftur í
Ólafsfirði. Atli til-
kynnti KR-ingum fyrir
skömmu að hann yrði
ekki áfram hjá félag-
inu og hefur æft með
Leiftursmönnum síð-
an.
Jón Stefánsson,
Breiðabliki, hefur
einnig verið á æfing-
um hjá Leiftri síðustu
vikur en ekki liggur fyrir hvort af félagaskiptum
verður.
Ólafur í Fram
KEFLVÍKINGURINN Ólafur Pétursson, mark-
vörður sem lék með Þór frá Akureyri í 2. deild-
inni í knattspyrnu sl. sumar, ákvað í gær að
Ieika með Fram í 2. deild næsta keppnistímabil.
Pétur í viðræðum
við Hammerby
PÉTUR Marteinsson, varnarmaður úr Fram, held-
ur utan til Svíþjóðar í dag til viðræðna við forráða-
menn sænska liðsins Hammerby. Pétur sagði við
Morgunblaðið í gærkvöldi að forráðamenn félags-
ins hafi tvívegis haft samband við sig og sýnt
áhuga. „Ég er að fara út til að skoða aðstæður
og síðan verður bara að koma í ljóshvort áhugi
er af beggja hálfu fyrir samningi. Ég er spenntur
fyrir því að breyta aðeins til og skoða því þetta
dæmi með opnum huga,“ sagði Pétur.
Hammerby er frá Stokkhólmi og féll úr úrvals-
deildinni nú í haust.
Kristinn í leikbann
STJÓRN körfuknattleiksdeildar Þórs á Akureyri
ákvað á fundi sínum í gær að Kristinn Friðriks-
son, einn besti leikmaður liðsins, yrði settur í
ótimabundið leikbann með félaginu vegna aga-
brots. Andri Gylfason, formaður körfuknattleiks-
deildar Þórs, sagði við Morgunblaðið að aðalstjórn
félagsins hafi einnig fjallað um mál Kristins á
fundi í gær og hafi stutt úrskurð körfuknattleiks-
deildarinnar. „Þrátt fyrir þennan úrskurð er
Kristinn enn félagi í Þór,“ sagði Andri.
HANDKNATTLEIKUR || KNATTSPYRNA
Sigurður tók
fram skóna á ný
Sigurður Gunnarsson, fyrrum landsl-
iðsmaður í handknattleik, sem þjálfar
nú lið Bodö í Noregi, tók fram skóna á ný
í vikunni — kom inn á í leik gegn Matthí-
asi Matthíassyni og félögum í Elverum
á heimavelli í 1. deildarkeppninni. Sigurð-
ur kom inn á um miðjan fyrri hálfleik
og gerði strax eitt mark, en hafði sig
ekki mikið í frammi eftir það og spilaði
lítið sem ekkert í síðari hálfleik. Leikur-
inn var jafn og spennandi en Elverum
var sterkara á endasprettinum og sigraði
29:26. Matthías lék vel og gerði fimm
mörk. Matthías og samherjar eru í öðru
sæti deildarinnar með 11 stig eftir sjö
umferðir en lærisveinum Sigurðar hefur
hins vegar ekki gengið eins vel og eru
næst neðstir með aðeins þrjú stig eftir
jafn marga leiki.
Sigurður
Graeme Le Saux og David Batty eiga von á harðri refsingu
Slagsmálin íhendur
Evrópusambandsins
ENSKA knattspyrnusambandið
hvatti Knattspyrnusamband
Evrópu, UEFA, til að taka á
slagsmálunum sem brutust út á
milli Graeme Le Saux og David
Batty, ensku landsliðsmann-
anna hjá Blackburn, í leik liðs-
ins gegn Spartak í Meistara-
deild Evrópu í Moskvu í fyrra-
kvöld. Eins og Morgunblaðið
greindi frá í gær sló Le Saux
félaga sinn þegar fjórar mínút-
ur voru liðnar af leiknum og
þótti framkoma leikmannanna
langt því frá að vera við hæfi
en leiknum var sjónvarpað beint
til margra landa, m.a. Islands.
Ray Harford, yfirþjálfari
Blackburn, hefur gefið til kynna
að félagið sekti leikmennina og
hefur verið rætt um andvirði
hálfsmánaðar launa í því sam-
bandi en talsmaður Knatt-
spyrnusambands Englands
sagði að sekt eða önnur við-
brögð Blackburn kæmu ekki í
veg fyrir frekari refsingu.
„Þetta atvik liggur þungt á okk-
ur og að okkar mati á að taka
á málinu. UEFA hefur með leik-
inn að gera og við ætlum að
skrifa sambandinu og biðja það
um að rannsaka það frekar.
Hins vegar viðurkennir UEFA
yfirleitt ekki myndbandsupp-
tökur sem sönnunargögn eins
og við gerum og því ræðst fram-
haldið að miklu leyti á skýrslu
eftirlitsmannsins og dómarans.
En við teyum að eithvað verði
að gera.“
SMÁÞJÓÐALEIKARNIR Á ÍSLAIMDIÞEIR VIÐAMESTU OG STÆRSTU / C3